Morgunblaðið - 17.11.1936, Síða 5
5
3>riðjudagur 17. nóv. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
íslenskur söngvari
í Yesturheimi.
Eyðileggið
«kki gólfdúkana með lituð-
vum gólfgljáa. Notið aðeins
Ekki blandaður lit. Lyktar-
laus, fljótvirkur og drjúgur.
l»efir hioliH
bestu meffmnueli
Spilapeningar 100 st. 4.00
Sjálfblekungasett á 1.50
Sjálfblekungar á 1.25
Yo Yo á 0.65 og 1.25
Bílar, margar teg'., frá 0.85
Kubbakassar fallegir 2.25
Mublur, margar teg., frá 1.50
. Kertastjakar frá 0.50
Blýantslitir barna frá 0.35
og margt fleirá ódýrt.
K. Einarsson & Björnssoii.
Bankastræti 11.
Gulrófur
ágætar á 5.50 pokinn
Verslunin Vfsir.
Lifur 09 björtu.
Bögglasmjör. Tólg.
Hafnarstræti 18. Sími 1575.
Hundahreinsun
Hundaeigendum í lögsagn-
-arumdæmi Reykjavíkur ber
að koma með hunda, sína til
hreinsunar í dag (þriðjudag-
inn 17. b. m.), kl. 10 f. h. til
kl. 2 e. h., til hreinsunar-
mannsins, Guðmundar Guð-
mundssonar, Rauðarárstíg
13, hjer í bænum.
Hundar, sem ekki eru
færðir til hreinsunar, verða
»drepnir.
Heilbrigðisnefndin.
Einn þeirra íslensku söngv-
ara, sem farið hafa „út
í hinn stóra heim“, til þess
að ávaxta sitt pund, og leita
sjer frægðar og frama, er
Guðmundur Kristjánsson frá
Borgarnesi. Fyrir rúmlega
sex árum lagði Guðmundur
leið sína til Vesturheims, eft-
ir að hafa notið tilsagnar
ýmissra frægra og vel met-
inna söngkennara í Þýska-
landi og á ítalfu. Hann
kvæntist þar amerískri konu
og settist að í Chicago.
Þar stundar hann söng-
kenslu, en tekur auk þess
mikinn þátt í sönglífi borg-
arinnar, og fara vinsældir
hans sífelt vaxandi, enda
hefir hann stöðugt haldið á-
fram að fullkomna sig á
sviði tóniistarinnar. Guð
mundur hefir hlotið mikla
viðurkenningu, bæði sem
söngvari og kennari, eins og
eftirfarandi ummæli bera
vott um:
*
Ur „Musieal Leader“, Chicago,
23. nóv. 1935.
Göta Ljuiigbjerg, hin glæsilega
sópran Metropolitan og San Carlo
óperanna, var stórhrifin af nem-
aiida Gúðmundar Kristjánssonar,
Mari Haiisen. Er hún hafði heyrt
ungfrú Hansen syngja, ritaði
Mme. Ljungbjerg á þessa leið:
„Jeg hlustaði á sÖng hinnar
ungu sænskn sópran, Mari Han-
sen, með mikilli ánægju. Hún hef-
ir yndisíagra rödd, ágætlega
þroskaða á sviði miðtónanna, og
glæsilega á efstn tónunum. Rödd
hennar er sniðin fyrir óperur. En
hún er einkanlega hugðnæm í
sænsku 1 jóðsöngvunum, enda þótt
söngkour.i) búi engu síður yfir því
dramatíska valdi og þeim radd-
kröftum, sem óperan krefst. Svíar
í Chicago mega vera stoltir af
þessari ungu mikilhæfu söng-
konu“.
„Mari Hansen kom fyrst opin-
berlega fram á söngskemtun ásamt
Guðmundi Kristjánssyni 4. apríl
1934. Síðan fór hún til Svíþjóðar,
og átti þar miklum vinsældum að
fagna, bæði fyrir söngskemtanir
sínar og söng í útvarp. Hún
syngur nú á opinberum skemtun-
um í Chicago. Ungfrú Hansen
hefir stundað nám hjá Guðmundi
Kristjánssyni í síðastliðin 3 ár“.
*
Chicago Daily News, 7. apríl
1936, birtir viðtal við Guðmund
Kristjánsson um ísland. Segir
hann þar frá ýmsu er útlending-
um þykir merkilegt um fsland, t.
d. að Landsspítalinn í Reykjavík
sje hitaður með. hveravatni; nm
notkun feðranafnanna; að konan
taki ekki nafni manns síns er hún
giftist, eins og- tíðkast t. d. í
Ameríku; o. fl. o. fl.
Um Guðmund kemst blaðið m.
a. að orði á þenna hátt:
„Hann er ungur söngkennari í
Chicago, er hefir síðustu árin bri-
ið um sig í hjörtum amerískra
söngelskenda, með sinni óvenju-
legu tenor-rödd, og' söngvum
heimalands síns“.
*
Guðmundur Kristjánsson hefir
haldið fjölda hljómleika, sungið á
vegum ýmissra fjelaga og stofn-
ana, og tekið þátt í óperum í'
Chicago. Oss hafa horist dagskrár
ýmissra þessara skemtana, t. d.
óperunnar er sniðin hefir verið
upp úr „Merry Wives of Windsor"
eftir Shákespeare, en þar söng
Guðmundur hlutverk Pentone, og
var eini íslenski þátttakandinn; og
ennfremur óperunnár „Cavalleria
Rusticana", og ljek Guðmundur
þar hlutverk Turridu.
