Morgunblaðið - 13.12.1936, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.12.1936, Blaðsíða 2
3VI U li 0 U X LJ Jl, A r/ JfltórðtmMftfóð Útgfef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjðrar: Jðn Kjartansson og Valtýr Stefánsson — ábyrgðarmaBur. Ritstjðrn og afgreiðsia: 'f- Austurstræti 8. — Sími 1600. Auglýsingastjðri: E. Hafberg. Auglýsingaskrif stof a: Austurstræti 17. — Simi 3700. Heimaslmar: Jðn Kjartansson, nr. 3742 Valtýr Stefánsson, nr. 4220. Árni Óla, nr. 2045. E. Hafberg, nr. 3770. Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánutSi. 1 lausasolu: 16 aura elntaklB. 26 aura »eB Lesbók Atvinna og brauð. Atviuna og brauð! Þannig orSa málrófsmenn rauðu flokkanna kröfur verkamanna. Það var þetta, sem stjórnarflokkarnir, og þá einkum Alþýðuflokkurinn lof- aði öllum kjósendum sínum und- antekningarlaust upp úr síðustu kosningum. Haraldur Guðmunds son, fyrverandi kaupfjelagsstjóri hjer í Reykjavík, var settur í landsstjórnina til þess að annast um efndirnar á þ.ví loforði. At- vinna. þeirra starfsbræðra hans, sósíalistaJ|r<)ddanna, hefir heldur farið! * batnandi síðan. Þingmenn Alþýðuflokksins hafa ekki þurft yfir neinn að kvarta í því efni. En sjómeim og verkamenn hafa dálítið aðra sögu að segja. Er skeipst að minriast, er stjórnar- flokkariuj- ætluðu t. d. að svíkja sjómeiiRÍna um verulegan hluta af útborguninni fyrir bræðslusíldina í y$r. Atvinnuleysingjaskarinn v^jt, ,jog um leið áhyggjur allra hugwvudi manna í landinu út af hipurn ,sjyersnandi horfum um að ra uðu. flokkarnir geti nokkurn- tíma sjeð svo um, að verkamenn og sjómenn og allur almenningur í landinu fái bætt kjör sín. Nýlega var á það minst hjer í bl'að'inu, hvernig skattaskrúfan hefir óspart vérið látin mergsjúga atvinnbvegina. Tekju- og eigna- skatturinn er tvöfaldaður. En svo mjWg hafá tekjur manna og eign- ir rýrnað',1'að tvöfalt hærri skatt- •stigi gefur Sömu tekjur og áður fengust. Ef áfram verður haldið á sömu braut, er auðsjeð hvað framundan er. En þegar rætt er um álögur og útgjöld, og skyldur þjóðfjelagsins að hjálpa þeim, sem bágstaddastir eru, þá segja menn oft sem svo: Og fólkið, sem þéirrar bráða- 'birgðahjálpar nýtur, lítur eðlilega þannig á það mál, í fljótu bragði. Þeir atvinnulausu og eignalausu finna ekki mikið til þess, þó þeir borgi háa skatta, sem eitthvað eiga. En atvinnulausa fólkið hjer í Reykjavík er nú farið að hugsa um þessi mál með nokkuð öðrum hætti en áður. Flestir skilja, að þegar skattar eru tvöfaldaðir, og fje þannig tekið frá atvinnulíf- inu, er veriðvað fækka lífvænleg- um atvinnufyrirtækjum, minka atyinnumöguleikana í landinu. Að kröfunni um „atvinnu og brauð“ verður þá best fullnægt, er ljett verður á skattabyrðunum af at- vínnUvegum landsmanna, og þjóð- in fær frjáls að nptfæra sjer auð- lindir faádsins. ——<-m>------------ EDWARD HERTOGI AF WINDSOR. Fyrsta verk Georgs VI. var að sæma bróður sinn hertogatign. grjet þegar I L1 aItt rn I Churchill hann kvaddi Edward Georg VI. hrópaður til konungs að miðaldasið KHÖFN f GÆR. UM líkt leyti og skarlatsklæddir kallar- ar fóru um London í dag, til þess að tilkynna konungdóm Georgs VI., var Edward prins, öðru nafni Mr. Windsor, um borð í breska herskipinu Fury á leiðinni á fund þeirrar konu, sem hann fórnaði voldugasta ríki veraldar. Lausafregnir herma, að Mrs. Simpson sje farin frá Cannes til Ítalíu. Þangað er talið að för Edwards sje einnig heitið. Enginn veit neitt ákveðið hvert hann ætlar, en stöðugur orðrómur gengur um það, að hann ætli að dvelja á búgarði ensks lávarðar í Amalfi við Salernoflóa, skamt frá Neapel. Klukkan rúmlega eitt, eða þrem stundum. eftir að Edward hafði kvatt bresku þjóðina í útvarpið frá Royal Windsor, þar sem flestir úr konungsfjölskyldunni (að undanskilinni hinni nýju drotningu), voru saman komnir, óku tvær bifreiðar niður á bryggju í Portsmouth og voru tjöld dregin fyrir glugga. I öðrum þessara bifreiða var konungur, en í hinni föruneyti hans. Kl. tvö sigldu herskipin Fury og Wolfhound úr höfn. LÍundúnaútvarpið (FÚ) sagði í gærkvöldi að Fury lægi í höfn í Boulogne, en prinsinn mun ekki fara í land fyr en eftir kl. 