Morgunblaðið - 09.11.1937, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.11.1937, Blaðsíða 7
7 l>riðjudagur 9. nóv. 1937. MORGUNBLAÐIÐ »_____________________ Daglega nýtt kjötfars, Bjúgu og Wienerpylsur. Búrfell, Laugaveg 48. Sími 1505. BollapörSO aura Matardiskar dj. og gr. 0.50 Desertdiskar 0.35 Barnakönnur 0.50 Matarstell 6 manna 19.50 Skálasett 5 stykki 4.00 Ávaxtasett 6 manna 4.50 Matskeiðar ryðfríar 0.75 Matgaflar ryðfríir 0.75 Mjólkursett ‘Á-kristall 12.50 Mjólkurkönnur frá 0.75 Spil stór frá 0.65 ávalt fyrirliggjandi hjá okkur. K. EINARSSON & BJORNSSuN Bankastræti 11. Erlent háaðalsheimili selur af sjerstökum ástæðum úr safni sínu nokkur málverk eftir g'amla snill- inga og Gobelin, viðurkend af menningarsögufræðingum. Aðeins til einkasafna. Tilboð merkt „Streng vertraulich B. T. 302“ sendist Rudolf Mosse, Briinn, C. S. B. Að gefnu tilefni «r öllum undantekningarlaust bömmð grjót-, malar- og sand- taka í landi Innri-ÍN.jarðvíkur- bverfis. F. h. jarðeigenda Stefán Sigurfinnsson Finnbogi Guðmundsson Kjartan Sæmundsson. OOOOOOOOOOOOOOOOOO | Hrossabuff i 0 af ungu. <> ó 0 $ Kjötbúðin Týsgötu 1. $ $ Sími 4685. | ©ooooooooooooooooc EF L O F TIIR GETUR ÞAÐ EKKI — ÞÁ HVER? Merkur kaupsýslumaður Mr. Frank T. Green, fram- kvæmdastjóri firmans Jo- seph Rank, Ltd. í Hull ljet af starfi sínu um miðjan október og hafði þá starfað hjá firmanu í 48 ár samfleytt. Hann byrjaði sem skrifari hjá hveitimyllu Ranks í Boston. Voru þar þá fjórir bók- haldarar, enda var firmað þá enn í bernsku. Þá voru aðeins malaðir tveir pokar af hveiti á hverri klukkustund í myllunni í Boston. Nú mala sumar stærstu myllur firmans um 200 poka af hveiti á klukkustund, og skrifstofufólk þess skiftir þúsundum. Má af því einu marka hversu gríðarlega firmað hefir eflst á þessum árum. Mr. Green var aðeins 18 mán- uði í Boston. Þá var liann sendur til Hull. Og fyrir ágæta liæfileika sína hækkaði hann stöðugt í tign- inni þangað til hann var gerður að forstjóra Hull-deildarinnar, sem nú er orðin risastórt fyrirtæki. Auk framkvæmdastjórastarfsins hefir Mr. Green gefið sig nokkuð að öðrum störfum. Hann var um skeið forseti Hull Corn Trade Association, um 10 ára skeið í stjórn North-East Coast Millers Association. Hann er formaður Hull Corn Trade Guild og í stjórn Verslunar- og siglingaráðsins í Hull og í hafnarnefnd. Framvegis verður hann heiðursforseti hjálp- arsjóðs þess, er Mr. Rank stofnaði fyrir Hull, og hefir mikið gott látið af sjer leiða, eins og áður hefir verið skýrt frá í Morgun- blaðinu. íslendingar hafa skift mikið við firmað Joseph Rank Ltd. á und- anförnum árum, og þess vegna langaði Mr. Green til þess að kynnast íslandi og Islendingum. Kom hann hingað á skemtiferða- skipi, sem dvaldist þrjá daga í Rvík. Fór hann með bíl norður á Akureyri og náði skipinu þar. Var Mr. Green mjög ánægður með það ferðalag og hefir verið ís- landsvinur síðan. Prófessor Axel Möller, dr. jur. er nýlega látinn, 64 ára að aldri. Karlakór Reykjavíkur. Öll helstu blöð Kaupmannahafnar hafa