Morgunblaðið - 15.02.1938, Síða 2
2
M 0 R GrU NBLAtlíÐ
Þriðjudagwr 15. febrúar 1938
Kanzlarafundurinn: Hvað
samiðvarum
dr. Schussnigg fór sigurvegari
af fundi Hitlers
Hitler lofar að virða
fullveldi Austuríkis
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Himsblöðin segja í dag, að þar sem ekk-
ert hafi verið skýrt opinberlega frá
samtali kanslaranna, dr. Schussniggs
og Hitlers, sje að svo stöddu ekkert.hægt að dæma
sím mikilvægi þess. En mörg blöð skýra þó frá
því, að dr. Schussnigg hafi farið sem sigurvegari
af fundi Hitlers.
Kanslararnir ræddust við í ellefu klukku-
stundir samfleytt að meðtöldum matmálstímum
(segir í Reutersfregn). í sömu fregn segir að dr.
Schussnigg hafi gengið ánægður af fundi Hitlers.
Um hvað þeir sömdu. /
I skeyti frá Vínarbrg’ til The Times segir, að kanslararnir
hafi gert frumdrátt að samningum milli Þjóðverja og Austur-
ríkismanna og að Hitler endurtaki í þessum samningi loforð sitt
um að viðurkenna fullveldi Austurríkis.
Ennfremur að hann lofi því, að láta ekki við gangast að
þýskir nasistar blandi sjer í innanríkismál Austurríkismanna.
Þetta yrði að teljast góður árangur fyrir dr. Schussnigg, þar sem
slík yfirlýsing af hálfu Hitlers myndi draga kjark úr austurrísk-
um nasistum.
Hverju Schussnigg lofaði.
dr. Schussnigg lofaði fyrir sitt leyti að veita nasistum í Aust-
urríki sömu stjórnmálaleg rjettindi og austurrískir konungs-
sinnar hafa nú og teljast verða heldur lítil, án þess þó að nema
úr gildi bannið gegn flokki nasista.
Ennfremur lofaði dr. Schussnigg að fela Seyssin Quart, sem
er vinveittur nasistum, austurríska innanríkisráðuneytið.
Til þess að samningur þessi öðlist gildi verður Miklas forseti
Austurríkis að undirrita hann.
j— Russunum —
bjargað í dag?
Líkur eru tii þess (segir
Lund.únaútvarpið F.Ú.)
að takast megi að bjarga
rússnesku ísjakaleiðangurs-
mönnunum á næsta sólar-
hringi.
Frá Moskva er símað (seg-
ir í Oslofregn) að ísjakinn,
sem Papanin leiðangursmenn
irnir hafast við á, hafi í gær
kl. 16 verið á 71. gr. 38 mín.
n.br. og 20. gr. 10. m. vest-
lægrar lengdar.
ísbrjóturinn Taimyr var á
miðnætti síðastliðnu 37 Vá
km. frá jakanum. Ahöfnin
hefir fundið nothæfan stað
fyrir flúgvjel til þess að
hefja sig til flugs og lenda
um 400 metra frá skipinu.
Papanin tilkjmnir að
reykurinn (aðrar fregnir
herma kastljós) frá Taimyr
sjáist frá jakanum, Ef til
vill gera ísbrjóts-menn til-
raun til þess að fara fótgang-
andi til Ieiðangursmannanna
til þess að koma þeim til
skipsins.
Ráðstjórnin rússneska hef-
ii- þegið tilboð dönsku stjórn
aripnar um aðstoð ti! þess að
bjarga léiðangursmönnunum.
NRP—FB.
..... im ....
Flmm menn
bjargast úr
sjávarháska
Osló í gær.
imm norskir sjómenn, sem
höfðu hrakist í 17 klukku-
stundir á björgunarbáti í ó-
veðrinu í Norðurhafi um helg-
ina, björguðust með undursam-
legum hætti. Corvus, eitt
af skipum Björgvinargufuskipa
fjelagsins, setti hina fimm skip
brotsmenn á land í Hauga-
sundi í dag.
Þessir menn voru á mótor-
skipinu Ide frá Bergen. Skipið
var á heimleið til Noregs.
Á föstudag varð þess vart,
að leki var kominn að skipinu
og varð hann brátt svo mikill að
sjór fossaði inn um botn skips-
ins. Skipverjar skutu rakettum,
en engin skip komu þeim til
hjálpar.