8 í kvöld. Borgarstjórinn fór á fund Edwards í dag. Hinn ungft konungur Bretaveldfts. Flest lönd endurvörpuðu ræðu Edwards í gærkvöldi, að undanteknum Ítalíu, Rússlandi og Þýskalandi (símar frjetta- ritari vor). í Þýskalandi var ekkert minst á Mrs. Simpson- málið fyr en á fimtudaginn, þegar konungur hafði ákveðið að afsala sjer konungdómi og sögðu þýsk blöð þá að Bretar ættu á bak að sjá valdhafa, sem væri umhugað um fjelagr,- mál og sem samsvaraði lífs- skoðun ungu kynslóðar síðari tíma. Þegar Churcill grjet. Bresk blöð sögðu í morgun að fleiri hefðu heyrt kveðjuorð konungs, en nokkurrar ræðu, sem haldin hefir verið fram til þessa. í Englandi voru kvik- myndasýningar og leiksýningar stöðvaðar og ræðu Edwards endurvarpað. Þegar Edward og Wind- ston Churshil! lcvöddust eftir hádegisverðinn á Fort Belvedere í g*r, gat Chur- chill ekki tára bundist. Nýr konungur. I morgun samþykti Georg, hertoginn af York, að taka við konungdómi á * fundi ráðsins, sem samþykkja á valdatöku nýs konungs. Þessi athöfn fór fram í St. Jameshöllinni ög A leið - til Sviss! FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN I GÆR. Fyrsta verk hims nýja kon- ungs, Georgs VI., eftir að valdatöku hans hafði verið lýst yfir, var að sæma bróður sinn Edward, tigninni ,,her- togi af Windsor“. Hertoginn af Windsor lagði í gærkvöldi af stað frá Boulogne áleiðis til Sviss. Hann er væntanlegur til Sviss um miðjan dag á morgun. síðar í dag tilkyntu kallarar, klæddir að miðaldasið, frá svöl- um St. Jameshallarinnar, að nýr konungpr hefði tekið við völdum. Samskonar tilkynning var lesin upp við Charing Cross. Hinir skarlatsklæddu kallar- ar hjeldu síðan að , útjfiðri Cityborgarhverfisins og , báðu borgarmarskálkinn um leyfi, að gömlum sjð, að fá að fara inn í City, til þess að tilkynna kon- ungdóm Georgs VI- Af tröpp- um konung^hallarinnar las Georg VI. Bretakonungur. Einræðisherra fangi hermanna sinna. FRÁ FRJETTARITARA VORUM: KHÖFN í GÆIÍ. Chang Kai Shek, hers- höfðingi, raunverulegur einræoisherra í Kína, er fangi hermanna sirma í höfuðborg Shansifylkis í Norður-Kína. Hermennirn- ir hafa gert upreisn gegn hershöf ðing janum. Þeir voru sendir t I Norður-Kína, til þes að berja niður kommúnisma þar, en nú krefjast her- mennirnir þess, að Chang Kai Shek geri bandalag við Rússa gegn Japörmm. Konu Chang Kai Shek hefir verið sent skeyti, þar sem hún er fullvissuð um að manni hennar m.uni ekkert mein verða gert. stjórnin vill málamiOlun Madridstjórnin hefir í raun og veru fallist á tillögu Frakka og Breta um málamiðlun í spönsku borgarastyrj- öldinni, með því að full- trúi hennar, del Vayo greiddi atkvæði með á- lyktun, sem samþykt var í ráði þjóðabanda- lagsins í dag. í ályktun þessari er mælt með tillögum hlutleysisnefnd- arinnar um eftirlit við spánsk- ar hafnir, og tillögu Breta og Frakka um málamiðlun. Rússnesk skip undir spönskum fána. Breska stjórnin hefir fengið orðsendingu frá skrifstofu Francos í Burgos, þar sem sagt er frá því, að í nánd við Mall- orca hafi sjest allmörg rúss- nesk skip, sem sigli undir hin- um spánska fána. í tilkynningu frá Moskva er þessi frjett nefnd „rjett ein ósvífin lygi Francos enn“ (segir í Lund- únafregn FÚ). Stjórnarherinn hefir sig tals- vert í frammi á Norður-Spáni. Stjórnin segir Oviedoborg að mestu leyti umkringda, og sje eini vegurinn sem opinn et til borgarinnar, aðeins fær múl- ösnum og hestakerrum. Þá tilkynnir stjórnin að á- hlaupi uppreisnarmanna á víg- stöðvunum í Aragonna hafi verið hrundið. Irland „lýðveldi inn á við“. Inflúensan í Höfn magnast. Khöfn 12. des. FÚ. i Inflúensufaraldurinn í Dan- mörku færist enh í aukana. — 13559 mann hafa tekið veikina 1 síðustu daga í viðbót við þá, FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. í sem áður höfðu veikst. FRÁ FRJETTARITARA VORUM: KHÖFN 1 GÆR. Með breytingu þeirri á írsku stjórnarskránni, sem Dail Eirans samþykti í gær eru Bretar sviftir öllum af- skiftum af innanríkismál- um. íra. Er írland því í raun og veru lýðveldi inn á við. Út á við — í utanríkis- málum — fara Bretar enn þá með umboð íra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.