Morgunblaðið - 22.04.1937, Page 2
MORGUNBLABIÐ
Fimtudagur 22. apríl 1937.
óánægfa og
ókyrð sögð í liði
upprcisnarmanna
Skipulagðar loft-
árásir gerðar
á Madrid.
London í gær. FÚ.
Frjettir frá Spáni í dag segja frá ókyrð
og óánægju í liði uppreisnarmanna.
Frá Bilbao kemur fregn um, að þrír
liðsforingjar uppreisnarmanna hafi verið skotnir
í Santander.
í sambandi við aðra fregn, sem höfð er eftir Baska-
stjórninni á þá leið, að Þjóðverjar í liði uppreisnar-
manna í Vitoria — en þaðan er sókninni til Bilbao
stjórnað — hafi gert uppreisn og neitað að fara til víg-
stöðvanna, hefir talsmaður þýsku stjórnarinnar látið svo
um mælt, að svona frjettir taki hún ekki alvarlega.
Það er vitað, að nokkurt sundurlyndi hefir gert vart við
sig milli þeirra flokka, sem styðja Franco, og það er talin á-
stæðan fyrir því (segir í Lundúnafregn F.Ú.), að Franco hef-
ir steypt þeim öllum saman í einn flokk.
Líkja stjórnmálafræðingar þessu við þá ráðstöfun Hitlers,
er hann innlimaði Stálhjálmafjelögin í Nazistaflokkinn.
Tundurduflahættan við
Ógurlegt
verðhrun
á kauphöll-
inm iPrag.
Orsðk: Óttinn
við styrjðld.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í g»r.
ttinn við styrjöld
hef jr leitt til ógur-
legrar verðbólgu með
eftirfarandi verðhruni á
kauphöllinni í Prag
(Tjekkoslóvakíu).
Meðal þeirra, sem
orðið hafa fyrir tjóni
eru fjöldi bænda og
verkamanna og er því
óttast að verðhrunið
muni hafa í för með sjer
alvarleg vandræði inn-
anlands.
Undanfarið hefir sá orðróm-
ur flogið um Tjekkoslóvakíu
að styrjöld væri óhjákvæmileg.
Leiddi þetta til spákaup-
mensku á kauphöllinni í Prag,
í svo stórum stíl, að ^kki eru
dæmi til slíks síðan í heims-
styrjöldinni.
Sumir menn eyddu öilu
sparifje sínu til kaupa á
hlutabrjefutni hergagna-
iðnaðarins.
Gat ekki hjá því farið, að of-
an á hina gífurlegu géng;«
hækkun, sem orðið hafði á
hlutabrjefum, kæmi aftur-
kippur. í gær byrjaði hrunið.
Allir vildu nú selja, og af-
leiðingin var ógurlegt verð-
hrun , sem að meðaltali nam
20 hundraðshlutum.
Tjón vegna gengishrunsins
er metið á tvo miljarði tjekk-
neskra króna.
34 refir hafa verið skotnir í vet-
ur á Langanesi, 18 mórauðir og
hvítir. Flesta refina (22) fengu
.Fohann og Þorsteinn Jósefssynir.
(FIT.).
Keflavíkurbátar hafa róið und-
anfarna daga og aflað 6—10 skpd.
Islendingur
á leiksviði
í Danmörku.
Khöfn í gær. FÚ.
slendingurinn Lárus
Pálsson leikm- tvö
hlutverk í Hamlet, eftir
Shakespeare, sem sýnt
verður á konunglega
leikhúsinu í Kaupmanna
höfn næstkomandi laug-
ardag.
Hann á að segja fram for-
mála (prolog) fyrir leikrit-
inu, og þar að auki leikur hann
annan grafara.
Lárus Pálsson er nemandi
frá Leiklistaskóla leikhússins og
hefir öðru hvoru leikið ýmisleg
hlutverk á Konunglega leik-
húsinu síðan námi hans lauk
og leyst þau af hendi, þannig,
að dönsk blöð hafa farið um
hann hinum lofsamlegustu orð-
um.
Vinnufriöur trygður
í Noregi.
Osló 21. apríl.
Miðstjórn Fjelags atvinnu-
rekenda í Noregi samþykti á
fundi sínum í gær að fallast á
málamiðlunartillögur sáttasemj-
ara, vegna þess hversu mikil-
vægt það sje fyrir atvinnulíf
landsmanna, að vinnufriðurinn
haldist. (NRP—FB).
Þrátt fyrir þessar fregnir
virðist nú gæta aukinna
aðgerða uppreisnarmanna
á vígstöðvunum á Spáni.
Uppreisnarmenn virðast nú
vera að búa sig undir að taka
upp sókn sína til Bilbao á ný,
og hefir talsverður liðsauki
verið sendur til vígstöðvanna,
bæði fluglið, stórskotalið og
fótgöngulið.
Loftárás á Madrid.
I dag hafa uppreisnarmenn
haldið uppi skipulagðri árás
með fallbyssum sínum á Mad-
ridborg.
Fjöldi fallbyssukúlna hefir
fallið um miðbik borgarinnar.
