Alþýðublaðið - 01.06.1958, Side 1

Alþýðublaðið - 01.06.1958, Side 1
24 síSur ídag Alþýímblaðií) Sunnudagur 1. júní 1958 Hafnarfjörður fimmtíu ára HAFNFIRÐINGAR minnast merkis afmæliis í dag. Þá em 50 ár liðin síðan Hafnarfjöilður fékk kaupstaðarréttindi. í ,því tilefni efnir bæjarstjórn Hafnar-- fjarðar til hátíðahalda um þessa helgi. Á þessum merku tímamótum í sögu kaupstaðarins minnast Hafnfirðingar vaxtar og viðgangs bæjarfélagsins síns frá því fyrsta og ti'l þessa dags. Hafnarfjarðarhöfn hefur frá náttúrunnar hendi verið talin ein bezta höfn- suðvestanlands. Hafngæðin urðu til þess að byggð myndaðist við fjörðinn. Þegar verzlunarmál íslendinga tóku að færast í skárra horf en verið hafði og einkum- eftir að framfarir tóku að gerast á sviði íslenzks sjávarútvegs, tók byggðin við Hafnarfjörð að þróast og dafna. Árið 1870 var íbúafjöldi við Hafnarfjörð 363 og árið 1907, þegar lögin um kaupstaðaréttindin voru samþykkt á alþingi, 1351. Síðan hefur bærinn tekið miklum vexti og enn meiri breytingum. Haustið 1925 voru íbúar IÍafnarfjarðar 2943, árið 1945 4225 og nú um 6500. Stækkun bæjarins hefur fylgt ýmis konar aukin þægindi og þjónusta við bæj- arbúa. Jaínframthafa orðið miklar breytingar á atvinnuvegum og vinnuskilyrð- um. Sá litli iðnaður, sem fyrir var, hefur margfaldazt. Eldri iðngreinar hafa aukizt og nýjar risið upp. Og enn er Hafnarfjörður vaxandi kaupstaður í sífellt auknum mæli. Eftirspurn eftir byggingarfóðum nokkur undanfarin ár hefur ver-. ið meiri en hægt hefur verið að anna. Hið mikla aðstreymi fólks hefur að sjálf- sögðu skapað bæjarfélaginu nokkurn vanda, en hins vegar er það ánægjulegurf vottur þess að Hafnarfjörður er byggðarlag, 'sem fólk sækir til og hyggur gott til búsetu í. Þrátt fyrir hið hrjóstuga, en þó sérkennilega og fagra bæjarstæði,, sem gerir hverskonar byggingarframkvæmdir kostnaðarsamar, erfiðar og sein- unnar, eykst byggðin í Hafnarfirði hröð um skrefum. Hafnarfjörð hefur löngum byggt dugmikið og framtakssamt fólk. Því þykir vænt um bæinn sinn og það trúir á framtíð byggðarlagsins. Hin vaxandi sjávarútvegur, miklir og glæsilegir möguleikar með hagnýtingu jarðhitáns í Krýsuvík til hverskonar stóriðju og f 1., lofar góðu um farsæla fram tíð Hafnarfjarðar og bætt lífskjör fyrir Hafnfirðinga. Á tímamótum 50 ára afmælis Hafnarfjarðar hefi ég þá ósk fram að færa, að Stefán Gunnlaugsson bæjarstjóri. framtíðin beri í skauti enn aukna hagsæld og bætt lífskjör til handa hafnfirzkri alþýðu. Megi bornir og óbornir Hafnfirðingar sjó Hafnar- fjörð á komandi árum vaxa og eflast og verða í æ ríkaramæli blómilegt og athafnasamt byggð- arlag. Stefán Gunnlaugsson. s s s V s s s s s s s s s c s < s s s s s s s s s V s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s 1. júní 1808: Hafnarfjörður fær kaupstaftairétt- indi. 1. júní 1908: Fyrstu bæjar- stjórnarkosningar. 4. júní 1908: Fyrsti bæjar- stjórnarfundur. 1908: íshús Hafnarfjarðar sett á stofn. 1910: Bookless Bros hefja útgerð Hafnarfirði. 1913: Gamla hafskipabryggj an byggð, 1913: Fríkirkjan vigð. 1914: Þjóðkirkjan vígð. 1915: Fyrstu hafnfirzku togararnir, Ym’r og Víðir, keyptir. 1918: Lyfjabúðin stofnsett. 1922: Bookless Bros hætta útgerð í Hafnarfirði. 1922: Leikfimishús reist. 1922: Bæjarbókaspfnið tek- „ ur til starfa. 1923: Útgjerðarfélagið Ak- úrkerði stofiiað. 1924: Fyrlsta gróðursetning í Hellisgerði. 1924: Hellyer Bros hefja út- gerð í Hf. 1926: St. Jósephspítali tekur t'jl starfa. 1926: Barnaskólinn við Læk inn fuHbyggður. 1926: Iðnskólinn stofnaður. 1929: Heliyer Bros hætta út gcið í Hf. 1928: Iajftur Bjarnason byrj ar sjálfstæða útgcrð- arstarfseini. 1930: Jón Gíslason byrjar útgerðarstarfsemi. 1930: Sérstakur bæjarstjóri kosinn. Áður hafði bæiarfógeti jafnframt verið bæjarstjóri. 1931: Bæja.rútger<Tai stofn:- uð. Togarinn Máí keypt- u r. 1933: Ilraðfrystivélar scttar í íshús Hf. 1933: Dagheimiljð tekur til starfa. 1935: Fyrstu verkamanna- hústaðir reistir. 1935: Bærinn setur á stófn elliheimili. 1936: Raftækjasmiðjan h.f. tekur tii starfa. 1937: Flensborgarskólinn á Hamr num vígður. ,1937: Krýsuvík keypt. 1938: Bærinn kaupir raf- veitukerfið. Rafveita Hiafnarfjarðar ^toí' 4i uð. 1940: Byrjað á haínargörð- unum. 1942: Bæjarráð kosið. 1943: 1944: 1945: 1947: 1949: 1953: 1953: 1953: 1957: Sundlaugin vígð. Ráðhúsið fullgert. Bæjax-bíó starfa. tekur til Barnaskóiinn aður. stækk- * að Stóra borholan Krýsuvík tekur gjósa. Nýja vatnsveitan full gerð. Sólvangur tekur stai-fa. til Sundlaugin yflrbyggð. Fisk’ðjuver bæjar- ins tekur til starfa. 1958: Nýtt bókasafnshús við Mjóasund vígt. Hafnarfjörður um síðustu aldamót, skömmu áður en liann fékk kaupstaðarréttindi. Skútur á höfninni. \ \ \ S \ \ \ \ \ \ \ \ \ \ Í s \ s \ \ s s s \ \ \ V s \ s \ s \ \ \ s \ \ \ s \ \ s s \ 'O i ■*y*y*v*4

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.