Morgunblaðið - 27.05.1937, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 27. maí 1937.
Franco skytur á franska
farþegaflugvjel.
Þrír konungar
Norðurlanúa.
í Khöfn. Prá hægri Hákon Noregskonungur, öústay Svíakonungur og Kristján Danakonungur. —
——4 þús. óttasiegin-------------------------------
Bilbao-börn i Englandi.
FRÁ FRJETTARITARA VORUMi
KAUPMANNAHÖFN I GÆE.
Þjáningum barnanna, sem flutt hafa verið frá Bilbao, er lýst
af frjettarit. danska blað sins Nationaltidende, sem heim
sótt hefir tjaldbúðir hálægt Sputhampton, þar sem 4 þúsund
börnum hefir verið komið fyrir til bráðabirgða.
J Börnin verða í tjaldbúðunum þar til búið er að koma
þeim fyrir á breskum heimilum.
„Mörg börnin bjuggu í kjöllurum í Bilbao, þar sem þau
vor ókult fyrir sprengjuárásum flugvjelanna, og höfðu ekki
sjeð dagsins Ijós vikum saman“.
„Sum þeirra höfðu sjeð ógnir sprengjuárásar og flúið úr
húsum, sem hrundu að baki þelm.
Mörg þeirra hafa ekki hugmynd nm hvar foreldrar
þeirra eru.
Ef bömin heyra í vjel —- fyrstu dagana eftir að þau
komu til Southampton kom það stundum fyrir að flugvjelar
fóru yfir tjaldbúðum þeirra — þá hrökkva þan í kút. — Þau
reyna þá að leita sjer hælis, af því að þau halda að loftárás
sje yfirvofandi.
Þegar bömin komu til Southampton voru þau snoðklipt
af heilbrigðisástæðum. Urðu þau þá dauðskelkuð, og stúlk-
urnar andmælttu því hástöfum, að hárið væri klipt af þeim.
„Hvenær sem ókunnlr menn koma í tjaldbúðirnar“, —
þannig lýkur frjettárítarinn lýsingu sinni — „reyna stúlkum-
ar feimnislega að leýtsa géistina því, að þær eru snoðkliptar".
Heimsókn Westergaards
hjá Hfálpræðishernuni.
Flugvjelin
nauðlendir
hjá Bilbao.
Flugmaöurinn særður.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
lugvjelar uppreisn-
armanna skutu í dag
á franska farþegaflug-
vjel, sem er í ferðum
milli Biarritz í Frakk-
landi og Bilbao.
Flugvjelin varð að
nauðlenda o g særðist
flugmaðurinn hættulega
en farþegana, sem voru
fjórir, sakaði ekki.
Franska flugfjelagið Air
Pyrenese stofnaði til dag-
Iegs jáætlunarflugs frá
Frakklandi til Bilbao í ap-
ríl *.l. er hafnbann Francos
við Norður-Spán var í al-
gleymingi.
Hefir þessum flugferðum með
farþega og póst verið haldið
áfram síðan.
ÁRÁSIN
Ein af flugvjelum flugfje-
lagsins var í dag komin nálægt
Bilbao er nokkrar Heinkel-flug-
vjelar uppreisnarmanna hófu
vjelbyssuskothríð á hana.
Flugmaðurinn nauðlenti ca.
15 km. frá Bilbao.
Var hann þá sjálfur særður
og flugvjelin mikið skemd.
FÖNGUM
GEFIÐ FRELSI
London í gær. FTJ
I dag var tilkynt í útvarp-
inu í Salamanca að Fran-
co hefði ákveðið að láta
lausa alla þá menn úr út-
lendingasveitum stjórnar-
arhersins, er hann hefir
tekið til fanga, og sem eru
hafðir í Salamanca.
Er búist við að þeir verði
fluttir til landamæranna á
næstunni.
I gærkvöldi var feldur
dauðadómur yfir þýskum
flugmanni í Bilbao, og er
það þriðji Þjóðverjinn sem
þar er dreginn fyrir rjett
og dæmdur tii lífláts.
Uppreisnarmenn tilkynna í
dag að þeir hafi náð á vald sitt
mikilsverðum stöðum á leiðinni
milli Durango og Bilbao.
Uppreisnarmenn hafa komið
upp gaddavírsgirðingum á
norðurhluta vígstöðvanna í
Baskahjeruðunum. Það er litið
á þetta sem merki þess, að
þarna ætli þeir að vera viðbún-
ir að berjast, en ætli sjer aftur
á móti að sækja á sunnar á víg-
línunni.
Egypfar teknir í
Þjóðabandalagið.
London í gær. FÚ.
gyptum var í dag
veitt upptaka í
Þjóðabandalagið. Allir
fulltrúarnir, 48, greiddu
atkvæði með upptöku
þeirra.
Þegar fundur þjóðabanda-
lagsþingsins hófst í morg-
un vakti fulltrúi Póllands
máls á því að Abyssiníu-
menn gætu ekki lengur tal
ist eiga sæti í Þjóðbanda-
laginu.
