Morgunblaðið - 03.10.1936, Side 5
ILaugardagur 3. október 1936
MORGU NBLAÐIÐ
i
5
I
Próf. Hallesbv og sex norskir stúdentar heimsækja ísland.
x
Bjarne Hareide.
Sigurd Lunde.
—Barnalærdómur—
Alþýðublaðsins 2,
Pabbadrengur: Alþýðublaðið
segir, að Morgunblaðið skaði
ísland út á við, af því að það
birtir það, sem stóð í vasabók-
inni þinni. Er það satt, pabbi, I
að það hafi verið eitthvað
ljótt í vasabókinni?
Eysteinn: Sjáðu nú til,
dengsli litli. Þegar pabbi þinn
fer til stóru þjóðanna og tal-
ar við fínu mennina, sem full-
trúi íslenska ríkisins, þá kæra
þeir sig ekkert um að eiga það
á h,ættu, að það verði birt op-
inberlega, sem þeir segja. í
vasabókinni var ekkert ljótt.
Það er bara þetta, sem Alþýðu-
blaðið á við.
Pabbadrengur: Já, en Al-
þýðublaðið birti líka það, sem
stóð í vasabókinni. Er Alþýðu-
blaðið líka vont við þig, pabbi?
Eysteinn: Nei, nei, Alþýðu-
blaðið vill eins og jeg vil, og
svo geri jeg eitthvað fyrir það
í staðinn. En sjáðu til, þó að
leysu, er það fór að birta það,
Alþýðublaðið hafi gert vit-
sem í bókinni stóð, þá gerir
það ekki svo mikið til, því að
það birti enga þýðingu á því,
sem þar stóð, og pabbi þinn
skrifaði í vasabókina á ensku.
Það sem stóð í Alþýðublaðinu
skilja ekki nema fáir hjer
heima, og aðeins þeir, sem
fylgjast vel með í stjórnmál-
um.
Pabbadrengur: En skilja
stóru mennirnir í Englandi
ekki það, sem stendur í bók-
inni á ensku, og er það ekki
það, sem Alþýðublaðið er
hrætt við? Þú ert ekkert hrædd
ur við að fólkið lijer heima
skilji það, er það? Heyrðu,
pabbi, heldurðu að þú fáir ekki
að vera áfram ráðherra?
Eysteinn: A — a — auð-
vitað, drengur minn, en hættu
nú að spyrja þetta. Sjerðu
ekki, að pabbi þinn hefir ann-
að að hugsa?
Nýkomið
Hornafjarðar kartöflur og
lúðuriklingur.
Sijf. Þ. Jónsson,
Xiaugaveg 62. Sími 3858.
Um fyrlrkomulag á
sólu á ísaðri síld.
Á fundi, sem útg'erðar-
menn vjelbáta hjeldu í dag,
komu þeir sjer saman um
eftirfarandi fyrirkomulag
á sölu síldar til ísunar í to.e-
ara eða önnur skip:
Bátunum sje skift í tvo aðal-
flokka, þannig, að í öðrum flokkn
um sjeu bátar frá Akranesi, Rvík
og Hafnarfirði, sem frá þeim
stöðum hafa stundað síldveiðar
upp á síðkastið, og eru frá Akra-
nesi 19, Reykjavík 9 og Hafnar-
firði 4, samtals 32 bátar. Einnig
sjeu í þeim flokki Garðar, Vest-.
mannaeyjum, Stella, Norðfirði,
Sæhrímnir og Minnie, Akureyri,
og Vjebjörn, Isafirði, samtals 37
í liinum flokknum sjeu bátar
úr Vogum, Njarðvíkum, Keflavík,
Garði og Sandgerði, ásamt 5 að-
komubátum, sem verið hafa í
Keflavík í liaust. frá þessum
stöðum hafa stundað síldveiðar
upp á síðkastið, Vogum 1, Njarð-
víkum 4, Keflavík 17, Garði 7 og
Sandgerði 6 bátar, samtals 35
bátar. í þessum flokki sjeu einn-
ig Ágústa, Freyja, Erlingur og
Ofeigur, allir frá Vestm., samtals
39 bátar. Bætist fleiri bátar við
síðar, skiftast þeir niður í flokk-
ana.
Sje að'-M'•; eitt skip, sem kaup-
ir, liá f.iri aðeins annar flokkur-
inr ú;. og er það eftir hlutkesti,
sem framkvæmt var í dag, 1.
október, sá flokkurinn, sem fjn- er
talinn lijer á undan, en eftir það
fara flokkarnir til skiftis. Sjeu
aftur á móti 2 skip, fari báðir
flokkarnir út, og liggi þá annað
skipið í Reykjavík, ert1 hitt í
Keflavík. Annars liggi ávalt skip-
íð fyrir 1. flokk í Rvík, en fyrir
2, flokk í Keflavík. Sjeu 3 skip,
sem kaupa, liggi 2 í Keflavík, en
1 í Rvík, og fari þá einnig ein-
hverjir bátar úr 1. fl. í annað
[skipið í Keflavík. Sjeu aftur á
móti 4 skip, liggi 2 í Rvík og 2
í Keflavík. Bætist fleiri kaup-
endur við þá, sem nú eru, þá eigi
allir jafnan rjett á að láta í þau
skip, sem þeir kunna að hafa,
þannig, að þau skiftist á flokk-
ana eins og áður er sagt, og má
enginn bátur liafa forgangslönd-
un í nokkurt skip, heldur ætíð
afgreiðast eftir þeirri röð, sem
þeir koma í, þó geta flokkarnir
innbyrðis komið sjer saman um
að þeir bátar, sem ekki losnuðu
við síldina í síðasta skip þess
flokks, komist í það næsta.
