Morgunblaðið - 13.03.1938, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.03.1938, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 13. mars 1938. SAMEINING j Ltnz y’# I A\unch*n\ \*SaUburq . r(. j ■' Wmer Heisfad/ + Inmbruck ‘T/4/í‘n* J' TlRoL* r /< fl «a- r£/v 'úru\jX W^1|r| M ' ': V ^AV<Íytnfar,' ***xJLK*\T TÉKKosX Ou 'Y AAtint ur Múnchcn Kort af AustHrríki og nágrannaríkjum. ÞÝSKALANDS OG AUSTURRÍKIS Hitler flaug til Austurríkis í gær iflllllliillllltlllllllllllillllllllllllllllllllliillllHtlliiiiiiiiniiiiiiiir I Tímaskrá yfir I atburðina 1 í Vín 100 þús. manna þýskur her í Austurríki Frá frjettaritara, vorum. Frjettaritari Morgunblaðsins liefir gert eftirfarandi tíma- skrá um atburðina í Austurríki í fyrradag, eftir fregnum sem hingað hafa borist. dr. Schussnigg tekinn fastur Khöfn í gær. Eftir að dr. Schussnigg hafði lýst yfir að hann legði niður völd, skifti það engum togum, að nazistar hrifsuðu til sín vÖldin. Byltingin í Austurríki stóð í raun og veru ekki yfir nema nokkrar mínútur. Dr. Seyss-Inquart tók undir eins öll öryggismál og lög- reglumál í sínar hendur. ______ Nazistar gerðu áhlaup á aðalbækistöð Föðurlands- fylkingarinnar í Vín, tóku þá starfsmenn, sem þar voru fyrir fasta, rifu myndir af dr. Schussnigg niður af veggjum og tættu í sundur austurríska fán- ann. 1 Öll blöð, sem fylgdu dr. Schussnigg að málum voru gerð upptæk. Nazistar í Vín fóru hóp- göngur og blysför um borgina og stóðu fagnaðarlæti þeirra fram eftir allri nóttu. Fregnir herma að dr. Schuss- nigg hafi verið settur í svokall- að verndarfangelsi, en aðrar fregnir herma, að hann hafi verið fluttur til Þýskalands. Fjöldi manna, sem staðið hafa framarlega í andstöðumii gegn nazistum reyndu að flýja af landi burt til Tjekkóslóvakíu í nótt. Meðal þeirra var ekkja Dolfuss kanslara. Fullyrt er að Stahremberg fursti hafi verið tekinn fastur á flótta. Föðurlandsfylkingin, sem verið hefir eini stjórnmála- flokkurinn, sem leyfður hefir verið í Austurríki síðan 1933, hefir verið bönnuð. Stjórnin í Austurríki er þann- ig skipuð, að dr. Seyss-Inquart er kánslari, Gieis-Horsteman, er varakanslari, dr. Wolf er utan- ríkismálaráðherra og Neunmey- er er fjármálaráðherra. (FÚ.). öamla Bíó sýnir í kvöld spenn- andi leynilögreglumynd, „Ósýni- lega byssan“, sem Lew Ayres og Gail Patrick leika aðalhlutverkin í. „San Franeisco" verður sýnd á al- þýðusýningu kl. 6(4 og þá 1 síð- asta sinn. Þjóðstjóm í Frakklandi? London 12. mars F.Ú. Frakklandi er ný stjórn ekki komin á laggirnar en talið er víst, að Leon Blum muni Ijúka við að mynda stjórn sína nú um helgina og háfá ráð- herra-lista sinn tilbúinn á mánudag. Formenn ýmsra mið- flokka hafa tjáð honum stuðn- ing sinn. Enn gengur sterkur orð- rómur um það, að Leon Blum muni mynda þjóðstjórn. MINNISMERKI SNORRA STURLUSONAR Khöfn 12. mars. F.Ú. ormaður norsku Snorra- nefndarinnar, prófessor Johansen, skýrir frá því að nægilegt fje hafi nú safnast til þess að nefndin sjái sjer fært að koma upp minnismerki Snorra Sturlusonar í Reykholti. Hefir nefndin fengið hinn fræga norska myndhöggVara Gustav Vigeland til þess að gera minnismerkið. MAX BAER SIGRAÐI. London 12. mars F.Ú. eir hnefaleikameistararnir Max Baer og Tommy Farr börðust í gærkvöldi í New York og vann Baer sigur. Leikurinn var 15 lotur. Haukanes kom af veiður í gær. Khöfn í gær. AUSTURRÍKI hefir sameinast ÞYSKALANDI. í ræðu, sem HITLER FLUTTI í LINZ í AUST- URRÍKI í DAG, SAGÐI HANN, AÐ ÞEGAR HANN FÖR FÁTÆKUR OG UMKOMU- LAUS FRÁ AUSTURRÍKI FYRIR MÖRG- UM ÁRUM, HAFI HANN SETT SJER ÞAÐ MARK, AÐ SAMEINA AUSTURRÍKI ÞYSKA RÍKINU. ,,Þetta verkefni hefi jeg nú leyst“ hrópaði íhann og mannfjöldinn í Linz tók undir með dæmafáum fagnaðarlátum, se'm aldrei ætluðu að linna. Þjóðaratkvæðagreiðsla verður látin fara fram í Austurríki innan skamms um sameininguna við Þýskaland. KIRKJUKLUKKUM HRINGT. Þegar Hitler flaug yfir landamæri Austur- ríkis og Þýzkalands í morgun, var kirkjuklukk- um hringt um alt Austurríki. Dr. Seyss-Inquart tók á móti Hitler í Linz. Það er ekki bú- ist við að Hitler haldi innreið sína í Vín fyr en á morgun. Hundrað þúsund manna þýskur her fór í býtið í morgun yfir austurrísku landamærin, samkvæmt ósk dr. Seyss- Inquarts, kanslara Hitlers í Austurríki. Sækir herinn fram til suðurlandamæra Austurríkis við Tyrol og landa- mæri Júgóslafíu. Þýskar hersveitir eru komnar að Brennerskarðinu á landa- mærum Ítalíu. Hershöfðingi þýsku herdeildarinnar þar hefir sent herforingja ítala við skarðið s^eyti, þar sem segir að hann gleðjist yfir því, að vera nábúi við hersveitir „hinnar miklu ítölsku þ.jóðar“. BOÐSKAPUR HITLERS. London 12. mars F.