Morgunblaðið - 21.02.1937, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.02.1937, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ „Hreingernino" Staiins: 10 þús. manns bfða dóms. PRÁ FRJETTARITARA VORUM KHÖFN í GÆK. í dag segii- í Lundúua- stórbiaðinu „Daily Express“: enn hafa alls ekki gert sjer ljóst, hve ó- hemju umfangsmikil hin rúss- neska ,,hreingerning“ er orð- M Tíu þúsund fangar hinnar alræmdu GPTJ ríkislögreglu bíða dóms. Meðal þessara manna eru margir af æðstu embættis- mönnum sovjetríkjanna og forvígismenn á sviði iðnaðar- ins. Tilnefndir eru fimtán for- stöðumenn járnbrautanna í sovjetríkjunum. Meðal þeirra, sem bíða dóms, eru Rykoff og Bukhar- in. TIL EFLINGAR VIÐ- SKIFTUM DANA OG ÍSLENDINGA. Khöfn í gær. FÚ. Ungur danskur trygginga- fræðingur, Kerulv And- ersen, hefir komið fram með tillögu, sem er á þá leið, að 4 —5 danskir verslunarmenn fari til íslands og setjist þar að í missiris tíma og kynni sjer sem rækilegast framleiðslu íslands og verslunarhætti. Samtímis leggur hann til að 4 eða 5 ís- lenskir verslunarmenn fari til Danmerkur í sama augnamiði. Hann álítur að þessi verslun- armanna skifti gætu með tím- anum orðið til þess, að auka við- skifti milli landanna, með því að líklegt sje að ókunnugleiki valdi nokkru um það, að þau eru ekki meiri en raun hefir orðið á. Norrænafjelagið í Danmörku hefir nú tekið þessa hugmynd að sjer og hefir þegar hafið f járöflun til þess að koma henni í framkvæmd. Hefir í því skyni verið leitað til einstakra opin- berra sjóða og verslunarf jelaga, sem gert er ráð fyrir að hafi áhuga fyrir að varðveita versl- unar-viðskifti íslands og Dan- merkur. 60 ára: Kristján Ásgeirsson fyrv. verslunarstjóri. í dag er Kristján 60 ára. Hami fæddist að Skjaldfönn í Norður- ísafjarðarsýslu. Kristján er kom- inn af ágætum bændaættum vest- ur þar. Hann stundaði landbúnaðar- störf fram um tvítugs aldur, en rjeðist þá til Ásgeirsverslun á ísa- firði og vann þar fyrst sem versl- unarmaður og' bókhaldari og síð- ar, um mörg ár, sem verslunar- stjóri Ásgeirsverslunar á Flateyri. Hinn merki kaupsýslumaður, Árni Jónsson, sá snemma bæfi- leika og mannkosti Kristjáns og’ fól honum smám saman hin á- byrgðarmeiri störf innan þessa stærsta verslunarfyrirtækis, sem rekið hefrr verið á þessu landi, utan Reykjavíkur. Kristján vann líka trúlega til þess trausts sem honum var sýnt, enda hafði hann forstöðu verslun- arinnar á Flateyri á hendi, meðan Ásgeirsverslun átti þá verslun og einnig eftir að Hinar Sameinuðu ísl. verslanir keyptu þessa verslun, þar til þær hættu verslunarrekstri hjer á landi. Síðan hefir Kristján dvalið hjer í Reykjavík og um stund í Kefla- vík. Kristján er drengur hinn besti, harður í andstöðu, og hreinlynd- ur, vinfastur og vina vandur. Heimili hans var hið ágætasta meðan hin mikilhæfa kona hans og efnilegi barnahópur var í föð- urgarði. Við svinir Kristjáns sendum hon- um árnaðaróskir á þessum afmæl- isdegi. J. A. J. SÓKN FRANCOS TIL ALMERIA. Berlín í gær. FÚ. Utvarpsstöðin í Salamanea skýrir frá því, að uppreisnarmenn hafi undanfarnar 24 klukkustund ir sót.t fram í áttina tii Almería, og telja þeir sig nú aðeins í 80 km. fjarlægð frá þeirri borg. Þá telja þeir sig hafa náð þýð- ingarmiklum árangri í sókn sinni norðaustan við Madrid. Uppreisn- armenn fá stöðugt liðsauka frá y Malaga. Enskt herskip er komið til Mal- aga með matvælafarm, sem út- hluta skal meðal bágstaddra íbúa Hefir matvælum þessum verið safnað áf ensku hjálpamefnd- inni. CANADA RÍÐUR Á VAÐID. I HEIMSÓKN HJÁ HERTOGANUM AF WINDSOR. Sir Moncton, lögfræðilegur ráðunautur Corwall-hertoga- dæmisins og ráðunautur