Morgunblaðið - 18.09.1937, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.09.1937, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. sept. 1937. MORGUNBLAÐIÐ 3 Karlakör Reykja- vlkur f sðngferð til útlanda. Skipstjórinn á „Grana“ spyr um afstöQu AlbvOusambandsins. Á heimleið frá skáta- hátíð. Kolakraninn 09 kyndarar Gasstöðvarinnar vlnna. En verkamennirnir ganga atvinnulausir. UPPSKIPUN úr kolaskipi Gasstöðvar- innar hjelt áfram í gær með kola- krananum, en verkamennirnir fengu ekki að koma nálægt vinnunni. Engin breyting varð á verkfallinu hjá Kol & Salt í gær. Verkamenn fengu þar ekkert að vinna. En 80 tonn af kolum voru sett í flutninga- skipið Eddu, og var kolakraninn látinn vinna það verk. Kyndarar Gasstöðvarinnar, sem komið hafa af stað öllu þessu fargani, halda áfram vinnu og hirða sín föstu laun hjá bænum. Þeir eru í Starfsmannafjelagi Reykjavíkur og er furðu- legt, að það f jelag skuli ekki hafa tekið í taumana.' Einsöngvari Stefán Guðmundsson: Fararstjófi Gunnar GuLnarsson skáld. Karlakór Reykjavíkur fer í söngferð til útlanda 2. nóvember næstkomandi. Fer kórinn til Danmerkur, Þýska- lands, Tjekkóslóvakíu og Aust- urríkis og heldur söngskemt- anir í ýmsum borgum; einnig mun kórinn syngja í útvarp og syngja inn á grammófónplötur. Einsöngvari kórsins í þessari ferð verður Stefán Guðmunds- son óperusöngvari og farar- stjóri að öllum líkindum Gunn- ar Gunnarsson skáld. Morgunblaðið hefir haft tal af formanni Karlakórs Reykja- víkur, Sveini G. Björnssyni, og beðið hann að segja frá hinni fyrirhuguðu för kórsins. — Ákveðið er að fara hjeð- an til Kaupmannahafnar, síð- an til Berlín, Prag og Vínar- borgar. Þaðan til Leipzig, Ber- línar aftur og um Hamborg til Kaupmannahafnar. Er ráðgert að við verðum komnir þangað 23. nóvember. Þá er ráðgert, segir Sveinn ennfremur, að auk þess, sem við höldum söngskemtanir, munum við pyngja í útvarp, bæði í Kaupmannahöfn, Berlín og Hamborg. Einnig munum við syngja inn á grammófónplötur í Beriín. — Hvað verðið þið margir? — Við verðum 36, og er það fullskipaður kór, að vísu vorum við fleiri í förinni til Norðurlanda um árið, þá vor- um við 45. Að lokum spyr jeg Svein hvernig happdrættið hafi geng- ið, sem kórinn stofnaði til vegna þessarar fyrirhuguðu ut- anfarar. — Það verður dregið 15. n. m. í happdrættinu. Óhætt er að segja, að það hafi gengið sæmilega, en við erum ekki búnir að fá skýrslur utan af landi um sölu þar. Munum við nú leggja kapp á að selja happ drættismiða þértn'a tíma, sem eftir er, þar til dregið verður. Borgarstjórakosning i New York, London í gær. FtJ. í daga fara fram í New York fyrri kosningar til borgarstjóra. La Guardia borgarstjóri og annar frambjóðandi sem einn- ig hefir verið öflugur stuðnings maður Roosevelts, hafa feng- ið yfirgnæfandi meiri hluta at- kvæða. Frambjóðendur þeir, sem studdir eru af „Títmmany Hall“ fara aftur á móti hall- oka í kosningunum. Annars var dagurinn í gær viðburðalítill. Þegar byrjað var að setja kolin út í Eddu, komu á vettvang þeir Guðmundur Ó. Guðmundsson og Kristínus Arndal, ásamt nokkrum mönn- um úr ,,árásar“-liðinu, en höfð- ust ekkert að. Fyrirspurn til Alþýðusam- bandsins. Um kl. 10^2 árdegis í gær sendi skipstjórinn á „Grana“ Alþýðu- sambandi Islands svohljóðandi símskeyti: ..Alþýðnsamband íslands, Reykjavík. Jeg bið yður sem aðalsamband verkamanna hjer á íslandi og sjerstaklega hafnarverkamanna hjer í Reykjavík, að tilkynna mjer í síðasta lagi fyrir kl. seX: eftir hádegi í dag, hvort þjer hafið viðurkent verkfall það, sem nú stendur yfir við losun á skipi mínu „Grana“ hjer t höfninni. Ilafi jeg ekki innan hins tiltekna tíma móttekið tilkynningu ýðar, mun jeg álykta, að þjer hafið ekki viðurkent verkfallið. M. Abrahamsen, skipstjóri s.s. „Grana“. Skipstjórinn borgaði undir svar skeyti, en kl. 8 í gærkvöldi var svarið ókomið. Brjefaskifti. Laust fyrir hádegi í gær sendi Vinnu\ eitendafjelagið Verkamannafjelaginu eftirfar- andi brjef: Rvík 17. sept. 1937. V erkamannaf j elagið Dagsbrún, Reykjavík, Fjelagi vor, h.f. Kol & Salt, hefir kært yfir því, að þjer hafið gert verkfall í fyrradag hjá fjelaginu, við affermingu