Morgunblaðið - 09.11.1937, Page 8

Morgunblaðið - 09.11.1937, Page 8
MORGUN BLAÐIÐ Þri6judaffur 9. nóv. 1931. 8 U— Jíaufi&IUifuu ÚTSALA á skemtibókum! Allskonar bækur til skemti- lesturs seldar með gjafverði á Frakkastíg 24. Gerið nú góð kaup!( Móðins kjóla og kápuspenn-* ur og tölur seljast fyrir hálf-' virði. Einnig nokkur belti. — Hatta- og skermaverslunin Laugaveg 5. Albúm með myndum fyrir ís- lensk frímerki, nýkomin, kosta 5 kr. Gísli Sigurbjörnsson, Lækjartorgi. Opið kl. 1—31/2. Kaupum mjólkurflöskur og allar aðrar flöskur. Versl. Grettisgötu 45 (Grettir). Kaupi (tmlan kopar. Vald. IPoaldeD, Klapparstíg 29. Kaupi íslensk frímerki hæsta ferði og sel útlend. Gísli Sig- arbjömsson, Leekjartorgi 1. — Dpið 1—4. Kaldhreinsað þorskalýsi m ó A og D fjörefnum, fæst altaf — Laugaveg 62. Sími 3858. *fó&rui£ct' Verðandi-systur eru beðnar pð mæta í Templarahúsinu miðvikudaginn 10. þ. m. kl. 4 e. h. Basamefndin. Páll Bjarnarson frá Prest- hólum kennir íslensku, dönsku, ensku, frönsku, þýsku, reikning og les með nemöndum. Cðins- götu 9. Ekki alls fyrir löngu var nýr læknir ráðinn við geðveikra- hæli eitt í Englandi. Fyrstu nótt- ina, sem hann svaf í sjúkrahús- inu, var hann vakinn af værum blundi við það, að karlmaður í einkennisfötum sjúklinganna kom skríðandi inn um gluggann með exi í hendi og hrópaði, að hann ætlaði að drepa hann. maðurinn í rúminu var sjiikling- ur á liælinu. H Veronika Raáb er nýjasta „stjarnan“ meðal leikenda í Ung- verjalandi. Hún ljek í fyivta sinni á þjóðleikhúsinu í Budapest og fjekk svo góðar viðtökur, að furðu sætti. Er henni spáð glæsilegri framtíð sem leikkonu. Hafnarbúi einn símaði um dag- inn á viðgerðastofu símans og bað um, að símasnúra sín yrði ' lengd um nokkra inetra. Hann fjekk það svar, að þar væri ekki tekið á móti kvörtunum í síma, ' heldur yrði hann að skrifa. H- — Eruð þið systurnar ekki tví- burar? Læknirinn stökk fram úr rúm- inu og komst við illan leik fram á gang og hljóp í ausandi rigningu út í aðalbygginguna, þar sem vörðurinn var. Þar fjell hann ör- magna niður á stól og sagði, að hann væri nýi læknirinn, og að sjúklingur hefði brotist inn til sín og ætlað að myrða sig með exi. Verðirnir hlóu að honum og eftir miklar mótbárur og lianda- lögmál tóku þeir hann og settu í spennitreyju. Það þýddi ekkert fyrir hann að segja þeim, hver hann væri. Þeir hlóu bara því hærra og sögðu, að það gætu all- ir sagt. Þar í húsinu hefðu þeir bæði Napóleon og Vilhjálm keis- ara. Þá sagði læknirinn, að þeir gætu gengið úr skugga um sann Ieikann með því að fara inn í herbergi hans, þar stæði rúm hans autt. Maður var sendur þangað, er kom aftur með þá skýringu, að nýi læknirinn væri sofandi í rúm- inu sínu. Það var fyrst morguninn eftir, að þeir Ijetu sannfærast um, að Lögreglan í Budapest tók fyr- ir nokkru fasta unga stúlku, sem ákærð var fyrir eitrurbyrlan og morð. „Sjergrein“ hennar var að blanda drykk, sem átti að lækna ástarsorgir þannig, að horfinn ástvinur hvarf aftur til þess, er drakk ástardrykkinn. Stundum hafði stúlkan selt einn skamt af drykk þessum fyrir alt að 1000 krónur. * Ameríski læknirinn James Chrieliton Browne, sem er 96 ára að aldri, og hefir því nokkra reynslu að baki, «egir að ljós- hærðar stúlkur sjeu eftirsóknar- verðari en þær dökkhærðu. Þær sjeu yfirlautt meinlausari, en jafnframt kátari og fjörugri e*i dökkhærðar stúlkur. * I Austin í Texas kom það fyrir um daginn, að stærðar örn reyndi að hafa 13 ára gamla negra- stúlku á brott með sjer. Hann læsti klónum í bak hennar og dró hana áfram um. kílómeters vega- Iengd, en þá sáu: menn til hans og skutu hann niður. — Jú, það er að segja, við vor- um það, en nú er systir mín orð- in fimm árum yngri en jeg! Ódýr geymsla á reiðhjólum yfir veturinn (vel smurt). Nýa reiðhjólaverkstæðið, Laugaveg 64. Besta reiðhjólageymslan er í Valur, Kirkjustr. 