Morgunblaðið - 30.01.1938, Blaðsíða 2
'l
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 30. janúar 1938.
Reykvíkingar, í dag veljið
þjer borgarstjórann!
Gunnar Thorodd«cn:
ÁVARP
SjálfstæDis-
flokkurinn
sendir 4 konur
i bæjarstjórn
Alista Sjálfstæðisflokksins
við bæjarstjórnarkosning-
amar hjer í Reykjavík eru fjór-
ar konur í ðruggum aðal- og
varasætum. — Hefir aldrei
nokkur annar stjórnmála-
flokkur haft jafnmargar konur
í boði hjer við bæjarstjórnar-
kosningar. — Með þessu sýnir
Sjálfstæðisflokkurinn, að hann
vill að konur taki virkan þátt í
opinberum málum. Sama verð-
ur’ ekki sagt um aðra flokka.
—- Framsóknarflokkurinn hefir
sparkað þeirri einu konu, sem
hann hafði í bæjarstjórn, og
enga tekið í hennar sæti. Rauða
samfylkingin hefir einnig spark
að þeirri vinsælu alþýðukonu,
frú Jóhönnu Egilsdóttur, sem
sat í bæjarstjórn á vegum Al-
þýðuflokksins. I hennar sæti
hafa þeir valið óþekta konu,
sem virðist mjög starfa í anda
kommúnista, og er gersamlega
ókunnug hæjarmálum.
Alþingiskosningarnar s. 1.
sumar sýndu það greinilega, að
kvenfólkið hjer í Reykjavík
fylkir sjer undir merki Sjálf-
stæðisfiokksins. Enda vita kon-
urnar það vel, að það er ein-
göngu Sjálfstæðisflokknum að
þakka, að heimilin í Reykja-
vík eiga nú kost.á ódýru raf-
magni til ljósa og suðu, og að
Sjálfstæðisflokkurinn er nú að
hrinda í framkvæmd því máli,
sem kemur til með að umskapa
heimilin í bænum, þ. e. hita-
veitunni.
Reykvískar konur! Það er
ekki síst á ykkar valdi, að gera
sigur Sjálfstæðisfiokksins í
dag meiri en nokkru sinni
áður. Með því tryggið þið, að
hitaveitan komist í framkvæmd
á þessu ári.
Kjósið C-listann!
Frú Guðrún Jónasson.
dag er það ykkar,
* Reykvíkingar, að
segja til um það, hvaða
flokkur og hvaða menn
þið óskið að fari með
málefni bæjarins næstu
fjögur árin, o g hver
verði borgarstjóri næsta
kjörtímabil.
Vinni Sjálfstæðisflokkurinn
sigur í kosningunum, verður
Pjetur Halldórsson borgar-
stjóri áfram næsta kjörtíma-
bil.
Pjetur Halldórsson þarf ekki
að kynna fyrir Reykvíkingum.
Hann er borinn og barnfæddur
Reykvíkingur. Hann er án efa
sá af núlifandi Reykvíkingum,
sem er gagnkunnastur öllum
bæjarmálum, sakir langvarandi
setu í bæjarstjórn, og nú síð-
ustu árin í sæti borgarstjóra.
Störf Pjeturs Halldórssonar í
| þágu Reykjavíkurbæjar verða
ekki rakin hjer. Þau eru mörg
og mikil, og öll á einn veg:
farsæl og til heilla bæjarfje-
laginu.
Síðasta verk Pjeturs Hall-
dórssonar, framkvæmd hitaveit-
unnar, sem nú verður hafist
lianda um, mun geyma nafn
hans í sögu Reykjavíkurbæjar
um aldur og æfi.
Ötrúlegt er, að nokkur Reyk-
víkingur vilji stuðla að því nú,
að Pjetur Halldórsson fái ekki
tækifæri til að hrinda hitaveit-
unni í framkvæmd.
En því mega Reykvíkingar
ekki gleyma, að ef rauðliðar
— með eða án aðstoðar utan-
bæjarmanna — skyldu sigra við
þessar kosningar, þá kemur
engin hitaveita í bæinn. Og þá
yrðu reykvískir verkamenn
sviftir atvinnu á þessu og næsta
ári, sem nemur 2 miljónum kr.
Reykvíkingar! Tryggið Sjálf-
stæðisflokknum það stóran sig-
ur í kosningunum í dag, að ekki
aðeins sje trygt, að Pjetur Hall-
dórsson verði borgarstjóri, held-
ur hitt, að flckkurinn fái 10
fulltrúa í bæjarstjórn, og þar
með Pjetur Halldórsson ko3;rjn
bæjarfulltrúa.
Pjetur H ?.Ildórs8on
ska! í bæjarstjórn! —
Þetta á að vera kjörorð
allra Reykvíkmga í dag.
Kjósið C-listann!
Frú Guðrún Guðlaugsdóttir.
Pjetur Halldórsson
10. maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins.
Aigert einræðt
i Grikklandi
FRÁ FRJETTARITARA
VORUIÆ.
KHÖFN f QÆR.
O tjórnarblööin í Grikklandi
skýra frá því að Melaxas,
forsætisráðherra, hafi stofnað
algert einræði í Grikklandi.
Fimtán foringjar stjórnarand-
stæðinga verða fluttir til eyði-
eyja til fangelsisvistar.
Blöðin segja áö allir, sem
reyni að spilla friði í Grikk-
landi, muni verða látnir
gjalda þess margfaldlega.