Reykjavík,' 1. október 1936.
Ólafur Jónsson
(fundarritari).
Jóhann Hannesson
eand. theol býður
þá vclkoinna.
Prófessor Hallesby og 6 norskir
stúdentar heimsækja ísland.
Næstkomandi mánudag er von
á hinum þekta prófessor dr. 0.
Hallesby og 6 norskum stúdent-
um liingað til Reykjavíkur með
„Lyru“. Hallesby verður senni-
lega ekki nema 12 daga hjer á
landi, en stúdentarnir verða hjer
nokkru lengur. Þrír þeirra eru
læknastúdentar og þrír guðfræð-
ingar.
Prófessor Hallesby er þektur
maður um öll Norðurlönd og víða
annarsstaðar, bæði austan liafs og
vestan. Síðan 1909 hefir hann ver-
ið kennari við Safnaðarháskólann
í Oslo, en sá skóli hefir um áll-
langt skeið útskrifað mikinn meiri
hluta allra presta norsku kirkj-
unnar.
Á stúdentsárum sínum var
Hallesby ákafur talsmaður hinnar
róttæku guðfræði er sat þá í há-
sæti við Oslo-liáskóla, en skömmu
eftir að Hallesby hafði lokið em-
bættisprófi, snerist hann til lif-
andi kristindóms og upp frá því
gjörbreyttist öll lífsstefna hans.
Hann hefir verið ákveðinn foriugi
hinnar jákvæðu guðfræði (deu
positive theologis) og framúrskar-
andi í öllu kristilegu starfi og
baráttunni gegn hinni róttæku
guðfræði sem háð hefir verið af
mörgum bestu mönnum norsku
kirkjunnar með mjög góðum ár-
angri.
Hallesby er einhver mesti guð-
fræðingur Norðurlanda. Mikil
verk vísindalegs efnis liggja eftir
hann, eins og t. d. triifræði og
siðfræði hans, alls 3 stór bindi.
Hallesby er einnig viðurkendur
ágætur kennari og hann er líka
ræðumaður. með afbrigðum. Það
heyrist til hans um alt landið, frá
hinu minsta lireysi til konungs-
hallarinnar, eins og þektur Norð-
maður segir um hann. Ennfremur
er hann mikilvirkur rithöfundur
og hefir skrifað ágætar bækur
handa alþýðu manna. Ein þessara
bóka lians, „Trúrækni og kristin-
dómur“ hefir verið gefin út á ís-
lensku af Kristilegu Bókmentafje-
lagi. Auk þess er hægt að fá sum-
ar aðrar bækur hans hjer, og er
merkilegt hvað þær eru orðnar ut-
breiddar. Og með bókum sínum
hefir Hallesby orðið þúsundum
manna til blessunar, einnig þeim
sem ekki eru á sama máli og hann
sjálfur.
Alloft hefir Hallesby farið í
fyrirlestraferðir til Danmerkur og
Svíþjóðar og þar að auki til Ame-
ríku. Hvarvetna þyrpist að honum
fjöldi fólks, og eru sumir einlægir
fylgismenn hans og aðdáendur, en
aðrir bitrir andstæðingar. Nú
kemur þessi frægi maður í fyrstp
silni til íslands. Hann og stúdent-
arnir halda allmargar almennar
samkomur í kirkjunum, og Halles-
by mun verða boðið að halda fyr-
irlestra við Háskólann. Verður að-
gangur fyrir almenning meðan
húsrúm leyfir.
Stúdentarnir sem eru í för með
lionum eru einnig miklir áhuga-
menn og hafa þegar vaivið eftir-
tekt á sjer í Noregi fyrir áhuga
sinn á kristilegu starfi, sjerstak-
lega í sambandi við hina kristi-
logií stúdentahreyfingu. Sá sem
þetta ritar liefir einnig verið þátt-'
takandi í þessari hreyfingu sem
fer svo liraðvaxandi á síðustu ár-
um. Var mjög ánægjulegt að vera
með þessum glæsilega æskulýð,
bæði á sainkomuin. sem þeir lijeldu
í borgunum og á ferðalögum sem
við fórum hópum saman um fjöll
og skóga. Þá kveiktum AÚð bál í
kvöldkyrðinni við vötnin í skóg-
inum og sungum og vitnuðum um
iíf okkar í samfjelaginu við Krist.
— Nú sendir „Norges Kristelige
Student- og' Gymnasiastlag" þessa
ungu íslandsvini til að kynna
þessa hreyfingu hjer á Sögueyj-
unni. Við ættum öll að fagna
þeirra góðu heimsókn, því þeir
koma sem frændur og vinir.
Jóhann Hannesson.
heflr hlotiH
besln meffinæli
Úrvals
Kartöflur,
ódýrar í sekkjum.
JJIUbIZMÍ
Lifur, lijörlu
og swið.
Nýslátrað dilkakjöt og alls-
konar grænmeti.
Jóhannes Jóhannsson,
Grundarstíg 2. Sími 4131.
Höfum fengið afar góðar
og ódýrar
gúmmíbuxur á börn.
hjúkrunarvöruverslun.
Ajusturstr. 7. — Sími 4637.