Morgunblaðið - 12.08.1936, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.08.1936, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 12. ág. 1936. MORGUNBLAÐIÐ Báðir nótabátarnir af Erni \ t' fundnir mannlausir. Fá sfldveiðiskip komu inn i gær. En afli góður við Langanes. AA ÖRG skip voru að síld- * V * veiðum við Langanes í gærdag og var afli þar góður. Einnig veiddist síld á Grímseyjarsundi og út af Sigluf j arðarmynni. Fá ■ ískip komu þó inn í gær. Reknetaveiði hefir verið heldur treg undanfarið. 1 fyrrinótt var logn og því lítið drif hjá rekneta^ bátum. Huginn frá Hafnarfirðí kom til 'Siglufjarðar í gær með 1200 mál, «em hann veiddi við Langanes. Huginn III. var með 600 mál. Kári kom með 300 tunnur af Grímseyj- arsundi í salt. Einnig komu nokk- xir fleiri skip með meiri og minni afla. Von var á mörgum skipum með síld iað austan í nótt. Ríkisverksmiðjurnar eiga eftir eins og tveggja sólarhringa bræðslu. En Hjaltalínsverksmiðjan og ,Grána“ eru alveg fullar. Smokkflskur inn á ísaffarðardjúp. Isafirði, 11. ágúst. FÚ. Talsvert af smokkfiski rak í nótt á ísafirði, og segja sjómenn miikla smokkátu í Djúpinu og úti fyrir Vestfjörðum. Er þegar hafinn und- irbúningur undir smokkfiskveiðar. Sæmilegur síldarafli hefir verið á reknetabáta, en þó ærið misjafn. Sfldin er fremur homð og fer þverr andi. Telja sjómenn smokkinn reka síldina inn í firðina. Sjómenn er stunda handfæraveið ar í Húnaflóa segja mikla smokjk- átu þar. Tæp ÍO þús. fonn af karfa komln á land FÚ. 11. ágúst. Á Sólbakka höfðu verið lagðar á land 9257 smálestir af karfa um síðastliðna helgi. f Hávarður Isfirðingur hafði lagt á land 2765 smálestir, Sindri 2442 smálestir, Þorfinnur 2387 smálestir og Hafsteinn, sem nú er hættur karfaveiðum fyrir löngu, 1661 smá- lest. Úr aflanum hefir verið unnið 1587 smálestir af mjöli, 328 smá- lestir búklýsi, og 25 smálestir lifr- arlýsi. ísfisksölur. í fyrradag seldu afla sinn í Englandi, Andri, 1538 vætt- ir fyrir 1071 stpd., og Venus, 1070 vættir fyrir 785 stpd., að frádregn- um tolli. Skipið ertalið af, Leitinnt var hætf í gærkvöldi. 19 vaskir Islensklr sjómenn Irafa druknað. 0 LL von er nú talin úti um að línuveiðarinn „Örn- inn“ frá Hafnarfirði sje ofansjávar. Mun skipið hafa farist með allri áhöfn — 19 manns — s.l. sunnudag einhverstaðar vestan við Mánareyjar. Báðir nótabátar skipsins hafa pú fundist á reki tómir. Síðari bátinn fann finskt „móðurskip“, Tessamo, út af Melrakkasljettu síðari hluta dags í gær og sendi skeyti um það til Siglufjarðar. Varðskipið Ægir hafði áður kom- ið með hinn nótabátinn til Siglufjarðar. Alt bendir til þess að „Örninn“ hafi sokkið mjög skyndilega. Ekkert hefir fundist rekið úr skipinu, nema bjarghringur, hurð úr stýrishúsi, koddi og plankar úr dekkskilrúmi. Fjöldi skipa hefir leitað síðan á mánudagsmorgun um aF svæðið, sem hugsanlegt er að skipið hafi komist. Varðskipið „Ægir“ og varðbáturinn ,,Snarfari“ hafa tekið þátt í leitinni. í gær var norska eftirlitsskipið „Fridthiof Nansen“ fengið til að leita einnig, og þá sjerstaklega að spyrjast fyrir um það hjá norskum skipum hvort þau hefðu orðið „Arnarins“ vör. AjíATT En eftir að skeytið barst frá finska skipinu, um að það hefði fundið nótabátinn, sem vantaði, var sýnt að öll frekari leit var ái'angurslaus. Var því leitinni hætt í gærkvöldi. Ægir hefir undanfarna daga leitað á svæðinu frá Skjálfandaflóa austur að Langanesi. Álandsvindur liefir verið á þeim slóðum undanfarna daga og mátti því búast við, að