Morgunblaðið - 27.09.1936, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.09.1936, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 27. sept. 1936. Háskólastúdentar ein- róma um að vernda sjálfsákvörðunar- rjettinn. Skúli Guðjónsson segir frá „sílikosa“ sjúkdómnum. „Sílikosa“ á fslandi. Frá frjettaritara vorum. JEG er ekki viss um, að almenningi sje ljóst, hve mikill heiður dr. Skúla Guðjónssyni var sýndur, þegar háskólinn í Osló veitti honum heiðurspening úr gulli í byrjun þessa mána,ðar“, skrifaði danskt blað fyrir skömmu. Þessi heiðurspeningur er nefnilega sjaldgæfur virðingarvottur. Háskólinn í Osló útbýtir þessum heiðurspeningum aðeins fimta hvert ár og aðeins tveimur í livert skifti, öðrum til Norðmanns og hinum til útlendings. Dr. Skúla Guðjónssyni var veittur heiðurspeningurinn fyrir heilsufræðislegar vísiadarannsóku [ ir, sjerstaklega fyrir „silikósu“- rannsóknir hans í postulínsiðnaði Dana. Utbýtingarnefndin segir, að þessar rannsóknir sjeu „braut- ryðjandi starf á Norðurlöndum", og ritgerðir dr. Skúla um þetta •efni „meðal hinna bestu heilsu- fræðis-vísindarita á Norðurlönd- Jim' ‘. Heiðurspeningurinn var veittur 'í samráði við hina háskólana á Norðuriöndum, og fylgdi með ósk um það, að dr. Skúli haldi fyrir- lestra í Osló um þessar rannsókn- ir. Dr. Skúli fór til Osló til þess að taka við heiðurspeningnum á háskólahátíðinni h. 2. þ. m., en varð þó að fresta fyrirlestrunum í Osló þangað til seinna. Einmitt um þetta leyti skipaði vinnumála- stofa Þjóðabandalagsins dr. Skúla í nefnd til þess að stjórna al- þjóðaráðstöfunum gegn sjúkdóms hættum frá ryki, þ. á m. vörn- um gegn silikósu. f þessari nefnd sitja 8 mikils metnir vísindamenn, nefnilega auk dr. Skxila, 2 Englendingar, 2 Ameríkumenn, 2 Suður-Afríku- búar og 1 Ástralíumaður. Dr. Skúli hefir verið beðinn að sernja starfsskrá fyrir nefndina. * Hvað er „silikósa“? spyr jeg dr. Skúla, þegar jeg hitti hann ■og samfagna honum með heiðurs- peninginn. „Silikósa“ er langvinnur og ó- læknandi lungnasjúkdómur, sem orsakast af því, að fólk andar að sjer steinryki, aðallega kisilryki, svarar dr. Skúli. Sjúkdómurinn hefir fyrst verið rannsakaður á sseinni árum, en er orðinn eitt af •aðal viðfangsefnum heilsufræð- inga nútímans. Mönnum, sem fá „silikosu", hættir við að fá berklaveiki í lungun, lungna- bólgu og hjartasjúkdóma. Fólk með ,,silikosu“ hefir þrisvar sinn um fleiri veikindadaga vegna kvefs en aðrir. Annars er erfitt ^ð komast að raun um, hvort fólk þjáist af „silikosu". Rönt- genmyndir eru eina óbrigðula váðið. 011 önnur sjúkdómsein- henni geta stafað af öðru. Kemur „silikosa“ fyrir heima? Já, sjálfsagt, bæði á mönnum og skepnum. Sjerstaklega má bú- ast við að „silikosa“ heima á ís- landi orsakist af ryki í heyjum, einkum á leirkendum jörðum. Heymæðan er í mörgum tilfellum „silikosa' ‘. Sjúkdómurinn getur líka komið af rvki við steinhögg, grjótmulningu o. þ. h. Hvemig er hægt að verjast þessum sjúkdómi? Menn verða að reyna að koma í veg fyrir að fólk andi að sjer ryki. Öruggasta leiðin er