Morgunblaðið - 19.09.1936, Síða 5

Morgunblaðið - 19.09.1936, Síða 5
Xaugardagur 19. sept. 1936. MORGUNBLAÐIÐ „Pour laFrance“. Eftir F. Nyborg Christensen verkfræðing á „Hvidbjörnen". -----Franskt----------- herskip kemur 22. þ. m. Franska stjórnin hefir sent af stað tii Reykjavíkur her- skip til að sækja líkin af skipverjunum á Pourquoi pas? Skipið heitir Andacieus og kemur hingað 22. þ. mán. (Skv. uppl. frá franska konsúlatinu). Max Pemberton sðkkvir þýsk- um bðt. ftrekstur á Elben. Max Pemberton, sem seldi afla sinn í Cuxhafen 1 fyrradag, fyrir rúml. 28 þúsund ríkismörk, sigldi þýskan vjelbát í kaf á Elben í gær. Var togarinn kominn skamt frá Cuxhafen á heimleið, er árekstur varð milli hans og ibátsins og sökk báturinn sam- stundis. Allir mennirnir úr bátnum björguðust. Max Pemberton laskaðist talsvert og sneri aftur til Cux- hafen. Þýskir hafnsögumenn voru um borð í togaranum. Þýski báturinn hjet ,,Ursula“ og var 110 smálestir. Var hann að flytja korn, er áreksturinn varð. Fisksölusamlag Fær- eyinga með dðnsk- um ríkisstyrk. TRÁ FRJETTARITARA VORUM KHÖFN í GÆR. æreyinganefndin sem send var til Khafnar, hefir fengið því ágengt, að stofnað verður sölusam- band, sem tekur yfir all- an saltfisk frá Færeyj- um. Sölusambandið fær einnar miljón króna styrk frá ríkinu til markaðsöflunar. Nefndin hefir undanfarið staðið í samningum við dönsku stjórnina um erfiðleika Færey- iliga og ráðstafanir af hálfu ■dönsku stjórnarinnar til hjálp- ar. Aðalfundur Karlakórs K. F. U. M. var haldinn í gærkvöldi. í stjórn voru kosnir: Björn Árna- son form., Jón Guðmundsson og Sigurjón Guðmundsson meðstjórn •endur. Aðalfundarstörfum var *ekki lokið og verður framlialds- fundur haldinn síðar. Um borð í „Ilvidbjörnen". AÐ er eins og einhver dap- urleiki og angurværð hafi gripið alt og alla á skipinu. Fyr- irskipunin: „Tilbúnir að halda til hafnar“ vekur venjulega líf og fjör. 1 dag hljómar liún með und- arlegum ömurleik. Djíipt í brjóst- um allra felst hugsunin um hina frönskn fjelaga, sem lukn lífi sínu svo snögglega. Nú erum við á leið til Akraness til þess að flytja lífvana líkami þeirra til Revkjavíknr. Á ganginum bakborðs megin er löng ömurleg röð af líkbörum, 22 talsins. Á þær á að leggja þá, sem fyrir svo skömmu heinísóttu okk- ur daglega um borð, með spaugs- yrði á vörum og bros í auga. Áhöfnin er klædd viðhafnar- búningi, alt er undirbúið til þess að veita þeim móttöku síðasta sinni, og til þess að votta þeim fyrstu kveðjurnar af mörgum, sem þeir munu mæta á leið sinni frá þessari stundu, þangað til þeir hafa hlotið hinstu hvíld í faðmi sólríkrar móðurmoldar. Kringum skipið sveima máfarn- ir á glæsilegu flugi. Hver veit? Ef til vill er meðal þeirra tamdi máfurinn, sem Dr. Chareot flutti frá Grænlandi. Máfurinn, sem dr. Charcot sótti niður í yfirmannft- herbergið, um leið og hann sjálf- ur kvaddi lífið, til þess að fugl- inn gæti flogið leiðar sinnar, þótt mennirnir færust. Það er ekki hægt að hugsa sjer fegurra tákn hinnar göfugu og auðugu sálar, en þetta atvik. Dr. Charcot var ósíngjarn og stór- brotinn. Hann hugsaði fyrst um aðra, um lífið, scm á að halda áfram, síðast, uin sjálfan. sig. Við liggjum nú fyrir akkeri utan við Akranes. Krappur sjór, skýjaður liiminn, napur gustur. Stjórnborðsmegin, á ganginum, stendur áhöfnin í þyrpingu, bak við lyftinguna. Álvarlegir á svip stara þeir til lands, en ennþá sjest ekki skipið með hinn öm- urlega farm. Klukkan var