Morgunblaðið - 01.11.1936, Síða 2
2
'Á'
MOKGUNBLAÐIÖ
Sunnudagur 1. nóv. 1936.
FRANCO BYRJAR SOKN
í KATALONÍU.
70 börn drepin í loftárás við Madrid.
2:1 með Roosevelt
(3:1 í gær).
Landon heldur ræðu.
London í gær. FU.
í New York standa veðmálin 2:1 í dag með Roosevelt. í
gær stóðu þau 3:1 með Roosevelt. Forsetakosningin fer fram
á þriðjudaginn.
Er verkfall 27 þús. hafnarverkamanna á Kyrrahafsströnd
talin vera aðalástæðan fyrir því, að líkur Roosevelts hafa versn-
að. Það er álitið, að vegna verkfallsins kunni Roosevelt að tapa
fylgi í Washington, Oregon og Californíu-ríkjum.
General Johnson, sá er fyrstur veitti viðreisnarstarfinu
forustu, hefir sagt, að samkvæmt trúnaðarskýrslu repubLicana-
flokksins, sem hann hafi sjeð, búist republicanar jafnvel við
því, að Roosevelt muni sigra í Kansas, en þaðan er Landon
ættaður og í því ríki hefir hann gegnt ríkisstjóraembætti.
Rússneskur her-
foringi stjórnar
vörninni í Madrid.
í tilkynningu frá uppreisnarmönnum segir,
að á suðurvígstöðvunum hafi fallið af stjórnarlið-
inu 17 þús. manns, en ekki nema 2 þús. uppreisn-
armenn síðan styrjöldin hófst. Á yfirráðasvæði
stjórnarinnar hafa hundrað þúsund manns týnst,
án þess að nokkur viti hvað af þeim hafi orðið.
FRANCO hefir reynt að gera árás á Kata-
lóníu af hafi og slíta sambandið milli
hennar og Frakklands. Til þess að yfir-
ráð hans á Spáni geti verið örugg, verður hann
að leggja undir sig Katalóníu.
Þrjú herflutningaskip uppreisnarmanna hafa
reynt að setja hermenn á land við Rosasflóa,
skamt fyrir norðan Barcelona, en ófrjett er hvort
þetta hafi tekist (símar frjettaritari vor).
Stjórnarlið hefir verið sent, í skyndi til strandarinnar
þarna norðurfrá, en áður hafði verið komið fyrir þar stór-
skotastöðvum víðsvegar meðfram ströndinni.
Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavtk.
Rltstjórar: Jðn Kjartansaon og
Valtýr Stettinsson —
ábyrgðarmaSur.
Rltstiðrn og afgrelBsla:
Austurstrætl 8. — Stml 1600.
Auglýsingastjðrl: H. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Stmi 3700.
Helmasfmar:
Jðn ^jartansson, nr. 3742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskrlftagjald: kr. 3.00 á mánuBt.
1 lausasölu: 15 aura eintaklts.
25 aura meS Lesbðk.
Varnarlínan rofin.
Varnarlína stjórnarflokkanna
er rofin. Þeir hafa báðir síðustu
vikumar synjað þverlega fyrir
alt samfylkingarmakkið. Tíma-
menn lýstu því nýlega yfir af
miklum þjósti að ekkert „sam-
starfstilboð“ hefði komið frá
komniúnistum og töldu alla
samfylkingarsöguna tilhæfu-
lausan uppspuna Morgunblaðs-
ips. Alþýðublaðið tók alveg í
sama strenginn.
En svo koma „bölvaðar stað-
reyndimar“. Á Alþýðuflokks-
þingjnu,, sitja æði margir full-
trúar, sem kosnir eru af sam-
fylkingum út um land. Það var
algerlega óhugsandi að halda
því frgm t. d. við fulltrúana
frá V^stmannaeyjum, að eng-
ar samnpgaumleitanir hefðu
átt sjer stað.
Einn af þingmönnum Al-
þýðuflokksins á þar hlut að
máli, Hann hafði skuldbundið
flokk sinn til að vinna „af al-
Sfli“ að samfylkingu rauðu
flokkanna, Sáttmálinn, sem
hann undirskrifaði um þetta
ejfni, hefir verið birtur opinber-
lega. Það er óhrekjanlegt að
Páll Þorbjörnsson hefir gert
bandalag við „vandræðamenn“
og „ofbeldisflokk“. Engum
dettur í hug, að hann hafi gert
þetta án vilja og vitundar for-
ráðamanna flokks síns hjer í
Reykjavík, enda hefði hann
verið gerÓur flokksrækur um-
svifaláust, ef svo hefði ekki
verið.
Alþýðuflokknum var, eins og
málum var komið, nauðugur
eínn kostur, ,sá, að játa, —
þvert ofan í fyrri synjanir —
að „samstarfstilboð“ hefði
komið. Og flokkurinn játar
þetta ekki einungis fyrir sitt
leyti, heldur og fyrir hönd
Framsóknarflokksins. í grein-
argerð þeirri, sem nú birist í
Alþýðublaðinu stendur berum
orðum að kommúnistar hafi
boðist til að semja við stjórn-
arflokk&na!