á kolafarmi úr e.s. Grana. Vjer teljum þetta verkfall skýrt brot á samningum vorum við yður, dags. 24. júlí þ. á., og krefj- umst þess, að þjer fellið þegar í stað niður verkfall þetta, en áskiljum oss fullan rjett til þess að krefjast greiðslu skaðabóta af hendi fjelags yðar fyrir tjón það, sem hlotist hefir og hjer eftir orsakast af verkfalli þessu meðan það stendur. Vjer æskjum svars yðar við- víkjandi brjefi þessu fyrir kl. 5 e. h. í dag. Eftir þann tíma munum vjer gera þær ráðstaf- anir hjer að lútandi, sem vjer teljum við burfa. Eftirrit af brjefi þessu fylg- ir og óskast oss afhent með á- ritaðri kvittun yðar fyrir mót- töku frumritsins. Virðingarfylst, Vinnuveitendafjelag íslands. K. Thors. G. Vilhjálmsson. Ben. Gröndal. H. Benediktsson. H. Bergs. Síðdegis í gær barst Vinnu- veitendafjelaginu svohljóðandi svar frá stjórn Dagsbrúnar: Vinnuveitendafjelag íslands, Reykj'avík. Brjef yðar, dags. í dag er móttekið. Útaf því viljum vjer taka fram eftirfarandi: Vjer mótmælum því eindreg- ið að vðinnustöðvun sú hjá h.f. Kol & Salt sem vjer höfum neyðst til að framkvæma, snerti að nokkru levti samning þann frá 24. júlí s.l. sem gerður er á milli vor og yðar. Verkfallið er því alls ekki brot á þessum samningí, og þjer getið ekki haft nokkra rjettmæta ástæðu til að halda slíku fram. Verkfallið hjá h.f. Kol & Salt heldur að sjálfsögðu áfram uns samkomulag hefir náðst í deilu þeirri er risið hefir við Vjer mótmælum því mjög ein dregið að h.f. Kol & Salt eigi PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Skátastúlkur á heimleið frá 25 ára afmæli ameríslíra ''kvenskáta. Fulltrúi íslenskra kvenskáta á af mælishátíðinni, ungfrú Dísella Steingríms, er næst yst til vinstri. r f f--.;'1"-' Islenskur kvenskáti á skátahátíð í Ameríku. Disella Steingrims segir frá 25 ára afmælishátíð ameriskra kvenskáta Amerískir kvenskátar heldu 25 ára afmæli sitt hátíðlegt í sumar og buðu þá til * dín einni skátastúlku úr hverju landi heims, þar sem kvenskátar starfa. Mættu skátastúlkur frá 26 löndum, og þar á meðal frá íslandi. Fulltrúi íslenskra kvenskáta var ungfrú Dísella Steihgríms, dóttir Steingríms Matthíassonar læknis. Er hún nýkomin heim úr Ameríku- ferðinni. Jeg hitti ungfrú Díselln að máli í gær og bað hana að segja lesendum Morgunblaðsins frá ferðalaginu og dvölinni vestra. Hiin sagði svo frá: — Tuttngu og fimm ára afmæli amerískra kvenskáta var haldið hátíðlegt dagana 9.—23. ágúst í Camp Andree, sem er um 50 kíló- metra frá New York, og á landar- eign, sem amerískir kvenskát.ar eiga í Massaehussettes. í Englandi, heldur ungfrú Dís- ella áfram, hittumst við 20 stúlk- ur og urðum við samferða vestur yfir Atlantshaf á risaskipinu Queen Mary. Amerísku skátastúlkurnar tóku á móti okkur með fádæma gest- risni og alúð og var vera okkar í Ameríku hin ánægjulegasta í alla staði. Alls vorum við 26 erlendar skátastúlkur og þar af ein frá Kína og önnur frá Japan. — Lenti þeim ekki saman? spyr jeg í einfeldni minni. — Nei, það var nú síðnr en svo. Þær voru hinar bestu vinkonur og urðu samferða yfir Kyrrahafið til Ameríku. — Á hátíðahöldunum mættu tvær skátastúlkur frá hverju fylki í Bandaríkjunum og urðum við þannig alls 86, sem tókum þátt í útilegunni í Camp Andree. Fyrsta hátíðisdaginn klæddust allar þ.jóðbúningi síns lands. — Og þjer líka? — Já, jeg var í upphlut. — Prú Roosevelt, Bandárikjaforseta, sem er heiðursfórseíi kvenskáta- sambands U. S. A„ hélt ræðu fýrir okkur þenna dag o’g talaði við okknr margar sjerstaklega. Aðal- forseti kvenskátasamhandsins er frú Hoover, kona fyrverandi for- seta. i ae nun ■ 'i FRAMH. Á SJÖUítóu SÍÐU. Tennismót Islands f dag. ■ 3 ,‘td s ■' ■ Tennismótin, sem fram áttu aS fara um síðustu helgi, verða haldin í dag og hefjast á f. R.- völlunum kl. 3Y2. Mótunum varð að fresta um síðustu helgi vegna veðurs. Enginn vafi er á því, að ef veður verður hagstætt uranu þeir, sem ánægju hafa af þessari fögru íþrótt, fjölmenna á tennismótin í dag og á morgun. En einnig þeir, sem ekki hafa iðkað tennis, ættu að koma snður eftir og sjá bestu teuuisleikara okkar spreyta sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.