Morgunblaðið - 31.12.1936, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 31. des. 1936.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: J6n Kjartansson og
Valtýr Stefánsson —
ábyrg?5arma?5ur.
Ritstjórn og afgreibsla:
Austurstræti 8. — Slmi 1600.
Auglýsingastjóri: B. Hafberg.
Auglýsingaskrifstofa:
Austurstræti 17. — Sími 3700.
Heimasímar:
J6n Kjartansson, nr. 3742
yaltýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
E. Hafberg, nr. 3770.
Áskriftagjald: kr. 3.00 á mánuði.
t lausasölu: 15 aura elntaklb.
25 aura me.1S Besbók
Hitler og Eden kepp-
ast um stuðning
Mussolinis.
150 sjálfboðaliðar frá
Bretlandi til Madrid.
Frakkland: 200 þús.
málmiOnaðarmenn kretjast
launahækkunar.
Ný verkfallsalda
vofir yfir.
Aramót,
Amerískar flugvjelar
til stjórnarhersins ?
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KHÖFN í GÆR.
Styrjöldin á Spáni heldur áfram og á með-
an er beðið eftir svari Hitlers við til-
mælum Frakka og Breta um bann
gegn flutningi sjálfboðaliða til Spánar. Það er
ekki búist við að svar Hitlers komi fyrst um sinn.
Þungamiðja hins stórpólitíska undirróðurs
virðist nú alt í einu vera flutt til Rómaborgar.
Það er fullyrt að Mussolini hafi gefið Bretum vil-
yrði fyrir því, að sjálfboðaliðsflutningar frá
Italíu skyldu verða bannaðir. En í skeyti frá
Róm í morgun segir að sjálfboðaliðabannið muni
efla aðstöðu kommúnistanna.
Hitler og Eden keppast hver í kapp við annan um að
vinna stuðning Mussolinis. Þetta hefir haft þær afleiðigar að
bresk-ítalska samkomulagið mun tefjast enn um stund. Musso-
lini er að bíða eftir hvorir bjóði betur, Bretar eða Þjóðverjar.
Ætli að til sje annað land í
heiminum, þar sem hugmyndir
íbúanna um gæðj sinnar eigin
fósturjarðar hafi tekið jafn
gagngerum stakkaskiftum og
hugmyndir Islendinga um ís-
land? Hugsum okkur það, að
um þær mundir, sem Reykjayík
hlaut kaupstaðarskírn var tal-
að um það í fullri alvöru, að
sfnala íslendingum eins og fjen-
aði og flytja alt safnið suður á
Jótlandsheiðar. Eða hitt, að
allan síðasta fjórðung 19. ald-
arinnar og fram á þessa öld,
var óslitinn fólksstraumur til
Vesturheims. Þriðjungur ís-
lensku þjóðarinnar sneri baki
við ættjörðu sinni. í hugum
fjölda manna var landið ,,út-
sker eitt“, og íbúarnir sem veð-
urteptir strandmenn á því út-
skeri.
Þessi hugsun er kveðin niður
fyrir fult og alt. Athafnamenn
þjóðarinnar til lands og sjávar
hafa veitt henni nábjargirnar
og urðað hana. Gæði landsins
hafa verið könnuð og sannpróf-
uð. Sjórinn var gjöfulli en
menn vissu áður og moldin
frjósamari. Með hverju ári
verður fjölbreytni sjávarfangs-
ins augljósari. Með hverju ári
vex uppskera nytjajurta, korns
og grænmetis og jafnvel á-
vaxta.
Hvort sem litið er út á hafið
eða upp til landsins, bíða við-
fangsefnin. ísland skortir ekki
skilyrði til bjargvænlegrar af-
komu, það skortir hendur til
að hagnýta sjer þau skilyrði.
Ný auðæfi blasa við í fallvötn-
um landsins og jarðhitasvæð-
um. Það er eins og náttúran
sjáif sje að kalla á framtakið,
ögra þjóðinni til athafna og
dáða. Landnámið bíður.
í slíku landi er atvinnuleysi!
