Morgunblaðið - 03.02.1937, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 3. febr. 1937j
MORGUNBLAÐIÐ
Nýtt!
Það tilkynnist hjermeð, að bakaríið, Bergstaðastræti
29, verður starfrækt eftirleiðis sem
brauða- og kökugerð.
Þar verður lögð aðaláhersla á að hafa æfinlega nýjar
kökur og brauð. — Eingöngu notað besta fáaníegt efni.
Sjerstök áhersla lögð á hreinlæti. Verðið eins lágt og unt
er. — Reynið viðskiftin.
Bakaríið Bergifaðastræti 29.
Sími: 3961. --- Sími: 3961.
ENGLISH.
Conversation, reading, writing, business methods
etc.
I BAVE
Three Evening Hours disengaged: — Tuesday,
9—10, Thursday and Friday, 8—9.
HOWARD LITTLE,
Laugaveg 3 B.
Kaupum flöskur.
Frá og með deginum í dag og til föstudags-
kvölds kaupum við tómar flöskur, sömu
gerðir og venjulega.
Flöskunum er veitt móttaka í Nýborg kl.
9—12 og 1—5,30 daglega.
Afengisverslun ríkisins.
Sfðasti frestur ð greiðslu iðgjalda
til Sjúkrasamlagsins.
Það hefir verið ákveðið að veita enn frest til 10. þ.
m. á greiðslu iðgjalda til Sjúkrasamlags Reykjavíkur fyr-
ir hinn lögákveðna biðtíma, mánuðina júlí—desember f.
á. Geta þannig þeir, sem enn eiga eitthvað ógreitt af þess-
um iðgjöldum, öðlast rjettindi í samlaginu nú þegar án
þess að greiða iðgjöld fyrir nýjan biðtíma, eins og lögin
ákveða, ef þeir greiða áfallin iðgjöld innan þess tíma.
En en^inn frekari gfald-
frestur verðair veittur með þeim
kjörnm.
Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Leikkvöld Mentaskólans:
TVEGGJA ÞJÓNN.
Leiksýningar Mentaskólans
hafa frá fornu fari átt vin-
sældum að fagna meðai bæjarbúa.
Þar hafa komið fram ein tvö vin-
sælustu leikrit þjóðarinnar, sem
kunnugt er. En fleiri frumsamin
ísl. leikrit hafa skólapiltar sýnt.
Á síðari árum hafa nemendur
ekki lagt út í það, að semja leik-
ritin sjálfir fyrir sýningar sínar,
enda hætt við, að leikritagerðin
drægi of huga þeirra frá náminu.
En þá verður leik-„tradition“
Mentaskólans fyrst fyllilega í
heiðri höfð, er leikritaskáld innan
skólans leggur fjelögum sínum til
leikritið.
*
Iþetta sinn hafa Mentaskólanem
endur tekið upp leikinn
„Tveggja þjónn“ eftir ítalska
skáldið Carlo Goldoni. Hefir
Bjarni Guðmundsson leiðbeint
þeim, og sett leikinn á svið. Er
leikurinn mjög vel valinn, fjörug-
ur og skemtilegur frá upphafi til
enda, enda skemtu leikhúsgestir
sjer hið hesta á frumsýningunni
um daginn.
*
Efni leiksins er í stuttu máli
það, að Speranza kaupmað-
ur er að trúlofa dóttur sína
Clementínu syni Lombardi mála-
færslumanns Silvio, þegar „þjónn
inn“ kemur að og segir að Rasponi
frá Torino sje þar kominn, en
honum hafði kaupmaður heitið
stúlkunni. Þessi Rasponi fjell í
einvígi við Florindo A.retusa, sem
er unnusti systur hans, en syst-
irin klæðist karlmannsfötum og
segist vera hinn látni bróðir. Unn-
ustinn kemur á sama gistihúsið óg
„þjónninn“ ræður sig sem þjónn
hans, en er þó jafnframt þjónn
hinnar dulbúnu nnnustu. Ut úr
þessu verður hin skringilegasta
flækja, sem leikurinn fjallar um
og greiðir úr að lokum.
*
Skúli Thoroddsen, sonur Guð-
mundar prófessors, ljek aðal-
persónuna, „tveggja þjóninn“.
Hlutverk það er kátlegt mjög. En
Skúli á sýnilega það æskufjör og
gletni, sem til þarf til þess að
notfæra sjer það þakkláta hlut-
verk, sem honum er lagt í hend-
nr. Það er verulega gaman að
honum. Og þó hlutverkið sjálft
Sjóválryggingarfjelag
íslands li.f.
hefir stofnseft nýfa deild fyrir
bifreiðatryggingar
Jafnframt annast fjelagið eldri bifreiða-
fryggingar Váfryggingarfjciagsins Danske
Lloyd og tfónauppgiör þeirra vegna.
geti gefið tilefni til þess að óæfð-
u?r leikari færi of langt í skringi-
legum tilburðum, stilti hann jafn-
an smekklega í hóf.
