Morgunblaðið - 01.05.1937, Side 5

Morgunblaðið - 01.05.1937, Side 5
Eiaugardagur 1. maí 1937. MORGUNBL A<Ð IÐ 5 . C'tgef.: H.f. Árvakur, lieykjavlk. ltitst.j«Vrar: J6n Kjartansson Valtýr Stefá,n«»on (6t;Tr>cT'HrinaTMir). A.uglýNÍng:irt Árni óla. ítitst.jóru, nuglýMingnr og afgrcifiNlt: AuaturatræU 8. — Sísni 16v0. ÁslT'vftnrgjald: kr. 3.00 á mánutli. t l^nsasölu: 15 aura eintakiTJ — 25 aura meB JLe«bók. 1. MAI. LOUIS PASTEUR Ifáum löndurn. álfunnar tóku kjör almennings skjótari breytingum til batnaðar en hjer • á Islandi á fyrstu áratugum þess arar aldar. Þetta vita allir og viðurkenna. Með vaxandi sjálf- stjórn óx atvinnuvegunum fisk- ur um hrygg. Öll alþýða manna lifði við stórum batnandi kjör. En það er ekki þarmeð sagt, að náðst hafi neitt lokatakmark í því efni. Langt í frá. Hver þjóð, sem hefir lífsþrótt, gerir þær kröfur til sjálfrar sín, að kjör hennar batni. Á þeim óskum byggist framfarahugur og fram- farir þjóðanna. Nokkur hluti alþýðu manna hefir síðustu 20 árin talið, að sósíalistar myndu vera þess anegnugir, framar öðrum, að "bæta hag aknennings í landinu. Markmið þessara manna hefir verið, að sósíalistar fengju yfir- ráðin yfir atviiinumálum þjóðar innar. Því marki var náð fyrir 3 árum síðan, er Alþýðuflokks- maðurinn Haraldur Guðmunds- son settist I atvinnumálaráð- iherrasætið. Síðan þetta var hafa verkalýðsfjelögin, sem og aðrir landsmenn, borið fram óskir sín ar til stjðrnarvaldanna um bætt kjör almennings í landinu. Sós- íalistar hafa ekki þurft að leita út fyrir flökkinn með kröfur sín ar. Þeir hafa getað beint þeim til ráðherra síns. Þar hafa verið hæg heimatökin. Það er altaf betra hjá sjálfum sjer að taka, en sinn br.óður að biðja, segir máltækið. * Aður en Haraldur Guðmunds- son settist í ráðherrastólinn, lof- aði hann því og flokkurinn hans, að gera í skyndi mjög stórfeldar umbætur á kjörum allrar alþýðu manna. Þá hafði um skeið venð nokkuð tilfinnanlegt atvinnu- leysi í kaupstöðum landsins. Ef Alþýðuflokkurinn fengi völdin, Æetlaði hann m. a. að afnema at- mnnuleysið, og koma „skipulagi“ .á alt athafnahf landsmanna. Til þess voru sósíalistar kosn- ír á þing, og Haraldur Guð- mumlsson gerður að atvinnumála ráðherra. * í dag kveðja sósíalistar fylg- ísmenn sína til kröfugöngu um kjarabætur. Áður en mejm leggja af stað ,er eðlilegt að þeir leggi þá spurningu fyrir sig: „Hvað er nú orðið Alþýðuflokksius starf í 3 ,ár? Hefir hann leitt okkur til góðs? Eru kjörin bætt síðan 1934?“ Atvinnuleysið, sem átti að af- nema, hefir aukist. Örbirgð, sem átti að hverfa, hef'ir vaxið. Fjár- hagur almennings, sem átti að batna, hefir versnað. Þetta er hinn sorglegi sann- leikur. Þetta vita verkamenn og sjómenn og allur landslýður. Svo mjög hefir ástandið farið versn- andi, að sjálf ríkisstjórnin þorði ekki að draga kosningar fram til •vorsins 1938. * En þegar minst er á atvinnu og atvinnuleysi í sambandi við sósíalista, er ekki hægt að kom- ast hjá því, að minnast nokkr- um orðum á burgeisa Alþýðu- flokksins, þingmenn þeirra, hina hálaunuðu brodda, sem feimnis- laust hafa undanfarin ár raðað sjer á ríkissjóðsjötuna. í þeirra hóp