*
Dagskrár að söngskemtunum
Guðmundar Kristjánssonar, og
einnig þeirra söngskemtana sem
hann liefir tekið þátt í með öðr-
um, bera það nfeð sjer, að hann
g'érir sjer far úm að kynna ís-
lenska tónlist fyrir hlustendum
sínum, og hefir hánn tekið upp
þann sið, að láta preiitá á söng-
skrárnar þýðingar af íslenskum
textum við þá íslenska söngya er
liann sjmgur, ýmist í bundnu máli,
eða lauslegum þýðingum í 6-
bundnti máli. Má þar t. d. sjá
þýðingar á: „Vögguyísufb. við lag
Páls ísóifssonar, „Rósin“, við lag
Árna Thorsteinssóná?; „Heimir“,
við lag Kaldalóns, „Góða veislu |
gjöra skal“, „Máninn líður“ eftir
Jóhann Jónsson, við lag eftir Jón
Leifs, og „Prá liðnum dögum“ eft-
ir Stefán frá Hvítadal.
*
Loks hafa oss borist nokkur
blaðaummæli um söng Guðmundar
Kristjánssonar, og- um manninn
sjálfan. í sambandi við útgáfu- af
plötum er Guðmundur hefir sung-
ið inn á, hefir Columhia Grammo-
phone fjelagið t. d. hirt eftirfar-
andi ummæli:
„Guðmundur Kristjánsson er
dæmi þess, hverju má orka þegar
einlægur vilji til að fullkomna
sönghæfileikana, og meistaraleg
tilsögn, haldast í hendur ......
Guðmundur er meistari í fram-
sögn þeirra söngljóða, er hann fer
með ......Hvar sem Guðmundur
hefir farið, hefir túlkun hans á
íslenskum þjóðsöngvum, og öðrum
söngvum heimalands hans, vakið
sjerstaka hrifningu“.
Söngdómari blaðsins „New York
Evening Post“ ritar:
íslensku söngvarnir voru töfr-
andi, og sama má segja um rödd
hins íslenska tenorsöngvara, Guð-
mundar Kristjánssonar. Rödd hans
er sjerkennileg, eftirtektaverð og
einkennilega laðandi, og vel til
þess fallin, að skapa eiganda henn
ar virðulegan sess meðal consert-
söngvará".
Blaðaummælum um söng Guð-
mundar má skifta í tvo flokka:
Um söng hans á þjóðsöngvnm og
alþýðlegum söngvum, og meðferð
hans á óperuhlutverkum. New
Times segir: „Við hina lýrisku
meðferð söngvarans og einlægni í
túlkun, njóta bæði ljóð og lög sín
!í fylsta mæli“. 1 Chicago American
er Guðmundur kallaður „meistari
í að byggja upp söngskrá sína“,
og sagt að „i’ödd hans húi yfir
miklum töfum og beri söngnr hans
vott um smekkvísi og vand-
virkni“. Fjöldi blaða hirta svip-
aðar umsagnir, og er víða vikið að
meðferð hans á skandinaviskum
söngvum, en þó einkum íslensku
söngvunum, með aðdáun.
*
Um hæfileika Guðmnndar sem
óperusöngvara segir m. a. í Chica-
go Dailv Tribune: „Rödd hans er
með hetjublæ, og- nýtur sín einkar'
vel í hinum dramatiskari söngv-
um“. í öðru blaði er komist þann-
jg' að orði um meðferð hans á
lilutverki Turridu í Cavalleria
Rusticana: „Guðmundur Kristjáns
son ætti að eiga glæsilega framtíð
sem óperusöngvari. Prá því er
hann fyrst steig fram á leiksviðið
í hlutverki Turridu og þar til
tjaldið fjell, mistn áheyrendurnir
aldrei sjónar á hinni dramatisku
þróun ])essa meistaraverks“.
En merkilegust eru nmmæli
Lady Mahel Dunn, en hún er
frægur tónlistargagnrýnandi, m.
a. við Covent Garden óperuna í
London, tónlistarhátíðirnar í Salz-
burg, og víðar. Hún segir: „Jeg
heyrði Gnðmund Kristjánsson
syngja í Chicago. Hann hefir mjög
fagra tenór-rödd, sem bann heitir
aðdáanlega vel, og svo hugðnæmur
er söngur hans, að jeg á von á
því að ekki líði á löngu, þar til
hann verður farinn að hrífa áheyr
endur í sölum hinna stærri óperu-
leikhúsa lieimsins". Orð þessi rit-
aði Lady Mabel Dnnn á síðast-
liðnum vetri, o^ er þau eru borin
saman við eldri dóma um söng
Guðmundar, virðast þan henda til
þess, að hann sje á stöðugri fram-
farabraut, og stefni að ákveðnu
marki. A. B. J.
Odýri
kf öl
af fullorðnu fje.
Kjotverslunin
Herðubreið,
Fríkirkjuveg 7. Sími 4565.
IWioisgtiiiiWaftid
með morgunkaffinu.
Nýir kaupendar
fá blaðið ókeypla
tftl nœstkomandl
mánaðamófa.
Hrlnglð í síma 1600
og g e r i s i
kaupendur.
E.s Es|a.
vestur og norður fimtudag
19. nóv. kl. 9 síðd.
Tekið á móti vörum í dag
o.e; fram til hádegis á morg-
un.
Pantaðií’ farseðlar óskast
sóttir á sama tíma.
Statsanstalten for Livsforsikring
Er það ekki skylda yðar að sjá konu yðar og börnurn
farborða með góðri líftryggingu ?
Allar tegundir líftrygginga fáið þjer með hagfeldum
kjörum hjá Statsanstalten.
Aðalumboðsm.:
E. Claessen, lirnt.
Vonarstræti 10.