Morgunblaðið - 21.02.1937, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 21.02.1937, Blaðsíða 8
8 Sumtudagur 21. febr. 1937. MuilGUNÖÍiAÐÍi' t^ínna Dagbókarblöð Reykvíkings Fótsnyrting. Unnur Óladótt- ir, Nesi. Sími 4528. Maður, vanur skepnuhirðingu óskar eftir slíku starfi. Vitastíg 11. í kvöld kl. 8V&: Sálmur 145, 11. överby & Nœrvik. Horna- og strengja- sveit. Málverkasýning Jóns Þcrleifs- sonar í vinnustofunni í Blátúni, opin á sunnudögum frá 2—7. Sími 4644. Permanent hárliðun. Þrjár mismunandi tegundir: Wella — Eugen — Zotoz, sem er sjerlga góð fyrir fínt og erfitt hár. — Hárgreiðslustofa Lindís Hall- dórsson, Tjarnargötu 11. Sími 3846. Barnavagnar og kerrur ávalt fyrirliggjandi. Notaðir teknir til viðgerða. Verksmiðjan Vagn- inn, Laufásveg 4. FriggbóniS fína, er bæjarins besta bón. Vjelareimar fást bestar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. Kaupi gamlan kopar. Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Frá því var sagt í Daily Mail, að Hitler hafi skrifað Vil- hjálmi fyrverandi keisara og bið- ið honum að hverfa aftur heim til Þýskalands. En Vilhjálmur hafi svarað því til, að þangað kæmi hann aldrei, nerna til þess eins að taka við keisaratign. * Einn af lesendum blaðsins hefir haft orð á því, að óviðkunnanlegt væri að nota orðið „verðfellingu“ í merkingunni gengislækkun krón unnar. Hefir á þessu nýyrði borið upp á síðkastið, m. a. í útvarpi, en virðist ástæðulaust að breyta nafni þess hugtaks úr því sem verið hefir. Gengi og gengislækk- un hefir fengið hefð í málinu. Breyting á þessu gerir ekki annað en rugla fólk í því hvað við er átt. * 1 bænum Winmore í Canada fæddi kona nýlega meybarn, sem Otto B. Arnar, löggiltur út- varpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2799. Uppsetning og við- gerðir á útvarpstækjum og loft- netum. Slysavamafjelagið, skrifstofa Hafnarhúsinu við Geirsgötu. gjöfum, áheitum, árstillögum m. m. Geri við saumavjelar, skrár og allskonar heimilisvjelar. H. Sandholt, Klapparstíg 11. var 7% kg. að þyngd, eða 31 mörk. Fimmburarnir frægu vógu til samans 20 merkur. * Ung stúlka í Englandi, sem er mjög hrifin af Georg VI. kon- ungi hefir látið tatovera einkenn- isstafi hans á bakið á sjer. * James Smith heitir Ameríku- maður einn, sem um jólaleytið lagði land undir fót og gekk 500 mílur til þess að hitta brúði sína og ganga í heilagt hjónaband. Hann er 86 ára, en lionan, sem hann feldi ástarhug til er 76. * íðan Játvarður III. Englands- konungur dó árið 1377, eftir 50 ára ríkisstjórn, hafa eftirmenn hans með því nafni ekki borið mikla giftu í hásæti Englands. Játvarður IV. var að vísu kon- ungur í 22 ár. En tíu fyrstu árin geysaði borgarastyrjöld í landinu. Játvarður V. var myrtur skömmu eftir að liann tók við völdum. Játvarður VI. fekk konungdóm 10 ára gamall, var veiklaður og dó eftir 6 ár. Játvarður VII. ríkti aðeins í 9 ár og síðasti Játvarð- ur, sá áttundi með því nafni, er lagði niður völd eftir tæplega eins árs ríkisstjórn. * Stærsti vinningur, sem sögur fara af á veðhlaupabraut, kom fyrir við ensk veðhlaup í vetur. Maður einn sem lagði einn penny vann 18.942 sterlingspund. Að slík býsn geta komið fyrir kemur m. a. til af því hve þátttakan í veð- málunum er geysimikil. * í ensku blaði er sagt frá því, að maður einn hafi tekið sjer fyrir hendur að rannsaka hvaðan orðið „Chic“ stafi, sem komið er í al- þjóðamál með ákveðinni merk- ingu, og vart verður þýtt á ís- lenska tungu svo vel sje. Orðið „Chic“, segir hann, var fyrst notað um „krínólínur" kvenna, sem Parísarskraddari einn bjó til. Hann var ættaður frá Vínarborg. Hann hjet Schick, og var orðlagður fyrir smekklega kvenbúninga sína. Það sem frá‘ honum kom fekk nafn hans, var kallað „chick“, en síðan færðist merkingin yfir á smekklegan klæðaburð yfirleitt. Mig vantar íbúð, tvö herbergi og eldhús, með uútíma þæg- indum 14. maí. Þórður Geirs- son, lögregluþjónn. 