Morgunblaðið - 27.09.1936, Síða 2
$
2
MUKGUN BLAÐltí
Sunnudagur 27. sept. 1936.
—
vt*
m
Útgei.: H.f. Áxva-kur, Reykjavlk.
Rftétjðrar: Jðn Kjart'ansson og
V'altýr Stefárisson —
átft'rigCarrna^ur. 4
RitStjðrn og aísreiðsfla:
Austurstræti 8.*—Slml .^00.
Auglýsingastjðri: B, Öafberg.
Auglýsingaskrifstof a:
Austurstræti 17. — Slmi 3700.
Heimastmar:
Jðn Kjartansson, nr. 3742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770..
Áskriftagjald: kr. 3.00 á tpánubi.
í lausasölu: 15 aura eint^kiti/
25 aura meS l,esb6k.
Miinisblðð Eystiins,
-. t. ■ .. • 1
Morgunblaðið sjer ekki á-
stæðu tii að fara mörgum orð-
um um -þá atburði, sem gerst
hafa í sambandi við hvarfið á
minnisb<% Eysteins Jfbnssonar
fjármálaí-áðherra. Fer best á
því, að olöðin geymi sjer að
mestu hugleiðingar um málið,
þangað tfl lokið er rjettarrann-
sókn'þeirl-i, sém nú stendur yfir.
Þegar þetta er í’itað, liggur
ekkert fyrir um það, sem byggj-
andi sje á, með hverjum hætti
miiíni.sbók ráðherrans hefir
komist í hendur, nazistanna. En
hvérnig sem þeii'eni að bókinni
komnir, þá geta þeir með engu
móti rjettlæt^það, að taka inni-
hald hennai* til birtidgar .
Þetta atha$T er sambærilegt
við það, að taka einkabrjef til
opinberrar birtingar, og- þyk-
ir hvarvetna lítill drengskapur.
Benda má þó á að slík ósvinna
hafi hefit blöð riúverandi rík-
isstjórnar.
1 • ,..‘H '?i áfti : • . . 5- . r ; .j ’■*.«
En þótt jyamferéi nazistanna
sje með öilu.ý.verjandi, þá hlýt-
ur hitt einnig.að vékja athygii,
með hve f barnal^gri ljettúð
f jármálaráðherrann, fer með
íiCÍ ■ . i ^ 1 . ; j >
skilríki, sem .telja mp, að
nokkru varði lívernig geymd
'JViÞðist ríkisstjórninni hafa
gefist það tilefni, sem vel hefði
mátt!1 ver’a henni til viðyörunar
í þessu 5 efni síðastliðið haust,
þegar kommúnistar náðu í
þýska verslunarsámninginn og
birtu íriblaði sínu.
Engþtn dettur í hug að ríkis-
stjórnin hafi góðfúsléga afhent
kommúnistum þennan samning
til birtingar. Hinsvfegár minn-
umst vjer þess ekki, að nokkur
gangskör hafi verið gerð að því,
að komast fyrir, með hverjum
hætti kommúnistar náðu þessu
plaggi. Vjer minnurrlst þess
ekki, að nein rjettarrannsókn
færi fram í sambandi við það
mál, Og víst er um það, að
Verklýðsblaðið var ekki gert
upptækt, ritstjóri þess ekki
fangelsaður, húsrannsókn ekki
framkvæmd hjá aðstandendum
þess.
Það er ekki nema rjett og
sjálfsagt, að rannsakað sje til
hlítar með hverjum hætti minn-
isbók Eysteins fjármálaráðherra
hefir komist í hendur nazista.
En væri ekki rjett að reyna að
komast að því í leiðinni, hvernig
kommúnistarnir náðu þýska
samningnum?
5—“T — % e&ik •:•,■; .. *!*&■ < k 4.-.' íb r ■•*;* A’SKy
•>% •á’ -.4 ' 't; i J r-V-
BLVM FELLIR FRANKANN
UM 25—30°|o
SiillRis Mal pmMgamála-bandalag Frakka, Breta og Bandarlklamanna.
