Morgunblaðið - 14.07.1937, Page 2
MÓRGUN t’LAÐIÐ
Miðvikudagur 14. júlí 1937.
Alþj óðaráðstefna til að af-
stýra kínversk-japanskri
styrjöld?
Líkur j afn miklar
fyrir friði og
o • r o • :?*•
tyrir otnði.
Tokioskeyti til „The Times“.
Miklir bardagar við Peking.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Astandið í Norður-Kína var aðalumræðu-
efni stjórnmálamanna í höfuðborgum
Evrópu í dag. Anthony Eden kallaði
sendiherra Kínverja og Japana í London á fund
sinn í morgun og gaf þeim til kynna ,,að breska
stjórnin ljeti sjer mjög umhugað um hvernig fram
úr þessu deilumáli rættist“, (skv. Lundúnafregn
F. 0.)
Cordell Hull utanríkismálaráðherra Banda-
ríkjanna lýsti yfir því í dag, að sjer hefði borist
orðsending frá Mr. Anthony Eden um ástandið
í Norður-Kína. Er þess getið til að í orðsendingu
þessari hafi Bretar stungið upp á því að kölluð
yrði saman alþjóðaráðstefna til þess að ræða
Kínamálin.
Þegar spurning um þetta var lögð fyrir Cordell Hull
sagði hann að ráðstafanir sem Bandaríkjamenn kynnu
að gera, myndu þeir gera upp á eigin spýtur.
1 skeyti frá TOKIO til „The
Times“ segir að líkurnar fyr-
ir styrjöld og friði í Norður-
Kína sjeu jafn-miklar. Stjórn-
in í lapan hefir neitað að ræða
frekar um mótmælaskjal Nan-
kingstjórnarinnar og vill ekki
semja við aðra en fylkisstjór-
ana í Norður-Kína.
Japanska utanríkismálaráðu-
neytið hefir lýst yfir því, að
framkoma Nankingstjórnarinn-
ar væri þannig, að það væri
augljóst ,,að taka þyrfti fastar
á til þess að kenna Kínverjum
og kínversku stjórninni hvernig
ætti að koma fram við Jap-
ani“ (skv. FÚ).
Stærstu stjórnmálaflokkar Japana styðja stefnu þá, sem
Konoye stjórnin hefir tekið upp. Tokioblaðið ,,Asahishimbun“
segir „að hinar nýju ráðstafanir Japana í Kína sjeu ekki bygð-
ar á samningsbundnum rjetti þeirra, heldur gerðar í sjálfs-
varnarskyni gegn hinni and-japönsku stjórnmálastefnu Kín-
verja“.
Japanski herinn við öllu búinn.
Fulltrúi japanska hersins hefir látið svo um mælt, að herinn
væri viðbúinn öllu því, sem að hendi kann að bera.
Þrjú þúsund manna liðsauki er nú kominn til Tientsin
frá Manschukuo. Á járnbrautarstöðinni í Tientsin er nú
umhorfs eins og í japanskri hermannatjaldbúð.
Talið er að 10 þúsund manna her sje á leiðinni til Tientsin
til Manschúkuo. Einnig er sendingu sprengjuflugvjela frá Man-
schukuo, Koreu og Japan til vígstöðvanna í Norður-Kína hraðað.
Sumar fregnir herma að Japanir hafi þegar dregið saman
20 þúsund manna her við Peking.
FRAIffH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Afstaðan í Austur-Asíu.
Dregur sundur með
Bretum og Frökkum.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN f G-ÆR.
Það er búist við að Anthony Eden utanrík-
ismálaráðherra Breta, kalli saman
fund í hlutleysisnefndinni næstkom-
andi fimtudag eða föstudag.
í dag kallaði hann á fund sinn fulltrúa Frakka, ítala,
Þjóðverja og Rússa, og birti þeim tillögur þær, sem Bret-
ar ætla að leggja fram til þess að starf hlutleysisnefnd-
arinnar geti haldið áfram.
Tillögur þessar hafa ekki verið birtar ennþá.
En margír öttast að kapp-
ið, sem Eden leggur á það,
að eitthvert samkomulag
náist, leiði til örðugleika í
sambúð Breta og Frakka.
