Morgunblaðið - 29.07.1936, Blaðsíða 4
4
Miðvikudaghm ?8: #1|
Framhald a( 3. sfiðti.
„ Eru Islendingar orðnir þess
sinnis að þeir láti hýða sig á
almanna færi — fyrir borgun?“.
áhyggjum s'num á utanr'kis-
málaráðuneyti Dana til þess
að fyrirbyggja að „fjsuidsam-
leg skrif“ birtist um land
vort.
Eftir heimkomu Staunings
flytja dönsku blöðin ummæli
um ísland, sem mótmælt væri
jafnharðan, ef íslenska stjórn-
in væri á verði.
Stjórnarblöðin lögðu áherslu
á það á dögunum, að Extra-
blaðið væri saurblað ,,mesta
sorpblað Kaupmannahafnar" o.
s. frv.
En úr því að ástæða var
til að mótmæla „fjandsam-
legu skrifi“ í slíku blaði,
hversu miklrt meiri ástæða er
þá ekkí til að mótm.æla sams-
konar skrifum, og jafnvel
ennþá illkynjaðri, þegar þau
birtast í blöðum, sem njóta
fylsta trausts, ekki síst þegar
ummælin eru höfð eftir
mönnum á hæstu stöðum eða
verða með miklum rjetti rak-
! in beint til þeirra.
Stauning sjálfur hefir ekki
farið dult með það í blaðavið-
tölum, að fjárhagur Islands
væri mjög bágborinn. Orðum
slíks manns er ekki einungis
veitt athygli í Danmörku, held-
, ur og í þeim löndum, sem við
íslendingar eigum mikið undir,
að lánstraust okkar fari ekki
alveg forgörðum.
Slík ummæli geta því ekki
verið til bóta íslenskum mál-
stað.
Eða hvað segja menn um
það, þegar „Politiken" birtir
viðtal við Stauning undir feitri
fyrirsögn:
SAMNINGAR VIÐ ÍS-
LENDINGA OG FÆREY-
INGA UM RÍKISSTYRK
TIL EFLINGAR ATVINNU-
LÍFINU.
Enginn íslendingur trúir því,
þótt djúpt sje sokkið, að ís-
lenska ríkisstjórnin hafi sótt um
danskan ríkisstyrk til eflingar
atvinnulífinu hjer á landi.
En hvers vegna mótmælir
stjórnin þessu ekki. Það er
sýnilegt að „ritskoðun" sú,
sem danska utanríkismála-
ráðuneytinu var hjer ætlað
að framkvæma, kemur að
engu haldi.
Og þó 'verður að segja það,
að „fjandsamlegustu ummæl-
in“, sem ennþá hafa birst um
Island, eftir að við fengum full-
vreldisviðurkenninguna, er grein
in í Socialdemokraten, þar sem
íslendingar eru notaðir sem
grýla á Færeyinga.
Hafi nokkurn tíma verið
ásiæða til mótmæla, þá var
það, er' slík ummæli birtust.
En hjer var ekki hægt um
vik. Socialdemokraten er blað
Staunings. Stauning er nýkom-
inn frá Islandi, og það er óhugs-
andi að blaðið hefði alt í einu
farið að draga ísland fram, sem
víti til varnaðar, ef Stauning
hefði ekki fyrir sitt leyti álitið
eftir viðtal við stjórnina „sína“
hjer, að óhætt væri að leysa
frá skjóðunni.
Stjórnin okkar er eins og mús
undir fjalaketti. Fyrir heim-
sókn Staunings gerði hún sig
, afar breiða er illa var látið af
I *
fjárhag landsins í „ómerkileg-
asta sorpblaði Kaupmannahafn-
ar“. Þegar Stauning lýsir fjár-
hagnum mjög á sömu lund,
lygnir hún augunum og hefst
ekki að. Þegar Socialdemokrat-
en — blað Staunings — gerir
okkur að grýlu á „minstu syst-
ur“ í Færeyjum er þetta látið
gott heita.
Og þegar Folitiken talar
um danskan „ríkisstyrk“ til
íslands í fyrirsögn að við-
tali við Stauning, þá er þetta
talið gott og blessað.
Fyrir fám vikum hafði stjórn-
in þann skilning á hlutverki
sínu að henni bæri að mótmæla,
„fjandsamlegum skrifum“ um
ísland. Nú er eins og íslend-
ingum komi þetta ekkert við
framar. Það er danska utanrík-
ismálaráðuneytið sem á að sjá
um „ritskoðunina“.
Hvað boðar' þetta dauðamók?
Ber að skilja það sem tákn þess
að „sigraðir menn verði að
sætta sig við alt“?
Hafa Danir fyrir „hjálpina“
í landhelgismálunum og utan-
ríkismálunum -— að ógleymd-
um „ríkisstyrknum“ — áskilið
sjer að mega niðra íslending-
um eftir vild og nota þá jafnvel
sem grýlu, ef því væri að skifta?