sú, að fjarlægja rykið, sjúga það burt, um leið og það myndast. En það er ekki altaf liægt að koma því við. Og þá er hægt að fara þá leið, að nota rykgrímur, þótt það sje ekki óbrigðul vörn. P. SJÁLFVIRKt ÞVOTTAEFNI ÖtkoMw OMonL OJðrlr þvottloa mjallhvítonn áo þess oð hann nuddaður «69 b 1 • I k j a 0 u r. • MÍLAFLUTMNGSSKRIFSTOFA Pjetur Magnússon Eínar B. Guðmundsson Guðlaugur Þorláksson Símar 3602, 3202, 2002 Austurstræti 7. Skriístofutími kl. 10—12 og 1—8. Jafnframt því að Skandia- mótorar hafa fengið miklar endurbætur, eru þeir nú lækkaðir í verði. Aðalumboðsmaður Carl Proppé ALMENNUR fundur há- skólastúdenta var hald- inn á Garði í fyrrakvöld og þar rætt um sjálfákvörðun- arrjett Háskólans í vali kennara. Jóhann Hafstein stud. jur. hafði framsögu og lagði, að framsögu lokinni, fram svohljóðandi tillögu, er hann og þeir Ólafur Bjarnason stud. med. og Friðrik Kristófers- son stud. med. stóðu að: „Almennur fundur háskólastúd- enta, haldinn á Stúdentagarðinum föstudaginn 25. sept., ályktar eft- irfarandi: Fundurinn álítur svo mikils vi'rði þá meginreglu, sem hingað til hefir fylgt verið — og verður að telja gilda — að, Háskólinn ráði raunverulega sjálfur hverjir til hans veljist í kennaraembætti, að á engan hátt sje rjettmætt að skerða hana. Fundurinn telur, að sjálfsá- kvörðunarrjettur Háskólans hljóti öðru fremur að skapa það öryggi, sem skólanum og þjóðarheildinni er fyrir bestu um rjettmætt val kennara og hæfra starfskrafta til skólans. Sjerstaklega tekur fundurinn fram, að hann telur æskilegt, að beitt verði í framtíðinni heimild þeirri, sem fyrir hendi er í há- skólareglugerðinni uin skipun er- lendra dómnefnda til úrskurðar um kennaraefni Háskólans“. Miklar umræður urðu um málið á fundinum. En allir ræðumenn voru á einu máli um það, að ó- hæfilegt væri að embættaveitingar við Háskólann væru svo háðar hinu pólitíska valdi, sem nú hefði reynst. Fram kom á fundinum önnur tillaga, flutt af Birni Sigurðssyni fyrir hönd Fjelags róttækra stúd- enda. Gekk þessi tillaga að miklu leyti í sömu átt og hin fyrri, nema livar hjer var gerð tillaga um fyrirkomulag embættaveitinga við Háskólann í framtíðinni. Tillaga þeirra Jóh. Hafsteins var samþykt. Allir háskólastúdentar voru sammála um óskertan rjett Há- skólans í þessu máli. Málverkasýning Magnúsar Jónssonar Oddfellowhúsinu (uppi), opin daglega kl. 10y2 árd. til kl. 10 síðd. 30 málverk, flest olíumálverk frá sumrinu. Frá Þingvöllum. Úr Þjórsárdal. Frá Vestmannaeyjum. Frá Reykjavík. Úr Vatnsdal í Húnavatns- sýslu. Frá Hreðavatni Dömur! Nýi tilskerinn er kominn. Kápu-efni. Dcagtar-efni. Tiskublölf: London, Paris, Þýskaland. Tek efni iil sauma. Lítið í gluggana á Laugaveg. 3. Andrjes Andrje§§on. Húsnæði, hentugt fyrir iðnrekstur, til leigu. Upplýsingar i síma 2816. Til Borgarfjarðar á mánudag. Til baka á þriðjudag. Nýja Bílastöðin, Sími 1216. Móforbátur. Vandaður mótorbátur, 18 smálestir að stærð, með 52/60 Hk. Tuxham vjel, er til sölu. Eggert Knstjánssan S Cn. O. V.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.