Morgunblaðið - 24.10.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.10.1936, Blaðsíða 2
2 MURGUNBLAÐIÐ Laugardagur 24. okt. 1936. Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjörar: .T6n Kjartansson og Xaltýr Stefánsson — ábyrgSarmaBur. Ritstjörn og afgreiSsla: Austúrstræti 8. — Slmi 1600. Auglýsingastjóri: K, Hafberg. Auglýsingaskjsifstof a: Austurstræti 17. — Sfmi 3700. Heimaslmar: J6n Kjartansson, nr. 3742 Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óia, nr. 3045. E. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuSi. í lausasölu: 15 aura eintakiS. 25 aura meS Lesbók. HLUTLEYSIP OG SPAWW. Fekk Madridstjórnin vopn og 60 flugvjelar frá Leon Blum? Þungar sakir bornar á Biumstjórnina. Sonur Blum sá um kaupin. Eysteinn þrætir Allir muna hvernig fór fyr- ir Eysteini Jónssyni á dögun- um. Það var þegar mestur hvell- urinn varð út úr Konsessions- kompunni. Við rannsókn þess máls komst það upp, að ein- hverjir góðir „vinstri“-menn, eins og Eysteinn kallar rauðu flokkana einu nafni — höfðu verið að gera sjer mat og drykk úr stolnum bókum. Ein þessara bóka hafði horfið af heimili Ey- steíns Jónssonar og úr hans vörslu. Eins tig eðlilegt var, taldi lög- réglan það rannsóknarvert, hvort hinir fingralöngu menn, sem farnir voru að hafa illa fengnar bækur sjer til uppi- haids, væru ekki einmitt hinir sömu, sem valdir væru að hvarfi vasabókarinnar. Er nú leitað umsagnar Ey- steins. En þá skeður það eftir- tektarverða, að Eysteinn synjar með öllu fyrir að bók sú, sem notuð hafði verið sem verslun- arvara, að fornspurðum eig- anda, hefði nokkurn tíma ver- ið í sinni vörslu. Rannsókninni heldur áfram og sannast með framburði annara manna, að ráðherrann hafði farið rangt með. Þegar böndin berast svo að Eysteini, að ekki er undan- komu auðið, hættir hann loks að þræta. Nú þarf það ekki að vera að Eysteinn hafi sagt hjer vísvit- andi ósatt, en hafi svo ekki verið, þá er hann að minsta kosti minnissljórri en títt er um menn í blóma lífsins. Hvort heldur sem er, þá verða slíkir menn, að sætta sig við að fram- burður þeirra verði tekinn með öllum fyrirvara, þótt þeif þræti. Stjómarflokkarnir keppast nú við að bera af sjer samfylk- ingarmakkið. Og nú hefir Ey- steinn aftur leiðst út í að þræta í líf og blóð. Er þetta máske svo að skilja, að hann sje búinn að gleyma, hvað fyrir kom, eftir að hann þrætti í vasabókarmálinu? Allir hugsandi menn í stjórn- arflokkunum hljóta að skilja það, að eins og sakír standa, taka menn ekkert mark á því, þótt Eysteinn þræti. Hann er reyndur að því að vera gleyminn bæði á sann- leikann og „skjöl sem varða fjárhag ríkisins“. Þessvegna er „þræta“ hans í samfylkingar- málinu gersamlega dauð og ómerk. Dimitroff fallinn í ónáð hjá Stalin. Eftir fund hlutleysisnefndarinnar í gærkvöldi sagði Maisky sendiherra Rússa í London’! „Rússar eru kyrrir í nefndinni“. Á fundinum var lesin upp yfirlýsing frá Rússum út af brotum á hlutleysissátt- málanum, sem þeir fullyrða að nokkrár þjóðir hafi gert sig sekar um og var yfirlýsingunni vísað til undimefndar, sem á að fá skýringar á einstökum at- riðum hennar. f nefndinni verður m. a. Rússi. — Næsti fundur hlutleysisnefndarinnar verður á mið- vikudaginn. Hlutleysisnefndin situr nú á — að því er talið er — síðasta: fundi sínum í London og samtímis rignir niður kærum á báða hóga um stuðning ýmist við Madridstjórnina eða uppreisnarmenn. 1 Frakklandi hefir komið fram þung ákæra á hendur Leon Blum stjórninni. Hægri-blaðið Echo de Paris fullyrðir að stjórnin hafi sent til Madridstjórnarinnar sextíu flugvjelar og geysi- miklar vopnabirgðir og Leon Blum hafi jafnvel Iátið sinn eigin son semja við Spánverja um vopnakaupin. í Moskva fara fram grimmileg átök út af afstöðunni til Spánar innan sovjet-stjórnarinnar. Litvinoff heldur áfram að berjast fyrir hlutleysi, en talið er að hann verði borinn ofur_ liði og hinir sigri, sem vilja skakka leikinn á Spáni. Orðrómur gengur um það, að Stalin hafi m.