Ed- wards VIII í stjórnarskrárdeild- inni í Englandi í vetur, er kom- inn til Vínarborgar. Hertoginn af Windsor (áður Edward VIII) tók á móti Sir Moncton. (Skv. einkask.). London í gær. FU. ackenzie King forsætisráð- hei'ra Canada tilkynti í gær, að Canada mundi verja - 7 miljónum sterlingspunda til auk- ins vígbúnaðar. Það er ekki ha:gt, sagði hann, að heimtá jafnrjetti við aðrar sam veldisþjóðir og geta, á sarna tíma ekkert lagt -fram til hervarna. „Glíma við Glám“, fyrirlestur dr. Guðbrandar Jónssonar er í Nýja Bíó í dag kl. 3. Sunnudagur 21. febr. 1937. FJELAG SJÁLFSTÆÐ ISKVENNA: HVÖT. FRAMH. AF SJÖTTU SÍÐU. asson ágæta ræðu, þar sem hún hvatti konur til þátttöku. Margar fleiri konur tóku til máls og mæltu ýmist með eða móti. Voru þó miklu fleiri kon- ur er voru ákveðið með því, að fjelagið skyldi stofnað sem sjálfstætt fjelag Sjálfstæðis- kvenna. Þær fáu konur, sem í móti mæltu, komu með þá til- lögu, að fjelagið yrði deild í Landsmálafjel. Verði. En það var kveðið niður, með miklum meirihluta, með þeim rökum, að allur fjöldi fundarkvenna væri hvort eð er í Verði. Var síðan kosin bráðabirgða- stjórn, er átti að ganga frá lög- um fjelagsins, koma með til- lögu um nafn þess og sjá um annað, er við kom úrslita stofn- un þess. Ljet stjórn þessi ekki á sjer standa. Með áhugasemi og dugnaði hafði hún lokið undir- búningi undir lokastofnfund á þrem dögum og var hann hald- inn á föstudaginn var. Fjölmentu konur þangað, eins og á hinn fyrri fund. Lög fje- Iagsins voru borin fram til sam- þyktar og endanlega gengið frá stofnun fjelagsins, er hlaut nafnið , ý>j álfstæðiskve n naf j e- lagið Hvöt“. Stofnfjelagar voru 315. Bráðabirgðastjórnin, er átt höfðu sæti i, frú Guðrún Jónas- son, frú Ágústa Thors, frk. Mar- ía Maack, frú Guðrún Guð- laugsdóttir, frú Kristín Sigurð- ardóttir, frú Helga Marteins- dóttir og frú Sesselja Hansdótt- ir, var endurkosin með einróma atkvæðum, og frú Guðrún Jón- asson kjörin formaður fjelags- ins. 1 varastjóm voru kosnar: frú María Thoroddsen, frú Ásta Eggertsdóttir, frú Dýrleif Jóns- dóttir, Svana Jónsdóttir og Sig- ríður Jónsdóttir. Endurskoðendur: frú Soffía Jacobsen og frk. Guðrún Þor- kelsson. GLEÐSKAPUR OG FJÖRUGAR UMRÆÐUR Fundurinn var hinn fjörug- asti og sátu konur að kaffi- drykkju, söng og ræðuhöldum langt fram eftir kvöldi. Þessar konur tóku til máls á fundinum: frú Guðrún Jón- asson, frk. María Maack, frú Guðrún Guðlaugsdóttir, Jónína Jósepsdóttir, frú Jóhanna Ól- afsson og Sigríður Sigurðar- dóttir. Áður en fundi var slitið, hyltu fjelagskonur formann sinn, frú Guðrúnu Jónasson og þökkuðu henni vel unnið starf í þágu sjálfstæðisstefnunnar. Það er vel, að hinn fjölmenni hópur fjölmennasta stjórnmála- flokks landsins stofnar með sjer fjelagsskap. Islenskar konur, er vilja heill þjóðar sinnar, styrkja ættland sitt í úrslitabaráttu frelsis og sjálfsforráéa og stuðla að því að vandamál þess verði leidd til farsælla lykta, fylkja sjer undir merki Sjálfstæðisflokksins, og fjölmenna í Sjálfstæðiskvenna- fjelagið Hvöt! Aukið endinguna á fatnaði yðar með því að láta okkmr kemisk-hreinsa eða lita hann. Sækjum. Sími 1300. Sendura. Kaupmenn! UmbúBap?ppfr 20 cm. mjög ódýr. Hi5 islenska fornritaffelag. Grettis saga Eyrbyggja saga Laxdæla saga Egils saga Verð: Hvert bindi: Heft kr. 9,00. í skinnbandi kr. 15,00. Kaupið fornritin jafnóðum og þau koma út. Fást hjá bóksölum. Aðalútsala í Bókaverslun Sl($fúsar Eymundssonar og Bókabúð Austurbæjar B. S. E. Laugavegi 34. búðapappír, Makulafor og Sulfit, 20, 40 og 57 cm. rúllur. Eggerí KristjánssDn & Co. Sími 1400.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.