Morgunblaðið - 18.09.1936, Page 7
Föstudagrír 18. sept. 1936.
MOKGl'NiíLAÐIr)
Jj
Minningarorð
um frú Guðrúnu
Björnsdóttur.
Presthólum
Frú Gruðrún Björnsdóttir frá
Presthóluin andaðist hjer í bæn-
um 11. þ. m., og verður lík henn-
ar í dag flutt til greftrunar norð
Ur til átthaga hennar. Hún hafði
legið veik.lijer, syðra um skeið, en
var annars síðustu árin lieimilis-
föst fyrir norðan, á Sigurðarstöð-
um eða Presthólum, eftir að hún
hætti störfuni hjer í Reykjavík.
En hingað kom hún, eftir að hún
misti mann sinn, sjera Lárus Jó-
hannesson á Sauðanesi. Dætur
þeirta eru frú Lára, ekkja Olafs
Jónssonar læknis, frú Maren,
kona Rúts Jónssonar, en ein syst-
irin, Bergljót kenslukona, dó í
spönsku veikinni 1918.
Frú Guðrún var komin nokkuð
á níræðisaldur, fædd 27. nóv.
1853, dóttir Björns Skúlasonar,
umboðsmanns, og Bergljótar Sig-
urðardóttúr frá Krossavík. Þær
voru svstur, frú Guðrún og frú
Ragnhildtir; kona Páls Ólafssonar
skálds. Frú Guðrún var sögð
mikil fríðleikskona í æsku sinni
og alla tíð var hún svipmikil
kona og fyrirmannleg og auð-
þekt hvar sem hún fór. Hún var
þarngóð kona og vinföst og rausn
arleg búkona. Hún var ör kona
og ákaflypd nokkuð og mesta
málafylgjukona, og ljet mörg mál
til sín taka, þegar hún var í
broddi lífsins. Hún var nieðal
þeirra, sem mest beitti sjer fyrir
kvenrjéttindamálum hjer og var
■ein af þeim konum, sein fyrst
voru kosnar í bæjarstjprn lijer í
Reykjavík, ásamt frú Bríeti
Bjarnhjeðinsdóttur, frú Þórunni
Jónassen og frú Katrínu Magn-
iisson. í bæjarstjórn beindist á
hugi hennar mest, að heilbrigðis
málum og fræðslumálum og sjer-
stakléga Ijet hún sjer ant um
fræðslu kvenna og jafnrjetti
þeirra og karla til embætta, og
hún var ein af þeim, sem mest
beitti sjer fyrir stofnun náms-
stvrktarsjóðs kvenstúdenta. Eftir
að frú Guðrún fluttist úr Reykja-
vík hætti hún að mestu afskiftum
af opinberum málum, en áhugi
hennar var mikill fram til þess
síðasta. Með frú Guðrúnu er fall-
in í valinn kona, sem var í senn
stórbrotin kona í gömlum stíl og
'oin af brautryðjendum hinna
nýju kvenrjettinda í Jandinu.
Minningarorð um
Björn R. Stefánsson
íyrv. alþm.
Rabarbarfl.
Hvítkál
Blómkál
Gulrætur
Tómatar
Púrrur
DilL
XUUeVZldi
Litil, góð íbúð
T Austurbænum til leigu. A. S
í. vísar á.
í dag verður til moldar bor-
inn Björn R. Stefánsson, fyrrum
alþingismaður. Hann andaðist
9. þessa mánaðar. Hafði hann
verið mjög heilsutæpur undan-
farin misseri og legið langar
legur.
Björn varð 56 ára gamall,
fæddur 21. maí 1880 á Desjar-
mýri. Voru foreldrar hans Ste-
fán prestur Pjetursson og kona
hans Ragnhildur Björg Metú-
salemsdóttir, hins sterka Jóns-
sonar í Möðrudal.
Eftir að Björn híifði lokið
nami við Möðruvallaskólann
1899, fjekst hann um tíma við
kenslu og verslunarstörf. En
árið 1902 rjeðist hann starfs-
maður hjá Pöntunarf jelagi
Fljótsdalshjeraðs á Seyðisfirði,
en Jón heitinn bróðir hans —
Filippseyjakappi -— veitti því
fjelagi þá forstöðu. Því næst
fluttist Björn til Breiðdalsvík-
ur og var þar verslunarstjóri
næstu 10 árin. En á Reyðarfirði
var hann kaupmaður frá 1913
—19. — Fluttist hann þá til
Reykjavíkur og hefir stundað
skrifstofustörf hjer í bænum
síðan.