Kúla, sem sprakk móts við
Þjóðbankann, varð 5 mönnum
að bana, en særði 23.
Aðrar vígstöðvar.
Samkvæmt fregnum frá upp-
reisnarmönnum, hafa hersveit-
ir þeirra unnið sigra á Aragoníu
og Teruel vígstöðvunum og sótt
fram á Baskavígstöðvunum.
í orustu þar segjast þeir hafa
tekið mikið herfang, og hafi
100 manns fallið í liði stjómar-’
innar en 250 særst.
Stjómin segir, að herlið
hennar til Toledo hafi valdið
miklum skemdum á vopnaverk-
smiðju, með fallbyssu-árás, og
einnig skemt járnbrautarstöð-
ina.
Druknar við bryggju. í gær
fjell Halldór Halldórsson frá
Trjestöðum út af bryggju á Odd-
eyri. Menn komu þar að í bát og
náðu Halldóri. en hann var þá
dáinn. Hjartað liafi hilað.
Goðafoss tók í gær 500 smál. af
saitfiski í Keflavík og flytur til
Englands. Fiskurinn er á vegum
S. í. F. Ennfremur 125 tn. af lýsi
frá Bræðslufjelagi Keflavíkur.
Bilbao er
Anthony Eden.
NorOmenn
ffi.tr-. •
hstta við að
senda herskip
til Soðnar.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
agerstrand, norska skipið,
sem uppreisnármenn
tóku, skamt fyrir utan Gibralt-
ar, var með saltfarm til Islands.
,,Arbejderbladet“ í Osló
skýrir frá því í dag, að norska
stjórnin sje algerlega hætt við
að senda herskipið Olav
Trygvason til Spánar.
I stað þess mun vera í ráði
að Norðurlönd fari þess öll
saman á leit við hlutleysisnefnd-
ina í London, að eftirlitsskip
.stórveldanna við strendur Spán-
^,ve^ði látin vernda skip hlut-
lausra þjóða.
Þetta var rætt á fundi utan-
ríkismálaráðherra Norðurlanda
í Helsingfors í dag.
Til að undirbúa fund
Hitlers og Mussolini
London í gær. FIT.
ffri
regn frá. Berlín hermir, að
llerman Göring og kona
hans ætli í heimsókn til ítalíu.
Þess er gétið, að Göring muni
ætla að hitta Mussolini, . og
ræða við hann um væntanlegan
fund þeirra Mussolini og Hitl-
ers.
Mussolini og Ciano greifi,
utanríkisráðherra hans, fóru í
dag til Feneyja, til þess að
taka á móti Sehussnigg Austur-
ríkiskanslara og Schmidt utan-
ríkisráðherra Austurríkis.
Af veiðum komu til Ilafnar-
fjarðar í gær Garðar.með 95 tunn-
ur og Rán með 85 tunnur.
mjögjkt.
Breska stjórnin sætir
vaxandi gagnrýni.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN I GÆR.
^tefna sú, sem breska
stjórnin hefir tek-
ið, að vara bresk skip
við því að sigla til Ril-
bao, sætir vaxandi gagn-
rýni.
Fjögur bresk skip
hafa í þessari viku kom-
ist heilu og höldnu frá
Bilbao og segja skip-
verjar að tundurdufla-
hættan sje mjög ýkt.
Nokkrir breskir skipaeigend-
ur eru sagðir hafa veitt skip-
um sínum leyfi til þess að sigla.
til Bilbao, þar sem að skipinu
„Seven seas Spray“ gekk
ferðin þangað svo greiðlega,
(segir í Lundúnafregn F.U.).
Lagðir á flótta.
London 21. apríl F.U.
Breski flotamálaráðherrann
ljet þess getið, að skipstjóran-
um á „Blanche“, einu af skip-
um breska flotans, hefði verið
þökkuð aðstoð hans við „Thorp-
hall“, er það var á leið til San-
tander. Eitt af beitiskipum upp-
reisnarmanna ætlaði að sigla
í veg fyrir „Thorphall“. Stefndi
þá „Blanche“ beint á skip upp-
reisnarmanna, en það sneri und-
an, og „Thorphall“ fór leiðar
sinnar.
Eden skýrði frá því á þingi í
dag, að uppreisnarmenn hefðu
lofast til að skila aftur farmi
af spönsku skipi, er þeir tóku
fyrir nokkrum vikum, en skip-
ið var á vegum bresks útgerð-
arfjelags.
Sumarkveðjur
sjómanna.
FB. 21. apríl.
Oskum öllum vinum og vanda-
mönnum gleðilegs sumars og
þökkum veturinn. Vetlíðan allra.
Kærar kveðjur.
Islendingar á b.v. Gatooma.
Oleðilegt sumar!
1’inir og vandamenn. Þökkum
veturinn.
Skipverjar á Olafi.
Óskum vinum og vanclamönnum
gleðilegs sumars. Þöklcum fvrir
veturinn.
Skipshöfnin á Brimi.
Óskum vinum og vandamönnum
gleðilegs sumars með þökk fyrir
veturinn. Vellíðan allra. Kærar
kveðjur.
Skipshöfnin á Arinbirni hersi.