Morgunblaðið - 08.04.1938, Qupperneq 2
2
MORGUNBLA^lt)
Föstudagur 8. apríl 1938.
Stauning ætlar
að koma f veg
fyrir verkfall
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Danskir sláturhúsaverka-
menn hafa samþykt
miðlunartillögu sáttasemjara
ríkisins í kaupdeilu sem var yf-
irvofandi í þessari atvinnu-
grein. Atvinnurekendur hafa
aftur á móti hafnað tillögu
sáttasemjara, sem lagði til að
kaup verkamanna yrði hækk-
að um 7 af hundraði.
Hætta er á að vinnustöðv-
un muni verða í kvöld í dönsk-
um sláturhúsum, en það mundi
hafa í för með sjer lamandi
áhrif á fleskútflutning Dana.
Forsætisráðherra Dana,
Stauning, hefir látið svo um
mælt, ,,að vitanlega verði kom-
ið í veg fyrir vinnustöðvun
þessa“. Ráðherrafundur verð-
ur haldinn um málið.
Blum-stjórn-
inni er ekki
hugað líf
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Engipn vafi er talinn á því,
að Blum-stjórnin muni
falla á f járöflunarfrumvarpi
Leons Blum, aðeins greinir
menn á um það, hvort hún
muni segja af sjer áður en til
atkvæðagreiSslu kemur í öld-
ungadeildinni um fjáröflunar-
frumvarp Blums, eða hvort hún
bíður eftir því að frumvarpið
verði felt í deildinni.
Fjáröflunarfrumvarpið var
samþykt í neðri málstofunni
með aðeins 60 atkvæða meiri-
hluta. Helmingur þingmanna
radikal flokksins greiddi at-
kvæði gegn frumvarpinu.
Lögreglan verndar
öldungadeildina.
London 7. apríl F.Ú.
Fjölmennar lögreglusveitir,
bæði fótgangandi lögreglunnar
og riddaralögreglunnar, hafa
verið settar umhverfis fundar-
stað frönsku öldungadeildar-
innar, þar sem sósíalistar hafa
hótað að fara þangað í kröfu-
göngu í kvöld, þrátt fyrir bann
yfirvaldanna.
Það var boðað til kröfugöng-
unnar með götuauglýsingum,
sem settar voru upp í nótt sem
leið, þar sem öidungadeildin er
kölluð „samkunda harðbrjósta
gamalmenna, sem hafa ekki
annan tilgang en að vernda
hagsmuni hinna 200 miljóna-
fjölskyldna Frakklands".
Ríkisskip. Esja fer frá Rvík í
kvöld kl. 9 í strandferð vestur og
norður um land. Súðin fer auka-
ferð til Breiðafjarðar kl. 9 annað
kvöld.
Vígbúnaöaráætlun Breta
IflllllflllllMHMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIHIIIIIimiNlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllimilllllllllllllllllllllllllllllllllll. ^ Jj j*
I Norræn samvinna og hlut- I 1 II 00 Illl
leysi Norðurlanda í ófriði ~~7
Frá frjettaritar* vorum' ^ ^ VfiQItð UtðIÍTIÍCÍSÍHÉlðSÍðfI)U
r" undur utanríkísmálaráðherra Norðurlanda, sem hófst M L ... I. _ „ I _ * .
í Osló þ. 5. þ. m. var á einu máli um það, að halda J1 ð |T| |1D||Q|||V
bæri Norðurlöndum utan við deilumál stórveldanna í ^ I M I M W M M
Evrópu. |
Þá var fundurinn einhuga með því að styrkja sam- |
vinnu Norðurlanda í hlutleysismálunum og undirbúa |
gagnkvæma fjárhagslega aðstoð allra hinna norrænu |
landa ef til stríðs kæmi.
Ráðherrafundurinn samþykti uppkast að endurbót- i
um á sameiginlegum hlutleysisreglum Norðurlanda. |
Fundurinn frestaði þó að taka endanlegar ályktanir í f
þessu máli, þar sem íslenska ríkisstjórnin hefir óskað þess |
1 að fá að taka til yfirvegunar möguleikana á því að setja §
samskonar reglur að því er ísland snertir.