5—6 herbergja, íbúð eða hús óskast til leigu 14. maí, á góð- um stað. Alt fullorðið fólk, skilvís greiðsla. Tilboð merkt: „Fullorðið", sendist Morgun- blaðinu. Jáutfi&£&mue Góður sumarfrakki (dömu) !til sölu. Sími 2655. Manchetskyrtur og bindi er best að kaupa í Manchester,. Aðalstræti 6. Taft-silkin margeftirspurðu 1 eru nú komin. Manchester, Að- alstræti 6. Ljereft og flónel, hvít og mislit, Manchester, Aðalstræti 6. Húsmæður! Daglega nýr fiskur til að sjóða, í fars og að steikja. Fis-k & farsbúðin, Þórsgötu 17. Sími 4781. Kaupi gull og silfur hæsta verði. Sigurþór úrsmiður, Hafn- arstræti 4. Kaupi íslensk frímerki hæsta. verði og sel útlend. Gísli Sig- urbjörnsson, Lækjartorgi 1. — Opið 1—4. Húsmæður. Hvað er pönnu- fiskur? Kostar aðeins 50 aura. Bæjarins besta fiskfars 50 aura. Fiskpylsu- ogMatargerð-- in, Laugaveg 58, sími 3827. Rúgbrauð framleidd úr besta danska rúgmjöli (ekki hinu. sönduga, pólska rúgmjöli). Kaupfjelagsbrauðgerðin. Skíðahúfur. Hattasaumastofa. Cristínar Brynjúlfsdóttur, Aust— Seld minningarkort, tekið mótl urstræti 17, uppi. Auglýsingasími Morgunblaðsins er 1600. ROBERT MILLER: SYNDÍR FEÐRANNA. hans höndina, og að hann virtist ófús á að sleppa henni strax. Síðan sá hann Miss Grace kippa að sjer hendinni og skjótast inn í næstu búð. Mr. Blazer sneri við og gekk niðurlútur heim til sín. Það var svo sem auðsjeð, hugsaði Carno, að þau höfðu ekki hist af tilviljun. Hann hafði setið um hana, og svo var eins og hún hefði gefið honum eitthvert loforð, það var greinilegt, að hann hafði verið að þakka henni. Gott og vel — hún gat þá líklega eins verið vin- gjarnleg við hann — Carno. Hún var að minsta kosti ekki vönd í vali sínu, frændi hafði ekkert við sig, nema peningana og ein- feldni sína. Hann beið þangað til hún kom út úr búðinni og gekk þá rakleiðis til hennar. Hann tók ofan og spurði, hvort hann mætti fylgja henni, í svo frekjulegum róm að Elísabet varð steinhissa. Hann var alt öðruvísi í framkomu nú en þegar þau höfðu hitst við borðið hjá Blazer. „Það er ekki ómaksins vert, Mr. Carno, því að jeg bý hjerna í næstu götu“, sagði hún stutt í spuna. „Við getum lengt okkur leið. Það lítur út fyrir að ætli að fara að frysta, það verður stjörnubjartur himinn og tunglsljós bráðum. Er þjer hafið ekki ann- að betra að gera, væri mjer ánægja að því að þjer borðuðuð kvöldverð með mjer einhversstaðar. Jeg veit um stað á Sixt Avenue, þar sem er ágætis hljómsveit“. „Þakka yður fyrir, Mr. Carno, en jeg fer aldrei út á kvöldin". „Það er ömurleg tilvera fyrir unga stúlku, það geng- ur aldrei til lengdar. Lofið mjer að sýna yður Savoy hótelið í kvöld. Það er ágætur staður og þangað kemur gott fólk“. „Samt sem áður afþakka jeg boðið, Mr. Camo“ sagði Elísabet í ákveðnum róm, sem útlokaði allar frekari umræður um málið. Carno, sem var mjóleitur í andliti með dökk augu og mjög mjótt bil á milli augnanna, varð háðslegur á svipinn. Hann gekk þegjandi við hlið hennar, þang- að til Elísabet nam staðar við útidyrahurð sína og sagði þurlega, án þess að rjetta honum höndina: „Verið þjer sælir!