Morgunblaðið - 03.02.1937, Síða 6
€
MORGUNBLAÐIÐ
25 ára gamalt íþrótta-
fjelag I Seyðisfirðí.
Seyðisfirði, mánudag.
Iþróttafjelagið ,Huginn‘ varð
25 ára þann 25. jan. s.l. Mint-
ist fjelagið afmælisins með
samsæti á laugardagskvöld og
bauð þangað bæjarstjórn og
fleiri gestum.
Fjelagið telur nú á annað
hundrað meðlimi og heldur það
árlega uppi ýmsum íþróttaiðk-
unum. Hefir það valda íþrótta-
kennara í þjónustu sinni.
Ben.
VERÐHÆKKUNIN Á
NAUÐSYNJAVÖRUM
ERLENDIS.
„Kátir íjelagar“ syngja á fostudaginn.
. v
m
W-
<v Íf
Í1 vf > £ *f • bi ' f f' ý 1
I | !■ í t 1« t í
l-V «.• i i -
w _•
V f
- « 1
1
' : •sy
•• '.■*
f
í
FEAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
verið að guma af „hagstæðum“
verslunarjöfnuði árið sem leið.
En ráðherrann einblíndi á töl-
ur hagskýrslnanna; hann
gleymdi alveg að líta á ástand-
ið í landinu sjálfu.
Þar er ástandið þannig nú,
að almenn vöruþurð er í land-
inu.
Hinn „hagstæði“ verslunar-
jöfnuður á pappírnum er
þannig til kominn, að frestað
var til þessa árs innkaupum á
nauðsynjavöru, sem ómögulegt
er að komast hjá að kaupa nú
þegar.
Kaupmenn fylgjast jafnan
vel með öllum breytingum sem
verða á vöruverði erlendis. —
Þeim var það vel kunnugt
seinni hluta, ársins sem leið, að
stórfeld verðhækkun var í
vændum. Þeir fóru því hvað
eftir annað f.r^m á að mega
gera innkaup meðan vöruverð-
ið var lágt, en fengu jafnan
neitun. FjáÝthálaráðherrann
þurfti að sýna á pappírnum
„hagstæðan“ verslunarjöfnuð!
En nú er verðhækkunin
skollin yfir eflendis. Flestar
nauðsynjavörur hafa stórhækk
að í verði. Algengu^tu teg.
matvöru hafa stórhækkað; rúg-
mjöl t. d. yfir 100%, hveiti
nál. 60% o. s. frv. Alt bygg-
ingarefni hefir stórhækkað,
einnig girðingarefni.
Þannig er umhorfs á erlenda
markaðnum þegar fjármálaráð
herrann leyfði að gera inn-
kaup!
Enginn veit ennþá hve stór-
kostlegt verður tap þjóðarinn-
ar af þessari heimskulegu ráðs
mensku f jármálaráðherrans.
En þjóðartapið skiftir miljón-
um — mörgum, m.áske tugum
miljóna króna.
En hver verður svo afleið-
ingin fyrir almenning? Sú, að
alt vöruverð í landinu stór-
hækkar, og dýrtíðin vex að
sama skapi.
Kátir fjelagar.
Karlakórinn „Kátir fjelagar"
ætla að hafa söngskemtun í
Gamla Bió á föstudaginn. Þetta
er einn yngsti kór bæjarins, en í
honum eru með sumir bestu söng-
kraftar, sem Reykjavík hefir á að
skipa.
Söngstjóri er Hallur Þorleifs-
son. í kórnum eru 36 manns.
Á föstudaginn ætlar kórinn m.
a. að syngja lag eftir Sigfús Ein-
arssón, prófessor, sem ekki hefir
verið sungið áður — „Yfir tón-
anna haf“. Annars eru á söng-
skránni bæði íslensk lög og er-
lend.
Kátir fjelagar hjeldu fýrstu
söngskemtun sína í fyrra og var
þá ágætlega tekið af áheyrendum
og söngdómurum blaðanna.
SUNDMÓT I. S. í.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
sundi, og Ingi Sveinsson, meist-
ári á 4ÍX) -hvótra sundi. Komu þeir
jafnt að marki á 3 mín. 2,4 sek.