hefir atvinnuleys ið verið skipulega afnumið. At- vinna þeirra hefir stórum aukist, laun þeirra hækkað, laun, sem þeir hafa tekið og taka alveg á- hættulaust á þuru landi. Hefir nokkurntíma heyrst að nokkur íslenskur sósíalistabur- geis hafi lagt nokkuð af launum sínum í nokkui't það fyrirtæki, sem hafi miðað að því að auka at vinnuna í landinu að nokkru verulégu leytj? Gagnvart verkamönnum, sjó- mönnum og allri alþýðu þessa lands hafa loforðin frá vorinu 1934 reynst svik. Gagnvart burgeisum Alþýðu- flokksins liefir ekki staðið á efnd um um bætt kjör, hækkað kaup og umbætur á öllum sviðum. Er þetta jafnaðarmenska? * í dag köma sósíalistar saman á Austurvelli. Sennilega verða þar gerðar ýmsar kröfur um bætt kjör til handa alþýðu lands ins. Formaður Alþýðusambands- ins, forseti sameinaðs þings, Jón Baldvinsson, er ekki viðlátinn. Hann er nýfarinn úr bænum. Það kann að vera, að honum hefði ekki þótt sjerlega skemti- legt að líta yfir þessi 3 stjórn- arár flokksins, og bera fram fieiri kröfur en þegar eru born- ar fram til atvinnuinálaráðherra þeirra sósíalista. Atvimiumálaráðherrann Har- aldur Guðmundsson þurfti líka að skjótast burt úr bænum rjett fyrir þemian hátíðisdag. , Var hann að komast hjá því að sjá lcröfur flokksmanna sinna um bætt kjör alþýðumiar •— kröfur, sem hann liefir ekki reynst maður tii að uppfylla? Frosið kjðt af fullorðnu á 50 aura í frampörtum og 60 aura ,í lærum pr. x/2 kg. Jóhannes Jóhannsson, Grundarstíff 2. Sími 4131 Barátta hans við bakterfrurnar. 17 in mikilfenglegasta ^ kvikmynd, sem tek- in hefir verið, verður sýnd í Nýja Bíó í kvöld. Það er myndin um Löuis Pasteur, manninn, sem uppgötvaði að bakteríur væru hættulegar. Almenningi er Louis Pasteur kunnastur fyrir að hafa fundið upp pasteuriserings aðferð- ina. Paul Muni, leikarinn, sem fer með hlutverk Pasteurs, gerir það af svo frábærri list, að hann hefir hlotið fyrir gullme- dalíu frá Motion Pictures Arts and Sciencers, sem viðurkenn- ingu fyrir besta leik ársinsl936. * Louis Pasteur var uppi á 19. öldinni. Hann er fæddur 1822 og dó 1895. Um tvo aldar- fjórðunga háði Pasteur lát- lausa baráttu gegn sjúkdómum, — sjúkdómum í dýrum og mönnum — og opnaði í þessari baráttu "læknavísindunum, heilsufræðinni, efnafræðinni og fleiri vísindagreinum nýja heima. Hann bjargaði með gerla- rannsóknum sínum vínuppskeru bændanna í Ph-akklandi, hjálp- aði þeim til að fá heilbrigða silkiorma, hann fann upp bólu- efni gegn miltisbruna og vann svo stærsta afrek sitt, er hann sýndi læknavísindunum hvern- ig hægt væri að iækna hunda- æði. * Kvikmyndin sýnir aðallega baráttuna, sem Pasteur háði gegn miltisbrunanum og.hunda æðinu. Þegar Pasteur hafði fundið upp bóluefni gegn milt- isbruna, trúðu menn honum ekki og til þess að afsanna með öllu að bóluefni hans væri til nokkurs nýtilegt, skoraði ein- hver helsti maðurinn úr hópi hrossalækna á Pasteur að gera eftirfarandi tilraun: Keyptar voru 48 sauðkindur, tvær geitur og nokkrar kýr og \ar helmingur þeirra bólusettur með bóluefni Pasteurs. Síðan var banvænum miltisbrunagerl- um sprautað inn í allar skepn- urnar. Hrossalæknarnir vildu