Þannig er varnarlína stjórn-
arflokkanna í '-iamfylkingar-
málinu algerléga jofin.
Stjórnarflokkarnir geta aldrei
að eilífu hreinsað sig af hlut-
deild sinni í sköpun samfylk-
ingarinnar. Hitt er svo annað
mál, hvort þeir ætlast til að
þessi, pólitíski ávöxtur hins
sumarlanga tilhugalífs rauðu
flokkanna, vaxi upp eins og
múnaðarleysingi.
Það má vel vera, að eftir
eigi að koma í Ijós, að rækt-
arsemi stjórnarflokkanna sje
álíka þroskuð og aðrar dygðir
þeirra. v ,
50 sjómenn
frá Danmörku
hafa farisf.
12 fiskiskíp
vantar.
í Danmörku er saknað tólf
fiskiskúta, með samtals fimtíu
manna áhöfn. Er talið að þær
hafi farist í óveðrinu sem geis-
aði í Norðursjónum og Eysfla-
salti fyrir nokkrum dögum.
Hafa flugvjelar og skip leit-
að að skútunum undanfarna
daga, en leitinni hefir verið
hætt. Hafa leitarmenn ekki
fundið ánnað en stýrishús einn-
ar skútunnar í Norðursjónum.
,lslands Falk‘ er einnig kom-
ið til Esbjerg eftir árangurs-
lausa leit. (FÚ.)
17 manns
brenna til bana
13 særast.
í gær varð sprenging’ um borð
í grísku olíuflutningaskipi, á höfn
innifí Rotterdam í Hollandi. Var
skipið þar til viðgerðar. Seytján
manns brunnu til bana, en 13
særðust. Voru flestir þeirra, er
fórust, af áhöfn skipsins, en einn-
ig nokkrir verkamenn. Eldur kom
upp í skipinu um leið og spreng-
ingin varð, og var hitinn svo gíf-
urlegur, að slökkviliðsmenn gátu
hvergi nálægt komið. (FÚ.)
Jim Mollison býst við að
geta haldið áfram fluginu frá
London til Höfðaborgar í
kvöld. Hann býst við að geta
flogið vegalengdina á 40 klst.
Loftárásin
09 Gestave.
f fyrradag gerðu uppreisn
armenn í fyrsta skifti ákaf-
lega loftárás á Madrid. —
Vörpuðu þeir niður sprengj-
um um miðhluta borgarinnar
og voru 45 manns drepnir
(menn, konur og böm), og
130 særðust hættulega.
I Gestave, skamt fyrir ut-
an Madrid var gerð önnur
loftárás og lentu sprengjur
uppreisnarmanna á skólahúsi
þar og drápu 70 böm.
Hefir þessi fregn verið
staðfest af skoskri hjúkrun-
arsveit.
Hjúkrunarsveit þessi tók
að sjer að líkna hinum sæm
og deyjandi börnum.
Tilgangur uppreisnar-
manna, er þeir hæfðu skóla-
húsið, mun hafa verið að
hæfa flutningavagnales'
Á vígstöðvunum suðvestan
við Madrid hefir skoskur
hjúkmnarvagn orðið fyrir
miklum skemdum af shrap-
nel-kúlum.
Engin ljós eru kveikt í borg-
unum við strendumar í Kata-
lóníu, vegna ótta við loftárás.
1 Lundúnáfregn FÚ er sagt,
að skotið hafi verið á land í
gær úr fallbyssum eins af her-
skipum uppreisnarmanna í
Rosasflóa.
Er áætlað að tilgangurinn
hafi verið að skjóta Katalóníu-
búum skelk í bringu.
Á vígstöðvunum sunnan við
Madrid segjast uppreisnarmenn
hafa hrundið gagnsókn stjórn-
arliðsins og að hersveitir Mona-
sterios ofursta hafi aftur náð
stöðvum þeim, við Aranjuez-
Madrid járnbrautina, sem upp-
reisnarmenn mistu í fyrradag,
og hrakið stjórnarherinn aftur
fyrir stöðvar þær, sem hann
hefði hafið áhlaup sitt frá.
Franska blaðið „Le Matin“
segir, að rússneski hershöfð-
inginn Zoref stjórni vörn Mad-
ridborgar.
Líki Sir Edgar Brittaine, skip-
stjóra á „Queen Mary“, var í gær
sökt í sjóinn út á Ermarsundi, og
var þar farið eftir ósk hans sjálfs.
Norges Handels og Sjöfarts-
tidende skýra frá því, að til
Bergen sje nýkomin sending af
íslensku dilkakjöti, og hafi þá
verið sent þangað alt það kjöt-
magn, sem Norðmenn kaupa
frá íslandi á þessu ári. Verðið
á kjötinu er nú 20—30%
hærra en það var í fyrra og fer
heldur hækkandi. (FÚ).