nú birt fregnir um komu Karlakórs Revkjavíkur til borg- arinnar og frásögn um hina fyr- irhuguðu söngför hans. Eru um- mælin undantekningarlaust mjög vinsamleg og segja nokkur helstu blöðin að Karlakór Reykjavíkur sje með þeim bestu á Norðurlönd- um og hafi getið sjer ágætan orð- stír bæði utan lands og innan. (FÚ). Stúlka slasast hættulega í bílslysi Seint á laugardagskvöld s.l. vildi til bílslys á Baróns- stígnum. Nítján ára gömul stúlka, Guðrún Pjetursdóttir, Rauðarárstíg 5, varð fyrir stórum almenningsvagni, og meiddist tiættulega. Bílstjórinn á almenningsvagn- inum (R. 1080) segir svo frá, að hann hafi verið að koma frá Hafnarfirði. Er hann kom á Bar- ónsstíginn, sá hann tvo kven- menn á akbrautinni fyrir fram- an bílinn, og var hann þá kom- inn mjög nálægt þeim. Ætlaði hann að víkja bílnum til frá stúlkunum, en vegna þess að blautt var á götunni, rann bíllinn til að aftan og urðu báðar stúlk- urnar fyrir honum. Fjellu þær báðar í öngvit. Aðra stúlkuna sakaði ekki, en hin slas- aðist mikið, eins og fyr segir. Var hún flutt á Landsspítalann og liggur þar nú þungt haldin. Stúlkan slasaðist á höfði og fótbrotnaði. Skákkepnin 10. umferð Tíunda uniferð á haustmóti Taflfjelags Reykjavíkur var tefld á sunnudaginn. Úrslit urðu þessi: Meistaraflokkur: Sturla Pjet- ursson vann Áka Pjetursson, Ein- ar Þorvaldsson vann Jóharni Jó- hannsson, Eggert Gilfer vann Guðmund Ólafsson, Magnús G. Jónsáön og Eyþór Dalberg gerðu jafntefli. II. fl. A.: Sigurður Jafetsson vann Þorstein Gíslason, Gunnl. Pjetursson vann Valgeir Sigurðs- son, Sigurður Gissurarson vann Hermann Sigurðsson, Helgi Guð- mundsson og Hannes Arnórsson biðskák. II. fl. B.: Guðm. Ágústsson vann Bolla Thoroddsen, Friðrik Björnsson vann Ársæl Júlíusson, Guðjón Jónsson vann Ottó Guð- jónsson, Pjetur Guðmundsson og Björn Björnsson jafntefli. Biðskákir í II. fl. A.; Helgi Guðinundsson, Hannes Arnórsson. Eimskip. Gullfoss er á leið til Hamborgar. Goðafoss er væntan- legur til Vestmannaeyja á morg- un. Brúarfoss kom til ísafjarð- ar kl. 12 í gærkvöldi. Dettifoss var á Vopnafirði í gær. Lagar- foss er á leið til Leith frá Kaup- mannahöfn. Selfoss er í Hamborg. Næsta mót norrænna lögfræð- inga verður haldið í Reykjavík árið 1940. Þátttakendur frá Sví- þjóð, Danmörku, Noregi og Finn- landi munu safnast saman í Gautaborg, og þaðan verður hald- ið til íslands með sænsk-ameríska farþegaskipinu „Gripsholm". Er- lendir þátttakendur eru áætlaðir um eitt þúsund talsins. Er í ráði að sigla í kringum landið og ferð- ast um landið í bifreiðum. (Sendi- herrafrjett). Dagbók. □ Edda 59371197 — Fyrl. Atkv. I. O. O. F. Rb. st. 1 Bþ. 851198% O: Veðurútlit í Reykjavík í dag: Stinningskaldi á S eða SV. Dá- lítil rigning. Veðrið í gær (mánud. kl. 17): Háþrýstisvæði er nú fyrir sunn- an ísland og norður um NA- Grænland. Fylgir því hægviðri hjer á landi og víðast þurt veður. Við SV- og V-iströnd landsins er alt að 4—6 st. hiti, en annars er hiti kringum 0° um alt land. Við S- og V-Grænland er víðáttu- mikil lægð, sem þokast til NA og mun bi’átt hafa í för með sjer S-læga átt lijer á landi. Næturlæknir er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækjargötu 6 B. Sími 2614. