Morgunblaðið - 02.10.1936, Side 3

Morgunblaðið - 02.10.1936, Side 3
Föstudagur 2. •któber 1936. MORGUNBLAÐIÐ 3 -Barnalærdómur- ins 1. Pabbadrengur: Hvað er þetta, sem Morgunblaðið er að skrifa um koncessionir? Hvað þýðir þetta koncession? Eysteinn: Koncession þýðir sama og að veita hlutdeild í einhverju, barnið mitt. Sjáðu til, íbúarnir í Suður-Afríku vissu af ýmsum auðlindum í jörðu í landi sínu. En þeir áttu enga peninga til þess að hag- nýta sjer þessar auðlindir. Þeir fóru þessvegna til hinna vold- ugu Breta og fengu peningana að láni, en Bretar fengu í stað- inn hlutdeild í auðlindunum. Þetta þótti Bretum ágætt, og síðar varð Suður-Afríka bresk nýlenda og er nú eitt af sam- veldislöndum Breta. Pabbadrengur: En ætlar þú þá að veita Bretum hlut- deild í auðlindum íslands og gera ísland að breskri ný- Iendu? Eysteinn: Ussu nei, þetta segir bara Morgunblaðið. Jeg sagði við Breta, að koncession væri „fræðilegur mögúleiki“. Pabbadrengur: Já, en ef það er bara fræðilegur mögu- leiki, en ekki raunverulegur möguleiki, af hverju varstu þá að stinga upp á honum? Vissu Bretar ekki, að þessi „fræði- legi“ möguleiki væri fyrir hendi? Eysteinn: Æ, hættu nú þess iun spumingum, greyið mitt. Skemtifundur Heimdallar á sunnudaginn. Skemtifund heldur Heimdall- ur n. k. sunnudagskvöld í Oddfellowhúsinu. Óþarfi er að lýsa skemtifund- um „Heimdallar“. Unga fólkið í bænum man eftir þeim frá und- anförnum vetrum og veit að þeir eru með bestu skemtunum, sem boðið er upp á hjer í bæ. Ákveðið hefir verið að halda í vetur skemtifundi reglulega inn- an fjelagsins. Fundunum verður hagað líkt ©g undanfarna vetur. Fyrst verður sameiginleg kaffi- drykkja, sem hefst kl. 9 e. h. Á meðan setið verður við kaffið verða ræður haldnar og söngvar sungnir. Binnig verða önnur skemtiatriði, svo sem píanóleikur og tvísöngur, eða kórsöngur. Að lokum verður dans stiginn hæfi- lega langt fram eftir kveldi. Oddfellowhúsið hefir undanfar- ið reynst helst til lítið fyrir skemtisamkomur ungra Sjálfstæð ismanna. Svo mun og verða raun á nú. Er því vissara að tryggja sjer aðgang í tíma. Til Strandarkirkju frá G. K. 10 kr., Blinu 5 kr., í. E. 5 kr., ó- nefndri konu 5 kr., norðlenskri konu (S. G.) 10 kr., Huldu 5 kr., ónefndum 1 kr., G. B. 8 kr., K. ©. 5 kr., Nóa 2 kr. ÚtgerOarmenn og sjúmenn eiga að taka síldar söluna úr hðndum Finns Jónssonar. Þakkir frá ræðismanni Frakka. Herra ritstjóri. .;.t ^ . Því miður er mjer ekki unt að þakka p.ersónulega hverjum þeirra manna, sem sýnt hafa samúð sína við sorg þá, sem Frakk- land hefir orðið fyrir. Mjer ber að þakka allri íslensku þjóð- inni, og því leita jeg til yðar heiðraða blaðs. Fyrst og fremst vil jeg flytja þakklæti mitt ríkisstjórninni, sem brá við jafnskjótt og fregnin um strand „Pourquoi Pas?