“ Þá sagði hann ósvífinn á svipinn: „Þjer ættuð ekki að vera svona kostbær. Það fer yður ekki vel og kemur illa heim við hina innilegu framkomu við frænda minn áðan. Jeg varð af tilviljun sjónarvottur að stefnumóti ykkar niðri á Eleventli Street“. Elísabet blóðroðnaði af bræði. Hann stóð kyr og varnaði henni inngöngu. í sama vetfangi rak hún honum löðrung með krept- um hnefa og hljóp inn. En hann tók við högginu án þess að gefa nokkurt hljóð frá sjer og flýtti sjer í burtu. En hann náði ekki upp í nefið á sjer fyrir bræði og var fullur af hefndarhug. Hann þóttist viss um, að Elísabet hafði tekið frænda hans fram yfir sig. Hann hafði nóg af peningum, en var ekki fátækur eins og hann. Hann ákvað að hefna sín við fyrsta besta tæki- færi. Elísabet kastaði sjer grátandi á rúmið sitt, þegar hún kom upp. Svona var það þá að vera fátækur, hugsaði hún. Þá leyfði svona óhræsi sjer að móðga mann. Gat það verið að Mr. Blazer hefði líka ætlað að móðga hana, þó að hann hefði verið svona vingjarn- legur og hreinskilinn að sjá? Og hún hafði verið svo grandalaus, að hún hafði lofað honum að koma til hans, ef hún væri í vanda. Auðvitað hafði hann haft ilt í huga. Og hún hafði ekki skilið það þrátt fyrir þá reynslu, er hún hafði nærri lent í klóm hvítu þræla- sölunnar. Var þá ekki hægt að treysta nokkrum manni ? Júr hún treysti Georg, og hún var líka sannfærð um, ’að dr. Payne var heiðarlegur og góður maður. Vilta var liðin og Elísabet hafði ekki haft aðra at- vinnu en að sauma fyrir Mrs. Blazer. Hún hafðL spurst fyrir í mörgum verslunum, sem höfðu sauma- stofu, hvort enga atvinnu væri þar að fá, en alstaðar árangurslaust. Hún lifði í þeirri von, að Mrs. Patterson myndi geta, útvegað henni atvinnu við að sauma í einhverjum af“ þeim húsum, sem hún kom í. Hún var mjög vingjarn- leg við hana. Elísabet sá, að það borgaði sig að eiga vináttu hennar og bauð henni stundum að drekka te- hjá sjer á kvöldin og spilaði L’hombre við hana. En Mrs. Patterson hafði mjög gaman af að spila. Elísabet var ekki hrifin af því að eyða kvöldum með þessari málugu konu og hlusta á tal hennar um ná- ungann. En hún varð að sætta sig við það. Kvöld eitt kom hún másandi og blásandi upp stig- ann. Hún þjáðist af asma og varð altaf mjög æst,. þegar hún komst í geðshræringu. , „Miss Grace“, sagði hún og kom þjótandi inn, áður en Elísabet sagði „kom inn“. „Miss Grace, á föstudag- inn eigið þjer að fara til Wolffs verkfræðings og: sauma þar — þrjá kjóla og margt fleira — dóttir þeirra ætlar að fara að gifta sig. Þetta verður atvinna í margar vikur fyrir yður“. Hún var enn móð af á- kafanum og Ijet sig að lokum falla þunglamalega nið- ur á legubekkinn. „En hvað mjer þykir vænt um það, Mrs. Patterson. Þjer eruð minn góði verndárengill", sagði Elísabet himinlifandi og greip hönd hennar. „Já, en nú skuluð þjer heyra, Miss Grace. Húsbónd- inn þarna er ekki eins vænn maður og Mr. Blazer. Og konan hans er frámunalega afbrýðissöm. Þjer skiljið, þjer megið ekki einu sinni líta í áttina til hans. Það væri auðveldara fyrir yður að komast áfram, ef þjer væruð ekki svona lagleg. En munið það, þjer megið ekki líta við honum, þó að hann sendi yður hýrt auga“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.