Morgunblaðið - 09.11.1937, Side 2

Morgunblaðið - 09.11.1937, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 9. nóv. 1937. Danskt blað ræðst á gjaldeyrismál jr Islendinga FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖFN f GÆR. EKSTRABLADET“ í Kaupmannahöfn gerir í dag gjald- eyrismál íslendinga aÖ umtalsefni og fer um þau hörðum orðum fyrir skipulagsleysi og óreiðu, sem á þeim sje. Blaðið segir, að merkur kaupsýslumaður danskur hafi nú í heilt ár átt töluvert háa peningaupphæð „innifrosna" í Reykjavík. Kaupsýslumaður þessi ritar blaðinu: „Ef viðskiftavinir mínir í Italíu eða í Þýskalandi skulda mjer fje, get jeg verið viss um að fá þá peninga eftir vissum reglum og jeg veit hvert jeg á að snúa mjer til þess að fá þá greidda, eða fá upplýsingar um hvenær jeg geti fengið þá greidda. En þegar jeg á fje inni hjá viðskiftavinum mínum hjá sambandsþjóð vorri, þá lítur málið öðru vísi við. Á fslandi eru engar reglur um það hvernig eða hvenær eigi að greiða „innifrosnar innistæður“. Peningarnir sitja fastir“. „Við verðum að greiða allar vörur, sem við kaupum af íslendingum“, heldur kaupmaðurinn áfram, en við getum ekki fengið peninga fyrir þær vörur, sem við seljum íslend- ingum“. „Ekstrabladet“ bætir því við frá eigin brjósti, að ekki sje nema sanngjarnt að kaupsýslumenn heimti að gjaldeyr- isöngþveitinu íslenska sje kipt í lag. „Það er ekkert óvenjulegt eða undarlegt“, segir „Ekstra- bladet“, þó innistæður „frjósi inni“ um tíma, en það getur ekki verið meiningin að innstæður manna á íslandi eigi að „botnfrjósa“! Kínverjar víir- gefa Pootung Shiang Kai Shek gerir lítið úr sigrum japana London í gær. FÚ. Kínverjar hafa látið undan síga í Poot- ung, en það er sá hluti Shanghaiborg- borgar, sem liggur sunnan Whangpoo fljóts. Japanir settu þar her á land á laugardag- jnn. Á sunnudagsnóttina flutti kínverksi herinn ,sig suður fyrir Pootung. Samningurinn |gegn koimnáiifstmi* Bretum stafar meiri hætta af honum en Rússum Rússar stórorðir um samninginn KAUPMANNAHÖFN I GÆR. FRÁ FRJETTARITARA VORTJM. Aðalgreinar stórblaðanna í álfunni um og eftir helgina, f jalla um samning þann sem Japanir, ítalir og Þjóðverjar hafa ®prt með sjer gegn kommúnismanum. Blöð- in í London og París eins og t. d. ,,The Times“ og f,,Echo de Paris“ halda því fram, að meira búi lundir þessum samningi, en opinberlega hafi komið í Ijós. Franski blaðamaðurinn Pertinax skrifar. Að- alefni samningsins gegn kommúnismanum er eft- irfarandi: „Þrjú stórveldi hafa ekki einungis gert með sjer samning um að berjast gegn kommúnisman- um innan sinna eigin landamæra, heldur áskilja þau sjer einnig rjett til að blanda sjer í málefni annara ríkja. „Þessi þrjú stórveldi munu styðja flokka í öðrum löndum“, segir Pertinax ennfr., „sem þykjast hafa það á stefnu sinni að útrýma kommúnismanum. Þessi samn- ingur felur í sjer rjettlætingu á allskonar árásum, sem gerðar kunna að verða á sjálfstæði annara þjóða undir því yfirskyni, að um sje að ræða baráttu gegn kommún- isma. Þegar þetta er athugað sjest, að Bretum getur stafað meiri, hætta af samningi þessum en t. d. Sovjet- Rússlandi“. 20 ára afmæli Sovjets. 200 þús. Iltrum af áfengi úthýtt í Moskva FRÁ FRJETTARITARA iVORUM. KHÖFN í GÆR. ESTU hátíðahöld, sem þekst hafa í Rússlandi fóru fram í gær í tilefni af 20 ára afmæli Sovjetríkjanna. Aðal háltíðahöldin fóru fram í Moskva. Á Rauðatorginu var haldin mikil hersýning og tóku þrjár miljónir manna þátt í henni. Þar á meðal var V2 miljón her- manna með 2000 brynvarðar bifreiðar. Hersýningin stóð yf- ir í 514 klukkustund. Sjöhundruð flugvjelar sveim- uðu yfir borginni og 15 miljónir rafmagnsperur lýstu upp borg- ina. 200 þúsund lítrum af áfengi var útbýtt ókeypis meðal verka manna í Moskva, í gærkvöldi. StðrskotaliO Itala á Spáni sent til Libyu FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KHÖFN í GÆR. undúnablaðið News Chro nicle skýrir frá því, að ítalir hafi nú kvatt burt frá Spáni alt stórskotalið sitt og flutt það til Libyu. Franco hefir nú ekki leng- ur not f.yrir stórskotaliðið eftir sigrana á Norður- Spáni. Italir senda aðeins stórskotalið sitt frá Spáni, segir blaðið, og eru þá 40 þúsund ítalskra her- manna eftir á Spáni.. Bardagar í