Morgunblaðið - 17.08.1937, Page 4
4
MORGUNBLAÐXÐ
Þriðjudagur 17. ágúst 1937.
Vegma faröarfarar verða
skrffstafnr vorar lokaðar
i dag frá kl. 12 á hádegi.
Heildverslun Ásgiirs Sigurðssonar
Skrifstofur Edinborgar.
Veiðarfærageri íslands.
Vegna jarðarfarai
Magnúsar Olafssonar
Ijósmyndara, verður
myndastofa mín lok-
iið i dag.
Ólafur Magnússon.
Vegna jarðarfarar
r
Magnúsar Olafssonar
Ijésmyndara,
verða Ifósmyndastofur
bæjarins lokaðar í dag
(þriðfndag) kl. 12-4.
Vegna jarðarfarar
Magnúsar Ólafssonar, Ifós-
myndara, verður skrifstof-
mii ríkisfjeliirðis og ríkis-
bókhalds lokað i dag.
Magnús Ólafsson, Ijósmyndari,
verður jarðsunginn í dag, þriðjudaginn 17. ágúst. Athöfnin
fer fram frá Dómkirkjunni og hefst kl. iy2 e. h.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Aðstandendur.
Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu við fráfall og
jarðarför
Gunnars sonar okkar.
Guðrún Magnúsdóttir. Sverrir Sverrisson.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför
Elínbjargar Jóhönnu Bjarnadóttur.
Einnig þökkum við hinum mörgu, er glöddu hana í hin-
um erfiðu veikindum hennar. Sjerstaklega þökkum við frú
Jónínu Guðmundsdóttur, Kirkjuveg 17, Hafnarfirði, fyrir alla
þá miklu alúð og hjúkrun, sem hún naut á heimili hennar.
Aðstandendur.
Tillögur samþyktar á Þing-
vallafundi um bindindismál.
Eftirfarandi tillögur voru
samþyktar á Þing-
vallafundi um bindindismál
yfir helgina:
Frá löggjafarnefnd.
I.
Fundurinn skorar á næsta
Alþingi, að samþykkja þegar
í stað fullkomin hjeraðabönn,
þ. e. að kaupstöðum og sveit-
um landsins verði fenginn
sjálfsákvörðunarrjettur um á-
fengissölu og áfengisveitingar,
og að gagngerðar breytingar
verði að öðru leyti gerðar á á-
fengislöggjöfinni um alt það, er
máli skiftir að dómi Stórstúku
íslands og bindindisfjelaga
landsins.
II.
Fundurinn samþykkir að
skipa 3ja manna nefnd, til þess
ásamt fulltrúum frá Stór-
stúku íslands, að koma fram
gagnvart Alþingi og ríkisstjórn,
út af ályktunum fundarins, um
væntanlegar breytingar á á-
fengislöggjöfinni.
Frá fræðslumálanefnd.
Fundurinn skorar á:
a) Fræðslumálastjórn og
kennarastj ett þjóðarinnar að
beita sjer fyrir skipulagðri
bindindisfræðslu í skólum lands
ins.
b) Fræðslumálastjórn ríkis-
ins að útvega kennurum lands-
ins góð fræðslutæki um áfengi
og tóbak og aðrar skaðanautn-
ir, t. d. kvikmyndavjelar og
kvikmyndir.
c) Fræðslumálastjórn ríkis-
ins að gefa út ársfjórðungsrit,
er fræði um áhrif áfengis og
tóbaks og nýjustu rannsóknir
um þau efni, svo og það, er
varðar kenslu um þau mál.
d) Útvarpsstjórn að láta
mánaðarlega halda fræðandi
fyrirlestra um áfengi og tóbak,
flytja bindindisfrjettir og styðja
bindindi á allan hátt.
e) Heilbrigðisstjórn og lækna
landsins að beita sjer fyrir að
flutt verði af hjeraðslæknum í
hverju læknishjeraði, að minsta
kosti einn fyrirlestur á ári, um
skaðsemi áfengis og tóbaks.
Frá fjármálanefnd.
I.
Þar sem vitað er, að bindind-
ismenn leggja árlega fram stór-
ar fjárfúlgur til bindindis- og
menningarstarfs í þágu alþjóð-
ar auk persónulegs starfs, og
þar sem áfengisneyslan í land-
inu hefir aukist stórkostlega,
þá telur fundurinn sjálfsagt
að Alþingi auki verulega fjár-
framlag til Stórstúku Islands
og annarar bindindisstarfsemi í
landinu frá því sem nú er.
II.
Með því að erlendur gjald-
eyrir er ekki fyrir hendi til
brýnustu nauðsynja, þá skorar
fundurinn á þing og stjórn, að
takmarka innflutning áfengis
og tóbaks, að miklum mun.
Frá menningar- og
siðgæðismálanefnd.
I.
Þingvallafundur um bindind-
ismál, 15. ágúst 1937, sam-
þykkir að skipa 3ja manna
nefnd til þess að undirbúa
stofnun landssambands bind-
indis- og menningarfjelaga,
með því verkefni m. a., að auka
menningarbrag í skemtana- og
samkvæmislífi þjóðarinnar.
II.
