Morgunblaðið - 24.07.1937, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
í"'.
Laugardagur 24. júlí 1937.
Anihony Eden gef§t upp ¥ið
að §æ(ta Itall og Frakka.
Horfur
bjartari
i Kfna.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
Horfúr eru nú sagðar
bjartari í Austur-As-
íu og í skeyti frá Shanghai
til The Times segir, að Soong
hershöfðingi í Norður-Kina
hafi samið frið við Japani
í blóra við Nankingstjórn-
ina.
Hersveitir Kínverja og
Japana dragá: 9f‘g nú til
baka úr hjerúðum umhverf-
is Peking. -■
Það er þó enn erfitt að
átta »ig á því hvort deila
Kínverja og Japana sje
þar með leyst að sinni,
þar sem Nanking-st jórnin
•ápfir engar upplýsingar
getað fengið lim efni frið-
arsamningsins, sem Soong
gerði við Jaípana, þrátt fyr-
ir ítrekaðar fyrirspurnir.
EFNI SAMN-
INGSINS
Efni samningsiná er haldið
leyndu til þess að æsa ekki hugi
Kínverja.
Það er alment talið, að
Japanir hafi dregið úr kröfum
sínum til þess að komast hjá
ófriði. I samningnum mun þó
vera ákvæði um 1) sameigin-
lega baráttu gegn kommún-
isma (Nanking stjórnin hefir
lýst yfir því, að hún muni ekki
geta gengið að neinum samn-
ingum, sem hafi inni að halda
ákvæði um þetta 2) um upp
lausn fjelaga, sem hafi að
markmiði baráttu gegn Japön-
um í Norður-Kína.
Margir telja að Japanir muni
ætla að halda úti miklum her
í Norður-Kína, er eigi að hafa
það hlutverk að leggja Norður-
Kína undir japönsk yfirráð
smátt og smátt og án þess að
til þess dragi að Nanking-
stjórnin geri gagnráðstafanir.
ÓEIRÐIR
í SINGAPORE.
í Singapore hafa í dag
orðið óeirðir milli Kínverja
og Japana. í Singapore
eru 400 þús. Kínverjar, en
4 þúsundir Japana.
Stjórnin í Singapore hefir
lýst yfir því, að hún muni taka
mjög hart á öllum tilraunum
til að rjúfa friðinn í Singapore.
Ekkert samkomu-
lag í hlutleysis-
nefudinni.
Bretar og Frakkar
istanda saman.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Areiðanlegar fregnir frá London herma,
að Bretum hafi ekki tekist að finna
neina leið til þess að umræður um tillög-
ur beirra í hlutleysisnefndinni geti haldið áfram.
Italir halda fast við þá kröfu, að fyrst verði
rætt um veiting hernaðarrjettinda til ófriðarað-
jilja á Spáni, áður en brottflutningur erlendra
sjálfboðaliða verður tekinn fyrir.
Samkomulag virðist vera útilokað. Engin ákvörðun hefir
verið tekin um það enn þá, hvenær undirnefnd hlutleysisnefnd-
arinnar skuli koma saman.
Þeir sem nærstaddir eru bresku stjórninni, láta í
veðri vaka að svo geti farið að stjórnin falli frá tillögum
sínum og taki til nýrrar yfirvegunar þá hlutleysisstefnu,
sem hún hefir fylgt frá því fyrsta.
Sá skilningur er lagður í þetta, að stjórnin. muni einskis
ætla að láta ófreistað til þess að knýja ítali til þess að hverfa
ofan af þeirri stefnu, sem þeir hafa tekið upp.
En takist þetta ekki, er hlutleysisnefndin í London úr sög-
unni.
w.L'
< ■
í I
Anthony Eden.
Sendiherra Frakka í Lon- j
don, Mr. Corbin fór í dag
á fund Anthony Edens til
þess að ræða við hann hið
nýja viðhorf, sem skapast
hefir í Spánarmálunum.
Um svipað leyti. lagði sendi-
herra Frakka í Berlín, Fran-
cois-Poncet fram harðorð mót-
mæli við stjórnina, gegn árásum
þýskra blaða á Frakka og full-
yrðingum blaðanna um hlut-
leysisbrot af þeirra hálfu. Benti
ráðh. á að fullyrðingar þess-
ar væru birtar, þrátt fyrir yfir- J
lýsingar frönsku stjórnarinnar,
þar sem sýnt væri fram á að
þær væri rangar.
Signor Gayda ritar í blað
sitt grein í dag (skv. Lunduna-
fregn FÚ), þar sem hann á-
sakar Frakka um óheilindi í
starfi þeirra í hlutleysisnefnd-
inni. Hann segir að framkoma
þeirra þar eigi að breiða yfir
stórkostlegar bersendingar frá
Frakklandi og nýlendum þess
til Spánar.