ælt svo fyr_ ir, að Dimitroff, hinn kunni kommúnista-leikari, sem nafntogaður varð eft- ir ríkisdagsbrunann í Þýskalandi, skuli gerður út lægur frá Moskva og flutt- ur til Síberíu. Dimitroff fekk griðastað með al nánustu samstarfsmanna Stalins, er Hitler hafði rekið hann af höndum sjer. Nú er Dimitroff kent um hvernig komið er fyrir Rússum í afstöð- unni til spönsku styrjaldarinn- ar og honum gefinn ódugnaður að sök (símar frjettaritari vor). Þá gengur orðrómur um það, (segir f Lundúnafregn F.Ú.), að Voroschiloff, hermálafull- trúi Sovjetríkjanna, hafi nú þeg ar gefið skipun um að senda spönsku lýðveldisstjórninni 5 þús. þungar og ljettar vjelbyss- ur, 300 fallbyssur ásamt tilheyr andi skotfærum, og 100 orustu- og sprengiflugvjelar. 1 útvarpi, uppreisnarmanna var 1 gær staðhæft, að 50 flug- vjelar frá Rússlandi hefðu bor- ist stjórninni á Spáni í fyrra- FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Frá ISol&fíti: 250 þús, lascistar virða stjórnarbann vettugi. Belgisku rexistarnir ætla að virða vettugi fyrirmæli von Zeelands forsætisráðherra sem hann beindi til þeirra í ræðu: „hingað og ekki lengra! Vjer munum aldrei láta stjórn- ast af götulýð“ og fara hóp- göngu sína til Brússel á sunnu- daginn sem fyrirhuguð var. Þar eð sósíalistar hafa í hótunum að stofna til gagn-samblásturs er óttast að til alvarlegra óeirða kunni að draga í Brússel á morgun. 1 hópgöngu rexista er talið að verði alt að því 250 þús. manns. Rexistar eru nýr flokkur, sem vann 22 þingsæti af 202 við síð- ustu þingkoshingar í Berlín. Foringi þeirra er 27 ára og heit_ ir Louis Degrelle. ------------Ekki nema---------------------------- 17 km. frá Madrid: Vígstaðan í gær. Ritsímasamband við Madrid hefir verið rofið. Framverðir í liði uppreisnarmanna eru nú ekki nexna 17 km. frá borginni. Klukkan hálf níu í gærmorgun (segir í Lundúna. fregn F.O.), sveimuðu nokkrar flugvjelar uppreisnar- manna yfir Madrid. Var þegar hafin á þær skothríð, úr varnarbyssum stjórnarinnar gegn flugvjelum, en þær flugu hátt, og var engin þeirra hæfð. Tveim klukkustundum síðar komu þrjár flugvjelar aðvífandi, Ein þeirra flaug mjög lágt, og var skotið úr henrsi vjelbyssuskotum á skyttur stjórnarinnar, við varnar- byssurnar. í Madrid er sú skoðun ríkjandi, að tilgangur- inn mun.3 hafa verið, að skjóta Madridbúum skelk í bringu, og minna þá á, hvers þeir mega vænta. Helstu tíðindi af vígstöðvunum eru þessi: Uppreisnarmenn eru búnir að umkringja E1 Escorial. Gert er ráð fyrir því, að uppreisnarmenn færi nú til her- línu sína milli Illescas og Navalcamero, og ef til vill það- an norður á bóginn, ti-í þess að rjetta línuna, og færa hana alla nær Madrid. Þó eru fregnir um, bardaga í grend við Siguenza, norð- austan við Madrid. Það hefir nú frjest, að orustan um Navalcarnero hafi staðið í 10 klukkustundir, og verið mjög grimm. Márar börðust þar í návígi við hermenn stjórnarinnar, sem vörð- ust hreystilega lengi vel, en Ijetu svo alt í einu undan síga. (Samkvæmt FÚ.-fregnum). Dimiíroff. Stalin sendir 60 þús. manns i Síberíuútlegð I skeyti frá Varsjá (Póllandi) til Ritzau-frjettastofunnar, seg- ir að Stalin hafi rekið sextíu Hvað verður gert við gisiina? 10 þús. teknir fastir í Madrid. Uftir því, sem Rauði- Kross hefir frjett, hefir Madridstjórnin lát ið taka höndum 10 þús. gísla, þar af 1500 kon- ur. í Lundúnafregn (F.Ú.) seg- ir, að tala þeirra, sem stjórn_ in láti taka fasta vegna sam- hyggðar við uppreisnarmenn, fari dagvaxandi. Vegna ósigra þeirra, sem stjómarherinn hefir beðið und- anfarna daga, fyrst við Illes- cas, og síðar við Navalcarnero, hefir stjórnin skipt um her- stjórn. Hefir herforingi sá, er veitt hefir forustu hersveitum stjórnarinnar á þessum slóðum, verið rekinn, en Posas hershöfð- jingi settur yfir herinn í hans stað. En öðrum hershöfðingja hefir verið falin á hendur yf- þúsund manns, sem álitnir vóru irstjóm þess hluta hersins, sem Trotskysinnar í útlegð til Si- á að verja sjálfa borgina, og er beríu. bækistöð hans í Madrid.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.