Að lokum var kept í 100 metra
sundi, frjáls aðferð fyrir karla,
og varð Jónas Halldórsson fyrst-
ur á 1 mín. 5,8 sek. og sefti þar
með nýtt met. Islandsmetið er 1
mín. 8 sek. Þetta met Jónasar
verður þó ekki staðfest, þar sem
Sundlaugarnar hafa ekki löglega
lengd, til þess að þar geti farið
fram lögleg kepni.
Eftir sundkepnina fór fram
sundknattleiksýning og sýndu
Olympíufararnir þar listir sínar.
Einnig var sýnt nýtt bringu-
sund, sem úefnt hefir verið á ís-
lensku flugsund, og þótti mönn-
um gaman að horfa á það. Sund
þetta er fundið upp af Ameríku-
manni og nefndi hann það
„butterfly“, en einnig hefir það
verið kallað froskasund.
Sundkepnin var þátttakendun-
um til hins mesta sóma, og sund-
sýningarnar einnig.
KI v í 8 k á 1
VaxandL óánægja meo
ræðu Hitlers.
London í gær. FÚ.
Eftir því sem lengra líður frá
ræðu Hitlers, og mönnum gefst
tími til að íhuga hana betur,
verða dómarnir um hana óvæg-
ari, einkanlega í Frakklandi og
Rússlandi.
Frönsk blöð segja í dag, að
Frakkar geti ekki gert sjer það
að góðu, að ekki sje gengið frá
málum Vestur-Evrópu, en Hitler
hafi samtímis frjálsar hendur
gagnvart Austur-Evrópu.
Skora Frakkar á Breta að sam
einast sjer um þá kröfu til Þjóð-
verja, að þeir geri tafarlaust upp
reikninga sína við Loearno-ríkin.
í London hneigist hugur manna
einnig í svipaða átt og í Frakk-
landi. Þá hafa ummæli Hitlers
um nýlendukröfur Þjóðverja vak-
ið þar einna mesta eftirtekt, en
málið ekki talið aðkallandi, þar
sem ekki hefir verið vakið máls
á því á formlegan hátt.
Rússnesk blöð seg.ja, að það sj,e
greinilegt, að Hitler geri sjer far
um að hafa frjálsar hendur í
Austur-Evrópu, en tryggja öryggi
sitt í Vestur-Evrópu, óg skora þau
á Breta og Frakka að vera á verði
gegn fyrirætlunum hans, ef þeim
sje alvara að hefta útbreiðslu fas-
eismans.
Ótti Frakka um \
öryggi sitt.
Frakkar hafa aukið landamæra
deild flugflotans um 37%, en
skotfæraforða sinn um 50% á síð-
astliðnum 6 mánuðum, að því er
flugmálaráðherra Frakka upplýs-
ir. Flugmálaráðh. sagði, að
franski flotinn væri eins vel bú-
inn og nokkur annar flugfloti í
heimi, og ef til vill betur en nokk
ur annar, að rússneska flugflot-
anum undanteknum.
Ný dýrtíð, ofan á þá, sem
fyrir er, er nýársgjöfin f á f jár-
málaráðhe'rranum til að-
þrengds almennings.
Listasafnið í Málmey hefir á
svartlistarsýningunni i Charlott-
enborg keypt tvö listaverk eftir
Jón Engilberts og tvö eftir
öunnlaug Scheving. (FÚ.)
Rauðkál,
Gulrætur,
Rauðrófur,
nýkomið.
Verslunin Vfsir
Laugaveg 1.
Daladier hermálaráðh. sagði, að
víggirðingarnar við austurlanda-
mærin myndu verða framlengd-
ar norður á bóginn alla leið til
Dunkirque (meðfram landamær-
um Belgíu) og suður á við til
svissnesku landamæranna.
Einnig myndi hið víggirta
svæði verða breikkað.
Miðvikudagur 3. febr. 1937
Frú Jóhanna Þórðardottir os: Emil Rokstad.
Silfurbrúðkaup eiga þau í dag
merkishjónin Jóhanna Þórðardótt
ir og Emil Rokstad á Bjarma-
landi.