Aragoniu. London í gær. FÚ. í frjettum frá Spáni í dag er sagt, að barist sje í norðurhluta Aragóníu. Stjórnin tilkynnir, að hersveitir hennar hafi hrundið árásum uppreisnarhersins. Ný Gyðingalög i Þýskalandi London í gær. FÚ. ýska stjórnin liefir gefið út nýja tilskipnn 'um breytingu á erfðalögum Þýskalands, þar sem svo er mælt fyrir, að þegar svo stendur á, að þýsk kona eða þýsk- ur maður af hreinum ariskum kyn stofni giftist manni eða konu af Gyðingaættum, skuli aðstandend- um heimilt að halda eftir arfa- hluta slíkrar persónu og er tal- ið að lögin jafngildi því, að gera megi hvern mann eða konu arf- lausa, sem giftist inn í Gyðinga- ætt. I Síðan orustur hófust við Shanghai 13. ágúst, hafa Jap- anir engar tilraunir gert, fyr en nú, til þess að setja her á land í Pootung. Hinsvegar hafa flugsveitir þeirra gert ít- rekaða leit að fallbyssustæðum Kínverja, þaðan sem skothríð hefir verið haldið uppi á her- skip Japana í Whangpoofljóti. Þar sem Kínverjar hafa nú yfirgefið Pootung, og gera má ráð fyrir að fallbyssuárásir á japönsku skipin sjeu úr sögunni þykja líkur til að útlend skip taki upp siglingar til Shanghai á ný. Japanir virðast nú á góð- um vegi með að umkringja Shanghai. Þeir segja, að her- sveitir þær, sem þeir settu á land við Hang-chow-flóa á föstudaginn, sjeu nú komnar 32 kílómetra noíður á bóginn í áttina til Shanghai. ÁLIT CHIANG KAI SHEK un, og sagði þeim m. a., að sigur sá, sem Japanir hefðu þegar unnið, væri aðeins til bráðabirgða og myndi ekki hafa nein áhrif á úrslit styrj- aldarinnar. Mótstöðuafl Kín- verja, sagaði hann, væri miklu meira en þol Japana, og þeim mun lengra, sem japanski her- inn kæmist inn í Kína, þess erfiðari yrði öll aðstaða hans. Kínverjar ætla sjer ekki að hefja neina samninga að svo stöddu við Japani. Kínverjar geta ekki treyst Japönum sagði Chiang Kai Shek ennfremur og munu því ekki gera neina samninga við þá eina. ELDSYOÐI I LONDON. London í gær. FÚ. Mikill eldsvoði varð í dag í London og voru slökkvivagnar sendir þangað frá 30 slökkviliðs- stöðvum. Tjónið af völdum elds- ins er metið á 50 þúsundir ster- „Stórkostlegt plagg friðarins“. London í gær. FÚ. ítölsk blöð kalla samning þann gegn kommúnisma, sem; Þýska- land, Japan og Italía hafa nú gert með sjer, stórkostlegt plagg friðarins. Blaðið „Popolo d’Italia“ segir sáttmálann vera viðkomandi öllum þjóðum, sem ekki vilji líða undir iok. „Corriere della Sera“ telur að með sáttmála Þýskalands, Japans og Italíu sje friðurinn í heiminum betur trygður en með þvaðri á ráðstefnum. Frönsk blöð taka misjafna afstöðu til sátt- mála þessa, en ensk blöð leggja að svo stöddn engan dóm á mál- ið. Hirota utanríkisráðherra Jap- ana varði til þess löngum tíma á fundi í einkaráði keisarans, að sannfæra meðlimi þess um, að Bretar myndn ekki svifta Jap- ani vináttu sinni, þótt Ítalía hefði nú sameinast Japönum og Þjóð- verjum, um baráttu gegn komm- únismanum. Stóryrði Rússa. „Pravda“ hvetur enn í gær til sameiningar gegn fasismanum. Abyssinía, Spánn og Kína segir í blaðinu, eru sýnishorn af þeim fórnum, sem fascisminn krefst, og vottur um þá hættu, sem öltum heiminum er búin af völdum hans. Loks eru liinar fascistisku þjóðir varaðar gegn því, að leita á Sovjet-Rússland. Rússar, segir í greininni, vilja frið, en eru við- búnir, ef það er ráðist. Gismondl hefir samið við Færeyinga Kalundborg í gær. FÚ talski fiskkaupmaðurinn Gis- mondi, hefir undanfarið verið í Færeyjum og staðið í samningum við bæjarstjórnina þar um heimild til þess að fá þar bækistöð fyrir fimm togara, er stundi veiðar við Grænland og ísland og annars staðar í Norðurhöfum, með þeim skil- yrðum að rúmlega helmingur skipshafnanna sjeu færeyiskir menn, en hitt ítalir, og er Fær- eyingum jafnframt boðin auk- inn fiskmarkaður á Ítalíu. Samningum er nú svo langt komið að málið verður látið ganga til stjórnarinnar, sem tekur fullnaðar ákvarðanir í því. VIÐ KEYPTUM SÍLD AF NORÐMÖNNUM FYRIR 1 MILJÓN. Oslo í gær. FÚ. Á síðastliðnu sumri seldu Norðmenn síld í bræðslu á ís- landi fyrir rúma eina miljón króna. Er það meira en nokkra sinni áður á einu sumri. Chiang Kai Shek kvaddi blaðamenn á fund sinn í morg- lingspunda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.