Morgunblaðið - 23.01.1937, Page 8

Morgunblaðið - 23.01.1937, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaginn 23. jan. 1937. Sápuefni Red Seal! Búið sjálf til sápuna — leiðarvísir á íslensku fylgir hverri dós. Fæst í Þorsteinsbúð, Grundar- stíg 12. Sími 3247. Hveiti nr. 1 í 10 pd. pokum á kr. 2.25 í Þorsteinsbúð. Sími 3247. Ðagbókarblöð Reykvíkings JC&riJjCct' Þurkuð bláber — Aprikots — Gráfíkjur. Einnig dr. Otkers búðingar í Þorsteinsbúð. Sími 3247. Freðýsa og ísl. bögglasmjöri ódýrt í Þorsteinsbúð. Sí'mi 3247 Hænsnafóður, blandað og kurlaður mais, í Þorsteinsbúð, sími 3247. Kaupi gull og silfur hæstaj Verði. Sigurþór úrsmiður, Hafn- arstræti 4. Vjelareimar fást bestar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. Kattpi gull hæsta verði. Árni Björnsson, Lækjartorgi. Trúlofunarhringana kaupa menn helst hjá Áma B. Bjöms- •yni, Lækjartorg.. Kaupi gamlan kopar. Vald. Poulsen, Klappárstíg 29. Huergi betri kr. 1.Z5 aura máltíð en á Hátel Hekia. Inóvembermánuði árið 1649 kom Tyrkinn, Aka Mustafa Raca, til Rómaborgar. Hann vakti strax mikla eftirtekt, og fólk keptist um að komast í sam- kvæmi hans. Þar fengu Parísar- búar að smakka drykk, sem þeir höfðu aldrei sjeð fyr, og Tyrk- inn nefndi „Khawa“. * Einn sniðugur náungi þar í borg fjekk þá hugmynd, að þetta væri framtíðardrykkur, og græða mætti fje á honum. Hann breytti nafninu og kallaði hann „cave“, sem auðveldara var að bera fram. Ur því varð seinna „cafi“, og þaðan er runnið nafnið „café“ — kaffihús — veitingahús. H- Maður þessi opnaði síðan veit- ingahús og seldi þar þenna nýja drykk. Það gafst vel. Parísarbú- um þótti kaffisopinn góður. Þetta fyrsta veitingahús París- arborgar er nú búið að rífa fyr- ir mörgum árum. En nafnið stend ur enn þann dag í dag, og „Café de la Regence“ á „Quai de Louvre“ er eitt helsta veitinga- hús í Vestur-Evrópu, þó að það sje í raun og veru 300 ára gam- alt. * Frá Vín kemur sú fregn, að hertoginn af Windsor og Mrs. Simpson verði gefin saman í hjónaband í maímánuði í vor. Hjónavígslan fer fram í mestu kyrþey í ensku kirkjunni í Vínar- borg, og enginn verður viðstadd- ur, nema nánustu vinir brúðhjón- anna. # I Washington hefir verið gefinn rit listi yfir tekjuhæst fólk þar, árið 1935. Efstur á listanum var blaða- kóngurinn Hearst, með 500.000 dollara. Næst' var filmstjarnan Mae West. Tekjur hennar voru 400.000 dollarar. * Oamall prestur, sem orðinn var dálítið utan við sig, var einu sinni að predika í kirkju sinni, en hætti alt í einu í miðri ræðu og tautaði fyrir munni sjer: „Vissi jeg ekki, bankabygg“! Eftir guðsþjónustuna var hann spurður, hverju þetta sætti. „JÚ“, sagði liann, er hann hafði áttað sig á spurningunni, „það skal jeg segja ykkur: Jeg sje hana frú Jensen úti í garðinum hjeðan úr prjedikunar- stólnum, og í dag var hún ein- mitt að taka npp kálhöfuð. Þá datt mjer alt í einu í hug, að nú myndi hún detta aftur fyrir sig, þegar híin kipti upp næsta kál- höfði. Og viti menn, þetta reyndist rjett!“ „Vissi jeg ekki, bankabygg!“ * Danskt dagblað segir eftir- farandi sögu frá þeim tím- um, er þöglu kvikmyndirnar tíðk- uðust: Kvöld nokkurt kom maður þjót- andi inn í kvikmyndaleikhús eitt, með skammbyssu í hendinni og staðnæmdist hjá aðgöngumiða- sölunni. „í kvöld skal það ske“, hrópaði hann æstur. „Nú veit jeg með hverjum konan mín er í bíó!