Margir telja að árásir
þýskra og ítalskra blaða á
Frakka og einnig Rússa í
sambandi við Spánarmálin,
sje skipulögð tilraun til
t*ess að draga samkomulag
innan hlutleysisnefndar-
innar á langinn.
Er talið að um þetta hafi
þeir rætt Mr. Corbin og Ant-
hony Eden í dag.
Roosewelt.
Hæstarjettar-
löggjög Roose-
velts úr söganni.
Oldungadeild Bandaríkja-
þings samþykti í gaer ;
með 70 atkv. gegn 20, að end- \
ursenda frumvarp Roosevelts
forseta um endurskipulagningu
dómstólanna til dómsmála-
nefndar og fela henni að semjá
nýtt frumvarp innan 10 daga.
Flestir flokksmenn Roosvelts
greiddu atkv. á móti frumvarpi
hans.
I hinu nýja frumvarpi verður
ekkert minst á hæstarjett held-
ur aðeins hina lægri dómstóla.
(Skv. FÚ.).
Skotið á
breskt skip
með 2500
flóttamenn.
FRA FRJETTARJTARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
Ættingjar 2500 flótta-
manna, kvenna og
barna, sem flutt voru með
breska skipinu McGregor frá
Santander áleiðis til Frakk-
lands, horfðu á það með
skelfingu skömmu eftir að
skipið Ijet úr höfn í gær að
spánska, beitiskipið „Almir-
ante Cerveres“ nálgaðist og
hóf á það skothríð.
Var skotið yfir stefm skips-
ins.
Skipið hjelt þó áfram ferð
sinni, og þegar það var komið
út fyrir þriggja mílna land-
helgislínuna, var þar fyrir
breskt herskip sem fylgdi því
til Frakklands.
Spánska herskipið gerði þá
ekki frekari tilraun til að
hindra för þess.
STÓRSKOTALIÐS-
ÁRÁS
Á MADRID.
London í gær. FÚ.
Majdrid varð fyrir stór-
kostlegri stórkotaliðsárás
seint í gærkvöldi og aft-
ur í níörgún.
í gærkvöidi' Var fallbyssu-
kúlum skotið yfir miðbik* borg-
arinnar og urðu þær tíu mönn-
um að bana en tuttugu særð-
ust.
Vestan við Madrid halda
miklir bardaga áfram. Aðstaða
stjórnarsinna við Brunette, þar
Hagsmunir
Frakka við
Miðjarðarhaf
í hættu.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
Iskeyti frá París til
Ðaily Telegraph (í
London) segir í dag, að
Delbos utanríkismálaráðh.
Frakka og franski ný-
lendumálaráðherrann hafi
í gærkvöldi ræðst við um
áhrif ihlutunar ítala og
Þjóðverja í spönsku styrj-
öldina á hagsmuni Frakka
við Miðjarðarhafið.
Rannsóknir sem nýlega
h^fa verið gerðar, hafa
leitt í Ijós
1) að Þjóðverjar hafa
komið sjer upp árásar
bækistöðvum við Ceúta,
Melilla (í spönsku Mar-
okko) í Rio de Oro,
spánskri nýlendu á vest-
urströnd Afríku og á AI-
hucemavatni, handan viS
spönsku Marokko. Á flest-
um stöðum hafa Þjóðverj-
ar bygt herskipalægi, látið
reisa forðabúr (þ. á. m.
fyrir olíu) og flugstöðvar.
Er talið að nýlenduyfirráð-
um Frakka í N.-Afríku
sje hætta búin af þessum
viðbúnaði, Þjóðverja.
2) sjerstaklega er þó
hættuleg Frökkum yfirráð
ítala á Baleareynni Mall-
orca, sem er á mikilvægri
siglingaleið Frakka til ný-
lendnanna í Norður-Af-
ríku. Daily Express segir
að Mallorca sje nú orðlnn
að ítölsku vígi.
NÝR LANDVARNA-
SKATTUR í ÞÝSKA-
LANDI.
London í gær. FÚ.
Idag voru gefin út ný H>g
í Þýskalandi, er skylda
alla vopnfæra karlmenn, se»
ekki gegna herþjónustu, til
þess að greiða sjerstakan land-
varnaskatt frá 1. sept. næst-
komandi að telja. Skattinn
greiða allir sem hafa 50 RM.
tekjur eða meira. Eru þeir
skattskyldir til 45 ára aldurs.
HITLER VAR EKKI
VIÐ NOREG.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Oslo í gær.
Fregn frá Álasundi hermir,
að þýsk tundurspilladeild sje
komin til Álasund og dveljist
þar og í fjörðunum á Sunnmæri
í heimsóknar skyni dagana 23.
—27. júlí.
Fregn um að Hitler ríkisleið-
togi væri á einu skipinu reynd-
ist ekki hafa við neitt að styðj-
ast. (NRP—FÚ).