Morgunblaðið - 08.04.1938, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 08.04.1938, Qupperneq 5
Föstudagur 8.. apríl 1938. MORGUNBLAÐIÐ 5 s- $ ==== JRorigtmI)IaSíð-------------------------------— Útgeí.: H.f. Árvakur, Reykjavtk. Rltstjórar: J6n Kjartansson og Valt.ý\- Stefánsson (ábyrg0ar»aT5ur). Auglýslngar: Árnl Óla. Eitstjórn, auglýsingar og afgreiOsla: Austuratraetl 8. — Stasi 1600. Áskriftargjald: kr. 8,00 á mánuBi. 1 lausasölu: 16 aura eintaklt) — 86 aura naetl Lesbðk. SIGRAR OG ÓSIGRAR T tvö kvöld stóSu „vinstri“-menn á Alþingi í hnakkrifrildi sín á milli. Framsögumaður van- trauststillögunnar, Ólafur Thors, lagði megináherslu á það í ræðu sinni, að tillagan væri fram borin vegna þess, að Sjálfstæðismenn litu svo á, að hin nýja stjórn væri of veik, samvinna stjórnarflokk- anna væri meinum blandin. Forsætisráðherrann Hermann Jónasson vildi ekki heyra þetta nefnt, sagði að enginn fótur væri fyrir slíku. Síðan byrjaði „ballið“. Forsætisráðherrann ávítaði sinn fyrri samstarfsmann í ráðuneyt- imi, núverandi forseta Samein- aðs Alþingis, Haraldur Guð- mundsson svaraði með skætingi til Framsóknarflokksins. Síðan liarðn- aði deilan. Hinir raunverulegu líf- gjafar núverandi og fyrverandi vinstri stjórnar, kommúnistar, gátu ekki á sjer setið að velta sjer yfir þessa skjólstæðinga sína. Seinast kom Hjeðinn til sögunn- ar. Þá var alt komið í bál. Hlut- verk Ólafs Thors í vantraustsum- ræðunum varð fyrst og fremst að benda á, hve leiksýning þessi 'hefði farið vel. Hver þáttur rak annan. Með viðeigandi stígandi ofsa, sem náði hámarki, þegar þeir Alþýðuflokksmenn höfðu ekki tíma, til neins annars en skamma og úthúða hvorir öðrum. Og for- maður Framsóknarflokksins, Jón- as Jónsson, lýsti því kátíðlega yfir, að í framtíðinni bannaði hann hinum aumu og fyrirlitlegu sendi- sveinum Stalins að koma þing- mönnum Framsókónarflokksins á þing, eins og þeir hafa gert í Skagafirði, Rangárvallasýslu og víðar. * Daginn eftir að þetta var um garð gengið birti Dagblað Tíma- irnanna nokkur hughreystingarorð til flokksmanna sinna, þar sem talað er um, með talsverðu yfir- læti, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tapað fimm alþingiskosningum í röð, og sje nú orðinn vonlaus flokkur. Það mun vart óheppilegri dagur fundinn fyrir þá Framsóknar- menn, en þessi til þess að hælast um „ósigra“ andstæðinganna og „sigra“ 'þeirra vinstri manna eftir að almenningur um land alt hefir með eigin eyrhm hlustað á hvernig samkomulagið er orðið meðal „sig- urvegaranna“. En úr því þeir Tímamenn á ann- að borð minnast á kosningar und- anfarinna ára, er rjett að rifja aúðurstöður þeirra upp, þeim og öðrum til glöggvunar. Yið fyrstu almennu kosningar, sem fram fóru eftir að Sjálfstæð- isflokkurinn var stofnaður, árið 1931, fengu Sjálfstæðismenn 16891 atkvæði. Þrem árum seinna, árið 1934, hækkaði atkvæðatala flokks ins upp í 21974. Og á síðastliðnu sumri voru flokknum greidd 24132 atkvæði, þó hann þá væri í sam- vinnu við Bændaflokkinn, og Bændaflokkurinn liafi vafalaust fengið yfir 2000 atkvæði Sjálf- stæðismanna. Rannveruleg kjós- endafjölgun Sjálfstæðismanna á