Morgunblaðið - 24.10.1936, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 24.10.1936, Blaðsíða 4
4 4 MORGUNBLAÐIÐ ■ - j . * Laugardagur 24. okt. 1936. Átti að minka framlag ríkissjóðs til atvinnubóta um 100 þús. krónur? Alþýðublaðið gefur það í skyn í gær. P að hefir sjálfsagt hækkað brúnin á mörgum atvinnuleysingj anum hjer í bænum við lestur Alþýðublaðsins í gær. Þar birtist á fremstu síðu grein með gríðar- stórri fyrirsögn, svohljóðandi: „Ríkisstjórnin leggur fram 100 þúsund kr. í viðbót til atvinnubóta í Reykjavík“. Loksins kom að því, að rik- isstjórnin — „stjórn hinna vinnandi stjetta“ — mundi eft- ir skjólstæðingunum, verka- mönnunum, hefir sennilega ver- ið hdgsun ýmsra, er þeir lásu þessi gleðitíðindi í Alþýðublað- inu. —Hundrað þúsund krónur í viðbót til atvinnubóta; það var líkt stjórninni okkar, varð ein- um sósíalistabroddanum að orði, í gær, um leið og hann skýrði atyinnulausum verka- manni frá tíðindunum. Atvinnulausi verkamaðurinn sagði ekki neitt. Hann hafði svo oft verið svikinn af „stjórninni okkar“, og Alþýðublaðið hafði svo oft sagt ósatt, til þess að gylla .og fegra málstað „stjórnarinnar okk- ar“„ * Og -— því miður — reyndist það svo, enn, að Alþýðublaðið sagði ósatt. Málið horfir þannig við: Bæjarráð hafði ætlast til að at- vinnubætur á þessu ári yrðu hin- ar sömu og s.l. ár. Bn til þess að þetta gæti orðið þurfti ríkið að leggja fram 100 þús. kr. í viðbót við það, sem stjómin hafði ætlað til atvinnubóta í bænum. Borgarstjóri fór fram á það við ríkisstjórnina, að hún legði þess- ar 100 þús. kr. fram, til þess að atvinnubætur gætu orðið hinar sömu og í fyrra. Nú hefir ríkisstjórnin orðið við þessari beiðni borgarstjóra og verður því varið til atvinnubóta á þessu ári nákvæmlega sömu upp hæð og s.l. ár. Þetta er „viðbótin", sem Al- þýðublaðið gumar svo mjög af í gær! Því þykir að ríkisstjórnin geri vel, ef hún ekki dregur úr atvinnubótunum, enda þótt at- vinnuleysið sje síst minna nú en í fyrra!! Svona er Alþýðublaðið í garð verkaiýðsins! Beck boðið til London. Berlín 22. okt. F.Ú. Tilkynt hefir verið, að enska stjórnin hafi boðið Beck, utan- ríkisráðherra Póllands, til heim- sólcnar í London, og hafi hann þegið boðið. Heimsóknin mun eiga sjer stað 8.—12. nóv. næstkomandi. Haile Selassie biður enn nm hjálp. Italir byrjaðir herferð- ina vestur á bóginn. London 23. okt. F.Ú. Abyssiniukeisari hefir sent Avenol, aðalritara Þjóðabanda- Jagsins skeyti, sem honum hef- ir borist frá settum landstjóra Abyssiniu í Bore, þar sem land- stjórinn segir, að allur vestur- hluti landsins sje sameinaður undir eina stjórn, og að það sje eindregin ósk Abyssiniumanna á þessu svæði, að verja landið gegn ítölum. Biður hann keisarann að snúa sjer enn einu sinni til Þjóðabandalagsins, með beiðni um hjálp Abyssiniu til handa. Þá segir einnig í skeytinu, að ítalir sjeu nú á leiðinni til suð- vestur Abyssiniu með mikinn her, og að þegar hafi orðið tvær stórorustur, í grend við Sala- vatn í Sidamo hjeraði. í annari þessari orustu hafi ítalr beðið algerðan ósigur, en í hinni hafi her Abyssiniumanna beðið ósig- ur, einungis vegna þess, að ítal- ir gátu komið því við að nota ílugvjelar sínar. Bretar hraða víg- búnaði sínum. New York Times býst við því, að Bretar muni kaupa fimtán hundruð flugvjelar í Ameríku, þar eð breskar verksmiðjur geti ekki fullnægt eftirspurn hersins á nógu skömmum tíma. Telja Bretar sig neydda til að hraða vígbúnaði sínum eins og auðið er, vegna vígbúnaðar- aukningarinnar á meginland- inu. FYRST hinn lokkandi ilmur — dá- samlegur, töfrandi. SÍÐAN, bragðið óviðjafnanlega — ljúffengt, fullkomið. OG LOKS, hin hressandi áhrif — þreytan er horfin, gleðin endurvakin. SANNARLEGA er ekki völ á öðrum drykk, sem veitir yður meiri gleði og unað. O. J. & K.-kaffi er framleitt úr dýr- ustu og bestu kaffibaunum og sent í verslanir bæjarins beint úr brenslu- ofnunum. Itað kemur því ávalt til yðar NÝTT, ILMANDI, LJIJF- FENGT OG HRESSANDI. O. ]. & K.-KAFFI „Af ávöxtunum skuluð þjer þekkja þá“. EPLI. fögur á að líta, girnileg til átu. Ostur, smjðr. Kæfa, Hólsfjallahangi- kjötið. Úrvals ísl. afurðir. Heimsfrægar Sápur og aðrar hreinlætisvörur. MUeWJL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.