Kvaðst hann óska þess ,að
bókað yrði að þingið teldi spurs-
málið um það, hvort Abyssiníu-
menn ættu rjett á fulltrúa í
þjóðabandalagsþinginu, úr sög-
unni.
Vakti þetta undrun þar sem
Abyssiníukeisari hafði engan
fulltrúa sent á þingið.
Forseti Mexikó-ríkis sagðist
vilja lýsa yfir ákveðinni og al-
gerðri mótstöðu sinni gegn því,
að nokkurt spor yrði stigið í þá
átt að útiloka Abyssiníu frá
þátttöku í störfum þjóðabanda-
lagsins.
Hamar, blað Sjálfstæðisflokks-
ins í Hafnarfirði, er nú farið að
koma út aftur. í 1. tölublaði þessa
árgangs, sem út kom s.l. laugar-
dag, er þetta m. a.: Baráttumál-
in, forytsugrein eftir Bjarna Snæ-
björnsson lækni, frambjóðanda
Sjálfstæðisfl. í Hafnarfirði. Loft-
ur Bjarnason ritar um sósíalista
og sjávarútveginn, Rannveig Vig-
fúsdóttir ritar grein sem heitir
„Hræðsla jafnaðarmanna við fylk
ing Sjálfstæðiskvenna í Hafnar-
firði“. Þorl. Jónsson skrifar:
„Hafnfirðingar! Valið er vanda-
laust“. Sjálfstæðismenn ættu að
kaupa þetta blað og lesa, en sjer-
staklega á það erindi til allra
Hafnfirðinga.
Á sunnudaginn kl. 4 e. h. held-
ur kommandör Westergaard
(leiðtogi Hjálpræðishersins í Nor-
egi og á íslandi) fyrirlestnr sinn:
„Bænir, sem ekki' hlutu hæn-
heyrslu“, í dómkirkjunni. ..
Kommandörinn hefir haldið
þenna fyrirlestur í þrjátíu kirkj-
um í Noregi, þar á meðal í dóm-
kirkjunum í Hamar, Stavanger og
Þrándheimi, ennfremur í „Vor
Frelsers Kirke“ í Osló, og voru
þá til staðar 1900 manns.
Fyrirlesturinn svarar spurn-
ingu, sem oft hvílir þungt á mönn
unum: „Hversvegna svarar Guð
ekki bænum mínum?“
Kommandör Westergaard heim
sðtti fsland fy*ir 25 árum, og tal-
aði þá eínnig í dómkirkjunni. í
siimbíindi við þessa heimsókn mnn
kómmaiiáörinh, Sem er danskur,
ásfimt frú sinni stjórna hinu ís-
lenska ársþingi. Allar ræður
kommandörsins verða þýddar,
nema fyrirlesturinn í dómkirkj-
unni.
E-listinn er listi Siálfstæð-
isflokksins.
A 89 41
norðlægrar
breiddar.
Rússneskrar
flugvjelar saknað.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN 1 GÆR.
f þremur flugvjelum
sem lögðu af stað
frá . Rudolfseyju . með
vistir og verkfæri til
rússnesku leiðangurs-
mannanna við Norður-
heimskautið komust 2
leiðar sinnar í dag.
Frá þriðju flugvjelinni
hefir ekkert frjest.
Þegar flugvjelarnar tvær
lentu var ísjakinn, sem dr.
Schmidt og fjelagar hans
hafast við á, á 89 gráðu
41. mínútu norðlægrar
breiddar.
Jakinn þokast vestur á bóg-
inn með hálfrar mílu (enskrar)
hraða á klukkustund.
KVIKMYNDIN FRÁ
HEIMSKAUTINU
Loridon í gær. FÚ.
t gærkvöldi frjettist ekkert
frá ieiðangursmönnunum, en í
dag, var sagt í skeyti frá flug-
vélunum, að loftskeytastengur
leiðangursins hefðu fokið niður
í gær.
Það var sagt að leiðangurs-
mönnum liði öllum vel.
Nokkrar kvikmyndir hafa
þegar verið tekpar, og verða
sendar ,með flugvjelunum.
GÓÐAR HORFUR UM
VINNUFRIÐ.
London í gær. FÚ
Góðar horfur eru nú taldar
á því, að takast megi að koma
í veg fyrir allsherjar verkfall
kolanámumanna í Englandi. —
Verkfallið hefir verið boðað 28.
þ. m.
í dag náðist samkomulag á
fulltrúafundi í aðalatriðum um
samsteypu hinna tveggja fje-
lagsdeilda í Harewilth námun-
um.
Verkfalli ökumanna við al-
menningsbifreiðir í London lýk-
ur á föstudaginn.
Vinna hófst í fyrradag við bygg
ingu síldarbræðslnstöðvarinnar
nýju á Ilúsavík.
Sjálfstæðismenn, sem vita af
flokksmönnum er eiga kosningar-
rjett í öðrum kjördæmum en þeir
dvelja í nú eða koma til að dvelja
í fyrir kjördag, eru ámintir um
að láta kosningaskrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Varðarhúsinu
vita sem fyrst. Símar 2339 og 2907