2. Sími 3769. Geymsla á barnavögnum og mótorhjólum. Valur, Kirkjustr. 2. Sími 3769. Friggbónið fína, er bæjarin* besta bón. Vjelareimar fást bestar hjá Vjulsen, Klapparstíg 29. Tvö herbergi, annað lítið hitt stórt, óskast nú þegar. Upplýs- ingar í síma 3977 frá kl. 12—1 á hád. Ábyggilegur piltur um ferm- ingu óskast til sendiferða, um 2—3 mánaða tíma. L. Ander- sen, Hafnarhúsinu. Geng í hús, þvæ þvotta. Vönduð vinna. Sími 1307. Hreinsa og pressa föt. Ódýr- ara en síðast hvar. Upplýsing- ar á Framnesveg 12, eftir kl. 5. Viðgerðir á tauvindum, tau- rullum og alskonar búsáhöld- um. Einnig aluminium. Valur^. Kirkjustræti 2. 3769. Viðgerðir á regnhlífum og rennilásum. Alskonar tösku- viðgerð og á margsk. gúmmi- vörum. Valur, Kirkjustræti 2. Sími 3769. Brýnsla alskonar. Valur,.. Kirkjustr. 2. Sími 3769. Aðalsteinn Jóhannsson Út- rýmir rottum, músum og skað- legum skorkvikindum úr hús- um og skipum. Sólvallagötu 32: A. Sími 1196. Reykjavík. Geng í hús og veiti allskonar fótaaðgerðir. Sími 4528. Unnur Óladóttir. Otto B, Amar, löggiltur út- varpsvirki, Hafnarstræti 19. —* Síml 2799. Uppsetning og viö» gerðir á útvarpstækjum og loftnetum. Hafnarf jörður: Dömuhöttum breytt eftir nýj- ustu tísku. Einnig sniðnir og mátaðir kjólar og kápur. Hverf isgötu 65. Hafnarfirði. m WILS NILSSON: FÓLKIÐ A MÝRI 81. þess með glöðum hug. Hún vissi, að þá myndi hún sættast við þau. Elínu myndi hún ekki hitta, því að nú var hún gift Pjetri og flutt með honum til kaup- staðarins, þar sem hann hafði góða atvinnu. Hún gat. líka hugsað um Elínu með ró og stillingu, og hún fylt- ist meira að segja sárum söknuði og löngun eftir að sjá hana. Hvað kom til? Hún skildi ekki sjálfa sig. En hún vissi, að innan skamms myndi hún geta talað við Elínu eins og áður fyr. Lena þoldi ekki þögnina lengur. Hún mátti til með að tala, til þess að komast frá öllum þessum viðkvæmu hugsunum, og hún sagði alt í einu upp úr þurru: — Fríða kemur heim frá sjúkrahúsinu eftir nokkra daga. Hún verður ef til vill hjer í vetur. — En hvað það er skemtilegt, svaraði Hugo blíð- lega. — Það var sorglegt, að svona skyldi fara, hjelt Lena áfram stillilega. — Og móðir Óla er enn á taugahæli. Þetta gaf Hugo tækifæri til mikilla ræðuhalda. Hann talaði um spillingu unga fólksins. Enginn nenti að vinna og fólkið flýði úr sveitunum. Og ekki hefði ástandið batnað, eftir að sósíalistar komust til valda. Hann áminti Svein um að láta sjer framferði Óla til varnaðar verða. — Jeg ætla að slá Óla í rot, þegar jeg er orðinn stór, sagði Sveinn ákafur. — Hvað segirðu, drengur! sagði Lena og leit snögg- lega á Svein, sem flýtti sjer að líta undan. — Þú hefir líklega ekki haft gott af fjelagsskap Óla? sagði Hugo. — Nei, svaraði Sveinn ofurlágt. Aftur varð þögn. Lenu langaði til þess að tala við Anton um morgundaginn, en þorði ekki að yrða á hann, þegar hún sá, hve þungbúinn hann var á svip- inn. Það var eins og öll bönd skilnings og samúðar hefðu brostið á millí þeirra mæðginanna, eftir að Knút- ur dó. Síðan var alt breytt. Hún fann það vel. En hún hafði aldrei fundið það eins vel og í kvöld, er hún þráði svo mjög að Anton sýndi henni traust. Hann var eina bamið hennar, sem aldrei hafði brugðist henni. Það varð hún að játa fyrir sjálfri sjer. En hann vildi, að hún Ijeti af bústjórn. Það var sú mótstaða, sem hann sýndi. En hún skildi nú betur en áður, að það stafaði af ást hans á jörðinni, og þá hlýnaði henni um hjartaræturnar. Nú þurfti hún