Er óttast að Eden kunni að
mæla með ráðstöfunum, sem
Frökkum muni reynast ókleift
að fallast á.
Vinstri blöðin í Englandi vara
Eden við tilraunum af hendi
Þjóðverja til þess að einangra
Frakka.
LANDAMÆRA-
GÆSLAN
Landamæragæslan í Pyre-
næaf jöllum var lögð niður
í dag. Eftirlitsmenn hlut-
leysisnefndarinnar, þ. á. m.
Lunn ofursti, eru komnir
til Bayonne og biða þar
átekta.
ítölsk blöð ráðast í dag ákaft
á Frakka og kalla afnám landa
mæraeftirlitsins á spönsk-
frönsku landamærunum stjórn-
málalega bófa aðferð af hendi
Frakka.
Signor Gayda segir í blaði
sínu „Giornale d’Italia“,
að hann hafi persónulega
fengið upplýsingar um það
að landamæraeftirlitið á
spánsk-portúgölsku landa-
mærunum muni bráðlega
verða tekið upp aftur.
STYRJÖLD VAR
YFIRVOFANDI
London í gær. FÚ.
Á þingi franskra jafnaðar-
manna í Marseille sagðist Le-
on Blum í ræðu í dag, taka á
þegar sá tími kæmi að birta
mætti skjöl, sem nú væru og
yrðu að vera leynd myndi þjóð-
in og þá ekki síður verkamenn
sjá hve hurð hefði skollið nærri
hælum um það að Frakkland
hefði borist inn í styrjöld þvert
ofan í vilja almennings í Frakk
landi.
16þAs.hafafallið
af rauðliðum.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KIJÖFN í GÆR.
Loftorusta var háð í
dag yfir borginni
Brunette á Madridvíg-
stöðvunum og halda
uppreisnarmenn því
fram að þeir hafi skotið
niður 8 flugvjelar rauð-
liða.
Uppreisnarmenn segja að
rauðliðar hafi mist 16 þús.
manns í orustunum vest-
an við Madrid undanfarna
daga.
Fleiri Márar.
London í gær. FÚ.
Frá Gibraltar kemur fregn
um það að uppreisnarmenn
hafi nýlega flutt tvö þúsund
Mára yfir til Spánar og hafi
þeir verið sendir til vígstöðv-
anna við Madrid.
Hátíðisdagur
hjá Franco.
Uppreisnarmenn hjeldu mik-
inn hátíðisdag í dag. Aðal-
hátíðin er haldin í tilefni af
því að í dag er ár liðið frá því
að fascistaforingann Sotelo var
drepinn, en sá atburður varð
í orði kveðnu tilefni til þess að
orgarastyrjöldin var hafin.
Til viðbótar við þetta hafa
uppreisnarmenn á Spáni graf-
ið upp ýmsar sögur eða at-
burði sem þjóðinni eru minnis-
stæðír og tengja þá við þessi
hátíðahöld.
Belgiskan prinstitil
í brúðargjöf.
Elsa von Rosen.
Sextugsafmæli á í dag Ragn-
hildur Teitsdóttir, Holtsgötu 10.
Carl prins.
Þann 6. júlí voru gefin saman
Carl prins, bróðir Ástríðar Belga-
drotningar (sem ljest í bílslysi
fyrir nokkrum árum), og Blsa von
Rosen greifafrú. Carl prins misti
rjettinn til að bera sænskan prins-
titil er hann geltk að eiga konu
af lægri stigum, en hann fekk í
brúðargjöf frá mági sínum, Leo-
pold Belgakonungi, belgiskan
prinstitil. Bls.a von Rosen er 7 ár-
um eldri en Carl prins. Hún hefir
verið gift áður, von Rosen greifa.
3 milj, króna salt-
fisksúttlutningur
Dana til Itallu.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖPN í GÆR.
Iverslunarsamningi, sem
Danir hafa ný lokið við
að gera við ítali og gildir til
nýárs, er ákvæði sem heimila
Dönum að flytja saltfisk til I-
talíu fyrir þrjár miljónir
króna.
Með samningnum er Dönum
heimilað að selja fyrir 11 milj.
króna samtals til Ítalíu.
Landkjörstjórn kemur saman í
dag kl. 2 í Alþingishúsinú til að
úthluta uppbótarþingsætum flokk-
anna.