Stormur var mikill og sjó-
gangur. Skipsmenn yfirgáfu
skipið í björgunarbátnum, er
það var að sökkva og síðan rak
í ofviðri í seytján klukku-
stundir. En áður en þeir fóru
kveiktu þeir bál í skipinu og
notuðu til þess 'sein'ústu eld-
spýturnar, skipskladdann og
fleira.
Sást bálið frá Corvus, sem
hóf leit, og fann loks björgun-
arbátinn. Þegar skipsmönnum
var bjargað, voru þeir búnir að
gefa upp alla von, því að sjó-
irnir gengu stöðugt yfir bátinn.
Corvusi seinkaði um tvö dæg
ur vegna veðursins og leitarinn-
ar. Hafði Corvus hrakíð af
'sínni vanalegu leið og hefði
ella vart bjargað skipsmönn-
unum af Ide. (N. R. P. — FB)
I skeyti frá Berlín til The
Times segir, að margir
þýskir áhrifamenn líti svo
á að Hitler hafi kallað dr.
Schussnigg til Berchtes-
gaden meðfram til þess að
leiða athygli almennings í
Þýskalandi frá erjunum
innan þýska hersins.
Þeir segja að Hitler hafi viljað
róa þýsku herforingjana er vilja
að Hitler fari sjer varlega í af-
stöðu sinni gagnvart Austur-
ríki.
Horforingjarnir Br^uschitsch
íem tók við af von Fritsch og
Reichenau komu til Berchtes-
gaden einmitt um sáma leyti og
dr. Scuhssnigg kom þangað.
EKKERT
UMTAL
London í gær. FÚ.
í þýkum blöðum er ekkert
rætt í dag um fund þeirra Hitl-
ers og Schussniggs.
Sá kvittur gaus upp í gær
að von Ribbentrop hefði farið
til Rómaborgar, en hann hafði
ekki við neitt að styðjast.
FER SAMKOMULAGIÐ
ÚT UM ÞÚFUR?
London í gær. FÚ.
ið því var búist, að austur-
ríska ráðuneytið yrði
kvatt saman á fund í dag, en
úr því hefir ekki orðið.
Samkvæmt síðustu fregnum
er talið vafasamt að nokkuð
verði af því, að dr. Schussnigg
taki nasista í ráðuneyti sitt.
Verkamenn í tveimur hverf-
um Vínarborgar hjeldu fund í
gærkvöldi og kröfðust fullvissu
um það að Schussnigg hefði
ekki sýnt Hitler of mikla und-
anlátssemi. Á öðrum fundinum
var hótað verkfalli ef slík full-
vissa fengist ekki.
I fyrra tók Jóhannes Kjarval
iistmálari þátt í listasýningu
Carnegie-stofnunarinnar, og hefir
stofnunin nú farið þess á leit að
Islendingar sendi fleiri listaverk.
í fyrra var aðeins eins mynd eft-
ir Kjarval á sýningunni og hjet
hún Móðir og barn. Stofnun þessi
heldur árlega listsýningu í Pitts-
burgh í Bandaríkjunum. (FÚ)
Hvers vegna
Hitler bauð til
sin Schussnigg
Landráðin sem
komst upp um
Frá frjettaritara, vorum.
Khöfn í gær.
Daily Telegraph skýr
ir frá því, að Hitler
hafi átt frumkvæðið að
kanslarafundinum í Ber
chtesgaden og að orsök-
in hafi verið alvarlegt
ósamlyndi milli Þjóð-
verja og Austurríkis-
manna. Þetta ósam-
lyndi átti rót sína að
rekja til handtöku dr.
Taus (sem Morgunblað-
ið skýrði frá á sunnud.)
en 7 dr. Taus er foringi
nasista í Austurríki.
Lögreglan handtók Taus 27.
jan. síðastliðinn og komst um
leið yfir skjöl, sem flettu ofan
af landráðastarfsemi austur-
rískra nasista. Þetta og fleira
leiddi til sívaxandi ýfinga milli
Þjóðvcrja og Austurríkismanna
og Hitler var búinn að ákveða
að fara hörðum orðum um
Austurríki, í ræðu þeirri sem
hann ætlar að flytja á sunnu-
daginn, þegar þýski ríkisdag-
urinn kemur saman í Berlín.
