Morgunblaðið - 11.02.1938, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.02.1938, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 11. febr. 193&. 4L 'meíT 'mófafU/rJzxj^psivjl JCauji&kaju Eftirfarandi smásaga átti sjer stað í mentaskóla einum í Danmörku: Ungur kennari Iiafði verið að skemta sjer kvöldstund og dag- inn eftir kom liann í skólann með brúnan skó á öðrum fætinum og svartan á hinum. Þegar hann kom í skólann tók einn samkennara hans eftir þessu. — Þú verður að hlaupa heim aftur og skifta um skó, fjelagi, sagði hinn kennarinn. Jeg skal byrja kenslustund hjá þjer og kenna þar til þú kemur aftur. En blessaður flýttu þjer, svo rektor taki ekki eftir þessu. Kennarinn ungi flýtti sjer heim, en kom aftur að vörmu spori. — Hvað er að sjá þetta, maður, sagði vinnr hans, þú hefir ekki enn skift um skó? — Nei, mjer er ómögulegt að botna neitt í þessu, sagði veslings kennarinn í örvæntingu. Þegar jeg kom heim, var þar bara einn ,svartur skór og annar brtxnn! * Leikarinn Josef Kainz ljek einu sinni í þýsku leikriti glæpamann, sem enginn vildi hcyi'a eða sjá. í lok seinasta þátt- ar átti Kainz að bjóða þremur meðleikuram sínum vindil, sem enginn þeirra vildi þó þiggja. Dag nokkurn, er Kainz kom í leikhúsið, hafði hann með sjer fjóra „Havana“-vindla og áður en leiksýning hófst, reykti hann sjálfur einn vindilinn og sagði: „Hina þrjá vindlana ætla jeg að hafa til að bjóða í seinasta þætti“. Meðleikendurnir voru ekki neitt sjerstaklega hrifnir af því að þurfa að neita svona ágætum vindlum. Nú leið að leikslokum og Kainz bauð leikurunum „ekta Havana- vindla“. Tveir þeirra afþökkuðu, eins og ráð var gert fyrir í leik- ritinu, en sá þriðji, leikarinn Hugo Thimig, tók alla þrjá vindlana og sagði: — Jæja, í þetta skifti tek jeg á móti vindlunum, en það þýðir ekki að reyna að múta mjer oft- ar! * Tvær ungar stúlkur lögðust ný- lega inn á fæðingardeild á sjúkrahúsi í Frfeiburg. Þær eign- uðust báðar tvíbura, önnur tvær telpur, en hin tvo drengi. Við nánari rannsókn á högum þessara ungu mæðra kom í ljós, að sami maðurinn átti öll börnin. Sagt er að hann hafi ekki orðið yfir sig glaður, er hann fjekk frjettina. * Benjamino Gigli, liinn heims- frægi ítalski söngvari var nýlega á ferðalagi í Italíu og kom við í fæðingarbæ sínum Recanati. Gigli afhenti borgarstjóranum stóra peningaupphæð, sem á að verja til byggingar gamalmennahælis í Recanati. * Samkvæmt opinbeum enskum skýrslum eru nú í Englandi 85 manns, sem liafa meiri árstekjur en 2 miljónir króna, 71 sem hefir meira en 1% miljón í tekjur, 178 sem liafa 1 miljón og 526 sem hafa 700.000 krónur í árstekjur. Ibúðir stórar og smáar, og her- bergi, Leigjendur einhleypa og heimilisfeður, Stúlkur í vist, Kaupendur að hverju því, sem þjer hafið að selja. Muni sem þjer viljið kaupa. Nemenckir í hvaða námsgrein sem er. Smá- auglýsingar Morgunblaðsins eru lesnar í hverju húsi. íffi&ynninaav Friggbónið fína, er bæjarins oesta bón. Herbergi með Ijósi, hita og ræstingu til leigu, Smáragötu 8B. Kaupum aluminium og kopaiv Versl. Grettisgötu 45 (Grettirþ Kaupi íslensk frímerki hæstak verði og sel útlend. Gísli Sigur- björnsson, Lækjartorg 1. Opið 1—3i/2- Kaupi gamlan kopar. Vald. Poulsen, Klapparstíg 29. Vjelareimar fást