ef mennirnir hefðu komist í bátinn hefði þá rekið upp undir Tjörnes eða inn í Axarfjörð. Voru því menn fengnir til að ríða með fjörunni, alt frá Húsavík og norðnr með ströndinni. Stjómaði Júlíus Havsteen þeirri leit, én því miður bar hún eng'an árangur. Ægir sigldi grunt með landi fram með Tjörnesi og sendi síðan vjelbát sinn enn nær landi. Einnig var leitað á vjelbátnum kringum Mánareyjar. Ómögulegt er að segja með bvaðai hætti skipið hefir farist. En menn búast við að skipið hafi ekki sokkið vegna veðurs beldur hafi eitthvert slys hent um borð og að skipið hafi sokkð afar fljótt. Sóknarpresturinn í Hafnarfirði, síra Garðar Þorsteinsson, var stadd- ur á Akureyri í fyrrakvöld. Brá hann skjótt við í fyrrinótt og hjelt til Hafnarfjarðar til þess að geta orðið aðstandendum, sókUarbömum sín- um, til hughreystingar í sorg þeirra. Þeir lem fórust á Erni. 19 manna áhöfn var á „Ernin- um“. 3 Reykvíkingar, 3 ungir menn frá Ólafsvík og 13 frá Hafn- arfirði. Reykvíkingarnir voru: Ólafur V. Bjaxnason, skipstjóri, 60 ára, Frakkastíg 26, kvæntur og átti uppkomin börn. Steinn Ásbjörnsson, stýrimaður, 28 ára, Rauðará við Hverfisgötu, ókvæntur. Eggert Ólafsson, 1. vjelstjóri, 27 ána, Grettisgötu 79, kvæntur en barnlaus. Hinir 13 Hafnfirðingar voru: Guðmundur Guðmundsson, nóta- bassi, 57 ára, Gunnarssundi 3. Hann var kvæntur og átti 2 börn innan við fermingu og 3 uppkomin. Efiflr loftárás. Er stjórnarherinn gerði loftárás á Toledo (Norður-Spáni). Frá Olympflulefllcununi: FRAMH. Á SJÖTTU SfDU. Ausfurríkismönnum dæmdur sigur: Peru* inenn sigruðu. Hæita Suður-Ameríku- ríkfln þáttöku? London, 11. ágúst. FÚ. í Köln var all umfangsmikið íþróttamót háð í dag og tóku þátt í því nokkrir Olympíukeppendur, sem staddir voru í borginni á heimleið, þar á meðal Bandaríkjamenn- irnir, Jesse Owens og Metcalf. Keptu þeir meðal annars í 100 metra hlaupi, . og sigr- aði Metcalf á 10.3 sekúndum. Náði hann þannig heijnsmet- inu og fór að þessu sinni fram úr Jesse Owens, og hnekkti þar með þeim orðstýr, sem Owens hafði getið sjer á Olympíuleikunum, að hann væri ósigrandi. 1 dag kom fyrir atvik, sem j talið er að kasti skugga á 01- ýmpíuleikana. Á sunnudaginn var kepptu Perúmenn og Aust- urríkismenn í knattspyrnu, og sigraði Perú. Áhorfendur ljetu kappleikinn svo mjög til sín taka, að talið var, að það hefði valdið truflun á gangi leiksins, og var málið úrskurðað á þá leið, að hlutaðeigendur skyldu keppa aftur, án þess að áhorf- endur væru viðstaddir, og skyldi sá kappleikur fara fram í dag. Floklcurinn frá Perú neit- aði að sætta sig við, að sig- ur þeirra væri að engu gerð- ur, og mætti því ekki til kappleiksins. Vinningur í leikunum var því úrskurðað- ur Austurríki. Olympíunefnd Perú hefir boðið kappliði sínu að hverfa brott af leikunum, og skorar á allar þjóðir Suður-Ameríku að styðja málstað Perú og hætta þátttöku í leikunum. í 4 X 200 metra boðsundi karla urðu Japanar fyrstir, og settu bæði Qlýmpíumet og heimsmet, á 8 mín., 51,5 sek. Bandaríkjamenn urðu næstir; Ungverjar þriðju í röðinni. í 200 metra bringusundi kvenna varð japönsk kona einn ig fyrst; nr. 2 var þýsk, þriðja var ungfrú Sörensen frá Nor- egi, 14 ára gömul. í 100 metra baksundi kvenna vann hollensk stúlka, á 1 mín. 16,6 sekúndum, og setti nýtt Olympíumet. f stökki af bretti urðu þrír Bandaríkjamenn fremstir. Kappróðrar byrjuðu aðeins í dag, og voru Holland, Þýska- land og Sviss sigurvegarar í fyrstu atrennu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.