halda því fram, að þær myndu allar drepast. Og Pasteur gekk á hólminn — og sigraði. Kindurnar, sem bólusettar höfðu verið „átu og ljeku sjer rjett eins og þær hefðu aldrei á æfi sinni komið nálægt miltisbrunasýklum“. ,,En hinar veslings skepnurnar, sem ekki höfðu verið bólusettar lágu þarna í ömurlegri röð, tutt ugu og tvær af þeim tuttugu og fjórum, sem ekki hafði ver- ið fengist við — og allar voru þær steindauðar, en tvær voru enn á rjátli, titrandi og óstyrk- ar á beinunum og voru að berj- ast við þann hinn miskunar- lausa óvin, sem ætíð ber sigúr úr býtum og alt sem lifir verð- ur að lokum að lúta“-------. * Þegar Pasteur hafði fundið upp bóluefnið gegn hundaæði, en reynt það aðeins á dýrum en ekki mönnum, vildi svo til að móðir — frú Meister — kom til hans með drenginn sinn níu ára gamlan, Jósep, sem óður hundur hafði sært fjórtán dög- um áður. „Bjargið þjer barninu mínu, Pasteur“, sagði konan í bænar- róm. Lækningin var í því fólk- in að sprauta í sjúklinginn hundaæðissýklum, fyrst hálf- dauðum og máttlausum sýklum og síðan æ sterkari skamti, þar til líkami dýrsins eða mannsins yfirbugaði sjúkdóminn. En bólu efnið hafði aðeins verið reynt á dýrum. „Pasteur bað konuna að koma aftur klukkan fimm um kvöld- ið, en sjálfur fór hann þegar á fund Vulpians og Granchers, sem unnið höfðu í tilraunastofu hans og þeir gengu með honum um kvöldið til þess að athuga drenginn, og þegar Vulpian sá ljót og þrútin sárin hvatti hann Pasteur til þess að byrja bólu- setninguna þegar í stað: „Tak- ið þ.jer til starfa“, sagði Vul- pian. „Ef þjer hafist ekkert að, er lítili vai'i á því að drengur- inn deyr“. Drengurinn fór heim aftur til Alsace, og fekk aldrei síðan aðkenningu af þessum hræði- lega sjúkdómi. Þessa tvo sigra Pasteurs sýn- ir kvikmyndin. Innanum þá er fijettað hugð- næmt efni og dregin upp mynd af öllu lífi Pasteurs frá því, að starf hans hófst. * Myndin sýnir að lokum þeg- ar Louis Pasteur er heiðraður í háskólanum í Sorbonne, sjötug- ur að aldri. Þar flytur Pasteur ræðu, sem er lofsöngur til vonarinnar. Það eru stúdentarnir, drengirnir úr æðri skólanum, sem hann á- varpar: „-----Látið ekki spillast að neikvæðri og ófrjórri efagirni. Látið ekki hugfallast, af þeim döpru tímum, sem ganga yfir þjóðirnar. Lifið í friði og heið- ríkju bókasafna og tilrauna- stöðva. Spyrjið sjálfa yður þess fyrst af öllu: „Hvað hefi jeg látið koma í staðinn fyrir ment- un þá, sem jeg hefi hlotið?“ Og er ykkur vex þroski, kemur næsta spurningin: „Hvað hefi jeg gert fyrir þjóðina?“ Og svo kann að renna upp sú mikla sælustund, er þjer getið með rjettu sagt, að þjer hafið að ein- hverju leyti stutt að velferð og framförum mannkynsins“. * Pasteur studdi að velferð og framförum mannkynsins, jafn- mikið og flestir aðrir. Þeir sem ekki þekkja sögu hans geta kynst henni með því að sjá kvik myndina um Pasteur. Það er góð mynd, skemtileg mynd — heillandi mynd. (Tilvitnanir teknar úr „Bakt- eríuveiðar“ eftir Paul de Kruif) Kiöl af fullorðnu fje. Kindabjúgu Miðdegispylsur Hvítkál — Gulrófur BURFEU, Laugaveg 48. Sími 1505.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.