Eru íslendingar orðnir þess
sinnis að þeir láti hýða sig á
almannafæri
un?
fyrir borg-
Þangað fara Reykvfkingar
um næstu helgi!
Þriggja daga háttða-
liöld á Þingvðllnm.
Nýjar kartðflur
Grettisgötu 46.
Sími 4671.
Verslunarmenn halda sína
árlegu hátíð að Þing-
völlum um næstu helgi.
Verður þar fjör og gleði í
þrjá daga samfleytt.
Undirbúningsnefnd verslunar-
manna hefir gert márgskonar ráð-
stafanir til þess að fólki geti liðið
sem best þessa þrjá daga á Þing-
völlum. Tjaldbúðir hafa verið
reistar; hestar með öllum reið-
týgjum verða til leigu, bátar a
Þingvaltavatni og hátíðargestir
fá ókeypis veiðirjettindi i Þing-
vallavatni og auk þess verða bíl-
ar til taks til skemtiferða um ná-
grennið.
Þá geta gestir fengið að tjalda
í ÞingvaHa, og Brúsastaðalandi án
endurgjalds. Á laugardags og
sunnudagskvöld verður símstöðin
á Þingvöllum opin til miðnættis
'Gistingu og mat í Yalhöll verða
menn að panta fyrir fimtudags-
kvöld.
Hátjðin hefst á laugardags-
kvöld með dansleik í Valhöll.
Sunnudagínn 2. ágúst heldur
hátíðardagskráin áfram með því
að Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
nokkur lög í Almannagjá. Því
næst flytur Stefán Stefánsson er-
indi á Lögbergi um hinn forna
þingstað.
Kappleikur um knatt-
spyrnubikar O. John-
son & Kaaber.
Eftir matarhlje, sem verður
milli 12 og 2 leikur Lúðrasveitin
við knattspyrnusvæðið. Kl. 2y2
hefst spennandi knattspyrnukapp-
leikur milli starfsmanna heild-
sala og smásala um hinn fagra
bikar sem 0. J. & Kaaber gáfu í
fyrra.
Smásalarnir unnu kappleikinn í
fyrra, Munu heildsalarnir hafa
fullan hug á að vinna að þessu
sinni. Yerður því ekki gott að
segja um úrslitin.
Eftir að khattspyrnunni er lok-
ið, verða frjálsar skemtanir.'
■ Um kvöldið leikur Lúðrfasveitin
og dansleikur verður í Valhöll. Að
dansleiknum loknum verður flug-
eldum skotið.
Á mánudagsmorgun verður far-
ið í skemtiferð um Þingvallavatn
og nágrenní Þingvalla. Eftir há-
degi verða frjálsar skemtanir. Frá
8—11 um kvöldið verður dans-
leikur í Yalhöll og að honum
loknum verður skemtuninni slitið
með flugeldasýningu.
DráKarvexílr
falla á 1. fimtaRluta útsvara þessa árs um mánaðamótin.
Jafnframt fellur í gjalddaga 3. fimtihluti útsvara. Gjald-
dagi 1. fimta hlutar var 1. júní og og 2. fimta hlutar
1. júlí.
Bæjargjaldkeri
Reykjavíkur.
Veðdeildarbrjef 10. fiokkur.
Hef verið beðinn að kaupa nokkur þúsund.
Lárns Jóhannesson,
Iiæstarjettarmálaflutningsmaður.
Suðurgötu 14. Sími 4314.
Sími 2039.
Seljum nú flestar tegundir af grænmeti.
Mikið úrval af lifandi blómum.
Flóra
Fyrlrligglandl.
Rúgmjöl, Haframjöl fínf og gróft,
Hrísgrjón, hellensk og pplsk,
Hrísmjöl, Hveiti og Sykur.
. . I
5ig. Jp. Skjalöberg.
Riiðugler.
Útvegum allar tegundir af rúðugleri
frá Þýskalandi og Belgíu.
Eggert KristjánssDn S, Ca.
Ný bék.
Sálmasöngsbók
til kirkju- og heimasöngs. — Búið hafa til prentunar:
Sigfús Einarsson og Páll ísélfsson.
Verð ib. kr. 20.00. — Fæst hjá bóksölum.
Bókaverslun ttigfúsar Eymundssonar
og Bókabúð Ansturbæjar, B. S. E„ Laugaveg 34.
Glænýr
smálax
óg reyktur rauðmagi
Verslunln
KfSt & Fiwkur
Sfimar 3828 og 4764
Lax,
uýr og reyktur.
Hólsfjalla hangikjöt,
Tómatar,
Blómkál, I
Rófur.
Rabarbari.
Jóhannes Jóhannsson,
Gnmdarstíg 2. — Sími 4131.