Morgunblaðið - 17.08.1937, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 17. ágúst 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Þingvallafundurinn.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Þegar frummælendm’ höfðu lok
ið flutningi erinda sinna, var skip
uS 15 manna nefnd í hvert mál,
®g fundi frestað til næsta dags.
Á sunnudagsmorgun fór fram
guðsþjónusta, mjög hátíðleg, í
Valhöll, og prjedikaði biskup Jón
Helgason, dr. theol.
AS lokinni guðsþjónustu hófst
fundurinn af nýju og fluttu þá
ávörp og kveðjiur margir fulltrú-
ar frá fjelögum og fjelagasam-
böndum, svo og nokkrir einstakl-
»gar.
>á flutti yfirlæknir Helgi Tóim-
asson, dr. med. fróðlegt og mjög
athyglisvert erindi, er hann
nefndi: læknisleg meðferð á
drykkjumönnum. Var þessu harla
vísindalega erindi tekið forkunn-
aa’ vel, og þökkuðu fundarmenn
með því að rísa úr sætum sínum.
Nú voru lagðar fram tillögur
frá hinum ýmsu nefndum, er skip
aðar höfðu verið á laugardags-
kvöld, og var einn framsögumað-
w frá hverri nefnd, nema tveir
irá skipulagsnefnd hindindismála.
Alyktanir fundarins eru allar birt
ar á öðrum stað í blaðinu.
Þessum merkilega og fyrsta
fundi um bindindismál á Þingvöll
wn sleit með því að sungið var
„Vor fundur er á enda“. Þá lýsti
forseti fundi slitið. Og loks var
sungið „Ó, guð vors lands“, og
Ijek lúðrasveit sú undir, ■ er leik-
ið hafði öðru hvoru um daginn.
Á sunnudagskvöld hófst skemt-
un í Valhöll og setti hana Hjört-
ur Hansson kaupm. Þessi voru
skemtiatriði: Einar Markan söng
nokkur lög. Valtýr Stefánsson,
ritstj., flutti ræðu fyrir minni Is-
lands. Valur Gíslason las upp og
Kjartan Sigurjónsson frá Vík í
Mýrdal, ungur maður, söng ein-
aöng.
Kvöldskemtunin var hin besta
®g létu áheyrendur óspart þakk-
læti sitt í ljósi.
Kappróðrarmót íslands verður
kaldið nú um næstu mánaðamót.
Kept verður um Kappróðrarhorn
íslands, sem Olíu.verslun íslands
gaf, en handhafi þess er nú
Glímufjelagið Ármann. Þátttak-
■endur gefi sig fram við stjórn Ár-
manns fyrir 25. þ. m.
Gjafir til Slysavarnafjelags ís-
lands. Frá sóknarnefnd Víkur-
kirkju 62 kr. Ónefndum, Reykja-
10 kr. Samskot frá nemend-
um við Ilvanneyrarskóla kr. 70,30.
Kvenfjelag Borgarhrepps 3 kr.
Kvenfjelag Dyrhólahr., Dyrlióla-
hreppi 10 kr. Ólafur Gunnarsson,
Skeiðflöt l kr. TJngmennafjelagið
„Drengur“ í Kjós 80 kr. Jakob-
ína Jakobsdóttir, Hólmavík 30 kr.
Kvenfjelag Akraness, Akranesi
.80 kr. — Kærar þakkir. J. E. B.
Daglega nýtt!
Fiskfars,
Kjötfars,
Miðdagspylsur og Bjúgu,
Ödýr Reyktur Lax,
Nýr Lax.
Allskonar Grænmeti.
KÍ'HFELL.
Laugavepj 48. Sími 1505.
□agbok.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Bjartviðri fyrst, en síðan S-átt og
rigning með kvöldinu.
Veðrið í gær (mánud. kl. 17):
Vindur er liægur hjer á landi og
all-breytilegur. Vestanlands er
norðlæg átt og bjartviðri. Skúrir
hafa verið austanfjalls og á SA-
landi og þykkviðri á N- og A-
landi. Hiti er 6—10 stig nyrðra,
en 10—12 stig sunnanlands. Við
S- og V-Grænland er ný lægð, sem
mun hreyfast til NA.
Hitinn í Nauthólsvík var í gær
13 stig.
Tankskipið Elsa frá Esbjerg
kom í gær til Siglufjarðar og lest
ar þar síldarlýsi lijá ríkisverk-
smiðjunum.
Haustmótið III. fl. hefst í
kvöld kl. 6.15. (ekki kl. 7); keppa
þá Pram og K. R. og síðar Valur
og Víkingur.
Farþegar með Dr. Alexandrine
á sunnudagskvöldið voru: Sr.
Friðrik Friðriksson og frú, Einar
Malmberg, Árni Helgason og frú,
frk. Helene Jóhannsdóttir, frk. E.
Björnsson, frú G. Oddsson, frú
Jónsson, frú Brun, J. Sigurjónsson
læknir og frú, frú G. Jónsson, frú
Soffía Bergmann, hr. Birger Möll:
er, frk. Bergman, Guðrún Sigúrð-
ard., Friðrik Bertélsen og frú, frk.
Margrjet Þórðardóttir, Peter Din-
es Petersen og fulltrúarnir á nor-
ræna fundinn í Reykjavík.
Eimskip. Gullfoss var væntan-
legur til Kambo í Noregi í gær.
Goðafoss fór frá Akureyri í gær-
kvöldi kl. 8. Brúarfoss er í Rvík.
