Morgunblaðið - 01.10.1936, Síða 5

Morgunblaðið - 01.10.1936, Síða 5
Flmtudagur 1. október 1936. MORGUNBLAÐIÐ 5 M. E. Jessen. Tuttugu 09 fimm ára starfs- ðfmælí. Tuttugu og fimm úr eru nú Tiðin síðan M. E. Jessen, núver- andi skólastjóri Vjelskólans, hóf að kenna vjelfræði hjer á landi, en það var 1. okt. 1911. Fræðigrein þessi var þá lítt þekt hjer, og hafði verið stofn- uð vjelfræðideild við Stýri- mannaskólann og Jessen ráðinn sem aðalkennari hennar. Mun Jessen hafa ráðið allmiklu um tilhögun kenslunnar og bygt á dönskum fyrirmyndum. En þess má geta, að kensla í almenn- um vjelstjóraskólum mun óvíða jafn fjölbreytt og í þeim dönsku. Haustið 1915 er svo vjelfræðikenslan mikið aukin, og stofnaður Vjelstjóraskóli Is- lands og varð Jessen þá for- stöðumaður hans. Hefir hann átt mikinn þátt í breytingum og endurbótum skólans, og jafnan látið sjer mjög ant um fjárhag hans og yfirleitt stjórn- að honum með röggsemi. Þá er Jessen að allra dómi mjög dug- legur kennari og um leið vin- sæll meðal nemenda. Síðastliðið ár var skólinn stóraukinn með stofnun raf- magnsdeildarinnar. Var það að vísu ekki vonum fyr, því henn- ar var fyrir löngu þörf, og eðli- legast að hún væri tengd Vjel- stjóraskólanum. Þá 'voru á síð- asta þingi samþykt ný lög um skólann, og nafni hans breytt. — Heitir hann nú Vjelskóli Reykjavíkur. Voru námskröfur auknar og meiri fjölbreytni innleidd t. d. inntökupróf í hina meiri vjelfræðideild, er það spor í rjetta átt. Vjeltæknin eykst, eins og kunnugt er hröð- um skrefum, og árlega koma nýungar í búnaði vjela, sem kenna þarf. Jeg er viss um vjelstjóra- stjett landsins og aðrir, er kynst hafa starfi (Jessens, álíta skólann í góðum höndum undir stjórn hans. Og allir nemendur Vjelskólans munu óska þess að Jessen takist, með aðstoð hinna ötulu samkennara sinna, að efla skólann svo mjög á kom- andi árum, að hann nái því marki að verða miðstöð allrar itekniskrar fræðslu í landinu. H. J. Á myndinni sjást (í miðju) Charlie Chaplin og Pauline Goddard, sem ljeku saman í Nútíminn. Ennfremur dönsku leik- 1 ararnir Jean Hersholt og Johannes Poulsen. Samkvæmið var i haldið til heiðurs Poulsen, er hann var í Hollywood í sumar. Vetrarstarfsemi Heimdallar hefst I kvöld, íslensk æska verður að sameinast gegn ofbeldi og kúgun. HEIMDALLUR, f jelag ungra Sjálfstæðismanna, heldur fyrsta fund sinn á haust- inu í kvöld. Stjórn fjelags- ins er staðráðin í því, að hefja öfluga og fjölbreytta fjelags- starfsemi, og mun formaður Heimdallar, Gunnar Thorodd- sen alþm., hefja umræður og skýra frá fyrirætlunum stjórn- arinnar Er áríðandi, að ungir Sjálf- stæðismenn fjölmenni á fund- inn,til að taka ákvarðanir um starfsemina í vetur. Ennfremur verða umræður um stjórnmálin og verður Thor Thors alþm. málshefjandi. Það. er engum efa undirorpið að Heimdallur á nú fyrir hendi meiri og margþættari störf en áður. — Stjórnmálaástandið í landinu er orðið svo rotið og óheilbrigt eftir nær 9 ára sam- feldan valdaferil rauðu flokk- anna, að landi og þjóð er fyrir- sjáanlegur voði búinn. íslensk æska vill ekki og getur ekki búið 'við og tekið afleið- ingum af niðurrifspólitík rauðu samfylkingarinnar, þess vegna mun hún fylkja sjer undir merki þess flokks, sem einn berst fyrir velferð allrar þjóð- arinnar án tillits til stjetta. — Framtíð Islands byggist á ein- ingu allra landsmanna og Sjálf- stæðisflokkurinn er eini flokk- urinn, sem ekki otar stjett gegn stjett, þessvegna fylkir íslenska æskan sjer undir merki hans. Útan úr heimi berast stunur særðra manna, sem rauðu flokk arnir hafa otað saman til borg- arastyrjaldar. Örvæntingaróp svívirtra kvenna, grátur föður- lausra barna og neyðaróp mat- arlauss 'múgs, berast frá meg- inlandi Evrópu. I Austurvegi skjálfa miljónir öreiga 'fyrir morðhendi hins brjálaða Stal- ins. íslensk æska vill í tíma fyr- irbyggja að slíkt geti komið fyrir hjer, þessvegna fylkir hún sjer þjett undir merki Sjálf- stæðisflokksins, sem