Ú. Þýskar hernaðarflugvjelar hafa verið á flugi yfir Vín í dag. Hafa þær kastað niður flugmiðum þar sem fagnað er yfir stjórnarskiftunum, og væntanlegri sameiningu ríkjanna. í Berlín er sú skýring gefin á innrás þýska hersins (skv. F.Ú.) að hann eigi að aðstoða austurrísku stjórnina, til að halda ró og reglu í landinu, enda sje herinn sendur eftir beiðni dr. Seyss-Inquarts. Þýsk stjórnarvöld hafa tekið alla tollgæslu og vegabrjefa- skoðun í sínar hendur á landamærum Þýskalands og Austur- ríkis. Dr. Göbbels útbreiðslumálaráðherra Þýskalands las í dag upp í útvarpið boðskap Hitlers um þessa atburði. Þar segir Hitler að hann hafi viljað koma í veg fyrir að þjóðaratkvæða- greiðslan í Austurríki færi fram, vegna þess að hún hefði geí- ið fullkomlega ranga mynd af afstöðu þjóðarinnar til Þýska- lands. Ennfremur að í Austurríki sje sex miljónir þýskumælandi manna sem kúgaðar hafa verið af miklum minnihluta í mörg ár. Fátækt og eymd hafi farið vaxandi í landinu, en atburðir þeir, sem gerst hafi í gær, sjeu upphaf ráðstafana til að bæta úr því. Ástandið hafi verið þannig, að ómögulegt hafi verið að þola það lengur. Afskifti Þýskalands miði fyrst og fremst að því að skapa farsæld og frið í landinu. FRAMK Á SJÖTTU SÍÐI7 Dagmál: Fregnir berast til Austurríkis um, að hersendingar fari fram frá Múnchen til austúr- rísku landamæranna. Landamær- um Austurríkis við Salzburg er lokað eina klukkustund, síðan opnuð aftur. Hádegi; dr. Schussnigg býður út, varaliði frá 1915 til þess að gegna herskyldu strax. Sagt að varaliðið eigi að hjálpa til að halda uppi röð og reglu í land- inu, þar til þjóðaratkvæðagreiðsl- unni er lokið. Frá hádegi til kl. 5 e. h.: Miklas forseta berast úrslitakostir frá þýsku stjórninni. Ef ekki verði tafarlaust lýst yfir, að þjóðar- atkvæðagreiðslan skuli ekki fara fram, inuni þýskur her fara yfir austúrrísku landamærin. Kl. 5y2: dr. Schússnigg lætur lýsa yfir, að þjóðaratkvæða- greiðslunni sje frestað um óákveð- inn tírna. Frá kl. 5(4—7- Miklas forseta berast aðrir úrslitakostir: Þýskur her verður látinn fara yfir aust- urrísku landamærin ef ekki verð- pr innan þriggja stunda skipað- ur nýr kanslari, sem þýska ríkið tilnefni, og ný stjórn. Kl. 7. dr. Schussirigg lýsir yfir því í útvarpið, að Miklas hafi falið sjer að tilkynna austurrísku þjóðinni, að hann (dr. Schuss- nigg) segði af sjer, þvingaður til þess af ofurefli þýska hersins. „Guð varðveiti Austurríki". Kl. 7.10. dr. Seyss-Inquart hef- ir tekið að sjer bráðabirgðastjórn. Ilann segir í útvarpið, að þýðing- arlaust sje að reyna að veita þýska hernum viðnám, ef liann fari yfir austurrísku landamær- in. Þýski herinn komi til að forða blóðsúthellingum í Austurííki. — Skömmu eftir þetta sendir dr. Seyss-Inquart Hitler skeyti, þar sem hann biður um, að þýskur her verði seildur til Austurríkis til þess að halda uppi röð og reglu. Kl. ca. 7.40. Miklas forseti lýs- ir yfir því, að dr. Schussnigg fari enn með stjórn í Austurríki. Kl. ea. 8 e. h. Miklas forseti lýsir yfir því, að liann hafi skip- að dr. Seyss-Inquart kanslara. Frá kl. 8—2 eftir miðnætti. Nazistar í Vín fagna sigri. Fara hópgöngur um Vín, draga liaka- krossfánann á stöng á ráðhúsinu. í Graz, Innsbruck og Linz er hakakrossfáninn einnig dreginn 'að hiin. Rudolf Hess, staðgengill Hitlers kemur til Vín. Kl. 2 eftir miðnætti. dr. Seyss- Inquart hefir ráðuneyti sitt til- búið og ráðherralistinn er lesinn upp í austurríska útvarpið. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.