bestar hjá Poulsen, Klapparstíg 29. Kaupi íslensk frímerki hæsta Kaupum flöskur, bóndósiiv verði. Gunnar Guðmundsson. meðala- og dropaglös. Sækjum. Laugaveg 42. Viðtalstími 1—4 Vrerslunin Grettiagötu 45 — a. h. Sími 4563. | (Grettir). Athugið. Hattar, Nærföt, Frímerkjabækur fyrir fslensk Dömusokkar, Húfur, Tvinni, og útlend frímerki. Límpappír,. Tölur, Sokkar fyrir drengi og frímerkjaumslög o. fl. — Gísli fullorðna, o. fl. Karlmanna- Sigurbjörnsson, Frímerkjaversl- hattabúðin. Handunnar hatta- un, Lækjartorg 1, opið 1— viðgerðir sama stað. Hafnar- e. h. stræti 18. Vil kaupa sjö manna fólks-| bíla fyrir 15. febr. A. v. á. Náttfata flunel, barna, marg- ir litir. Undirkjólaefni. Tvíbreitt ljereft. Tvistar, margir litir. Prjónavara, o. fl. ódýrt. Versl. F'rón, Njálsgötu 1. Daglega nýtt fiskfars og Frikadellur og soðnar fiskiboll- ur, 25 fyrir 1 kr. Ragna Jóns- son, Laugaveg 53B, uppi. Sími 3197. Sent heim. Skíðahúfur. Austurstræti 17. Kristín Brynjólfsdóttir. Maður með hest og sleða ósk- ar atvinnu við akstur. Sími 3406„ Otto B. Arnar, löggiltur út- varpsvirki,, Hafnarstræti 19. — Sxmi 2799.. Uppsetning og við- g.erðir á útvarpstækjum og loft- netum. Sokkaviðgerðin, HafnaiTStræt®; 19. gerir við kvensokka, stopp- ar í dúka, rúmföt o. fl. Fljót af- greiðsla. Sími 2799. Sækjum^ sendum. Flöskur kaupir versl. Esja, Freyjugötu 6. Sími 4193. Smekkleg brjefsefni í mörg- um litum eru nýkomin í Bóka- verslun Sigurðar Kristjánssonar I krónur á mánuði í Nýju mat- Bankastræti 3. Isölunni, Vesturgötu 22. Fæðj kostar ekki nema 6(þ QB89 KOL OG SALT sími 1120 ANTHONY MORTON; ÞEKKIÐ ÞJER BARÓNINN? 59. — Nei, þá stæði á sama, hvaða læknir kæmi, svar- aði Mannering. — En jeg verð að fara inn aftur! Hann fór inn í herbergið aftur og lokaði hurðinni á eftir sjer, en lafði Mary flýtti sjer niður stigann. Nú fyrst fór hann að athuga Gerry nánar. Hann hafði sagt lafði Mary, að Gerry væri ekki dáinn. En hann var alls ekki viss um að það væri rjett. Hann vonaði það þó af alhug. Blóðið streymdi niður náfölt andlit Gerrys. Á. enn- inu var sár eftir skotið. Mannering laut niður, lyfti höfði hans frá gólfinu og þreifaði á púlsinum. Það var eins og þungri byrði væri ljett af herð- um Mannerings, þegar hann var búinn að ganga úr skugga um, að Gerry væri enn á lífi, en hann vissi þó, að öll hætta var ekki úti enn. Með því að kasta stólnum í Gerry, hafði hann komið í veg fyrir að skotið færi gegnum höfuð hans. f stað þess, hafði það aðeins snert ennið. Engu að síður gat sárið orðið hættulegt. Hann hljóp inn í baðherbergið og sótti vatn og þvottapoka. Það var ekki skemtilegt verk að baða sárið, en það tjáði ekki að kveinka sjer. Honum ljetti stórum, þegar hann sá, að sárið var ekki djúpt. Kúlan hafði snert ennisbeinið, en það var ekki brotið. Gerry andaði nokkurn veginn reglulega, og nú var ekki annað að gera en bíða, þangað til læknirinn kæmi. Lafði Mary hafði auðsýnilega lagt mikla áherslu á það, að læknirinn kæmi strax, því að Mannering hafði rjett aðeins lokið við að baða sárið, þegar bar- ið var að dyrum. Það var lafði Mary, og með henni var hár maður og fölleitur, sem Mannering kannaðist óljóst við. Læknirinn flýtti sjer til hins særða manns. — Er hann--------? byrjaði lafði Mary. — Það er