orðin 16, þegar franski konsúllinn, Monsieur Zarzecki, kom um borð ásamt franska stýrimanninum. Á andlit- um beggja mátti glögt sjá merki geðshræringa undanfarinna mörgu og löngu stunda. Hvorug- sjálfvirkt þvottaefni ötkodl«Qi. . OóHaxt 0|örir þvottlon mjallhvttano An þeas aO hano eje nuddaOur.eO^ b I e I k J a 0 u r. ur er í skapi til að hefja sam- ræður og enginn kærir sig um að spyrja þá. Sjórinn er svo ókyr, að ekk- ert verður aðhafst. Við verðum því að fara inn undir Engey. „Ægir“ fer á undan. Bæði skip- in eru með flaggið í hálfa stöng. Kl. 19 er alt komið nm borð. Stýrimaðurinn fer að gráta — kyrlátum örvæntingargráti — þegar hann sjer liina þöglu fje- laga sína, reifaða fánum, þar sem þeir liggja í röð á bakborðs gang- inum — dr. Charcot aftastur. Á þilfarinu eru allir hugsandi og hljóðir, með ber liöfuð. Það er haldið til Reykjavíkur. Þegar horft er eftir ganginum aftan af þilfarinu, læsir fyrri hlutinn af nafni franska skipsins í hugann: „Pourquoi ?“ (Hversvegna?). Þegar þeir koma heim, mun öll franska þjóðin svara spurning- unni einum rómi: „Fyrir Frakk- land“. F. Nyborg Christensen. Ný iðnaðug: Slilsisgerðin Atlask. í gær bauð ungfrú Hólmfríður Guðsteinsdóttír tíðindamanni frá Morgunblaðinu að koma og líta á framleiðsluvöru, sem er tiltölu- lega ný á íslenskum markaði, en það eru slaufur, kjólslaufur, þverslaufnr og slifsi, í stuttu máli sagt, allskonar hálsbindi við karl mannaföt, er Slifsisgerðin Atlask Laugaveg 34 framleiðir. Slifsisgerðin tók til starfa nm síðustu áramót, en hefir síðan stöðugt fært út kvíarnar og auk- ið framleiðslu sína. Veitir hún nú þrem stúlkum atvinnu, auk for- stöðukonunnar. Selur hún þegar mörgum verslunum hjer í bæ í heildsölu, og víða út um land. Forstöðu veitir Slifsisgerð- inni ungfrú Hólmfríður Guðsteins dóttir. Dvaldi hún í Kaupmanna- höfn síðastliðið ár og lærði hand- iðn þessa. Slifsin og slaufurnar frá Slifsisgerðinni eru ýmist liandunnin eða gerð í vjelum. Eru þau vel nnnin og smekkleg og vinna á þeim öll hin vandaðasta. Standa þau síst að baki erlendri vöru sömu tegundar. Fasteignastofan, Hafnarstræti 15 hefir enn til sölu mjög stórt úrval af allskonar húsum, smáum og stórum, nýjum og gömlum, með lausum íbúðum 1. okt., ef samið er strax. JÓNAS H. JÓNSSON. Sími 3227. ^ Hvítai», hreinar og fallegar tennur prýða. Gott tanncream á bæði að hreinsa tennurnar og varð^ veita þær fyrir skemmdum. Notið RÓSOL TANNCREAM kemur útl.október. ZJ 1 dag er síðasta tækifæri til að fá bókina með áskrifendakjör- um (innbundna á 12 og 16 kr). Hringið i síma 2702 í dag eða sem fljótast. Þingvallaferðir verða framvegis kl. 10y2 árd. frá Reykjavík og kl. 6 síðd. frá Þingvöllum. ISifreiðastöð Stetndérs. GÆRUR. Kaupi gærur hæsta verði. 5ig. Í7. Skjalöberg. Elsku litli drengnrinn, Ingi Sigurður Júlíusson, andaðist í gærmorgun á Bakkastíg 5. Fyrir hönd foreldra og annara aðstandenda. Ingibjörg Sigríður Jónasdóttir. Inuilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför mannsins míns, Bergþórs Árnasonar. Fyrir mína hönd, sonar míns og annara vandamanna. Björg Gtmnarsdóttir. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall og jarðarför móður okkar, Guðbjargar Jónsdóttur. Börn og fósturbörn. - - -......-... ■ Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Björns R. Stefánssonar, fyrv. alþm. Guðný H. Briem, Dómhildur H. BrieM og aðrir aðstandendur. ,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.