Dettifoss er í Hamborg. Lagarfoss
kom til Leith í gær. Selfoss kom
til Rotterdam í gær.
Jarðarför Magniisar Ólafssonar
ljósmyndara fer fram í dag og
hefst í dómkirkjunni kl. 1%.
Hjúskaparfregn. Á sunnudag-
inn voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Inga Guðmundsdótt-
ir, Þorbjörnssonar múrarameist-
ara á Seyðisfirði, og Kristmann
Gúðmundsson rithöfundur.
Vitar og sjómerki. Kveikt hef-
ir verið á Óshólavitanum innan
við Bolungarvík við Isafjarðar-
djúp. Vitabyggingin er hvítur fer-
strendur turn 3,5 m. á hæð með
svörtu ljóskeri. Hæð logans yfir
sjó er 28,0 m. Ljósmál 15,6 sm.
Rautt ljós frá 85° til 138°. Að
öðru leyti er vitinn eins og segir
í auglýsingu fvrir sjómenn 1937
nr. 1.
Útvarpið:
Þriðjudagur 17. ágúst.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Sönglög.
19.20 Síldveiðiskýrsla Fiskifjelags
ins.
Hljómplötur: Sönglög.
20.00 Frjettir.
20.30 Íþróttatími.
20.45 Garðyrkjutími.
21.00 Illjómplötur: Tónverk eftir
Brahms og Max Brueh (til kl.
22).
G ARÐYRKJUSÝNINGIN
í KHÖFN.
Garðyrkjuinenn í öllum hinum
norrænu löndum halda í
Forum í Kaupmannahöfn sjöundu
norrænu garðyrkjusýninguna,
dagana 23. sept. til 3. október n. k.
Áður hafa sýningar þessar verið
haldnar í Noregi, Svíþjóð og Dan-
mörku, en þetta er í fyrsta skifti
að öll norrænu löndin sameinast
um eina sýningu, enda verður hún
miklu stærri heldur en hinar.
íslandi verður boðið að vera
með, og því var ekki hægt að
neita. Hefir Garðyrkjufjelag Is-
lands umsjá ineð þátttöku þess
í sýningunni og treystir því að
hún verði oss til sóma.
„Almindelig dansk Gartneri
Forening“ stendur fyrir sýning-
unni, en hvert land fær þar sitt
sjerstaka svið. Á íslensku sýning-
unni verður stórt málverk frá ís-
landi,og þar að auki sýndar helstu
jurtir og ávextir, sem hjer er rækt;
að í vermihúsum, svo sem rósir,
nellikur, palmar, tómatar, agúrkur,
vínþrúgur og margar tegundir mat
jurta.
tTndirbúningur að sýningunni
er nú í fullum gangi.
Garðyrkjufjelagið óskar þess,
að allir þeir, sem vilja taka þátt
í sýningunni gefi sig fram fyrir
25. þ. m. við formann nefndarinn-
ar Niels Tyhje, Reykjum, eða
Sigurð Sveinsson, Reykjum.
Sunnudaginn 29. þ. m. ætlar
Garðyrkjufjelagið að fara víðsveg-
ar hjer um nágrennið og safna
hraungróðri, fjallagrösum o. s. frv.
,ög þiður fjelagið alla garðyrkju-
menn, sem áhuga hafa fyrir þessu,
að tilkynna þátttöku sína í þeirri
ferð.
Frú Ragnheiður
Eggertsdóttir
frá Hvammi.
'X~
Þú beittir þjer óskift við mann-
úðarmál,
því mörg voru sár til að græða.
Og guði var helguð þín göfuga sál,
þó gengirðu á þyrnum og eld-
rauna bál,
langdvölum ljeti þjer blæða.
Ást þín og trúfesti einsdæmi var
í umhverfi ljettúðarinnar.
Og þegar að helörin hjarta þitt
skar,
þú hugðir til forsjónarinnar.
Þú treystir á Alföður miskunn
og mátt,
að markinu stefndir í sólroðans
átt,
til ársala eilífðarinnar.
Baldur Eyjólfsson.
Engin verðhækkun
hcflr enm orðið hjá okkur og
verður ekki fyrsl um slnn.
E. Einarsson & B)örnsson,
Bankastræti 11.
Fyrirliggjandi:
Hænsnafóður,
Hænsnamjöl.
Sig. Þ. Skjaldberg.
(Heildsalan).
Bókbindari. « Verksfjóri.
Útlærður danskur bókbindari óskar atvinnu við bókband.
Hefir haft eigin bókbandsstofu í Kaupmannahöfn. Fús að
ráðast um langan tíma. Tilboð, merkt „713“, sendist Berg-
enholz Reklamebureau, Köbenhavn V.
___ 11 -
Sími 1380. LITLA BILSTOÐIN
Opin allan sólarhringinn.
Til Akureycar
alla daga nema mánudaga.
alla miðvikudaga, föstudaga,
laugardaga og sunnudaga.
briðjudaga og fimtudaga.
Hraðferðir
2ja daga ferðir
Afgreiðsla i Reykjavík:
Bifrelðastöð íslands, simi 1540.
Bifreiðastðð Akureyrar.
Söngvar fyrir alþýðu IV. Sálraalðg
eftir sr. Halldór Jónsson,
er komin út. Verð kr. 3.50.
Fæst hjá bóksölum.
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar
og Bókabúð Austurbæjar B. S. E., Laugavegi 34.
Morgunblaðið með morgunkaffinu