Morgunblaðið - 27.05.1937, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 27. maí 1937.
Fjandskapur rauðliða
gegn hitaveitunni.
«gur bor og fáanlegur var í
Svíþjóð.
NÝI
BORINN
Þegar nýi borinn kom, var
strax hafist handa í að koma
honum fyrir að Reykjum, og
síðan farið að bora með honum.
Hann borar 8 þumlunga víðar
holur, eða helmingi víðara
þvermál en gamli borinn.
Þegar farið var að reyna bor-
inn komu í ljós gallar á honum.
Verksmiðjan hefir viðurkent
gallana, sem í ljós hafa komið,
og bar því við, að hjer hefði
verið um nýsmíði að ræða, sem
ekki hefði verið unt að prófa
nægilega. Sendi svo verksmiðj-
an ný stykki í borinn.
FYRSTA
HOLAN
Holurnar frá nýja bornum
eiga að geta gefið 5—6 sinnum
meira vatn en holur gamla
borsins. Þar ^em t. d. gamli
borinn gaf 15 lítra, ætti sá nýi
að geta gefið 75—90 lítra. —-
Þetta sýnir hve mikils virði það
var að fá stærri bor, og einnig
hitt hve mikið tjón stjórnar-
flokkarnir hafa bakað með
þrjósku sinni við að leyfa kaup
ú hentugum bor.
Nýi borinn er enn með fyrstu
borholuna, og er komið 100 m.
niður. Á 25 metra dýpi gaf
þessi hola 8 lítra af heitu vatni,
og er það hrein viðbót, því eng-
in rýrnun varð í gömlu holun-
um.
Aldrei var búist við veruleg-
um árangri úr þessari holu fyr
en komið væri 100—200 metra
niður. En þar sem nú er komið
niður í 100 metra, má hvað úr
þessu fara að búast við ár-
angri.
TAFSAMT
VERK
Almenningur gerir sjer vafa-
laust ekki ljóst hve tafsamt
verk það er, að bora eftir heitu
vatni.
Með gamla bornum var, þeg-
ar best gekk komist alt að 13
metra niður á dag. Með nýja
bornum hefir enn ekki tekist að
komast nema 5—6 metra niður
á dag, en þetta smáeykst með
hverjum degi.
Stundum koma við boranirn-
ar fyrir óhöpp, sem tafið geta
í marga daga.
NÆGILEGT
VATN
Stjórnarbölðin hafa undan-
farið verið að skýra lesendum
sínum frá því, að úr því sje
skorið til fulls, að ekki fáist frá
Reykjum nema helmingur þess
vatns sem þarf til að hita upp
Reykjavíkurbæ. Og það er ekki
laust við að gleðihreimur sje í
frásögn stjórnarblaðanna, er
þau eru að segja þessi tíðindi.
Þar kemur enn í ljós fjand-
skapurinn við hitaveituna.
En, sem betur fer, eru skrif
stjórnarblaðanna um þetta
ekki á neinum rökum bygð. Þau
eru aðeins órökstudd fullyrð-
ing út í bláinn.
Sannleikurinn er sá, að alt
bendir til þess að til sje á
Reykjum nægilega mikið af
heitu vatni til þess að hita upp
alla Reykjavík.
Sú reynsla, sem fengist hefir
með gamla bornum, bendir ó-
tvírætt til þessa. Og þegar búið
verður að bora tvær holur með
nýja bornum, fæst væntanlega
enn betur úr þessu skorið. Gæfu
þær holur hlutfallslega eins
góðan árangur og hinar,
ætti úr þeim að fást 70—80
lítrar, og þá er bersýnilegt, að
vatnið verður nóg.
FRAMKVÆMD-
IRNAR
En hvenær verður hafist
handa um framkvæmdir?,
spyrja menn.
Vonandi verður ekki langt
að bíða þess.
Ráðgert er að hafa tvær píp-
ur frá Reykjum til bæjarins.
Það er gert vegna öryggisins.
Búið er að mæla út hvar leiðsl-
an verður lögð, og allur undir-
búningur þar langt á veg kom-
in.
Þegar komið er nægilegt vatn
á Reykjum í aðra pípuna, sem
myndi nægja til að hita upp
hálfan bæinn, má byrja á fram-
kvæmdum. Yrði þá önnur pípan
fyrst lögð og henni komið í sam
band við bæinn, eins fljótt og
unt er. Á þann hátt getur hita-
veitan farið að gefa peninga í
aðra hönd, áður en fullnaðar-
virkjun er lokið.
