Morgunblaðið - 25.04.1937, Blaðsíða 7
7
Sunnudagur 25. apríl 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Qagbók.
|X| „Helgafell“ 59374277 ' —
IV./V. — 2.
Veðrið (laugardagskvöld kl. 5) :
Suður í Atlantshafi er víðáttu-
mikil lægð, sem þokast til NA.
Vindur er livass SA við SV-strönd,
landsins með lítilsháttar riguingu
og 6—9 st. hita. Á N- og A-landi
«r hæg A—SA-átt, hiti 0—5 st. og
yeður þurt.
Veðurútlit í Itvík í dag: All-
hvass A. Dálítil rigning.
Messað í Laugarnesskóla í dag-
kl. 2, síra Garðar Svavarsson.
Delfinus, aukaskip Bergenska
fjelagsins, sem kom í stað Novu,
fer norður á þriðjudag. Skipið
tekur ekki farþega.
Kantötukórinn heldur fyrsta
samsöng sinn í Gamla Bíó á
þriðjudaginn. Ætlar Karlakór
Reykjavíkur að syngja nokkur
lög í byrjun til að lieilsa Kant-
ötukórnum. Er því vissara fyrir
fólk að koma stundvíslega svo að
það missi ekki af neinu.
Hjónaband. í gær voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Lflja
Hjaltadóttir (Jónssonar fram-
kvæmdastjóra) og Magnús Jóns-
son gjaldkeri hjá Kol & Salt,
Heimili brúðhjónanna verður á
Öldugötu 4.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun síná ungfrú Ing-
umi Iloffmanu, dóttir Hans Hoff-
manns bókhaldara, og Indriði
Nielsson.
Hjónaefni. Trúlofun sína opin-
beruðu á sumardaginn fyrsta ung-
frú Sigrún Þófðardóttir, Lauga-
veg 92, og Einar Jónsson, starfs-
maður hjá S. I. S., Bárugötu 13.
„Vín og' vit“. Um þetta efni
talar Grjetar FelJs kl. 4 í dag í
bæjarþingsalnum í Hafnarfirði.
Aðgangur ókeypis og allir vel-
komnir.
Dánarfregn. Í>. 9. þ. m. andaðist
í Garding (Þýskalandi) Laura
j Eberliardt, móðir og tengdamóðir
Guðlaúgar og K. Eberhardt,
Klapparstíg 44.
„Útvarpsstúlkurnar þrjár“ heit-
ir amerísk söngva- og danskvik-
niytid, sem Gamla Bíó hefir sýnt
undanfarin kvöld og sýnir aftur í
kvökl. Kvikmyndin er bráðfjörug
og- skemtileg. Aðallilutverkið leik-
ur kvennagullið George Raft. „Ut-
varpsstúlkurnar“ eru Kiknar af
.Alice Faye, Frances Langford og
Patsy Kelly.
Merki verða seld á götum bæj-
arins í dag til ágóða fyrir barna-
heimilissjóð íslensku kirkjunnar.
Er það venja að selja slík merki
á fermingardögum. Styrkið gott
málefni bæjarbúar með því að
kaupa merki dagsins.
Hjúskapur. í gær voru gefin
saman í hjónaband, af síra Frið-
Húsgogn til sðlu.
Af sjerstökum ástæðum eru til sölu nú þegar sjerlega
vönduð svefnherbergishúsgögn, ennfremur sófi með 2
stólum. — Upplýsingar gefur Garðar Hall. Sími 2346.
Einnig milli klukkan 2 og 3 í dag.
Nokkur hús,
stærri og smærri, hefi jeg til sölu á góðum stöðum í bæn-
um. — Tækifærisverð ef samið er strax.
Eignaskifti geta komið til greina.
HANNES EINARSSON,
Óðinsgötu 14 B. Sími 1873.
Sig. Þ. 5kjalöberg.
(Heildsalan).
GUNDRY’S
Góðþektn
síldarnel.
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. h.f.
Sími: 1370.
Fyrirliggiðiii€ii:
HAFRAMJÖL
HRÍSGRJÓN
KARTÖFLUMJÖL
Eggert Knstpnssan 5 Co.
Sími 1400.
rik Hallgi'ímssyni, ungfrú Sigríð-
nr Guðmundsdóttir og Karl A.
Petersen bílstjóri. Heimili ungu
hjónanna er á Laugaveg 65.
Útvarpið:
Surinudagur 25. apríí.
9.45 Morguntónleikar: Tóuverk
eftir d’Albert, Schilling og
Reznicek.
11.00 Messa í Dómkirkjunni(sjera
Bjarni Jónsson). Ecrming.