En von Papen tókst að fá
Hitler til þess að ræða áður við
dr. Schussnigg. Lýsti von Papen
því fyrir Hitler, að dr. Schuss-
nigg hefði góð spil á hendi, þar
sem væri landráðaskjölin en
þau leiddu í ljós að nasistar
hafi ætlað að brjótast til valda
Austurríki. Þeir ætluðu að
iteypa dr. Schussnigg, en um
leið ætluðu þeir að búa til
tilefni fyrir þýska herinn til
þess að skakka leikinn og með
því styrkja aðstöðu nasista.
Eúsmæðrafjelagið hjelt fund í
gærkvöldi í Oddfellowhúsinu. Var
fundurinn mjög fjölsóttur. Frú
Oddný Sen flutti ágætt erindi um
kínvérskar konnr. Vottaði fund-
urinn frúnni miklar þakkir fyrir
þá kynningarstarfsemi, sem hún
hefir unnið þar eystra og hjer.
Ennfremur voru rædd fjelagsmál,
þ. á. m. hækkun mjólkurverðsins
er fundurinn vítti harðlega. Litu
fundarkoimr svo á, að það væri
jafnt í hag framleiðenda sem
neytenda að aukin væri mjólkur-
neyslan í bænúm, en nú mætti
búast við því gagnstæða, þegar
mjólkurverðið hækkar. Þessar kon
ur tóku til máls á fundinum: Frú
Jónína Guðmundsdóttir, frú Guð-
njn Lárusdóttir, frú Sigríður Sig-
urðardóttir, frú Guðrún Pjeturs-
dóttir, frú Eybjörg Guðmunds-
dóttir, frá Guðný Björnes, frú
Eygló Gísladóttir og frk. María
Maack.
Gismondi
togari i
Færeyjum
Khöfn í gær (FÚ.)
inn af nýjustu togurum í-
talska fiskkaupmannsins
Gismondi er nú kominn til
Þórshafnar og verður gerður út
þaðan.
Á skipinu verður færeyskur
skipstjóri og 20 manna fær-
eysk áhöfn.
Háskólinn svarar
kenslumálaráðherra:
Nýtt rit
Háskólaráðið liefir gefið út
rit, sem heitir „Háskólinn
og kenslumálaráðherrann“.
Er rit þetta svar við ádeilurit-
um þeim, sem Haraldur Guðmunds
son hefir gefið út gegn þessari
æðstu mentastofnun landsins. Ritl-
ingar þessir eru tveir, annar gef
inn út í fyrravetur, hjet „Háskól-
inn og veitingarvaldið“, en hinn
kom út í haust og heitir „Enn um
Háskólann og veitingarvaldið“.
Svo segir í inngangsorðum hins
nýútkomna rits háskólaráðs, að
hinn síðari ritlingur sje eftir Arn-
ór Sigurjónsson, fyrrum skóla-
stjóra. Segir svo í innganginum:
„Mun ráðherrann hafa talið
Arnór hafa bæði vit og þekkingu
til að rita um þetta mál, og til
að kveða upp, í valdi þessara
hæfileika sinna þá hörðu áfellis-
dóma, sem þar eru lagðir á knnn
ustu guðfræðinga landsins, og
einn mikilsmetinn prófessor við
Khafnarháskóla, og er þetta nógu
fróðleg vísbending um það, hvaða
mælikvarða yfirmaður kenslumál-
anna hjer á landi leggur á vit
og þekkingu“.
í þessu riti Arnórs er hælst um,
að háskólinn svaraði ekki fyrri
ritlingnum, og talað um, að slík
undanlátssemi hafi stafað af því,
að þeim háskólakennurum hafi
ekki þótt málstaður sinn sem best
ur. Með riti þessu; sem nú er
komið út, verður annað uppi á
teningnum, þar sem liver deild
Háskólans birtir sín rækilegu
svör, ’ þar sem viðskifti Háskól-
ans við veitingarvaldið eru rakin
Irð fyrir lið.
Síðan er sjerstakur kafli um
sjálfsákvörðunarrjett Háskólans,
og að lokum „ályktunarorð“, sem
birtast á öðrum stað h.jer í blað-
inu.
Ritið verður selt á götunum í
dag.
B.v. Júní frá Hafnarfirði var
tekinn í Slippinn í gær.