Svissneski frankinn
fylgir eftir.
Franska þingið hvatt saman.
Franska alþýðufylkingarstjórnin, sem á
tilveru sína að pakka m. a. því, að
flokkarnir, sem að henni standa, lof-
uðu sparifjáreigendum í Frakklandi, að gengi
frankans skyldi ekki verða felt, hefir nú neyðst
til að láta undan þunga viðskiftaörðugleikanna og
ákveðið að fella frankann um 25—30%. Þetta var
ákveðið á ráðherrafundi, sem haldinn var í gær-
kvöldi, og stóð í f jórar klukkustundir.
Samtímis gáfu stjórnir Frakklands, Bretlands
og Bandaríkjanna út sameiginlega yfirlýsingu um
bandalag þessara þjóða í peningamálum (mone-
tár Entente) með því markmiði, að undirbúa al-
menna verðfestingu gjaldeyris, í heiminum.
Um allan heim er þess beðið með mikilli eftirvæntingu,
hvernig stuðningsflokkar frönsku alþýðufylkingarstjórn-
arinnar taka gengislækkuninni. Bæði sosíalistar og eink-
um kommúnistar hafa undanfarið barist ákaft gegn
gengislækkun. Stjómarflokkarnir sátu á fundi í dag.
Franska þi-ngið hefir verið kallað sarrian á skyndifund
næstkomandi þriðjudag til þess að samþykkja lög um verðfell-
ingu frankans.
A'f þeim þrem löndum, sem enn halda fast í gullgengi,
Þýskálandi, Hollandi og Sviss, hefir Sviss nú þegar gefið út yf-
irlýsingu, sem skilin er á þann veg, að gengi svissneska frankans
verði lækkað.
Þjóðverjar telja enga knýjandi nauðsyn að lækka gengi-
ríkismarksins, en hinsvegar geti komið til mála, að það verði
gert, ef í móti komi hlunnindi, viðskiftalegs og pólitísks eðlis,
sem geti vegið upp á móti þeim örðugleikum, sem gengislækk-
un hefir í för með sjer. í þessu sambandi rifjast upp för dr.
Schachts til Parísar fyrir skömmu.
Hollendingar hafa lýst yfir því, að þeir muni halda fast við
gullgengið.
Ekki er búist við að gengislækkun frankans hafi í för með
sjer frekari skerðingu á gengi sterlingspundsins eða dollarins.
Ameríska stórblaðið „New York Times“, segir í dag,’að gengis-
skerðing frankans muni í bili hafa slæm áhrif á utanríkisverslun
Bandaríkjanna en til langframa muni þau bætandi áhrif, sem
búist er við gengislækkun frankans muni hafa á heimsviðskiftin
vega til fulls upp á móti þeim óþægindum, sem.kunni að steðja
að um stund.
í yfirlýsingu stórveldanna þriggja, Breta, Frakka og
Bandaríkjanna, segir að þjóðir þessar hafi tekið upp
samvinnu með því markmiði að auka velmegun í heim-
inum.
Til þess þurfi að byrja á því hið fyrsta, að nema úr gildi
smátt og smátt og eins fljótt og auðið er allar ,,kvota“-takmark-
anir í heimsviðskiftum og gjaldeyriseftirlit, sem hefir tíðkast,
síðan 1929. Bretar hafa lýst yfir því sjerstaklega, að sterlings-
pundið muni eftirleiðis, sem áður, vera frjáls gjaldeyriri, þrátt
fyrir peningamálabandalagið. Bretar ætla ekki að taka upp aft-
ur gullmyntfót, en ætla að reyna að halda gengissveiflum
pundsins innan þröngra skorða.
I París, London og New York er litið á yfirlýsingu stór-
veldanna sem friðarsáttmála í viðskiftamálum, sem. muni
verða upphafið að almennum friði í viðskiftamálum
í heiminum.