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Lyfjabúðinni Iðunn. Sjómannakveðja. Erum á leið til Þýskalands. Vellíðan. Kærar kveðjur. Skipverjar á Gulltoppi. Silfurbrúðkaup eiga í dag frú Ástbjörg Jónsdóttir og Guðbjart- ur Ólafsson hafnsögumaður, Framnesveg 13. Dráttarvextir frá 31. ágúst falla á morgun á allan ógreidd- an tekju- og eignaskatt. Seinustu forvöð í dag að greiða skattinn til þess að losna við dráttarvext- ina. Hjónaband. í dag verða gefin saman í hjónaband ungfrú Klara Iíjartardóttir, Hafnarfirði og Kristján Jónsson, Laugaveg 46 A. Heimili þeirra verður á Selja- vegi 13. Dr. Alexandrine kom í fyrri- nótt frá útlöndum. Hjónaefni. Á laugardaginn op- inberuðu trúlofun sína frk. Þór- dís Jónsdóttir, Ásvallagötra 25 og Sverrir Guðmundsson, Njálsgötu 102. Ríkisskip. Súðin er í Osló. Esja var væntanleg til Seyðisfjarðar kl. 8 í gærkvöldi. U. M. F. Velvakandi heldur fund í Kaupþingssalnum kl. 9 í kvöld. „Skinfaxi“, blað ung- mennafjelaganna, er komið út og verður útbýtt á fundinum. ( Nýtt námskeið í björgunarsímdi hefst á morgun í Sundhöllinni og verður ekki krafist keú>lugjalds af sjómönnum. Þátttakendur eru beðnir að gefa sig fram í dag kl. 9—11 f. h. eða kl. 2—4 e. h. Sími 4059. 20 ára kaupmannsafmæli á í dag Símon Jónsson, Laugaveg 33. Brunasamskotin. N. N. 50 kr., S. B. 5 kr. Útvarpið: Þriðjudagur 9. nóvember. 8.30 Dönskukensla. 12.00 Hádegisútvarp. 18.45 Þýskukensla. 19.20 Þingfrjettir. 19.50 Frjettir. 21.15 Erindi: „Þektu sjálfan þig“, I (Jóhann Sæmundsson læknir). 20.40 Hljómplötur: Ljett lög. 20.45 Húsmæðratími: Smitunar- hætta á heimilum (frú Sigríð- ur Eiríksdóttir). 21.00 Symfóníu-tónleikar: Ýms tónverk (plötur). 22.15 Dagskrárlok. FISKVEIÐAR ÞJÓÐVERJA. Djóðverjar leggja nú mikið kapp á, að auka fiskfram- leiðslu sína og að verða sjálfum sjer nógur á því sviði. Eftirfarandi tölur sýna greini- lega hvert stefnir. Árið 1929 var fiskframleiðsla Þjóðverja 169 milj. kg., 1933 387 milj. kg. og 1936 599 milj. kg. Fiskinnflutningur Þjóðverja var á sama tíma: 1929 337 milj. kg., 1933 227 milj. kg., en nokkur meiri 1936, eða 242 milj. kg. Þjóðverjar voru óánægðir með útkomuna á árinra 1936 og hafa þess vegna sett sjer það takmark, að tvöfalda eigin fiskframleiðslu á næstu árum. Ætla þeir því að smíða 80 fiskiskip á árunum 1937 og 1938. Hjer með tilkynnist ættingjum og vinum, að móðir mín elskuleg Þórdís Bjarnadóttir, sem andaðist 30. f. mán., verður jarðsungin miðvikudaginn 10. þ. mán. frá heimili mínu, Laugaveg 37, kl. 1% e. h. Lilja Kristjánsdóttir. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför móður okkar, systur, tengdamóður og ömmu Marie Hansen. F. h. aðstandenda Johanne L. Hansen. Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför Ólafs Sigvaldasonar frá Nýjabæ í Hafnarfirði. Steinunn Halldórsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.