Björn kvæntist 17. desember
1901, eftirlifandi ekkju sinni
Guðnýju Haraldsdóttur Briem.
Var hún manni sínum mjög
samhent og ágætiskona í hví-
vetna. Var heimili þeirra rómað
fyrir gestrisni og myndarbrag.
Þau hjónin eignuðust einn
son, Harald að nafni. Hann
ljest uppkominn árið 1930, og
var foreldrúnum hinn mesti
harmur að fráfalli hans. Auk
þess fóstruðu þau hjónin tvö
börn,
Björn R. Stefánsson var á-
gætlega gefinn maður og á-
hugamaður mesti um stjórnmál.
Var hann mesti áhrifamaður í
S.-Múlasýslu á sinni tíð. Var
þingm. Sunnmýlinga frá ’16-’19.
Hann hafði mikið yndi af þjóð-
legum fræðum og hefir ýmis-
legt birst eftir hann í þeirri
grein. Ber alt það, sem eftir
hann hefir sjest, þess merki, að
hann var ágætlega ritfær og
kunni vel að segja frá.
í daglegri framkomu var
Björn hið mesta ljúfmenni,
glaðvær og ræðinn. Hann var
drenglyndur maður og vinfast-
ur, og svo innrættur, að hann
gerði ekki viljandi á hluta
manna,-
I. O. O. F. 1189188y2.
Veðrið í gær (fimtud. kl. 17):
Lægðarsvæði helst enn yfir NA-
Grænlandi og veldur SV-átt hjer
á landi. Vindur er sumstaðar all-
hvass vestanlands og með regn-
skúrum, en austanlands er þurt
veður og vindur öllu hægari.
Onnur lægð er norður af Azor-
eyjum á hægri, hreyfingu norður
eftir.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Stinningskaldi á SV. Skúrir.
ísfisksala. Max Pemberton seldi
í Cuxhafen í gær 98.362 smál.
fyrir 28,177 ríkismörk.
íþróttasamband Islands byrj-
ar nú 'vetrarstarfsemi sína, og
verður skrifstofa sambandsins
framvegis opin fyrir meðlimi
sambandsins á mánudögum kl.
514—7V2 síðd. á miðvikudög-
um kl. 8—9 síðd. og verður for-
setinn þá til viðtals, og á föstu-
dögum kl. 8—10 síðd. Væntir
stjórn í. S. I. þess, að íþrótta-
menn leiti til skrifstofunnar um
upplýsingar og leiðbeiningar,
sem hún getur látið þeim í tje.
Einnig er bókasafn sambands-
ins ætíð til afnota fyrir þá, sem
þess óska, og vilja fræðast um
íþróttamál. Skrifstofan er í
Mjólkurfjelagshúsinu, herbergi
26, sími 4955.
Hjálparstöð Líknar fyrir berkla
veika, Templarasundi 3. Læknir-
inn viðstaddur mánud. og mið-
vikud. kl. 3—4 og föstud. kl. 5-6.
Innanfjelagsmót K. R. í frjáls-
um íþróttum fyrir unglinga inn-
an 19 ára og drengi innan 16 ára,
hefst á morgun, laugardag, kl. 6
síðdegis og heldur áfram á sunnu
dagsmorgun kl. 10 og aftur kl. 1
e. h. Nefndin.
M.s. Dronning Alexandrine er
væntanleg hingað að norðan
snemma á morgun.
Eimskip. Gullfoss fór frá Vest-
mannaeyjum í gær áleiðis til
Leith. Goðafoss kom til Patreks-
fjarðar um hádegi í gær. Brúar-
foss er í Khöfn. Dettifoss kom
til Rotterdam í fyrrakvöld. Lag-
arfoss kom til Hamborgar í
fyri-adag. Selfoss er í Antwerpen.
ísland fer frá Höfn áleiðis til
Reykjavíkur á sunnudagsmorgun.