í síðastl. viku seíidu for-
ingjar stjórnárandstæðinga út
flugmiða, þar sem gríska
þjóðin er hvött til baráttu til
þess að endurheimta sitt forna
frelsi. Þettá var talin vera til-
raun til uppreisnar gegn Met-
axas. Notaði hnnn tækifærið
til þess að bua u-n einræði
sitt svo vel, að ekki yrði við
því haggaS. En í raun og
veru hefir ríkt fuljkoraio ein-
ræði í Grikklandi síðan 1936,
er Metaxas rauf þing Grikkja
og sendi þingmennina heim.
Síðan hefir þingið ekki verið
hvatt saman.
Stjórnarblöð’n kalla for-
ingja s! jórnarandstæðinga
uppre'snarmenn og bðfa.
C-Iísiinn or listi Sjálfsíæð-
rsflokksins í Reykjavík.
Frú Rágnhilduf Pjetursdóttir.
til æskunnar
DAG liggja í ykkar hönd-
um, ungu Reykvíkingar,
völdin yfir ættborg okkar. f
dag kveðið þið upp úrskurðinn
um afdrif Reykjavíkur. í dag
verðið þið að gera upp við ykk-
ur með djúpri ábyrgðartilfinn-
ingu, hverjum þið viljið fela for-
sjá Reykjavíkur um næstu 4 ár.
Þið eigið um tvent að velja:
Sjálfstæðisflokkinn eða rauðu
samfylkinguna, C-listann eða A-
listann. Valið er ekki vanda-
samt. — Sjálfstæðisflokkurinn
hefir bygt upp þetta bæjarfje-
lag; hann hefir skapað alla þá
atvinnu, sem hjer er að fá;
hann hefir reist öll þau mann-
virki og menningartæki, sem
prýða þessa borg; hann hefir
gert Reykjavík að þeim aldin-
garði íslands, þangað sem allir
sækja. Dæmið Sjálfstæðisflokk
inn eftir verkum hans; hann
mun halda áfram á sömu braut
framkvæmda og menningar-
starfs.
Marxistarnir frá Moskva, sem
standa að A-listanum, eiga líka
sína sögu að segja: Kommún-
isminn, sem hjer tekur völd, ef
A-listinn sigrar, hefir verið
reyndur 1 einu landi, Rússlandi.
Með hverjum árangri? 20 ára
afmæli byltingarinnar er hald-
ið hátíðlegt með þeim blóð-
dómum og aftökum, að allan
heiminn hryllir við. Kommún-
istarnir hjer heima vegsama
þetta alt, og lofa að innleiða
hjer rússneskt stjórnarfar. Þeir
hafa þegar gefið okkur for-
j smekkinn: 9. nóv. 1932. — Ef
j kommúnistar ná hjer völdum,
j verður stjórn þeirra einn sam-
jfeldur níundi nóvember. — Vilt
j þú, æska Reykjavíkur, bera á-
|byrgð á því ? f
Enginn flokkur sýnir æsk-
unni jafnmikið traust og Sjálf-
stæðisflokkurinn. í örugg sæti
og varasæti hefir hann skipað
4 ungum mönnum, fulltrúum
æskunnar. En A-lístinn hefir
ekki sett ungan mann í eitt ein
asta aðal- eða varasæti. Slíka
óvirðingu, slíkt hnefahögg í
garð æskunnar, eigið þið, reyk-
vískir'æskumenn, að muna við
i kjörborðið í dag.
Frú María Indriðadóttir.
Gunnar Thoroddsen
9. maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins.
Þjóðernissinnaðir æskumenn!
Hjálpið ekki marxistunum frá
Moskva til valda með því að
fleygja atkvæðum ykkar á D-
Iistann. Hann er gjörsamlega
vonlaus um að koma manni að.
— Aðstandendur hans þykjast
vera sjálfkjörnir málsvarar æsk
unnar, en lítiil sýnist æsku-
bragurinn á efsta manni þess
lista. Kjósið C-listann; hann er
listi þjóðernis og sjálfstæðis.
Æska Reykjavíkur! Ljáðu
ekki fylgi þitt til þéss að rífa
niður alt það mikla" umbóta-
starf, sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefir unnið og er að vinna í
Reykjavík. Trygðu þína eigin
framtíð með því að kjósa C-
listann, því að hann er listi
æskunnar.
Gunnar Thoroddsen.
Skákþing íslendinga
O kákþing íslendinga verður að
þessu sinni háð hjer í Reykja-
vík í sambandi við aðalfund Skák-
sambands Tslands. sem einnig
stendur nú7yfir.
Þingið verður að þessu sinni hið
fjölmennasta sem verið hefir
nokkru sinni, sjerstaklega í T. og
2. flokki. Bendir þetta Ijóslega til
vaxandi áhuga á skáklistinni.
Mcðal þátttakenda í meistara-
flokki má nefna Egert Gilfer, Ás-
mund Ásgeirsson, Einar Þorvaids-
son og hinn nýja skákmeistara
Norðlendinga, Guðbjart Vigfússon
frá Húsavík, o. fl. ágæta skák-
menn.
V'erður kepnin um skákmeist-
aratitil fslands að þessu sinni
mjög tvísýn, liver vinna mun.
Keppin getur —- vegna kosn-
‘iftganna —- elcki hafist fyr en á
þriðjudagskvöld kl. 8. Það verður
síðan háð á hverju kvöldi á sama
tíma í Varðarliúsinu.
Sextug er í dag . ekkjan, Ipgi-
björg Cýrusdóttir, Fálkagötu .8,
Grnnsstaðaholti.
C-listinn er listi Sjáífstæð-
isflokksins í Reykjavík.