Morgunblaðið - 18.09.1937, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.09.1937, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 18. sept. 1937. • ATHUGIÐ, að kol þau, sem vjer seljum á kr. 52.00 pr. ÍOOO kg. eru nákvÆmlega sömu tegundar •g þau kol, sem aðrir á kr. 54.00. mglýsa Tilraunir keppiuauta tii að beita atvinnurógi í þá átt að koma vðru sinni út á hærra verði, munu dæma sig sjálfar. Tekið á mátl pöntunum á meðan á verkfallinu stendur. H.F. KOL&SALT. Sínti 1120 I Friðrik Bertelsen Sími 2872 Vörur jafnan fyrirliggjandi. Útvega alskonar vjelar og efni til iðnaðar. FRÁ ÍTALÍU: íataefni Frakkaefni Kápuefni Kjólaefni, alskonar Ljereft Ullargarn Sokkar Regnhlífar Alskonar fóSurefni og tillegg o. fl. o. fl. FRÁ ÞÝSKALANDI: Skófatnað, karla, kven og barna Gúxnmístígvjel, bomsur og gúmmískó Verkfæri, alskonar Búsáhöld, alskonar Byggingarvörur, margsk. Allar vefnaðarvörur Pappírsvörur og ritföng o. fl. o. fl. Minning Guðnýjur Ottesen. HINIR MARG EFTIR- SPURÐU Frú Guðný Ottesen verður til moldar borin í dag. Hún andað- ist á ellibeimilinu Grund þ. 11. þ. m., eftir langvarandi ellilas- leik. Hún var fædd í Gjarðey á Breiðafirði 5. okt. 1863. Bjuggu þar foreldrar hennar, Jón Odds- son úr Langey, Ormssonar og kona hans Rósa Ottesen frá Ytra- hólmi á Akranesi, dóttir Pjeturs dbrm. Lárussonar Ottesens, er verið hafði kaupmaður í Reykja- vík, en bjó þá og síðar á Ytra- hólmi ásamt konu sinni Guðnýju Ottesen Jónsdóttur iir ölafsvík. Hjet frú Guðný eftir ömmu sinni fullu nafni og var tekin t-il fóst- urs að Ytrahólmi á 1. ári og ólst þar upp hjá afa sínum og ömmu. Prii Guðný var í báðar ættir af mikilsháttar fólki komin. Faðir hennar og þeir forfeður hennar Langeyingar voru fjölhæfir at- gervismenn og- merkisbændur. Móðir Jóns í Gjarðey var Þor- björg húsfreyja í Langey, dóttir Sigmundar í Akureyjum, Magn- ússonar sýslum. í Búðardal Ket- ilssonar. En Pjetur Ottesen, móð- urfaðir Guðnýjar var sonarson Odds notarii, við landsyfirrjett- inn og klausturhaldara á Þingeyr- um, Stefánssonar. Oddur var al- bróðir Sigurðar biskups á Hól- nm og hálfbróðir Ólafs stiftamt- manns. Kona Odds var Hólmfríð- ur Pjetursdóttir sýslum. í Krossa- vík Þorsteinssonar. Móðir Pjeturs Ottesens var Sigríður dóttir Þor- kels kaupmanns Bergmanns í Reykjavík, föðurbróður Bjarnar Ólsens klausturhaldara á Þing- eyrum. Voru allir þessir menn at- orkumiklir framkvæmdamenn og hafa þau einkenni þeirra orðið ættgeng. Frú Guðný fekk góða mentun í Reykjavík í æsku, sem kom henni í góðar þarfir á lífsleiðinni. Hún giftist Halldóri Guð- bjarnasyni á Akranesi. Var hann dugnaðar og stillingarmaður. Stundaði hann mest sjó. Þau bjuggu fyrst á Akranesi, en síð- ar í Reykjavík. Iíalldór drukn- aði við 2. mann af báti í Viðeyj- arsundi 1912. Sonur þeirra hjóna er hinn alkunni framkvæmda- maður Óskar Halldórsson útgerð- armaður. Frú Guðný lærði garðræktarstörf á unga-aldri undir handleiðslu Schierbecks landlæknis. Hafði liún mikinn hug á því starfi og vildi efla sem mest garðrækt í landinu. Hafði hún um langt skeið á hendi fræsölu margra nytjajurta á síðari árum, meðan heilsa hennar vanst til. Kom mörgum vel svi starfsemi hennar, er hún hafði ráðist í af eigin- hvötum og rak á sinn kostnað. Hún var heíðarkona, skörung- ur í framkvæmdum, skilvís, táp- mikil, gestrisin og glaðlynd. Hún var kjarkmikil og bjartsýn og taldi það sína bestu vöggugjöf til stuðnings í baráttu lífsins. A síðustu árum var heilsa henn ar tekin að bila. Leitaði hún þá hælis á Elliheimilinu Grund og dvaldist þar til hinstu stundar. B. Sv. Frú Guðný Ottesen FJAÐRASKÓR ERU NÚ KOMNIR Lárus G. Lúðvígsson SKÓVERSLUN Síra iakob 0. Lárus- soo er látinn. Síra Jakob Ó. Láruisson. fyrrum prestur að Holti undir Eyjafjöll- um, andaðist aðfaranótt síðastlið- ins föstudag, eftir langvarandi vanheilsu. Síra Jakob var greindur vel, eins og liann átti kyn til. Hann var drengur góður, enda vinsæll og vel látinn af öllum, sem hon- um kyntust. Fyrir nokkrum árum misti síra Jakob heilsuna og varð að láta af embætti. Var það mikið áfall fyrir Holts-heimilið, ,því að barna hópurinn var st.ór, en efnin lítil. Og þá reyndi á konuna. En hin ágæta og þrekmikla kona síra Jakobs, frú Sigríður Kjartans- dóttir, Ijet ekki bugast. Með framúrskarandi dugnaði og þraut seigju hefir henni tekist að koma barnahópnum áfram. Munið að WECK niðursuðuRlösin hafa reynst best. Lækkað verð. Allir varahlutir til í cZiwrpoo/^ Tennismótin Frá Shanghai er símað, að breski sendiherrann Hugessen sje orðinn hress og muni hann verða fluttur til Hong Kong 7. októ- ber. (FÚ) í dag byrja kl. 314 á tennisvöll- um f. R. og á morgun kl. 2. Aðgöngumiðar á götunum og við innganginn. NEFNDIN. Skafíaíellssýsla. Aætlunarferðir að Kirkju- bæjarklaustri frá Reykjavík á þriðjudögum kl. 8. Frá Kirkjubæjarldaustri alla föstudaga. — Afgreiðslu ann- ast Bifreiðastöð íslands, sími 1540. TrúlofuRarhringa kaupa allir hjá SIGURÞÓR, Hafnarstr. 4. Einnig Úr, Klukkur, Saumavjelar og Reiðhjól. Sent gegn póstkröfu hvert á land sem er. „Brnarfoss11 fer vestur og norður í kvöld kl. 8. Kemur EKKI á Hvammstansa í suðurleið. „StllfHB11 fer á mánudagskvöld um Vestmannaeyjar til Hull, Hamborgar og KAUPM.- HAFNAR off kemur BEINT ÞAÐAN heim aftur. EGGERT CLAE9SEN hæstarjettarmálaflutningsmaður. Skrifstofa; Oddfellowhúsið, *Vonarstræti 10. (Inngangur um austurdyr).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.