þessum árum hefir því verið 9—10000. Þetta er þá „ósigurinn“ og vonleysið, sem Tímablaðið tal- ar um. En hvernig líta svo sigrar Fram- sóknarflokksins út ? Árið 1931 fekk Framsóknar- flokkurinn 13844 atkvæði. En í fyrrasumar voru atkvæði flokks- ins 14556. Með öðrum orðum: Á sama tíma sem Sjálfstæðismönn- um í landinu fjölgar um 9—10000, fjölgar Framsóknarflokknum ekki nema um tæpl. 700. Árið 1931 fekk Framsóóknar- flokkurinn 35.9% allra greiddra atkvæða í landinu. En í surnar sem leið fekk Framsókn ekki nema 24,9%. Þetta er brautargengi Framsóknarflokksins. Fyrir 7- ár- um var 3. liver maður í landinu Framsóknarmaður. En í fyrra- sumar var það ekki fjórði hver maður er fylgdi flokknum. Á sama tímabili sem þessi stór- kostlega breyting varð á fylgi Framsóknarflokksins, stendst Sjálfstæðisflokkurinn öll áhlaup andstæðinganna, allar árásir, kjós- endaveiðar, launráð og rangindi vinstri flokkanna. 1931 voru það 43 kjósendur af hverjum hundrað, sem fylgdu Sjálfstæðisflokknum. En í sumar munu 44—45 kjósend- ur af hverjum hundrað hafa verið Sjálfstæðismenn. Kjósendatala Sjálfstæðisflokksins eykst stór- kostlega, um 9—10 þúsund, og hlutfallstala flokksins sömuleiðis, 'meðan alt sígur á ógæfuhlið í þessum efnum fyrir Framsókn. ¥ Hitt er annað mál, að enn getur Framsókn státað af því, að eiga 19 þingmenn. En þeim hættir til þess Framsóknarmönnum að gleyma því að að balri hverjum þingmanna þeirra eru aðeins 766 kjósendur, en fylgi Sjálfstæðis- manna í landinu er það mikið meira, að á balt við hvern Sjálf- stæðisþingmann eru 1419 kjós- endur. Því er það svo, sem kunnugt er, að Framsóknarflokkurinn ekki að- eins stjórnar með ranglæti, held- ur á hann valdaaðstöðu sína og tilveru ranglætinu að þakka. Slíkur flokkur er veikur flokk- ur. Stjórn sem hann skipar er veik stjórn. Þetta hefir þjóðin aldrei skilið betur en nú. Eini maðurinn, sem virtist við umræðurnar um daginn vera al- gerlega ómóttækilegur fyrir allan skilning á þessu máli, var sjálfur forsætisráðherraun Her- mann Jónasson. Umræðuefnið í dag: Stuðningur bæjarins við tog- araútgerðina. Frú Ásthildur Thorsteinsson Minningarorð Frú Ásthildnr Thorsteinsson verður jarðsungin kl. 1 í dag frá dómkirkjunni. Lík henn- ar var flutt í kirkjuna í gær- kvöldi. Ilún hafði lagt svo fyrir, að jarðarförin færi fram á þann liátt. * Haustið 1874, er Kvennaskólinn tók lijer til starfa í Reykjavík, var Ásthildur meðal hinna ungu námsmeyja, 17 ára gömul, dóttir síra Guðmundar Einarssonar að Breiðabólsstað á Skógarströnd. Fluggáfuð og næm á alt er fyrir augu hennar bar og eyru. Glæsi- leg ung stúlka. Hún kom frá fjöl- mennu menningarheimili í sveit. Faðir hennar, síra Guðmundur, var þingmaður, kennimaður ágæt- ur, fræðimaður í búskap einn hinn mesti samtíðar sinnar, mildur í skapi og góðgjarn svo orð fór af. Dóttirin erfði skapgerð hans. Eitt sinn er fundum okkar frú Ásthildar bar saman, sagði hún mjer frá þessari fyrstu fjarveru sinni úr föðurliúsum. Er hún kom þetta haust til liöfuðstaðarins, sem í hennar aug- um var þá mikil borg, bar bæj- arlífið enn svip af þjóðliátíð- arsumrinu. Hugir manna höfðu lyfst úr dvala við þá stórviðburði. Hátíðarsöngvarnir voru á hvers manns vörum. Hjer ríkti vor stórra nýrra framtíðardrauma. Það var auðheyrt, hvernig hin unga gáfaða prestsdóttir hafði tekið þátt í þessum vorfögnúði þjóðarinnar, skáldskapnum, söngn- um, framtíðardraumunum. Hún var sjálf fulltrúi vorsins hvar sem hún fór alla æfi. Meðan hún dvaldi hjer í Reykja vík notaði hún tækifærið til að heimsækja alla merkustu staði í nágrenninu. Hún fór að Bessastöð- um til Gríms Thomsen í fylgd með Gesti Pálssyni og fleira ungu fólki. Svo langt var þá til Reykja- víkur vestan úr Dölum, að hún taldi óvíst hvort hún myndi nokk- urn tíma, koma hingað aftur, að skólaverunni lokinni. Þegar lieim að Breiðabólsstað kom varð hún að taka til óspiltra málanna og kenna stúlkunum í sveitinni hannyrðir og annað er hún hafði lært í Reylijavík. Þann- ig liðu nokkur ár, að hún sat heima í föðurgarði. En árið 1880 giftist liún Pjetri J. Thorsteinsson. Hann hafði verið við Gramsverslun í Dýrafirði, en keypti nú Bíldudalseignina af erf- ingjum Hákonar Bjarnasonar. Þangað fluttu hin nýgiftu lijón. Þar var þá aðeins eitt íbúðarhús og það hrörlegt, og einmanalegra að mun var þar í upphafi búskap- ar þeirra en verið hafði hjá síra Guðmundi að Breiðabólsstað. Afburða framtak og dugnaður Pjeturs Thorsteinsson reisti Bíldu- dal á tiltölulega fáum árum. Sú saga er þjóðinni kunn. En ókunn- ugri er, þó landfleygur yrði, liöfð- ingsskapur og mannkostir hús- freyju staðarins, frú Ásthildar, konunnar, sem var sólskinið sjálft fyrir allan þanú mannfjölda er leitaði stuðnings, atvinnu og full- tingis hjá liöfundi Bíldudals, hin- um mikla framkvæmdamanni. Svo . J Frú Ásthildur Thorsteinsson. hefir kunnugur maður sagt mjer, er var um skeið á Bíldudal á þess- um árum, að hann hefði sjaldan komið svo í búð Pjeturs Thor- steinsson, að húsfreyjan hefði ekki verið þar, til þess að gefa þaðan eitthvað skjólstæðingum sínum. Og þegar haustaði að, var undir hennar umsjá sjerstakt forðabúr, sem hún hafði til vetrarhjálpar fyrir þá sem til hennar leituðn. Merkilegt var og með fádæm- um þrek þessarar konu. Hvernig hún með ljúfmannlegri festu gat stjórnað þeim mannfjölda, sem umhverfis hana var. Er árin liðu urðu börnin 11 í heimilinu, og mörg gamalmenni er þurftu sjer- stakrar umönnunar við, heimilis- fólk við húsbóndans borð 30— 40 manns, og 60—70 á hátíð- um, en heimilið í mörg ár gisti- hús fyrir fjölmennar sveitir, þeg- ar fólk kom í verslunarerindum eða til að „bíða eftir skipum“, sem oft dróg í tímann áður en síminn kom til sögunnar, og eng- inn vissi neitt fyrri. en skipin komu, kannske viku eða hálf- um mánuði á eftir áætlun. En á hinu mannmarga heimili ríkti stundvísi og regla, undir handleiðslu hinnar mildu húsmóð- ur, sem virtist hafa tíma til alls, og þrek svo óbilandi, að aldrei gætti þreytu nje kvíða. * Árið 1903 tók Pjetur Thorsteins- son sig upp frá Bíldudal og flutti til Danmerkur. Þá var togaraút- gerð að byrja. Ilonum þótti sem hann yrði of afskektur þar vestra. Og svo þurftu börnin að komast út í lieiminn. í sjö ár bjuggu þau hjón í Hellerup. Þá varð húsfreyjan eins konar erindreki