„Times“ segir um yfirlýsinguna, að hún sje fyrsta sporið
í áttina til almennrar gjaldeyrisverðfestingar í heiminum, en að
ennþá sje langt í land, þar til því takmarki verði náð.
—Uppreisnarmenn
skamt frájoledo.
Orusturnar um Madrid
eru að hefiast.
Flestar frjettir frá Spáni eru uppreisnarmönnum
í vil. Þeir nálgast nú óðum Toledo og vona að
þeir komi í tæka tíð til þess að bjarga þeim, sem enn verj-
ast í Alcazarvíginu. Búist er við að árásin á Madrid hefj-
ist þá og þegar.. Á norðurvígstöðvunum er árásin á Bilbao
þegar hafiri. Eftirfarandi yfirlitsfrjettir sýna vígstöðuna á
helstu vígstöðvunum.
TOLEDO:. Hersveitir uppreisnarmanna nálgast nú
óðum borgina, og var sagt í frjett frá Sevilla, að þær gerðu
sjer vonir um að komast þangað í tæka tíð, til þess að geta
orðið að liði þeim er enn verjast í Alcazarkastalanum.
MADRID: Það er mælt, að Madridbúar sjeu að
verða mjög órólegir, af ótta við árásir á borgina innan
fárra daga, og þá einkanlega loftárás. Sagt er, að vatns-
skortur sje farinn að gera vart við sig í borginni, og að
tekið sje að deila matvælum, af ótta við að bráðlega kunni
að taka fyrir matvælaflutninga til borgarinnar.
BILBAO: Loftárásin á Bilbao var gerð í morgun.
Flugu þá flugvjelar uppreisnarmanna yfir borgina, og
köstuðu niður mörgum sprengjum., og hlaust mikið tjón
af. Eldur hefir brotist út hjer og þar í borginni, og mann-
tjón hefir orðið mikið. í bardaga milli flugvjela stjórnar-
innar og uppreisnarmanna, voru þrjár stjórnarflugvjelar
skotnar niður. Breska stjórnih gerir nú síðustu ráðstafanir
til þess að koma breskum börgurum á brott úr Bilbao.
’ ! V • >!. sai ■ i- • •• i '-'.'íl
OVIEDO: Stjórnin tilkynnir, að hersveitir hennar
sjeu nú aðeins í hálfrar annarar mílu f jarlægð frá Oviedp,
Þá telur hún sjer einnig ýmsa smásigra á Aragonnavíg-
stöðvunum.
I dag barst sú fregn, að
forseti hefði farið
það við sendiherraj,
HMÍBBH ^ Argentínu, fyrir hönd sína og (
k " forvigismanna stjórnarinnar, .
að sendisveitin tæki þá und-
» ir sína vernd ef í nauðirnar
jræki, og gerði ráðstafanir til
j , þess að þeir gætu komist af
landi burt. Þessari fregn er
mótmælt í Madrid, og sagt,
,;,að hún sje algerlega tilhæfu-
laus. Þá hefir fulltrúi Spán-
verja á Þjóðabandalagsfund-
inum í Genf lýst því yfir, að
Azana og Caballero hefðu
setið á ráðstefnu í morgun
um það, á hvern hátt Madrid
yrði best varin. (Skv. FÚ.).
Azana.
Samsteypustjórn
i bviþjoö.
Finska stjórnin segir af sjer.
Hin nýja stjórn Albin Han-
son í Svíþjóð verður sam-
steypustjórn.
Finska stjórnin sagði af sjer
í dag.
ítalir og gengislækkun
frankans.
ítalska ráðuneytið hefir ver-
ið kvatt saman á fund næst-
komandi þriðjudag, til þess að
ræða um það, að hve miklu
leyti ítalska stjórnin skuli end-
urskoða fjármálastefnu sína,
vegna gengislækkunar frank-
ans. (FÚ).