Loks leggja ráðherrarnir til, að komið verði á fót f
sameiginlegu tímariti fyrir öll Norðurlönd, sem heiti „Le |
Nord“ og í ritj þessu verði umheiminum gert kunnugt, f
það sem Norðurlöndin hafa lagt til menningarlífs og al- =
þjóðlegrar rjettarfarslöggjafar.
llillllf1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111iliniliiiiaT
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Verkamenn í breska hergagna- og víg-
búnaðariðnaðinum halda fast við þá
kröfu sína, að stjórnin breyti um
stefnu í utanríkismálum, ef þeir eigi að leggja
nokkuð að sjer til að hraða vígbúnaði Breta. Þessi
afstaða verkamanna getur orðið til þess að mjög
seinki vígbúnaði Breta sem stjórn Neville Cham-
berlains hefir lagt svo ríka áherslu á að verði
hraðað sem allra mest.
Verkamenn hafa neitað að vinna eftirvinnu
nema stjórnin leyfi nú þegar vopnaflutning til
stjórnarinnar á Spáni.
Breska útvarpið skýrði svo frá um þessi mál í
gær (samkv. F.tJ.):
„Hreinsað til“
í Austurríki
London 7. apríl F.Ú.
frjett frá Vínavborg segir
að heilar járnbrautarlestir
fullar af pólitískum föngum,
hafi verið sendar með fanga til
fangaherbúðanna í Bayern.
Louis Rotschild baron og
annar meðlimur Rotschild fjöl-
skyldunnar einnig hafði verið
handtekinn, hafa nú verið látn-
ir lausir, en þeim hefir verið
vikið úr stjórn bankans, sem
Louis baron er eigandi að, og
bankinn setter undir stjórn
bankasambands Vínarborgar.
Forset kauphallaririnar í Vín
hefir verið vikið frá störfum
ásamt öðrum embættismönnum
við kauphöllina.
Bretar vilja aðstoða
flóttamenn.
reska stjórnin hefir til-
kynt Bandaríkjastjórn að
hún 1 jái stuðning sinn tillögu
Gordell Hulls um skipan nefnd-
ar til þess að aðstoða flótta-
menn frá Austurríki. Hafa þá
15 lönd ljeð þessu máli stuðn-
ing sinn. (FÚ).
ERKIBISKUPINN
AUSTURRÍSKI
HJÁ PÁFA.
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
usturríski erkibiskupinn,
dr. Innitzer hefir farið í
skyndiheimsókn til páfans.
Eftir samtal sitt við páfa hef-
ir biskupinn gefið út þá yfir-
lýsingu, að austurrískir biskup-
ar, sem styðja Hitler við þjóð-
aratkvæðagreiðsluna, bera ekki
hag kirkjunnar fyrir borð með
því þar sem þeir muni krefjast
að öllum ofsóknum nazismans
gegn kirkjunni verði hætt og
að kaþólska kirkjan verði lát-
in í friði með æskulýðsfjelög
sín.
Bók um Gunnlaug
Blöndal lístmálara
.
Hinn þekti danski listfræð-
ingur Christian Rime-
stad hefir gefið út bók um
Gunnlaug Blöndal listmálara,
með sýnishornum af mörgum
myndum hans. f bókinni er
einnig ýtarlegt lesmál, þar sem
Rimestad gerir grein fyrir því,
hve einkennilega sjálfstæður
listamaður Blöndal sé, þrátt
fyir áhrif bæði frá frönskum og
norskum málurum. (FÚ).
STÖRKOSTLEGT
SNJÓFLÖÐ í ÖXNA-
DAL.
Aðfaranótt 5. þ«3sa mánaðar
fjell snjóflóð yfir þrjú
samföst fjárhús rjett utan við
bæinn Varmavatnshóía í öxna-
dal. I húsunum var 90 fjár —
þar af náðust 20 kindur lifartdi,
en meira og minna meiddar, og
óvíst nema sumum verði að
lóga.
Um helmingur af fje bónd-
ans var í þessum húsum. Stórt
hey að mestu ósnerl stóð að
baki húsanna og sópaði snjó-
flóðið því gersamlega burfu.
Snjóflóðið var 10 metra þykt
þar sem grafíð var til húsanna.
Mikið af aur og grjóti barst
niður á túnið, og rná gera ráð
fyrir að mikill hiuti þess sje
eyðilagður fyrst um sinn. (FÚ).