15.15 Miðdegistónleikar:
a) Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur; h) Yms lög (plötur).
16.30 Esperantókensla.
17.00 Ræða, flutt á umdæmis-
stúkuþingi í Reykjavík (sjera
Björn Magnússon).
17.40 ÚtVarp til útlanda(24.52m).
18.30 Barnatími: a) Alfreð And-
rjesson leikari segir sögur og
skrítlui’; b) Telpnakór syngur.
19.20 Erindi: Píanó-tónlistin, III
(Bmil Thoroddsen).
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi: Um tónlistarmál
(Björgvin Guðmundsson tón-
skálcl).
20.55 M.-A.-kvartettinn syngur.
21.25, Upplestur : Ný kvæði (Guð-
mundur Friðjónsson skáld).
21.40 Hljómplötui’: Tilbrigði við
barnalg, eftir Dohnanyi.
22.05 Danslög (til kl. 2 eftir mið-
nætti).
Mánudagur 26. apríl.
12.00 Hádegisútvarp.
19.30 Erindi: Niðurstöður bú-
reikninga (Guðmundur Jónsson
búfræðikennari).
20.30 Erindi: Lög og landsstjórn,
I (Þórðnr Eyjólfsson hæs-ta-
rjettardómari).
20.55 Einsöngur (Einar Markan).
21.20 Um dagirin og veginn.
21.35 Utvarpshljómsveitin leikur
alþýðulög.
22.00 Hljómplötur: „Silungs-
kvintettinn“ eftir Schubert (til
kl. 22.30).
BILBAO.
FRAMH. AF ANNARRI SfÐU.
uppreisnarmanna og annað her-
skip til, sem gerðu tilraun til
að stöðva ensku flutningaskip-
in, sem í gær fóru frá St. Jean
de Luz til Bilbao.
Var skotið tveimur skotum
yfir framstefni ensku skipanna,
en þá kom breska herskipið
Hood á vettvang og gaf herskip
um uppreisnarmanna til kynna,
að það yrði skotið á þau, ef þau
ljetu ekki ensku kaupskipin í
friði.
Höfðu spænsku herskipin sig
þá á brott, en ensku skipin
hjeldu áfram til Bilbao.
Atburður sá, sem að framan
greinir frá, gerðist utan land-
helgi. (NRP—FB).
Þett aatvik, segir „The Tim-
es“, sannar að siglingin til Bil-
bao er hættuleg.
MRS. SIMPSON.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
spoiled“ flökkukonu frá Ame-
ríku“.
Hertoginn af Windsor hefir
nú krafist þess, að sala þessarar
bókar verði stöðvuð og beðið
verði afsökunar á ærumeiðandi
ummælum hennar, elía hótar
hann því, að fara með málshöfð
un á hendur forlaginu.
(Þess skal getið, að það
þykja ein bestu meðmæli með
enskum bókum ef Book Society
mælir með þeim).
Út¥egum;
Dragnötaspil mað toppmaskinu
Fyrirliggjandi:
Dragnælur
Dragnótalóg
og ALT annað til dragnótaveiða.
Verslun O. ELLINGSEM H.F.
*
i
I
I
t
I
Snurpinót til söln.
Nánari upplýsingar gefur Bjarni Benediksson
netagerðarmaður. — Símar 4607 og 1992.
t
±
❖
t
t
Cis>
Einasti norski bankinn
með skrifsíotur í
Bergen, Oslo
og Haugesund.
Slolnffe og varasjódlr
27.000.000 uorskar kronur.
BERGENS PRIVATBANK
.>1
Hjartkær konan mís,
Fjóla Th. Georgsdóttir,
andaðist á Vífilsstaðahæli í gærmorgun.
Reykjavík, 24. apríl 1937.
Björn Steindór«eoii.
Jarðarför dreHgsins okkar,
Óla Vilhjáhns,
fer fram frá heimili okkar, Loftsstöðum í Keflavík, þriðjudag-
inn 27. apríl kl. 1 e. h.
Ragna Stefánsdóttir. Kristónu Jónssoa.
Jeiis Jónsson
trjesmiður verður jarðaður mánudaginn 26. apríl frá Fríkirkj-
unni. Athöfnin hefst með bæn á heimili haus, Stýrimaunastíg
4, klukkan 1.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Áslaug Jeusdóttir.
Haraldur Jesssou. Björg Jóucsdóttór.
Inpilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför konu minnar,
Ölafín Sreinsdóttur.
Lártís Sigurbjörnsso*.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför
Sigurbjargar Þorsteinsdóttur
frá Vatnsnesi.
Aðstandendur.