“ Sölustúlkan varð dauðhrædd og tilkynti forstjóranum, hvað í vændum væri. Forstjórinn ljet óðara hætta sýningu, og tilkynti bíógestum, að úti við aðaldyrnar biði óður mað- 1 ur eftir konu sinni, sem hann vissi af þarna inni, með öðrum karlmanni. Mæltist hann til þess, að rjettir hlutaðeigendur færu út um bak- dyrnar, svo að ekkert slys hlytist af eða hneyksli. Síðan voru ljósin slökt, til þess að sökudólgarnir kæmust út, svo að sem minst bæri á. Að tíu mínútum liðnum, var aftur kveikt. Þá var nær helming- ur bíógesta horfinn — hafði læðst burt út um bakdyrnar! Byrjum námseið 25. þ. m. að sníða og sauma. Einnig flosa,. stoppa og bródera á sauma- vjelar. Saumastofa Ólínu og Bjargar, Laugaveg 7 (Sími 1059). Góð íbúð óskast strax, neð- an Frakkastígs eða í Miðbæn- um. Upplýsingar í síma 4042. fifii Fagrar framtíðarvonir. Oskilahestur. Laugardaginn 30. jan. næstk. kl. 11 f. h. verður dökkjarpur ó- skilahestur seldur í Kollafirði. Mark: Biti aftan bæði eyru. Hreppstjórinn í Kjalameshreppi. Tek að mjer að prjóna og; ganga frá allskonar smábarna- fötum. Hefi einnig nokkuð af tilbúnum fötum til sýnis og sölu. Lóa Þórarinsdpttir, -— Tryggvagötu 6. Þvottahús Elliheimilisins þvær vel og ódýrt. Þvotturinn sóttur og sendur. Hringið í síma 3187. Oraviðgerðir afgreiddar fljótfc og vel af úrvals fagmönnumi hjá Árna B. Bjömssyni, Lækj,- artorgi. Fyrst og síðast: Fatabúðin Friggbónið fína, er bæjarina. besta bón. Auglýsingasími Morgunblaðsins er 1600. ROBERT MILLER: SYNDIR FEÐRANNA. 4. kapítuli. Á Fullerton var Amy gamla önnum kafin við aðal- hreingemingar ársins. 1 fjórar vikur samfleytt hafði hún haft heilan hóp af stúlkum og lireingerningarkon- um í þjónustu sinni, hafði skipað fyrir með myndugri röddu og verið alstaðar nálægt. Það var ekki sá krók- nr eða kimi nje nokkur smáhlutur, sem ekki hafði verið farið yfir. Alt átti að vera fágað og fínt, hreiut og strokið. Hin djúpa rödd Amy, sem var þrekvaxin kona og djarfleg á að líta, hafði hljómað um allar stofurnar, þar sem gluggatjöld og þykkar gólfábreiður drógu annars úr öllum hávaða. Nú gekk Amy um alt húsið sigri hrósandi á svip. Stofurnar voru nú komnár í vetrarbúning, klæddar persneskum ábreiðum, með þykkum tjöldum fyrir gluggunum. Milli hinna tvöföldu rúða stóðu hyacintu- laukar í slípuðum glerglösum og í arninum skíðlog- aði eldurinn og kastaði rauðleitum bjarma yfir hin gömlu málverk á veggjunum og borðfæturnar, sem voru úr skínandi mahogny. Alla þessa fallegu muni hafði móðir Georgs haft meðferðis til Fullerton, ásamt Amy, sem hafði verið herbergisþerna hennar og fylgdi með þangað eins og einskonar meðgjöf. Eftir dauða barónsfrúarinnar hafði hún tekið stjórn heimilisins í sínar ákveðnu hendur. Og þegar Sir James sá, að henni fórst stjórnin vel úr hendi og kunni vel að halda á því fje, sem hann fól henni til heimilisþarf, hækkaði hann kaup hennar og ljet hana vera áfram. í dag var 15. nóvember, stextíu ára afmælisdagur Sir James — að áliti Amy mesti hátíðisdagur ársins. Sir James hafði í mörg ár reynt að koma í veg fyr- ir það hreingerningaræði, sem greip Amy venjulega um þetta leyti ársins. En