*
ór Guðjónsson leiku;' kaup-
* manninn, og fer myndarlega
úr hendi. Geirþrúður Sivertsen
leikur Beatrice og Gísli Ólafsson
leikur Florindo Aretusa og leika
þau bæði rösklega. Minna verður
úr hinum hlutverkunum. En þó
taka menn sjerstaklega eftir
skemtilegu gerfi og svipbrigðum
Drífu Viðar er leikur Smeraldinu
þernu Clementínu. Guðrún Gísla-
dóttir leikur CÍementínu. En feðg-
ana Lombardi og Silvio leika þeir
Adolf Guðmundsson og Helgi
Bergs. Árni Hafstað leikur gest-
gjafa og Anna Magnúsdóttir hefir
tvö smáhlutverk burðarkarls og
þjóns og er svo skopleg, að
hún þarf ekki annað en sýna sig
til að koma fólki til að hlægja.
Leikurinn verður endurtekinn í
kvöld.
Nýía Bíó.
G-Menn.
Nýja Bíó sýndi í fyrsta
sinni í gærkvöldi ame-
ríska kvikmynd, sem nefn-
ist G-Men. Myndin segir frá
baráttu amerísku ríkislög:-
reglunnar við bófalýðinn í
landinu.
Ameríkumenn eru nú smátt og
smátt að útrýma óaldarlýðnum,
sem reis upp á bannárunum. Til
þess að uppræta þessa bófaflokka
var stofnuð sveit manna, svo
nefndir G-Men, eða Government-
Men. í lögregluliði þessu eru ein-
göngu sjálfboðaliðar og valdir
menn í alla staði.
Áður en sjálfboðaliðarnir fá
inngöngu í þessa lögreglusveit
verða þeir að ganga í gegnum
strangan skóla og langan reynslu-
tíma. Allir, sem fá inngöngu í lið-
ið, eru háskólaborgarar. Á það
m. a. að tryggja, að þeir hafi ekki
staðið í neinu sambandi við bófa
flokka í iandinu og sjeu livað
mentun snertir vel starfi sínn
vaxnir.
G-Men hafa fullkomið vald til
að vinna upp á eigin spýtur og
án þess að spyrja lögreglu t. d.
viðkomandi ríkis nm hvað þeir
megi gera. Þeim eru fengin öll
þau vopn í hendur, sem nauðsyn-
leg ern til að vinna bug á hófa-
flokkunum, sem vel eru vopnum
búnir og hafa marga æfða menn
í þjónustu sinni.
Kvikmyndin „G-Men“ segir frá
ungum lögfræðingi (James Cagn-
ey), sem gengur í lið G-mannanna
og sem berst af hetjuskap á móti
óaldarlýðnum.
Kvikmyndin er afar spennandi
frá upphafi til enda.
Til Strandarkirkju frá Steina,
Yestmannaeyjum 10 kr., H. S. 2
kr. S. S. 2 kr., N. N. 3 kr., Hafn-
firðingi 50 kr.
Skaðabótamálið.
Húsmæðrafjelagið
lætur I Ijósi undrun
slna yfir dómi undir-
rjettar.
Húsmæðraf jelag Reykjavík-
ur hjelt fund í Oddfell-
owhúsinu í fyrrakvöld, fyrir
fullu húsi.
Fundinum stýrði formaður
fjelagsins, frú Jónína Guð-
mundsdóttir, en ritari var frú
Kristín Sigurðardóttir.
Aðalfundarefnið var hús-
mæðrafræðslan. Hjelt frú
Ragnhildur Pjetursdóttir fróð-
legt erindi um húsmæðrafræðsl-
una í Noregi, og gerði nokk-
urn samanburð á fyrirkomulag-
inu þar og hjer.
Allmiklar umræður urðu um
þetta mál, og tóku ýmsar kon-
ur til máls.
Á fundi Húsmæðrafjelagsins
sem haldinn var nokkru fyrir
jól, var kosin nefnd til að fara
á fund fjármálaráðherra, með
þá ósk að feldur yrði niður
verðtollur á nýjum ávöxtum,
svo að sem flest heimili í bæn-
um gætu keypt nýja ávexti um
jólin.
Nefndin skýrði frá því á
fundinum í fyrrakvöld, að hún
hefði farið á fund ráðherra, en
enga tilslökun fengið á tollin-
um.
Að lokum skýrði frú Guðrún
Lárusd. frá dómi undirrjett-
ar í mjólkurmálinu, þar sem
3 konur úr stjórn Húsmæðra-
fjelagsins voru dæmdar til að
greiða skaðabætur. Ljetu kon-
ur í ljós undrun sína yfir þess-
um dómi.
Að síðustu var samþykt í
einu hljóði svohljóðandi álykt-
un:
„Fjöllmennur fuindur Hús-
mæSrafjelags Reykjavíkur læt-
ur í ljós undrun sína yfir hin-
um nýuppkveðna dómi í hinu
svokallaða mjólkurmáli, og
telur fundurinn æskilegt að fá
úrskurð Hæstarjettar um það
hvort húsmæðrum bæjarins sje
nú ekki lengur frjálst að ráða
matarkaupum. heimila sinna
eða finna að skemdri neyslu-
vöru, án þess að eiga á hættu
málsókn og dóm“.
Gjafir til Bálstofunnar. Bálfara-
fjelaginu Jiafa borist 30 kr. frá
Magnúsi Jónssyni járnsmið, Bar-
ónsstíg 11 A, Rvík og 100 kr. frá
frú S. J., Rvík.
Garðyrkjumannafjelag
íslands
heldur stofnfund í Oddfellow-
höllinni, sunnudaginn 14. febrúar
kl. 8.
Skorað er á alla garðyrkju-
menn og konur að mæta.
Laganefndin.