Þingvallafundi um bindind-
ismál, 15. ágúst 1937, er það
ljóst, að atvinnuleysi og iðju-
leysi unglinga er undirrót
margskonar spillingar, eitur-
nautna og afbrota. Þess vegna
skorar fundurinn á Alþingi, að
gera þegar á þessu ári rót-
tækar ráðstafanir til þess, að
allir unglingar í landinu eigi
kost á nægilegu og þroska-
vænlegu viðfangsefni.
III.
Þingvallafundur um bindind-
ismál, 15. ágúst 1937, skorar á
öll blöð landsins að beita á-
hrifum sínum gegn neyslu á-
fengis og tóbaks.
IV.
Þingvallafundur um bindind-
ismál, 15. ágúst 1937, leggur
áherslu á, að allir þeir, sem
ekki hafa áfengi um hönd, eigi
skilyrðislausan rjett á því, að
lögregluvaldið verndi þá gegn
hverskonar ónæði af hálfu ölv-
aðra manna, og krefst þess, að
lögum þar að lútandi sje
stranglega framfylgt.
V.
Þingvallafundur um bindind-
ismál, 15. ágúst 1937, álítur að
margir af gisti- og veitinga-
stöðum landsins sjeu þannig
reknir, að ekki sje samboðið
menningarþjóð, og beinir því
eindregið til hlutaðeigandi yf-
irvalda, að bæta úr þessu með
strangri löggæslu. Ennfremur
skorar fundurinn á almenning,
að beita áhrifum sínum, sem
viðskiftamenn þessara stofnana,
til þess að útiloka þaðan á-
fengisnautn og hverskonar ó-
reglu.
Frá skipulagsnefnd. ,
I.
Fundurinn samþykkir, að
skipuð verði 15 manna nefnd,
er vinni að og undirbúi Þing-
vallafund, til að ræða um á-
fengismál og bindindisstarf-
semi.
Nefnd þessi beiti sjer fyrir
því, að sveitar- og bæjarfjelög
svo og önnur fjelög, er mál
þetta vilja styðja, sendi full-
trúa á fundinn.
Aðalverkefni þessa fundar
skal vera það, að stofna lands-
samband, er vinni gegn áfeng-
isböli.
II.
Fundurinn skorar á Alþingi,
að veita á næstu fjárlögum fje
til að setja á fót sjúkrahús
eða deild til að taka drykkju-
menn til meðferðar.
III.
Fundur bindindismanna og
annara áhugamanna um varn-
ir gegn áfengisnautn, haldinn
á Þingvöllum dagana 14.—15.
ágúst 1937, vill jafnframt því,
sem hann vekur athygli alþjóð-
ar á hver voði þjóðinni er búinn
af þeirri geigvænlegu nautn á-
fengra drykkja, sem við nú
horfumst í augu við og drykkju
skaparóreglu, sem siglir í kjöl-
far hennar, skora alvarlega og
eindregið á alla hugsandi menn
og konur að beita sjer með al-
huga og af alefli gegn áfengis-
bölinu með því m. a.:
1. Að styðja og efla kröft-
uglega og þróttmikla bindind-
isstarfsemi innan Góðtemplara-
reglunnar og gjöra hana áhrifa
ríka í því að móta hugsunar-
hátt einstaklinganna og alla
setningu og meðferð ljöggjafar
um áfengismál.
2. Að stuðla að því, að ung-
mennafjelögin og önnur æsku-
lýðsfjelög svo og íþróttafjelög-
in taki upp öfluga baráttu gegn
áfengisnautn og hverskonar
drykkjuskaparóreglu.
3. Og síðast en ekki síst, að
fá því til vegar komið, að í
skólum landsins sje kostað
kapps um að beita uppeldis-
legum áhrifum á nemendurna
til gagns og framdráttar bind-
indishugsjóninni. Og að við val
og skipun kennaranna sje höfð
hliðsjón af því að þessum til-
gangi verði náð.
Frá nokkrum fundar-
mönnum.
Um leið og fundurinn viður-
kennir og virðir hið háleita
og blessunarríka starf, sem
kirkjan vinnur með þjóð vorri,
þakkar hann þann stuðning,
sem hún hefir veitt bindindis-
málinu, og með því að Reglan
er bygð á kristilegum grund-
velli, telur fundurinn eðlilegt
og sjálfsagt að kirkjan, Regl-
an og önnur bindindisf jelög
sameinist um að beita sjer fyrir
hverskonar siðbótar og menn-
ingarmálum.
Nefndarskipanir.
Samkvæmt tillögu löggjafar-
nefndar voru eftirtaldir 3 menn
skipaðir í nefnd, til að koma fram
gagnvart Alþingi og ríkisstjórn,
ásamt fulltrúum frá Stórstúku ís-
lands, út af ályktunum fundar-
ins um væntanlegar breytingar á
áfengislöggjöfinni:
Björn Magnússon, dósent, Pjet-
nr Zophóníasson, ættfræðingnr,
Ingimar Jónsson, skólastjóri.
Samkvæmt tillögu skipnlags-
nefndar skipaði forseti fundarins
eftirtalda 15 menn til að taka
sæti í nefnd, til undirbúnings
næsta Þingvallafundar og stofn-
un landssambands, er vinni gegn
áfengisböli:
Þorleifur Guðmundsson, fyrv.
alþm., Pjetur Zophóníasson, ætt-
fræðingur, Imdvig C. Magnússon,
skrifstofustjóri, Benedikt Waage,
kaupm., Eiríkur Einarsson, alþm.,
Gunnar E. Benediktsson málafl.m.,
PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐTJ.