Morgunblaðið - 23.03.1938, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 23.03.1938, Blaðsíða 5
MiðvBuidagur 23. mars 1938. MORGUNBLAÐIÐ = PótpiiUaK)------------------------------------- Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjðrar: J6n KJartansaon og Valtý\' Stefánsson (ábyrgOarmaOur). Auglýsingar: Árnl Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgrelOsla: Austurstræti 8. — Slal 1600. Áskriftargjald: kr. 8,00 á mánuBl. f lausasölu: 15 aura eintakiO — 25 aura naet) Lesbök. LIÐSKÖNNUNIN Morgunblaðið hefir við og við ymprað á því síð- ustu dagana, að það væri Bæsta óviðfeldið að ráðuneyti Hermanns Jónassonar sæti uins og ekkert hefði í skorist, enda þótt Alþýðuflokkurinn liefði slitið allri stjórnarsam- vinnu og stórnin um leið kom- 5n í minnihluta í þinginu. Forsætisráðherrann hefir að gefnu þessa tilefnis vakið máls á þessu á Alþingi. Hann segir, að ástæðan til þess að hann baðst ekki lausnar fyrir alt ráðuneytið hafði verið sú, að stjórnin óttaðist að gerðardóms- lögin í togaradeilunni myndu valda erfiðleikum í fr&m- kvæmdinni. Stjórnin hefði því talið rjett að sitja uns sjeð yrði fyrir enda deilunnar. Nú væri hinsvegar lausn deilunnar að nálgast og kvaðst forsætisráð- 'herrann því telja tímabært að hefja eftirgrenslan um hið póli- tíska ástand í þinginu. Forsætisráðherrann gat þess, að hann hafi Iitið svo á að þingmenn væru yfirleitt sömu skoðunar og stjórnin hvað þetta snerti. Þeir hafi ekki hreyft neinum andmælum gegn setu stjórnarinnar og ekki einu sinni fundið ástæðu til að spyrja. * Um afstöðu þingmanna til stjórnarinnar er Morgunblað- inu ekki kunnugt. Hitt er vit- að, að stjómin hafði stuðning imikils meirihluta þings við af- greiðslu gerðardómslaganna, en sá stuðningur kom frá and- stöðuflokkum stjórnarinnar. Ekkert liggur fyrir um það, að þessir sömu flokkar hafi heit- ið stjórninni hlutleysi eða stuðning að öðru leyti og full- yrðir Morgunblaðið, að slílct hafi ekki átt sjer stað. Morgunblaðið er því enn sömu skoðunar og áður um það, að stjórnin hafi brotið grund- vallarreglu þingræðisins með því að sitja kyr, eftir að Alþýðu- flokkurinn sagði slitið stjórn- arsamvinnunni. Stjórninni bar skylda að biðjast lausnar strax er henni var ljóst, að hún hafði íekki lengur stuðning meiri- hluta þings. Stjórnin afsakar sig með því, ;að hún hafi talið líkur til þess, að gerðardómslögin kynnu að valda erfiðleikum í framkvæmd inni og þessvegna hafi hún tal- ið rjett að sitja kyr, því að með því gæti hún betur beitt sjer ef á móti blæsi. Hjer er stjórnin komin út á ákaflega tæpt vað, ef ekki í fullkomna ófæru. Því að ef stjórnin óttað- ist mótblástur gegn framkvæmd gerðardómslaganna, var henni vitanlega nauðsynlegt, að eiga vissan stuðning meirihluta þings, ekki aðeins í þessu máli, held- .ur sem ríkjandi stjóm í land- inu. Alt annað gerði stjórnina svo veika, að henni var ómögu- legt að beita sjer. Nú segir hinsvegar forsætis- ráðherrann, að liðið sje hjá það ástand, sem knúði stjórn- ina til að sitja, enda þótt hún væri ekki þingræðisstjórn, því að nú sje kaupdeilan leyst. Reyndar skilst manni, eftir síð- ustu samþykkt sjómannafjelag- anna, að alt annað geti verið uppi á teningnum. En sleppum því og höldum okkur aðeins að hinu, að forsætisráðherrann tel- ur, að nú beri að kanna hið pólitíska ástand og fá aftur þingræðisstjórn í landinu. * En hvernig verður sú þing- ræðisstjórn, sem nú verður mynduð? Framsóknarmenn fara ekki dult með það, bak við tjöldin á Alþingi, að þeir geti fengið hlutleysi eða stuðning Alþýðu- flokksins áfram, ef þeir óski þess. Þegar svo Framsóknar- menn eru um það spurðir, hvað valdi þessari breytingu á við- horfi Alþýðuflokksins, svara þeir litlu, velta vöngum, brosa og segja: Við höfum ýmislegt upp á að bjóða. Við höfum bankastjórastöðu, forstjóra- stöðu í Tryggingarstofnun ríkisins, bankaráðsstarf og ýmislegt fleira af slíku góðgæti. Við vitum hvað það er sem þeir sækjast eftir, vin- irnir í Alþýðuflokknum. Við þurfum ekkert að óttast þá. En gerðardómurinn? Ætlar þá Al- þýðuflokkurinn að sætta sig við hann? Því svara Framsókn- armenn á þann veg, að þing- menn Alþýðuflokksins sjeu fljótir að gleyma, þegar í boði eru feit embætti og stöður. Morgunblaðið efast fyrir sitt leyti ekki um það, að Fram- sóknarmenn lýsa hjer rjett sínum gömlu og nýju samherj- um í Alþýðuflokknum. Þeir þekkja best hugarfar þeirra og innræti. Nú hefst eftirgrenslan for- sætisráðherrans um hið póli- tíska viðhorf á Alþingi. Ætti ekki að þurfa að bíða lengi eft- ir niðurstöðunni. En fróðlegt verður að sjá hver útkoman verður, eftir að liðskönnunin hefir farið fram. Hvað er í pokunum? heitir bækl- ingur eftir Árna G. Eylands, sem nýlega er kominn út, og er tíunda smárit Áburðarsölu ríkisins. Er þar dregið saman það helsta sem bændur þurfa að vita um notkun og notagildi ábnrðar. Er öll frá- sögnin aðgengileg, eins og vænta má hjá Árna, sem bæði hefir allra manna mesta þekking á þessum efnum hjer á landi, og er vanur að útskýra fyrir almenningi það sem menn þurfa helst að vita í jarðrækt sinni. Unga I—Ivað verður um sveitirn- * * ar, þegar núlifandi bændur falla frá? Þessa spurningu leggja margir fyrir sig um þessar mund- ir. Blaðið átti tal við Jón bónda Jóhannsson frá Skarði í Dalsmynni hjer á dögunum. Hann sagði m. a.: Jeg er búinn að liugleiða þetta í mörg ár, og tel framtíðina ískyggilega. Meðan við endumst, sem nú böslum við búskapinn, fer alt skaplega, og helst í horfinu. En jeg sje ekki hvaða fólk verð- ur eftir í sveitunum til að taka við, þegar við föllum frá. Síðustu árin er það svo, að ekk- ert af unga fólkinu, að kalla má, tollir í sveitunum. Það flykkist í kaupstaðina, undir eins og það hefir færi til þess, flest til Reykja víkur, í allskonar atvinnuleit. Æskan og skólarnir. Oftast nær er saga unga fólks- ins þessi: Það fer á einhverja skólana. Búin kosta skólaveruna fyrstu árin eitt eða tvö. En þegar fram í sækir getur fólkið ekki fengið það kaup heima í foreldra- húsum yfir sumartímann, að það nægi til þess að greiða námskostn- aðinn að vetrinum. Og þá fara unglingarnir í atvinnuleit þangað sem þeir eiga von á liærra kaupi en við búskapinn heima. Og þá eru tengslin við föðurleifð og bú- skap venjulega rofin að fullu. Það er ekki nema eðlilegt og sjálfsagt, að fólkið, sem vex upp í sveitinni, vilji fá tækifæri til að afla sjer eins góðrar mentunar og fólkið sem elst upp í kaupstöð- unnm. En einhvernveginn er það svo, að skólarnir eins og þeir eru nú fyrir sveitafólkið, verða að einskonar útgöngudyrum æsku- lýðsins út úr sveitunum. Tiltölu- lega altof margt af því fólki, sem á annað borð fer í skólana, er tapað fyrir sveit sína, nema þá þeir sem sækja bændaskólana. Til þess að framtíð sveitanna megi kallast trygg, þurfa búin að geta staðið straum af þeirri ment- un unga fólksins, sem það óskar eftir og heimtuð er. En samtímis þarf afrakstur búanna að geta nægt til þess að hægt verði að koma á nauðsynlegum umbótum í byggingum og ræktun. Sveitir þurfa að bjóða sambærileR kjör. Það er ekki til neins að segja fólkinu að vera kyrru í sveitun- um, ef því finst að því líði betur annarsstaðar. Og bændur verða að geta greitt vinnufólki eða kaupafólki sama kaup, eða látið því líða eins vel og það getur búist við annars- staðar. Annars fæst ekki fólk í sveitirnar. Lengi vel var það svo með mig, og margir munu hafa brent sig á sama soðinu, að jeg streittist við að lialda kaupafólk eins og áður og slá allar þær engjar, er áður höfðu verið slegnar. En þetta fór alt í bölvun sína. Því afurðir búsins fóru að lieita mátti allar í kaupgreiðslurnar. Þegar jeg sá, að þetta dugði ekki lengur, tók fólkið flýr úr sveitunum Hvað tekur við þegar núlifandi bændur falla frá? jeg mig til og reif í sundur túnið og gerðj það vjeltækt og jók töðu- fallið. Svo nú þarf jeg ekki að slá nema sumt af engjunum, það skársta, og get sparað mikið kaup gjald um sláttinn. En svo er vetr- arhirðing fjárins. Við hana skrúf- um við okkur bændur og hirðum þetta 200 fjár kannske einn mað- ur ásamt öðrum búverkum. Með þessu móti getum við slampast af, síðan túnin voru bætt og töðufall- ið aukið. En þetta erfiðislíf er ekkert til að sækjast eftir. Þess- vegna fjölgar jörðunum, sem fara í eyði, vegna þess að enginn vill búa á þeim. Bankar og aðrar lán- stofnanir sitja uppi með eyðijarð- irnar og fá ekkert eða lítið sem ekkert, þegar vpðin, sem í jörð- unum voru, eru, orðiti arðlaus, er enginn er til þess að nytka jarð- irnar. Landauðn. Þannig er umhorfs í mínu ná- grenni. Við getum t. d. tekið Látraströndina. Hún er nú öll að fara í eyði, alt inn að Grenivík. Þetta þótti dágóð sveit. Nú verð- ur víst ein jörðin eftir í bygð, Svínárnes. Látrar fara í eyði í vor, að sagt er. Það var talin mik- il jörð hjer áður. Einnig er talið að Grímsnes fari í eyði. Áður voru þessar jarðir bygðar á ströndinni: Hringsdalur, Steindyr, Sker. Og þá er komið inn undir Grenivík. Og eklti nóg með það, að jarð- irnar fari í eyði, og liggi við land- auðn sumstaðar. Þar sem jarðir eru betur í sveit komnar, og eru höfuðból, er borið liafa stór bú, þar sitja stórbændurnir um færi að losna úr sveitinni, en efna- minni menn koma á jarðirnar, sem ekki hafa bolmagn til að halda búskap stóru jarðanna í sama liorfi og áður. Hvernig á það líka að vera, þegar búreksturinn ber sáralítið aðkeypt vinnuafl? Meðan, sem sagt, að bændur þeir, sem nú eru starfandi, end- . ast við þann einyrkjabúskap, sem nú er víðast rekinn, þá hjakkar þetta í sama farinu. En þegar þeir falla frá, er ekki sýnilegt að hin uppvaxandi skólaæska taki við jörðunum nándarnærri öllum. Túnræktin helsta leiðin. Hvaða ráð eru helst að forða sveitunum frá þessari yfirvofandi hættu ? Það er hægt að svara því í stuttu máli, þó svarið sje á engan hátt fullnægjandi. Afrakstur af vinnu manna í sveitunum þarf að verða meiri en hann er nú, svo búskapurinn geti orðið samkepnisfær við aðra at- vinnuvegi landsmanna í þessu til- liti, þegar alt kemur til alls. Færasta leiðin til þess er vitan- lega enn aukin og bætt ræktun. Ef túnin hefðu eltki stækkað og töðufall aukist síðustu 10—14 ár- in, þá væri víða hrein hörmung í sveitum og auðn, þar sem enn er baslað áfram. En hinn dýri og rýri engjaheyskapur þarf að geta horfið úr sögunni. Að vísu má bú- ast við því, að upp úr þessu verði ekki annað en hálfgerður einyrkja búskapur. En liann verður þó auð- veldari en hann er nú, enda erfitt að hafa margt kaupafólk á sumr- in, þar sem hægt er að koma við fullkominni vjelavinnu við hey- skapinn, því þá er bókstaflega of lítið að gera fyrir fólkið með sprettum. Erfiðleikar sauðfjárræktarinnar. Svo er annað, sem við bændur erum oft að hugleiða. En um það get jeg ekkert dæmt. En við spyrjum bara: Þarf kostnaðurinn við að geyma kjötið okkar og koma því á markað að vera álíka mikill og allur kostnaðurinn við framleiðsluna ? Okkur þykir lítið, að fá ekki í okkar vasa nema um kelming af því, sem neytendur gefa fyrir kjötið. Annars eru margir erfiðleikar á sauðfjárræktuninni um þessar mundir, og er það fullkomið á- hyggjuefni, hve mikil vanhöld eru á sauðfjenu, hve kvillasjúkt það er orðið hin síðari ár, að ógleymd- um vágestinum mikla, mæðiveik- inni. Og þó er mikið betur gert við fjeð nú, en var í mínu ung- dæmi, er því var ekki gefið, með- an það náði í jörð. Er ekki hægt að hugsa sjer, að vakin verði sú alda í sveitunum, að unga fólkið verði þar kyrt við búskapinn, af ræktarsemi og holl- ustu við sveitifnar? Jeg veit ekki. Þá þarf starf skólanna og tíðarandinn að breyt- ast mikið frá því sem nú er. En hitt væri það, að igjer finst óþarfi að gala eins hátt í fólkið eins og gert er nú, og lokka það burt úr fámenninu í glaumintí í höfuð- staðnum, t. d. með því að láta auglýsingar um 10—20 skemtanir á dag í höfnðstaðnum skella í hlustum þess me«T útvarpsgný og hljóðfæraslætti, rjett eins og þeg- ar liingað til Reýkjavíkur væri komið, væri ekkif um annað að ræða en dansleiki, gamansöngva og apaskil til afþreyingar ungn fólki og nýjungagjörnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.