Hjálpræðisherinn. í kvöld kl.
8yj opinber samkoma. Lautn
Sigurðsson o. fl. AUir. velkomnir.
Knattspyrnukappleikur fer
fram í kvöld kl. 6 (ef veður leyf-
ir) milli starfsmanna hjá Shell
og B. P. Kept verður um silfur-
biltar, sem gefinn var í fyrra.
Ungbarnavernd Líknar, Templ-
arasundi 3, er opin á fimtud. og
föstud. kl. 3—‘t.
Eftirlitsmaður með fóðurásetn-
ingi og sauðfjárböðunum var
kosiún á bæjarstjórnarfundi í
gær. Sigúrður Gíslason lögreglu-
þjónn lilaut kósningu.
Borgarstjóra var á bæjarstjórn
arfundi í gær falið að nefna
mann af hálfu bæjarstjórnar í
stjórn námskeiða og vinnu fyrir
atvinnulausa æskumenn. Atvinnu
málaráðherra hefir af ríkisins
hálfu útnefnt Vilhjálm S. Vil-
hjálmsson blaðamann.
Sjómannastofan er í dag opn-
uð að nýju, eftir dálítið sumar-
hlje. Húsakynni stofunnar eru
hin sömu og áður á Norðurstíg
4. Við bjóðum allu sjómenn
hjartanlega vélkomna i hin góðu
herbergi stofunnar, til að lesa
þar blöð, skrifa brjef og því um
líkt. Hvergi mun kaffi og aðrar
veitingar verða betri og ódýrari
g'lfl ifiJ
verða framvegis kl. 10% árd. frá Reykjavík og kl. 6 síðdr
frá Þingvöllum.
Bffreiðaitöð Sfeflndórs.
Tveggja íbúða hú§
á góðum stað í bænum er til sölu, með tækifæriskjörum.
Siguffður Guöjónsson,
lögfræðingur.
Austurstræti 14. Sími 4404.
Vfdalínsklaustur að Görðum,
hugleiðingar um menningarmál eftir Jens Bjarnason.
--- Verð kr. 1,00. -
Fæst í
Búkaverslun Sigfúsar Eymundssonaf
og BÓKABÚÐ AUSTURBÆJAR BSE.
Laugavegi 34.
^^^mmmmmmmmmmmmam^mm^mmmmmmmmmmmmmmmrnmami^m^mmmmmmmmmmmmm^mm—mammm
GÆRUR.
Kaupi gærur hæsta verði.
5ig. Þ. Skjalöberg.
Móforbáfur.
Vandaður mótorbátur, 18 smálestir að stærð, með
52/60 Hk. Tuxham vjel, er til sölu.
Eggert Kristjánsson & Cn.
Eystri sölubúöin
í Austurstræti 3 er til leigu frá 1. október n. k. — Einnig
3 herbergi á fyrstu hæð með inngang frá Veltusundi.
Semja ber við eigandann,
Jón Brynjólfsson.
en á Sjómannastofunni. Um leið
og stofan er opnuð að þessu
sinni, viljum við nota tækifærið
og þalíka þeim mörgu blaðaút-
gefendum, sem sýnt hafa stof-
unni þá velvild að senda lienni
blöð sín endurgjaldslaust, og
væntum við að mega njóta hinn-
ar sömu velvildar framvegis. F.
h. Sjómannastofunnar. Sigurður
Guðmundsson. <
Útvarpið:
Föstudagur 18. september.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Ljctt lög.
19.45 Frjettir.
20.15 Bækur og menn (Vilhjálm-
ur Þ. Gíslason).
20.30 Erindi: Frá Malaya-skaga,
IV: Togleðrið (Sigfús Halldórs
frá Höfnum).
20.55 Hljómplötur: a) Sönglög
við íslenska texta; b) Þýskir
tóiisnillingar (til kl. 22).
M.sJ Dronning
Alexandrine
fer sunnudaginn 2Q. þ. m.
kl. 8 síðd. til Kaupmanna-
hafnar (um Vestmannaevj-
ar og Thorshavn).
Farþegar sæki farseðla í
dag.
Tilkynningar um vörur
komi sem fyrst.
Skipaafgr. Jes Zimsen
Tryggvagötu. Sími 3025.