engin hætta, sagði Mannering og brosti óþvingað. Hann var óumræðilega feginn því, að Gerry hafði ekki tekist að framkvæma fyrirætlun sína, og hann mátti ekki til þess hugsa, hvaða afleið- ingar það hefði getað haft fyrir hann, ef Gerry hefði dáið. — Eruð þjer viss nm það, John? sagði lafði Mary, og Mannering tók eftir því, að liún varð alt í einu ellileg og þreytuleg. — Hárviss, sagði hann og bauð henni sæti. — Fá- ið yður sæti. * * Hún brosti og hlýddi honum orðalaust. — Jeg óska þess svo oft, Jolin, að þjer hefðuð gifst inn í fjöl- skylduna. — Það var ekki yður að kenna, að jeg gerði það ekki. Hann gat ekki annað en minst þess, að ef María Overdon liefði ebki hryggbrotið hann, vegna þess, að henni þótti hann of fátækur, hefði þetta aldrei kom- ið fyrir. — Hvað heitir læknirinn? spurði hann. — Dr. Saunders. Það má reiða sig á hann. Þjer getið treyst því, að hann segir ekki frá----------- Hún þagnaði skyndilega, er dr. Saunders sneri sjer að henni. — Það reyndist ekki eins slæmt og það leit út fyr- ir, sagði hann og brosti. — Snertur af heilahristing — og svo sárið. En það er ástæðulaust að óttast, lafði Mary. Hann leit á Mannering einkennilegu augna- ráði og hjelt áfram; — Hann hefir fengið allmikiS högg á öxlina! Mannering svaraði ekki, en bandaði með hendinni. Það var auðvitað stólnum að kenna. Hann hafði skoll- ið í vegginn og síðan lent í öxlinni á Gerry. Lækn- irinn brosti, en sagði ekkert. — Jeg- skal koma honum í rúmið, sagði lafði Mary,. eins og hún væri að tala um barn. — Getið þjer út- vegað mjer hjúkrunarkonu, dr. Saunders? Læknirinn lofaði því, um leið og liann fór. Gerry var enn meðvitundarlaus, þegar Mannering fór • niður hálftíma síðar. En hann andaði reglulegar en. áður, og það mátti búast við því, að hann vaknaði þá< og þegar til meðvitundar. Hjíikrunarkonan, sem dr. Saunders hafði sent, var þegar komin,. og Mannering; fann, að hann þarfnaðist hvíldar. Lafði Mary virti liann fyrir sjer, meðan liann b'land aði sjer whisky-„sjúss“, og honum til mikillar undr- unar bað hún liann að gefa sjer líka. Annars bragðaði hún aldrei áfengi. En lafði Mary gerði og sagði jafn- an sitt af hvoru, sem kom manni á óvart, og Manner- ing rjetti henni brosandi glasið. Það var sýnilegt, að liún liafði þarfnast hressingar. — Hvernig stóð eiginlega á því, að þjer komuð liingað um þetta leyti dags? spurði hún brosandi. Mannering svaraði hlæjandi: — Jeg átti tal við Gerry í dag, og jeg vissi, að það' átti að yfirlieyra hann. Mjer fanst hann vera nokkuð órólegur, og alt í einu varð jeg hræddur ran, að eitt- hvað ilt myndi lienda hann! — Skrambinn liirði þessar perlur! sagði lafði Mary alt í einu. Mannering varð svo hissa á ákafa liennar, að hanti ‘ kom ekki upp nokkru orði fyrst í stað. En hún hlú að honum og sagði: — Það er mesta furða, hvað við ■ gamla fólkið getum talað. En jeg meinti það, sem jeg: sagði. Perlurnar eiga alla sökina á þessu. E£ Emma hefði ekki verið svo heimsk að kasta út 5000 pundum i fyrir þessa hálslceðju, hefði þetta aldrei komið fyrir.. — En gjafirnar voru fleiri. — En hún var búin að tala um þessar perlur í marg^ ar vikur. Þjófurinn hefir haft nægan tíma til þess að láta gera eftirlíkingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.