Emil Rokstad er einn af þeim
mönnum, sem komið hafa tóm-
hendir hingað til lands. En hann
hefir unnið sig upp með dugnaði
og fyrirhyggju. Heimili þeirra
hjóna hefir jafnan verið fyrir-
mynd um rausn og prúða híbýla-
háttu. Eiga þau fjölda vina, sem
munu innilega óska þeim í dag
farsældar og gengis á ókomnum
árum.
PÍUSI PÁFA LÍÐUR
„MIKLU BETUR“.
London 2. febr. FÚ.
Itilkynningu sem gefin var
út í Páfagarði í dag, var
sagt að Píusi páfa liði nú miklu
betur en undanfarna daga, og
að hann hefði tekið á móti all-
mörgum heimsóknum í gær.
Hann ætlar nú aftur 'að
taka upp reglubundna viðtals-
tíma daglega.
EKKERTFRUMVARP
UM GENGISLÆKKUN.
Kalundborg 2. febr. FÚ.
inska útvarpið birti í dag
yfirlýsingu frá íslenska
sendiráðinu í Khöfn þes efn-
is að enginn fótur væri fyrir
fregnum þeim sem ýms blöð á
Norðurlöndum höfðu birt um
það að íslenska ríkjsstjórnin
hefði ákveðið að leggja fyrir
alþingi frumvarp til laga um
verðfellingu á ísl. krónunni.
Ossietsky boðið til Noregs.
Kalundborg 2. febr. FÚ.
Fjelag Kvekara í Noregi og
ýms friðarv1inafjelög þar í
landj hafa áformað að bjóða
Ossietsky heim og hafa þau
snúið sjer til þýska sendiherr-
ans í Oslo og mælst til þess
að hann kæmi heimboði þessu
á framfæri við þýsk yfirvöld.
YFIRLÝSING FRÁ
NEMENDUM KENN-
ARASKÓLAN S.
Með því að yfirlýsing sú, sem
samþykt var á málfundi Kenn-
araskólans laugardagmn 23. f.
m. og send var dagblöðuin bæj-
arins til birtingar, hefir komið af,
stað flokkadrætti nokkrum innan
skólans og auk þeSs valdið mis-
skilningi utan skólans, hefir skól
inn í heild á fundi í dag komið
sjer saman um að láta getið op-
inberlega eftirfarandi atriða:
1. Á fundi þeim, sem yfirlýs-
inguna samþykti, voru ekki nema.
tæpur helmingur skólafjelaga. Að
henni stóðu samt nemendur úr
ýmsum pólitískum flokkum, enda
er tillagan ekki borin fram af
flokkslegum ástæðum.
2. Ekki aðeins þeir, sem utan
fundar voru, heldur emnig þeir,
sem að yfirlýsingunni stóðu, lýsa
að gefnu tilefni einróma óþökk
sinni á því, að yfirlýsingin sje
notuð sem málgagn á pólitískum
vettvangi, þar sem það er skoð-
un nemenda yfirleitt, til hvaða
flokks sem þeir telja sig, að skoð
anafrelsi eigi að ríkja í opinber-
um skólum.
3. Enda þótt það sje einróma
álit kennaraskólanemenda, að
skoðanafrelsi eigi að ríkja í op-
inberum skólum, líta þeir svo á,
að það sje heppiíegast hverjum
skóla, að nemendur fórðist af
fremsta megni pólitískar deilur
og áróður í fjelagsskap sínum inn
an skólans.
Yfirlýsing þessi var borin
fram á almennum nemendafundi
í skólanum 27. þ. m. og samþykt
með öllum greiddum atkvæðum
gegn tveimur.
Seinasta hefti söngmálablaðsins
„Heimir“ flytur meðal annars
þessar greinar: Tónlist í tóm-
stundum, eftir Helga Hallgríms-
son; Söngmót og söngþing S
Gautaborg, eftir S. Heiðar; Tón-
skáldið, próf. Bjarni Þorsteinsson,
eftir Baldur Andrjesson, o. fl.
Xý bók:
Sfeð og lifað
Endurminningar Indriða Einarssonar.
Verð kr. 15.00 heft, 20.00 í skinnbandi.
Bókavcralun Si^fúsar Eymundssonar
og BÓKABÚÐ AUSTl/RBÆJAR BSE,
Laugaveg 34.