Morgunblaðið - 22.08.1937, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.08.1937, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. ágúst 1937. Miljarðahagsmunir Breta í Shanghai í voða. Ræða Mussolinis: skilyrði fyrir friði i Miðjarðarhafi. FRÁ FRJETTARITARA VORVM. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. MUSSOLINI rjetti fram hendina til sátta við Breta (og allar þjóðir, sem hags- .muna hafa að gæta í Miðjarðarhafi) íí ræðu þeirri, sem hann flutti í Palermo á Sik- iley í gær, en 1 jet um leið fylgja nokkur höfuð- skilyrði, sem utanríkismálastefna Itala byggist á, en þau eru: 1) Að fá hið rómverska keisaraveldi (þ. e. yfirráðarjett ítala í Abyssiníu) viðurkent. (Mussolini sagði: Vjer ætl- umst ekki til að mennirnir í Genf skrásetji fæðingar, en vjer ætlumst til, að þeir skrásetji skírn). 2) Samvinna Þjóðverja og ítala heldur áfram (þ. e. Ber- lín—Róm öxullinn). 3) Italir munu aldrei leyfa, að bolsjevisminn fái fótfestu við Miðjarðarhafið. VARNAGLI SIGNORS GAYDA. Signor Gayda skrifar í dag í Giornale d’Italia um þennan þriðja lið, sennilega í tilefni af gagnrýni, sem þessi liður hefir sætt í Bretlandi, að hann bæri ekki að skilja á þá leið, að ítalir ætli að neyða fascisma upp á Miðjarðarhafsþjóðir, sem væru andvígar fascisma. „Daily Telepraph" hafði sagt í morgun, að Bretar myndu aldrei fallast á, að ítalir hefðu rjett til þess að skipa fyrir um stjórnmálasfefnu annara þjóða við Miðjarðarhafið. „Hin ítalska yfirlýsing um frjálsan aðgang fyrir alla að Miðjarðarhafi“, segir blaðið, „leyfir engar undantekningar, sem bygðar eru á lífsskoðana-ágreiningi“. UNDIRTEKTIR í EVRÓPU. í Englandi er annars talað varlega um ræðuna. Þjóðverjar leggja áherslu á yfirlýsingu Mussolinis um að samvinna Þjóðverja og ítala haldi áfram. Rússar ráðast ákaft á ræðuna, og benda á andstæðurnar milli orða Mussolinis og ástandsins í Miðjarðarhafi, þar sem ít- ölsk skip hafi undanfarið sökt fjölda skipa. 200 ÞÚS. MANNS HLÝDDU Á MUSSOLINI. London í gær. FÚ. Það er talið, að alt að því 200 þús. manns hafi hlýtt á ræðu Mussolinis á torginu í Palermo. Mussolini lýsti því yfir, að Ítalía væri reiðubúin til þess að standa að samvinnu um öll mál, er varða stjórnmálalíf Evrópu. I sambandi við ástandið á Spáni og styrjöldina komst hann svo að orði: „Vjer lýstum því yfir svo afdráttarlaust sem verða mátti, að vjer mundum aldrei þola neinn bolsjevisma við Mið- arðarhafið, nje neitt, sem er í ætt við hann. Þurfa því bolsje- vikkar á Spáni engrar miskunnar að vænta af vorri hendi“. Hann sagði, að sambúðin við Frakkland skvldi af hálfu Italíu verða miklu betri, ef að vissir flokkar í landinu gerðu sig ekki bera að því, að óska þess að fasisminn liði undir lok og hjeldi uppi fjandsamlegum áróðri gegn honum. Loks kvaðst hann vilja taka það fram, að möndullinn, Róm- Berlín, væri fullkominn veruleiki í stjórnmálum Evrópu, en annars væri Italía nægilega sterk til þess að geta boðið byrginn, ein og óstudd öllum f jandmönnum sínum. Aðalorusturnar háðar 1 breska hluta alþjððahveriisins. Kínverjar þrengja að Japönúm. fflí FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖFN I GÆR. MESTU orusturnar í Shanghai hafa síð- an í gær verið háðar í norðaustur hluta alþjóðahverfisins. Færast har- dagarnir nær miðhluta hverfisins...................... Bretar hafa lagt fram mótmæli bæði við kín- versku og japönsku stjórnina og lýst yfir því, að þeir muni gera þær ábyrgar fyrir alt það tjón, sem unnið verði breskum hagsmunum á þessum slóðum. Það er álitið, að tjón það, sem þegar hefir verið unnið eign- um breskra þegna, nemi 30—40 miljónum króna. Alls er talið, að fjármagn það, sem liggi í eignum Breta í norð-austurhluta alþjóðahverfisins, nemi tólf þús. milj. króna. Þarna stan4a nú vörugeymslur, verksmiðjur, verslunarskrif- stofur og klúbbhús í björtu báli. _____________í_____________ Kínverjar reyna enn að kljúfa Það var- ekki dr. Göbbels. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN I GÆR. Það var álitið, að dr. Göb- bels hefði stjórnað árásunum í blaðinu „Angriff“ á erlenda blaðamenn í Berlín. Nú skýrir „Berlingske Ti. dende“ (í Khöfn) frá því, að dr. Göbbels ætli innan skams að afsegja sjer allri ábyrgð á því, sem skrifað er í „Angriff“, og orsökin er sögð vera einmitt árásirnar á hina erlendu blaðamenn. Fulltrúarnir úr utanríkismála- ráðuneytum Norðurlanda, sem fóru til Norðurlands í vikunni sem leið, komu hingað með Lax- fossi í gærkvöldi. Sveinn Björns- son sendiherra fór með þeim norð ur og hann kom einnig í gær- kvöldi. í Sundhöllinni standa nú yfir sundnámskeið. Eru þau ekki að fullu skipuð og geta nokkrir nem endur enn komist að á hálft nám- skeið. Allir ættu að læra að synda, og þar sem nú er hægt að stunda sund inni alt árið, ættu allir, sem enn eru ekki byrjaðir að læra sund, að byrja sem fyrst. Franco 38 km. frá Santander. London í gær. FÚ. FLÓTTAMENN, sem nýkomnir eru til St. Jean de Luz, segja að miklar loftorustur hafi átt sjer stað í bardögunum um Santander og að borgin muni falla innan fárra daga. í hernaðartilkvnningu uppreisn armanna í dag segja þeir frá töku þorps eins, sem er 38 km. frá.San- tander. Tyrkneska ráðuneytið kom sam an á skyndiíund í dag til þess að ræða um árásir óþektra kafbáta á kaupför innan tyrkneskrar landlielgi. herdeildir Japana norðan Soo- chow-fljótsins. Sækja þeir fram í áttina til Whangpoo-fljótsins og hrekja Japani stöðugt uær fljót- inu. Berjast Japanir með „bakið upp að fljótinu“. Fregnir, sem áður liafa borist um að Kínverjar væru komnir að fljótinu, virðast því ekki hafa við rök að stvðjast. Fyrsta loftorustan. London í gær. FÚ. í dag var háð fyrsta loftorust- an yfir Shanghai. Aður höfðu kín verskar og japanskar flugyjelar skifst á að gera árásir á bæki- stöðvar hvors annars, án þess að reyna að verjast á annan hátt en með loftvarnabyssum. í dag voru kínverskar flugvjel- ar á leið til bækistöðva sinna og viltist einn kínverskur flugforingi frá fjelögum sínum og lenti einn í orustu við japanskar flugvjelar. Slrot kom í fíugvjel hans og tók hún að hrapa, en hann bjarg- aði sjer út úr flugvjelinni og lenti heilu og höldnu í fallhlíf. Japönum gefin sökin. Bandaríkjamenn þvkjast nú vera vissir um, að sprengikúlan, sem lenti á ameríska herskipinu Augusta í gær, hafi verið skotið úr jápánskri lóftvarnabyssu, og hefir herstjórn Bandaríkja- manna þarna eystra tilkynt jap- önsku stjórninni það. Herstjórn Japana svarar á þá leið, að hjer muni vera um að ræða brot úr sprengikúlum úr kínverskri fall- byssu og vill enga áhyrgð hera á atburðinum. - Fer MhssoIídí - að heimsækja Hitler? FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN I GÆR. Frjettin um, að Mussolini muni innan skams heimsækja Hitler, hefir stungið upp höfð inu aftur. Fyrst var sagt, að hann ætlaði til Þýskalands í vor síðastl. En að þessu sinni er frjett- inni hvorki neitað í Berlín nje Róm. Það er búist við, að Musso- lini verði gestur Hitlers á binu mikla nazistaflokksþingi Núrnberg í næsta mánuði, eða heimsækji hann strax að flokksþinginu loknu. Hjálpræðisheriim. Helgunarsam- koma kl. 11 f. h. Lögfræðingamótið: Tveggja íslendinga minst. Alögí'ræðingaþinginu í Hels- ingfors flutti finnski for- maðurinn, prófessor Grandfelt ræðu um íslensku lögfræðing- ana Lárus H. Bjarnason hæsta- rjettardómara og Eggert Briem hæstarjettardómara. Fór hann miklum viðurkenningarorðum um báða ’þessa íslensku fræði- menn. IJann sagði auk þess, að Lár- us hefði verið öruggur bardaga- maður fyrir rjettindum ættjarð- ar sinnar í sjálfstæðisbarátt- unni. Sú tillaga, að halda næsta mót norrænna lögfræðinga í Reykjavík hefir fengið mik- inn stuðning, og stendur ekki á öðru, en að íslenskir lög- fræðingar láti í Ijós ákveðn- ar óskir um að svo verði gert. Hefir þegar verið ráðgert, ef mótið yrði haldið í Reykjavík, að þátttakendur af Norðurlönd- um tækju sjer far með sjer- stöku gufuskipi til íslands og dveldu um borð í því á meðan á mótinu ntæði. (FÚ) STARFSMANNAFJELAG REYKJAYÍKUR FER FRAM Á LAUNA- HÆKKUN. Starfsmannaf ielag1 Reykja- víkur hefir skrifað bæj- arráði og farið fram á, að laun allra fastra starfs- manna bæjarins verði hækk- uð. Osk starfsmannafjelagsins er, að launin verði liækkuð um 10% og nái hækkunin 1 i 1 þessa árs. Til vara fer fjelagið fram á, að launin verði hækkuð um 15% frá 1. júlí síðasti. Laun allra fastra starfsmanna bæjarins ög bæjarstoínana nema samtals um 1 y2 miljón króna, svo að launahæltkun sii, sem starfs- mannafjelagið fer fram á myndi nema fyrir bæjarsjóð um 150 þús. krónum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.