AMERÍSK VÍSINDAKONA
TIL NORÐURHAFA.
meríska vísindakonan, miss
Boyd, hefir fengið leigt
norska skipið „Vesle Kari“ frá
Álasundi og ætlar liún að fara
rannsóknarleiðangur til Jaii Mav-
en, Grænlands og Sválbarða. —j
Skipið fer frá Álasnndi 11. maí ;
og verður 4 mánuði í förinni. Fl'.
Breska stjórnin hefir átt í
samningum við atvinnurekend-
ur, vjelfræðingasambandið og
verklýðssamtökin, um hröðun á
vígbúnaðarframkvæmdum í
Bretlandi, og hafa þeir samn-
ingar staðið yfir síðan daginn
eftir að Chamberlain flutti
ræðu síha um utanríkismál.
Landvarnarráðherrann, Sir
Thomas Tnskip, hefir beitt sjer
fyrir þessum samningaumleit-
unum, og gerir’ sjer vönir um að
þær beri góðan árangur.
Nefnd frá stjórn breska
verklýðssambandsins fór 1 gær
á fund Halifax lávarðar, utan-
ríkismálaráðherra Breta og fór
fram á það við hann að breska
stjórnin beitti sjer fyrir því, að
a,fnumin væru böft þau, sem
lögð hafa verið á vopnasölu til
stjórnarinnar á Spáni.
Enska vjelfræðingasamband-
ið lætur sig einnig þessi mál
skifta. I gær birti það áskorun
til breskra vjelfræðinga, að
starfa í frítímum sínum til
hjálpar spönsku lýðveldisstjórn
inni, með því að smíða vjelar
0 g flutningatæki, en enskir
vjelfræðingar hafa þegar smíð-
að nokkra sjúkrarvagna og
herflutningavagna og sent þá
til Spánar.
Verkfræðingasambandið skor
aði einnig á meðlimi sína að
hafa í huga að verja frístund-
um sínum til þess að búa sig
undir að veita samskonar hjálp
öðrum lýðræðislöndum í Ev-
rópu, sem síðar kynnu að verða
fyrir árásum af fasistiskum
ríkjum.
Verkamannaflokkurinn
vinnur aukakosningu.
Breski verkamannaflokkur-
inn vann aukakosningu í Tull-
hamkjördæmi sem fram fór í
gær. Fyrverandi þingmaður
kjördæmisins, sem er nýlátinp,
var íhaldsmaður.
Blöð verkamannaflokksins
leggja mjög mikið upp úr kosn-
ingasigri þessum (símar frjetta-
ritari vor í Höfn), og segja
blöðin að þjóðstjórnin breska
muni komast að raun um að
þannig íari víðar í Englandi.
Þetta var fyrsta kosningin til
þings síðan Eden ljet af störf-
um og síðan Chamberlain helt
ræðu sína um utanríkismála-
stefnu stjórnarinnar.
Ölvaður maður leikur
sjer að skotvopni
Lögregluþjónar, sem voru á
verði í Aðalstræti í g*i"
morgun heyrðu um kl. 6V2 skót-
hríð mikla og er þeir gættu að,
sáu þeir að skotin korr.u úr
glugga hússins Aðalstræti 9 C,
en þar býr Sæmundur Þórðar-
son. .
Lögregluþjónarnir fóru inn í
húsið og í herbergi það, sem
skotið hafði verið úr. Voru þar
inni þrír menn, allir mjög
mikið undir áhrifum víns og
ein stúlka, sem var söfandi.
Sæmundur Þórðarson, setn
hafði skotið út um gluggann
úr tvíhleyptri hagiabyssu-
Hafði hann skotið að minsta
kosti fjórum skotum út um
gluggann, beint upp í loftið.
Lögreglan tók hina ölvuðu
menn og setti þá í varðhald í
fangahúsinu. Sæmundur var
síðar í gær dæmdur í 100 króna
sekt og byssan gerð upptæk,
þar sem hann hafði tkki leyfi
iögreglunnar til að hafa byssu-
Sæmundur þessi er sagður
óstýrilátur með víni og muu
áður hafa leikio álíka hættu-
legan leik í ölæði.
Hestamannafjelagið Fákur held-
ur skemtun í OddfellowhúsinU
næstkomandi laugardagskvöld.