“ varð kunn og gerði allar þær ráðstafani". sem í mannlegu valdi stóðu, til þess að björgun mætti takast. Allir opinberir starfs- menn og aðrir einstaklingar, sem jeg þurfti að leita til, ljetu mjer tafarlaust í tje hjálp sína, og mjer varð það brátt ljóst, að þeir gerðu það ekki einungis vegna fyrirmæla yfirboðara sinna, heldur vegna samúðar þeirrar, sem þeir vildu sýna Dr. Charcot og fjelögum hans, en þeir höfðu hinar mestu mætur á íslaudi, landinu, sem þeir höfðu heimsótt um svo mörg undanfarin ár. Jeg vil sjerstaklega benda á, hve mikla aðdáun vakti hjá mjer það hugrekki, sem formaður og skipshöfnin á mótorbátn- um „Ægir“ sýndu, er þeir voru að reyna að koma við björgun. Þeir komú fyrstir á strandstaðinn og tókst, eftir harðvítuga bar- áttu við óveður og Sjógang, að ná sambandi við hið strandaða skip. í tvo daga samfleytt hjeldu þeir áfram leit sinni, þangað til öll von var úti, og það var ekki fyr en fullvíst var, að hafið myndi ekki skila aftur bráð sinni, að hinir hugrökku menn hjeldu til hafnar. Jeg þakka hr. Kristjáni S. Þórólfssyni, sem bjargaði hinum eina Frakka, sem komst lífs af, og jeg þakka líka öllu heima- fólkinu í Straumfirði. Landa mínum var hjúkrað þar af svo mik- illi alúð, að hann hrestist skjótt, enda var farið með hann eins og bróður. Að lokum þakka jeg öllum þeim íslendingum, sem færðu sína hinstu kveðju þeim, sem nú hafa látið lífið fyrir vísindin. Mjer er kunnugt um það, að sumir komu langt að til þess að fylgja kistum þeirra. Og þegar líkfylgdin fór eftir götum höf- uðborgarinnar, vottaði fólkið samúð sína á svo hjartanlee-i” virðulegan hátt, að ekki líður úr minni. í mínu landi er mælt, að þegar einhver ratar í raunir, kom- ist hann fyrst að því, hverjir sjeu vinir hans. Við þetta sorglega tækifæri hafa allir íslendingar sýnt, að þeir eru sannir og ein- lægir vinir Frakklands. Með virðingu A. ZARZECKI ræðismaður Frakka á íslandi. Reykjavík, 1. október 1936. 100 menn teknir í atvinnu- bótavinnu í gær. o' j jtj Atvinnubótavinnan er að hefjast. Afundi bæjarráðs 25. f. m. var samþykt að hefja atvinnubótavinnu hjer í bænum frá 1. okt., með alt að 100 verkamönnum. Þessi atvinnubótavinna hófst í gær. Á bæjarstjórnarfundi í gær spurðist Sigurður Ólafsson fyrir um það, hvort rjett væri að bú- ið væri að segja upp öllum þeim mönnum, sem unnið hefðu í bæj- arvinnunni. Borgarstjóri upplýsti, að ekki væri búið að segja öllum upp, en uon þeim hefði verið fækkað um 40. Þetta stafaði af því, að fjárveit- ingar þær, sem varið væri í þessu skyni, væru að þrotum komnar. Þessvegna hefði verið ákveðið að draga saman vinnuna smámsam- an. Hinsvegar byrjaði nú atvinnu I dO' bótavinnan og yrði henni væntan- lega haldið áfram til áramóta. Sig. Ólafsson flutti tillögu þess efnis, að fjölgað yrði nú þegar atvinnubótavinnunni um þá 40 Finnur knúður til að ðmerkja ummæli sln og Alþýðublaðsins. Síldarsöltun hefsl að nýju i Faxaflóa. . ¥ maímánuði í vor hættu Kveldúlfstogar- arnir veiðum nokkrum dögum fyr en . venja er til. AlJjýðublaðið notaði þetta tilefni til þess að halda uppi látlausum óhróðri um Kveldúlf, og má heita að blaðið væri „helgað“ rógnum og árásunum um Kveldúlf í nær hálfan mánuð. Var því sleitulaust haldið fram, að Kveldúlfur gerði leik að því að svifta fólk atvinnu, beinlínis í þvi skyni að „þrengja að landslýðnum“ og gera fólk ,,frávita“ af hörmungum. C% forkólfar verkalýðsins ljetu ekki þar við sitja, heldúb boðuðu þeir til almenns verkalýðsfundar í Barnaskólaportinu, til þess að ræða um „stöðvun Kveldúlfstogaranna“. Fundardag- inn birti svo Alþbl. svæsna árásargrein um „þorparabragð Thors- bræðra“r, og á sjálfum fundinum töluðu þeir um hin „svívirði- legu fantabrögð“, „haugalygar“, ,,djöfulsæði“ Thorsbræðra, sem stoðvað hefðu veiði togaranna. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Það upplýstist nú í þessu máli, að fisklaust var um allan sjó. Hitt vita allir, að enda þótt þorskafli í ár sje aðeins 57% af aflanum í fyrra og ekki' nema 42% af afla ársins 1933, eru samt sem áður engar líkur til að hægt verði að selja allan fiskinn. Árásirnar á Kveldúlf voru því út af því og því einu, að Kveldúlfur hætti veiðum þpg^r hvergi var fisk að fá, og fiskur óseljanlegur þótt hann hefði veiðst. Samt sem áður þagnaði Al- þýðublaðið ekki fyr en „for- kólfarnir“ voru keflaðir og knjesettir frammi fyrir þúsund- um verkamanna í Barnaskóla- portinu. Og það allra ógeðslegasta í þeim loddaraleik var þó, að enda þótt allir viti að árásirnar á Kveldúlf stjórnuðust af brjál- æðiskendri heift strákanna, sem skrifa Alþýðublaðið, í garð Thorsbræðra, þá var ástin á verkalýðnum altaf látin fljóta ofan á eins og rjómi. * Nú hefst næsti þáttur. Meðal þeirra, er harðast urðu úti vegna aflaleysisins á vertíðinni eru þeir, sem fram- færi hafa af vjelbátaútvegnum í Faxaflóa. Má segja að jafnt gildi um sjómenn sem útvegs- menn, að fæstir sjá fram úr þrengingunum. Síldveiðarnar í sumar hafa lítið bætt úr þeirri skák, því hvorttveggja er, að afkoman er þar misjöfn og ekki jafn góð og almenningur hygg- ur, og hitt, að tiltölulega fáir vjelbátar úr Faxaflóa gátu komist yfir snurpinót til síld- veiða. Hmsvegar vóru mjog margir vjelbátanna gerðír út til reknetaveiða ár<síðasta hausti og gáfust þær veiðar vel. Fólkið hafði lífvænlega atvinnu og síldin reyndist góð vara, eink- um þó ljettsaltaða síldin. Það ræður því að líkum að hafist var handa á nýjan leik í haust, og voru milli 60 og 70 vjelbátar gerðir út á reknetaveiðar, og öfluðu vel. Milli 800 og 1000 aðþrengdra manna eygði nú framundan sæmilegar afkomuhorfur og það var eins og nýtt líf og fjör færðist í fólkið. En ekki er sopið kálið þó í ausuna sje komið. Ríkisstjórnin á §jer Síldar- nefnd, og hefir þar eitt smá- vaxnasta peð sitt til forystu með alræðisvaldi yfir síld'veið- um og síldarsöltun landsmanna. Og nú komu boð frá Finni Jóns- syni um að enga síld mæ£ti salta í Faxaflóa. Loks yoru þó Rússum seldar 19 þús. tunnqr, og er sú sala öll með þeim hætti að ærið er rannsóknarefni, þó ekki verði rakið hjer. En er lokið var að fiska í Rússann, skipaði Finnur fyrir á ný að nú skyldi stöðvuð, öll veiði. Hjer var mikið í húfi, — atvinna 800-^1000 þurfandi fjölskyldna. Gat það hugsast að „stjórn .hinna vinnandi stjetta“ ljeti'það viðgangast að 800—1000 fjölskyldur væru sviftar daglegu brauði sem geymt var rjett við landstein- ana, « Gat það húgsast? Bann Finns skall yfír. Faxa-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.