vill auka ^amúð og samvinnu milli allra stjetta, en ekki ala á óvild og öfund, sem að lokum leiðir til bræðravíga. Mikið og göfugt starf bíður þeirra íslensku æskumanna og kvenna, sem nú taka upp bar- áttu gegn ofbeldis og bróður- vígastefnum, sem ábyrgðarlaus- ir en valdafíknir leppar er- lendra öfgaflokka hafa flutt inn í landið. í kvöld hefst vetrarstarfsemi .sjálfstæðrar æsku í höfuðstaðn- um. íslensk æska hefir oft áð- ur skorið upp h rör að hausti er dimma tók. I skammdegi íslensku þjóð- arinnar var það æskan, sem vakti hinar löngu vökur, því hún trúði á vorið og hina björtu daga, sem koma, jafnvel á eft- , ir hinu svartasta skammdegi. Ungir Sjálfstæðismenn trúa að senn muni vora hjá hinni ís- lensku þjóð og þeir hræðast gkki þó nú sje dimt, því þeirra ler vorið og hinir löngu björtu dagar. Heimdellingar hefjið heilir vetrarstarfsemina. Verslunarskólinn verður settur í dag kl. 10 f. b. í Kaupþingssaln- um. Heimsókn um borð í „L/Audacieux". RRJETT úti fyrir' hafnarmynninu liggur ,,1’Audaci-i eux“, einn af allra glæsi: legustu, nýtísku tundur-l spillum Frakklands - og heimsins. Það, sem augað sjer, er mað- ur nálgast „l’Audacieux“, er frábærilegt meistaraverk nú- tímatækni, skapað af verkfræð- ingum vorra tíma, spengilegur og glæsilegur skipsskrokkur, með öllum hugsanlegum hern- aðarútbúnaði, skip, sem hefir heimsmet í hraða, og getur far- ið 44 sjómílur á klukkustund. * ,,l’Audacieux“ er einn af skyndiboðum franska flotans, ávalt reiðubúinn að koma fram fyrir land sitt og þjóð, á frið- artímum og ófriðar. í ófriði verður það með þeim hætti, að skipið kemur á yett- vang, þar sem þörf krefur, gýn- ir sig á staðnum, eða í námunda við hann, í sínum ógnandi stríðs ham. Og undir flestum kringum stæðum nægir það eitt, til þess að lægja ófriðarblikuna. I friði kemur það og fram sem fulltrúi Frakklands. For- ingi þess heimsækir, í viðhafn- arbúningi yfirvöld landsins, sem um er að ræða, er svo gjalda líku líkt í móti. * Þegar maður kemur um borð í „l’Audacieux“, finst manni ósjálfrátt, sem færist maður nær þeim heimsviðburðum, sem við daglega fáum frjettir af gegnum dagblöð, útvarp og önnur frjettatæki nútímans. Margir af hinum frönsku liðsforingjum hafa tekið virkan þátt í því að flytja heim flótta- menn frá Spáni, er hefir verið í ófriðarbáli nú um hríð. Margt ber á góma. Atburðir og æfintýr rifjast upp, er tengd eru við bláar bylgjur Suðurhafa, sólríkar strendur Afríku og nöfn, sem hljóma einkennilega í eyrum okkar, nöfn eins og Dakar, Casablanca og Algier. Þegar talið berst að siglingum, vekur það endurminningar um eftir- Jitsferðir suður til Baleaeyjar, Hebreaeyja, eða Madagaskar. * Liðsforingjarnir frönsku eru ólíkir útlits, hafa á sjer ein- kenni hinna háu og grönnu Normandie-búa, eða dökku og lágvöxnu Suður-Frakka. En eitt er þeim öllum sameiginlegt, elskulegt viðmót og gestrisni Frakkans, sem aldrei bregst. Þó !er þögull og alvarlegur svipur jyfir öllu og öllum um bofð; jÞví valda átakanlegiv atburðir síðustu daga. 1 Að heimsókninni lokinni för- um við aftur með skipinu, og nafnið „l’Audacieux“ festist ; okkur skírt í minni. Okkur dett- ur ósjálfrátt í hug, að það er í dag, sem „l’Aude“ leggur af stað heimleiðis með dr. Charcot og fjelaga hans, um borð. Þá mun þessi gnoð, er klýfur krappar öldur sjávarins, með þrílita fánanum fyrir stafni, bera heim boðin um það, að „l’Audacieux“ (,hetjan‘) fórn- aði lífi sínu langt í burtu frá ættlandi sínu, en verk hans mun lifa eins og nafn hans lifir á vörum manna. F. Nyborg Christensen. Kaupi gærur hæsta verði. Jón Gíslason, Hafnarflrlfft. Fyrirliggf andi: Rúgmjöl, hveiti, haframjöl fínt og gróft, hrísgrjón, hrís- mjöl, kartöflumjöl, hænsnafóður, kaffi, strásykur, mola- sykur. 5ig. i?. 5kjalöberg. (heildsalan). Fyrirlftggfandi: f £ Síldar lunnulrillur, Sekkjafrillur. Vjelsmiðjan Hjeðinn Sími 1365 (þrjár línur).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.