aðeins að tala við hann, svo að þau gætu skilið hvort annað og komist að samkomulagi. — Ætlar þú að taka saman dótið þitt í kvöld? sagði. hún varlega. Anton leit á móður sína og rjett sem snöggvast brá reiðiblossa fyrir í augum hans, sem slokknaði þó strax aftur. Hann langaði til þess að æpa upp, til þess að komast úr þessu eymdarástandi. Enn var hann ekki afráðinn í því, hvað hann ætlaði að gera; vissi ekki, hvort hann átti að giftast Selmu, eða vera kyr heima og gæta þess, að Iiugo hefði ekki jörðina út úr móður þeirra. Hann óskaði þess innilega, að hann gæti talað um þetta við móður sína, en hann þóttist vita, að hún myndi ekki skilja hann. Aðeins halda, að það væri af peningagræðgi, sem hann vildi vera heima. Nei, það var öll von úti um það, að mæta skilningi, og hann ljet höfuðið hníga þreytulega niður á barm sinn. Hann fann það sjálfur, að færi hann að tala, myndi hann fá reiðikast eins og um morguninn. — Ertu veikur, Anton ? spurði móðir hans ótta- slegin. Anton stóð skyndilega á fætur og stökk út úr stof- unni. Hann skeytti því ekkert, þó að móðir hans kall- aði á eftir honum. Hann varð að flýja, áður en sama æðið gagnvart Hugo greip hann aftur. Síðan skjögraði hann út að hliðinu og hallaði sjer upp að veggnum. Hann einblíndi í gegnum myrkrið heim að bænum. Aldrei hafði honum fundist hann vera jafn nálægt því að missa vitið og nú. Eitthvað varð að ske, ef hann átti ekki að verða frávita. Hann varð að taka ákvörðun áður en birta tók og nýr dag- ur byrjaði. Hvað átti hann til bragðs að taka? Rjett í þessu kom Hugo út á hlað og Anton kipt- ist við, er hann kom auga á hann. — Þarna er hann, tautaði hann og krepti hnefann í bræði. En svo ýtti hann alt í einu hliðinu upp á gátt og gekk niður götuna, sem lá heim að fjósinu, þar sem mjólkurkýrnar voru. Hann hljóp við fót, eins og vildi hann flýja sjálfan sig, og hirti ekkert um, þó hann færi ofan í polla, og forin slettist upp um skálmar hans. Ilann vildi ekki grípa til þess óyndisúrræðis að fremja ódæðisverk. Hann varð að finna nýja leið að markinu. Hann ráfaði áfram í óvissu og fanst hann heyra storminn andvarpa og stunur í pílviðartrján- um. Fyrir framan fjósið nam hann staðar og hlustaði. Honum fanst einhver vera á liælunum á sjer. Til hvers- var að hlaupa ? Það var ekki til neins að ætla að um- flýja sjálfan sig. Hann þóttist viss um, að hann þyldi ekki að sjá Hugo. Hvernig átti hann að losna við þessa hræðilegu hugsun, sem hafði kvalið hann nú um margra vikna skeið? Honum var orðið kalt og hann langaði mest af öllu til þess að sofa og gleyma öllu saman. Hann geklv rösklega að hurðinni og opnaði hana. Hlýjan frá skepnunum streymdi á móti honum, svo að ylinn lagði um hann allan. En hann fann enga ró. Hann kastaði sjer niður í hafrabyng í einum básnum og lilustaði á rólegt jórtrið í skepnunum. Hann lokaði augunum og reyndi að sofna. En hann fann enga hvíld. Myrkrið þarna hjá skepnunum fór að hafa æs- andi áhrif á liann, og honum fanst hjartað í brjósti sjer hætta að slá. Var hann að missa vitið ? Hafði hann ekki Ieyfi til þess að ryðja Hugo úr vegi? Jú, ha»n stóð í vegi fyrir hamingju hans. Hann stóð hægt á fætur. Nú barðist hjarta hans ákaft. Og alt í einu var hann staðráðinn í því, hvað hann ætlaði að gera og hann fyltist óumræðilegum fögnuði. Aldrei skyldi Hugo fá jörðina. Aldrei. Hann hrópaði það hátt upp. Og hann ætlaði ekki að giftast Selmu að svo komnu. Gat það ekki. Hann endurtók þetta hvað eftir annað með sjálfum sjer og flýtti sjer út úr fjósinu og Iokaði hurðinni vendilega á eftir sjer. ÞaS var komin hellirigning og myrkrið var enn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.