I slíku landi er fjöldi manna
dæmdur til að teyga að sjer lífs
beiskju athafnaleysisins. Svo
langt getur óstjórn og skamm-
sýni náð!
Síðustu mannsaldrana hafa
Islendingar brotist um eins
og jötnar og lyft hverju grettis-
takinu af öðru. En svo koma
stjórnarvöld, sem bannfæra at-
hafnaþrána og hneppa fram-
takið í dróma.
Hjer verðá að gerast snögg
skifti. Islendingar hafa látið
hendur standa fram úr ermum.
Athafnafrelsið verður að ná
aftur viðurkenningu og rjetti.
Þá mun bjartsýni og dáð dafna
með þjóð vorri. Þá — og fyr
ekki — mun upprenna
Gleðilegt nýár!
Á meðan streyma sjálf-
boðaliðarnir til Spánar —
jafnvel frá Bretlandi. Á
nýársdag ætla 150 sjálf-
boðaliðar að fara frá
Glásgow til Spánar, til:
þess að berjast í liði
stjórnarinnar.
Hættan frá Banda-
ríkjunum.
—Þeir fá—
vín ef þeir gerast
hermenn!
London 30. des. F.Ú.
Sú tilkynning var gefin út
í París í dag, að á næstkom-
andi ári ætti hver hermaður
í franska hernum að fá hálf-
an lítra af víni á dag, og enn
fremur yrði þeim lagður til
matur, þótt þeir ættu nokk-
urra daga frí.
Þá steðjar ný ógnun að frið-
arstarfi hlutleysisnefndarinnar
og kemur að þessu sinni frá
Bandaríkjunum.' Madridstjórn-
in hefir pantað flugvjelar í
Ameríku fyrir tólf miljónir
króna.
Pöntun þessa er þó ekki unt
að afgreiða fyr en eftir tvo
mánuði og gera menn sjer von-
ir um, að Roosevelt muni tak-
ast að fá þingið í Bandaríkjun-
um til þess að veita sjer heim-
ild til að banna útflutning á
vopnum til þjóða sem eiga í
innbyrðisstyrjöld, fyrir þann
tima.
Pittmann, öldungaráðsmaður
hefir tilkynt, að 6. jan. er þing
kemur saman, muni hann
leggja fram frumvarp er banni
allan hergagnaflutning til
þjóða, sem eigi í innbyrðis ó-
friði, og Roosevelt forseti lýsti
því yfir í gær, á blaðamanna-
fundi, að hann væri því hlynt-
ur, að forsetanum yrði gefin
Víðtækari heimild til þess að
banna útflutning til landa,
sem eiga í ófriði, og að heim-
ildin nái einnig til landa, sem
eiga í innbyrðis ófriði. (Skv.
FÚ).
I I pöntun Madridstjórnarinn-
ar eru 16 notaðar flugvjelar,
sem umboðsmenn hinna spönsku
FRAMH. AF FYRRA DÁLKI.
jkaupenda segja, að ekki sje
;hægt að breyta í hernaðarflug-
jvjelar, ennfremur 411 flug-
vjelahreyflar, samansettir, og
rvjelahlutar, selm jafngilda 150
iflugvjelahreyflum.
Kjarkur stjórnarliðs-
ins kann að bila.
I skeyti frá Madrid til breska
sósíalistablaðsins „Daily Her-
ald“ segir að hernaðaraðstaða
stjórnarinnar við Madrid sje
góð.
En það er óttast að kjark-
urinn kunni að bila, eink-
um þar sem matarskort-
urinn er mikill. Stór hluti
íbúanna sveltur bókstaf-
lega.
Sjúkrahús eru öll troðfull af
sjúkum mönnum og særðum.
Nauðsynlegustu læknislyf
vanta, þ. á m. joð og deyfing-
arlyf. Eru gerðir stórvægilegir
holskurðir án deyfingarlyfa.
StundarverKfall: Nýjasta verkfallsaðferðin.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KAUPMANNAHÖFN I GM.
Ný verkfallsalda vofir yfir Frakklandi.