Að sjálfsögðu yrði haldið á-
fram borun meðan á þessum
framkvæmdum stæði. Er ekki
ósennilegt að nóg vatn væri
fengið í síðari pípuna, þegar
búið væri að koma hinni fyrir
í samband, og þá mætti strax
hefjast handa með iagning
hennar. Væri þá virkjuninni
brátt lokið, og heitt, rennandi
vatn komið í hvert einasta hús
í bænum.
STÓRT MÁL
Áætlað hefir verið hvað
Reykjavíkurbær ver árlega
miklu fje til kolakaupa. Eftir
því sem næst verður komist,
nemur andvirði kolanna, sem
bæjarbúar kaupa árlega 1.2
milj. króna, miðað við 40 kr.
verði á toan.
Ekki hefir enn verið gerð
fullnaðar áætiun urn stofnkostn-
að hitaveitunnar frá Reykjum.
En samkvæmt lausiegri áætlun
er gert ráð fyrir ao hún muní
kosta nál. 5 milj. króna.
Af þessu má sjá hve stórkost-
legt fjárhagsmál hitaveitan er.
Þess utan eru svo heilbrigðis-
og hollustuhættir sem eru sam-
fara hitaveitunni, sem eru ó-
metanlegir.
STJÓRNAR-
BLÖÐIN
Gegn þessu stórkostlega fjár-
hags- og menningarmáli Reykja
víkurbæjar, hafa stjórnarflokk-
arnir fjandskapast frá því
fyrsta að málið komst á dag-
skrá. Og nú síðustu dagana
hafa stjórnarblöðin hafið nýja
herferð gegn málinu.
Efsti maðurinn á lista Fram-
sóknarflokksins hefir nú tekið
forystuna f. h. flokks síns í
rógsherferðinni gegn hitaveit-
unni. Skyldi veslings maðurinn
halda, að hann fái atkvæði hjá
Reykvíkingum fyrir sín heimsku
legu skrif um þetta mál? I
Alþýðublaðinu er það sjálf rit-
stjórnin sem stýrir herferðinni.
Bæði stjórnarblöðin virðast
s&mmála um að hætta alveg við
hitaveituna frá Reykjum. Hitt
er svo ekki fyllilega Ijóst, hvað
blöðin vilja að gert verði.
Stundum minnast blöðin á
Hengiiinn, og vitna þá til til-
lögu þeirrar er fram kom um
árið frá Gísla Halldórssyni. En
um þá tillögu er í skemstu máli
það að segja, að verkfræðingar
munu sammála um að hún sje
tóm endileysa, eins og frá henni
var gengið frá G. H.
Stundum minnast stjórnar-
blöðin á Krýsuvík, og vilja fara
að rannsaka hverina þar, eða
einhversstaðar á landinu, bara
ekki á Reykjum!!
Stundum snýst heift stjórnar-
blaðanna til málsins í rógsskrif
um þann verkfræðing bæjar-
ins, Helga Sigurðsson, sem
stjórnar rannsóknunum á
Reykjum; telja hann óreyndan
ungling, sem nýkominn sje frá
prófborðinu!
Þessi verkfræðingur hefir þó
verið í 8 ár í þjónustu bæjar-
ins, og getið sjer hið besta orð
í sínu starfi. Og það mun sýna
sig þegar farið verður að virkja
á Reykjum, að stórfje mun
sparast á hitaveitunni, auk full
komnara öryggis, einmitt fyrir
aðgerðir og rannsóknir verk-
fræðings hitaveitupnar.
En fjandskapur stjórnarblað-
anna til hitaveitunnar er svo rót
gróinn, að þau láta sjer ekki
nægja það eitt, að hefja rógs-
herferð gegn sjálfu málinu,
heldur þurfa þau einnig að
rægja þá menn persónulega,
sem mest og best hafa unnið
að þessu mikla velferðarmáli
Reykjavíkurbæjar.
Kaupmenn!
I
er nii komið.
Þetr, sem pantað ftiafa,
hringfl flfll olikar.
H. Benediktsson & Co.
Hessian, porflúgalskfl,
Bflndflgarn
Sanmgarn
fyrirliggfandi.
Ólafur Gíslason & Co. h.f.
Síml 1370.
ilöfu
I I
mikiö úrval
af pergament- og silki-skermum, Georgette, Silki o.
fl. til Skermagerðar. Skermar saumaðir eftir pöntun.
Skermabúðin.
Laugaveg 15.
Fyrirliggjandi:
Hænsnafóður blandað.
Mais heill.
Mais kurlaður.
Sig. Þ. Sltfaldberg.
(Heildsalan).
Steindórs bifreiðar
bestar.
Síml 1580 - 4 línur.
bðnlr lll v>
STEINDÓRSPRENT HF
Slml TT71 Pðnfe&B 36S
'str
<6tl 4 -
Nýorpin egg.
Verðið lækkað.
Varsl, Visir.
Sími 3555.