þjóðarinnar úti þar. Heimili þeirra varð samkomu- staður íslenskra mentamanna. Hús- bóndinn var sem áður með hug- ann við sín umfangsmiklu störf. En frú Ásthildur var lífið og sálin í þessari nýlendu íslenskrar menn- ingar. orðin alllöng, átti að enda í æfin- týri. En eigi var fyrr komið hjer sögu, en skugga dró fyrir þetta alt. Pjetur Thorsteinsson anisti eigur sínar í hruni kreppunnar, er skall yfir eftir ófriðinn. Og þá kemur nýr kafli æfi þeirra: Ellin. I sjö ár átti frú Ásthildur sjer lítið heimili í grasi- grónum hvammi í Hafnarfjarðar- hrauni. Þar misti hún mann sinn árið 1929. Þá voru 6 börn þeirra dáin. En dóttursonur þeirra, Pjet- ur Jens varð þeirra heimilisljús. Gestkvæmt var í Gerðinu þeirra í Hafnarfirði. Þangað komu menn af öllum landshornum til að þakka þeim hjónum fyrir gamalt og gott á starfsárum þeirra. Þangað komu ungir og gamlir til þess stund og stund að fá að hlýða á liina marg- fróðu konu, sem með hlýleik og spaugsemi gladdi alla, fræddi alla um liðna tíma og átti í hugskoti sínu ótæmandi sjóð sagna og kvið- linga frá lindum íslenskrar sveita menningar. Þar var liúsbóndinn orðinn ferðlúinn eftir langt erfiði. En í hinu. fámenna litla heimili þeirra, síðasta áfanga þeirra, benti hin hlýja glóð innilegrar sambúð- ar, gestum þeirra á, að í raun og veru myndi húsmóðirin hafa verið virkur þátttakandi í öllum hana miklu fyrirætlunum og fram- kvæmdum fyr á æfinni. * Jeg kyntist frú Ásthildi sem gamalli konu að árum. En svo var hún ung- í anda, að hver mátti öfunda hana af, á hvaða aldri sem var. í hvert sinn sem jeg átti tal við hana, dáðist jeg að glaðværð hennar, fróðleik og manngæsku. Þó hún yrði fyrir þyngstu hörm- um og sárustu sorg, var sem lífs- gleði hennar og sálarþróttur bryt- ist gegnum hvert skýjaþyknið af öðru, það var eins og hvert tára- regn yrði að gróðrarskúr fyrir hið rílta sálarlíf hennar. , Vart hefi jeg nokkurn fyrirhitt, hvorki karl nje konu, sem mjer hefir virst eins og hún vera í eigin persónu fulltriii fyrir ákveð- inn þátt í menningarsögu þjóðar- innar. Kunnleiki hennar og næmi á kveðskap var með afbrigðum. Alt sem hún heyrði af því tagi lærði hún. Hún kunni jafnt það sem hún hafði numið sem barn og það sem hún heyrði í útvarpinu, er hún var áttræð að aldri Hið frábæra minni manna og áhugi fyrir andleg um efnum hefir, sem kunnugt er, lýst þjóð vorri gegnum myrkur anna. Þarna var konan, sem var bæði ættmóðir og andleg fóstra þeirra, sem hún þekti og umgekst. Eitt sinn heyrði jeg hana kom- Bövnin tvístruðust brátt. Eftir^ svo að 0).ði um veru sína 4 B'íldudal, að hún kunni því altaf 7 ár fluttu þau hjónin til Reykja- víkur. Og enn að sjö árum liðnum leiddi Pjetur Thorsteinsson konu sína í einhver þau glæsilegustu húsakynni sem þektust á landi hjer. Þetta skyldi vera heimili liennar. Iljer skyldu þau njóta kvöldsólarinnar. Hin mikla starfs- æfi þeirra beggja, sem þá var illa, hve sól gengur þar snemma til viðar. Svo mikil var ást, hennar á sólarljósinu, að það mat hún meira en hverja aðra tímanlega velgengni. Aldrei vissi hún það, hve mikill FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.