Tvö hundruð þúsund verkamenn úr
málmiðnaðinum hafa í hótunum að
leggja niður vinnu ef þeir fá ekki 15% launa-
hækkun. Þeir segja að launahækkunin, sem þeir
fengu í vor hafi verið uppetin af aukinni dýrtíð.
í gær hófu starfsmenn við opinber fyrirtæki
í Frakklandi verkfali með nýju sniði, svonefnt
stundarverkfall.
Atvinnugreinarnar gerðu verkfall á víxl fram eftir öllum
degi og stóð verkfall hverrar atvinnugreinar fyrir sig yfir í eina
klukkustund.
Þetta verkfall kostaði franska ríkið alt að því miljón
franca (fjórðung miljón króna).
I gærkvöldi fóru starfsmenn
Parísarborgar kröfugöngu til
ráðhúss borgarinnar og tókst
þeim að kqmast til ráðhússins
(áður en lögreglan og riddara-
lögregluliðið kom á vettvang,
(segir í Lundúnafregn FÚ).
Sendinefnd kröfugöngu-
manna var veitt móttaka af
embættismönnum borgarinnar,
og því lofað, að kröfur þeirra
skyldu teknar til greina.
Dreyfðist þá mannfjöldinn
sjálfkrafa, en áður hafði kom-
ið til riskinga; einn maður úr
riddaraliði lögreglunnar hafði
dottið af hestbaki og beðið
bana, en 6 menn særst.
Þrengingar alþýðu-
fylkingarinnar.
Alvarlegra en verkfall
starfsmanna hinna opin-
beru fyrirtækja er verk-
fallsógnun málmiðnaðar-
manna.
Þessi ógnun leiðir í ljós að
gengishækkunin í Frakklandi
hefir ekki hepnast eins vel og
í öðrum löndum, eins og t. d. í
Englandi 1931.
Gegn launahækkunarkröfu
verkamanna, sem bygð er
á aukinni dýrtíð, halda at-
vinnurekendur því fram,
að launahækkunin sem
veitt var í vor hafi þurkað
út hagnað þann, sem hefði
mátt hafa af gengislækk-
uninni, sem þá var fram-
kvæmd.
Síðan í vor, segja þeir, hefir
framleiðslukostnaður í Frakk-
landi aukist um 40%.
Prentarasamningar. í gærkvöldi,
er blaðið fór í prentun, var samn-
ingnm ekki lokið, er staðið hafa
yfir undanfarið milli Hins ísl.
prentarafjelags og Fjelags ísl.
prentsmiðjueigenda um kaupkjör
o. fl. fyrir næsta ár, en samning-
ar þeir sem nú gilda renna út í
kvöld.
Heilsu Piusar
páfa hrakar.
Sjúkdómur Páfans ágerðist í
gærkvöldi. Samkvæmt tilkynn-
ingu sem gefin Var út í Páfa-
garði í gærkvöldi, leið Páfinn
miklar þrautir vegna blóð-
storku sem myndast hafði út
frá æðahnútum á fótum hans.
I morgun var tilkynt að hon-
um liði betur, þar sem blóð-
storkunni hefði verið rutt úi
vegi. (Samkv. einkask. og FÚ.)
Chiang Kai-Shek
hlýtur trausts-
. yfirlýsingu.
LONDON í gær. FÚ.
Chiang Kai Shek hefir í dag
beðið um lausn frá embættí í ann-
að sinn, og hefir miðstjórn Kuom-
itang aftur neitað að taka lausn-
arbeiðni hans til greina. Hefir
bann með því fengið hina hæstu
viðurkenningu og mestu trausts-
yfirlýsingu, sem hlotnast hefir
nokkrum kínverskum stjórnmála-
marmi.
Spánn: Ráðstafanir
til þess að kom í
veg fyrir drepsóttir.
LONDON í gær. FÚ.
Heilbrigðismálanefnd á vegum
Þjóðabandalagsins er komin til
Valeneia til þess að ræða við
spönsku stjórnina um ráðstafanir
til þess að koma í veg fyrir drep-
sóttir vegna styrjaldarinnar.
1 nefndinni eru pólskir og
franskir læknar úr heilbrigðis-
máladeild Þjóðabandalagsins.