þó að orð hans og óskir væru annars sem heilög lög fyrir hana, sat hún fast við sinn keip að þessu leyti. Hún sagði, að hún vildi ekki gera „Mylady“ þá sorg í gröfinni, að heimilinu væri ekki haldið í því horfi, sem hún hefði fyrirskipað á banabeðnum. Og að það skyldi jafnan vera þannig, að hvorki „Mylord“ nje Georg þyrftu að skammast sín fyrir, þó að sjálfur kóngurinn kæmi í heimsókn. En það var mál, sem aðeins varðaði húsbóndan sjálfan, að hann bauð aldrei neinum gestum, nema nokkrum kunuingjum sínum frá Seatown, til þess að spila l’hombre kvöld og kvöld. Og þeir gestir voru elcki nándar nærri nógu tignir, til þess að umgangast hann, að áliti Amy. En á afmælisdegi hans var fjölskyldan frá Westend vön að koma og óska honum til hamingju. Hún var að vísu ekki boðin, en það var orðin gömul venja, að þau borðuðu þar miðdegisverð um kvöldið, ásamt lækn- inum og prestinum. Nú heyrðist í bifreið sem gaf hljóðmerki, og Amy flýtti sjerf fram, til j)ess að kalla á þjónustustúlku sjer til hjálpar. Hún var sjálf ekki nógu ljett á sjer, til þess að hjálpa gestunum úr yfirhöfnunum, en henni fanst það ekki fyrir neðan virðingu sína að taka við loðfeldunum og hengja þá upp. Dyrnar inn í reykingarherbergi Sir James voru opn- aðar og feðgarnir komu fram, Georg hár og spengileg- ur í kjólfötum, og Sir James, glaður og ánægður á svipinn yfir öllum hamingjuóskunum, sem streymdu yfir liann. „Kom ráðsmaðurinn ekki líka?“ spurði hann undr- andi, er hann hafði heilsað öllum og boðið velkomin með handabandi. „Nei, en við áttum að bera yður kæra kveðju frá honum. Hann var svo óheppinn að misstíga sig í gær“. Georg hafði strax sjeð, að Walther var ekki með- þeim. Nú heyrði Elísabet hann livísla í eyra sjer, um leið og hann hjálpaði henni úr kápunni: — Hamingj- unni sje lof! Roði færðist í kinnar hennar, en hún ljet sem hún heyrði það ekki. Inni í dagstofunni stóð uppbúið teborð með alls- konar kökum, sem Amy hafði bakað. Miss Tylor hristi höfuðið yfir þessu óhófi, en gestirnir voru hinir ánægð- ustu yfir krásunum og gæddu sjer á þeim, meðan fjör ugar samræður fóru fram. Þegar tedrykkjunni var lokið, sneri Georg sjer að Elísabetu og sagði: „Þú hefir vonandi tekið skautana þína með þjer, Elísabet V‘ „Já, það gerði jeg“, sagði Elísabet. Hún bafði verið í miklum vafa um, hvort hún ætti að gern það, fyrst Walther kom ekki líka, því að húh vissi, að hann yrði fokvondur, ef hann frjetti, að hún hefði verið ein með Georg úti að renna sjer á skautum. En löngunin til þess að Vera enn einu sinni ein með Georg og fara á skautum með honum, eins og svo oft áður, sigraði skyldurækni hennar,eoa, öllu heldur ótta. Því að í seinni tíð var hún beinlínis farin að hafa beig af Walther, og þegar hann var nálægt, var hún alt öðruvísi en hún átti að sjer, og þorði ekki annað en gera honum alt til geðs. Faðir hennar var jafnvel orðinn kúgaður undir vilja hans og beygður. Það hafði komið fyrir nokkr- um sinnum, að þeir höfðu haft ólíkar skoðanir á ein- hverju viðvíkjandi búrekstrinum. Þá hafði Walther andmælt Longmore með svo miklu yfirlæti, að Miss Tylor ofbauð. En gamli maðurinn hafði strax látið und- - an og Walther fengið sínu framgengt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.