Morgunblaðið - 24.04.1938, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.04.1938, Blaðsíða 5
Sunnudaginn 24. apríl 1938, -------' JfflcrtgmtMafóð--------------------------- Útget.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjðrar: Jön KJartansson o* Valtjr Stefinsaon (AbyrgCarmatJur). Auglýsingar: Árnl Óla. Rltstjörn, auglýslnear og afgTelCala: Auaturatrsetl I. — Slaal 1600. Áskriftargjald: kr. t,00 á aaánuCl. í lausasölu: 16 aura elntaklC — 26 aura aeO Laabök. GOÐÆRl Svo er komið, vegna langvar andi óstjórnar í okkar landi, að þess gætir orðið sára- Jítið, hvort hjer er góðæri eða illæri. Þegar góðæri kemur, sjer stjórnin um það, að úr því verð- nr illæri. Glögt dæmi þessa er síðastlið- ið ár. Þá færði síldveiðin þjóðar- búinu um 10 miljónir í erlend- um gjaldeyri umfram það, sem þessi atvinnuvegur hafði mest gefið áður. Samt varð útkoman sú, að þjóðarbúskapurinn var raunverulega rekinn með tapi, því að mikið skorti á, að greiðslujöfnuður næðist við út- lönd. Ef vel og viturlega hefði verið stjórnað undanfarin ár, er vístj að síðastliðið ár væri í tölu i góðæranna. En óstjórnin í landinu kom því þannig fyrir, að þjóðin varð fátækari eftir ár- ið. ★ Fjármálaráðherrann hefir við hver áramót verið að hæla sjer nf „föstum tökum“, sem hann tæki á gjaldeyrismálunum. En í hverju hafa hin „föstu tök“ fjármálaráðherrans verið fólg- in? Þau hafa aðallega verið fólg- in ’ í misbeitingu innflutnings- haftanna og ranglæti við úthlut- un erlends gjaldeyris. Þegar kaupmannastjettin hef- ir átt í hlut, hefir ekki á skort „föst tök“ hjá fjármálaráðherr- anum. Þá hefir innflutningur- inn miskunnarlaust verið skor- inn niður og ekkert hirt um af- komu þess fólks, sem hefir haft atvinnu við verslanir kaup- manna. En þegar svo röðin kom að kaupfjelögunum og neytendafje- lögunum, þá varð alt annað uppi á teningnum. Þá kom höfðatölu- reglan til sögunnar, sem fjár- málaráðherrann fann upp og varð þess valdandi, að innflutn- ingurinn til kaupfjelaga og ney tendafj elaga óx að sama skapi og hann minkaði hjá kaup- mönnum. Um úthlutun gjaldeyrisins þarf ekki að fjölyrða. Þar hafa kaupfjelög og neytendafjelög einnig notið sjerrjettinda. Þau hafa ekki þurft að fá á sig stimpil vanskila og óreiðu, eins <og kaupmennirnir. Þau hafa fengið nægan gjaldeyri og alt- af getað staðið í skilum. Kaup- mennirnir hafa hinsvegar aðeins fengið góð orð um gjaldeyri eft- ir svo eða svo langan tíma. En svo hefir enginn gjaldeyrir ver- ið til, þegar gjalddaginn kom. Fyrir þessi brigðmæli er nú svo komið fyrir kaupmanna- stjettinni, að hennar erlenda lánstraust er glatað, traustið, sem tók hana áratugi að afla sjer. Enginn veit hvað það kemur til að kosta þjóðina, að þetta lánstraust er glatað, en - ILLÆRl svo mikið er víst, að fjármála- ráðherrann verður aldrei maður til að bæta það tjón. ★ Stjórnarflokkarnir eru í þann veginn að leggja síðustu hönd á afgreiðslu fjárlaganna fyrir ár- ið 1939. Þessi fjárlög verða langsamlega þau hæstu, sem sjest hafa og ætlar fjármálaráð- herrann hjer ekki að bregðast vana sínum. Síðan hann tók við stjórn fjármálanna hefir hann á hverju ári sett nýtt met í útgjaldahæstu fjárlögum. En þjóðin mun nú eiga von á fleiru en þessum hæstu fjár- lögum. Það er fullyrt, að stjórnarflokkarnir sjeu nú mjög á hnotskóg eftir nýjum sköttum og tollum og að þeirra sje að vænta í þinglokin. Með svona ráðsmensku er auðvelt að snúa góðæri í illæri. í Tímanum, sem út kom á fimtudaginn var er gefið í skyn og haft eftir fjármálaráðherr- anum, að svo geti farið, að ó- hjákvæmilegt verði að taka gjaldeyrislán á þessu ári. Engum kæmi það á óvart, að fjármálaráðherrann ætti eftir að stíga þetta spor. Það er bein af- leiðing allrar hans ráðsmensku og óstjórnar á undanförnum ár- um. En hvað sem fjármálaráðherr- ann á eftir að gera í þessu efni eða öðru, er hitt víst, að þjóðin verður að sætta sig við að búa við illæri, meðan núverandi stjórnarflokkar fara með völd í landinu. Því að þótt góðæri komi, tekst stjórnarflokkunum áreið- anlega framvegis sem hingað til, að snúa því upp í illæri. ★ En hve lengi? Hve lengi verð- ur þjóðin að þola þá óstjórn í landinu, sem ríkt hefir og enn ríkir ? Hefir þjóðin ráð á að hafa áfram í landinu stjórn, sem snýr góðærum í illæri? Hefir hún nokkra möguleika til þess, að taka enn á ný á sínar herðar auknar byrðar skatta og tolla? Nei, þjóðin hefir ekki ráð á þessu. Henni er langsamlega um megn, að rísa undir þeim byrðum, sem hún nú er látin bera, hvað þá að bæta nokkru við. Blindir mega þeir vera, vald- hafarnir, ef þeir ekki sjá það, að alt er að hrynja í rúst í hönd- um þeirra. Og blind má þjóðin vera, ef hún ekki ennþá sjer hvert stefnir. Umræðuefnið i dag: Togarinn til Reykvíkinga. Fanginn á Zenda, hin fjölsótta mynd, sem sýnd hefir verið í Nýja Bíó, verður nú sýnd í Hafnarfjarð- ar Bíó, en aðeins tvö kvöld, því að lengur fæst hún ekki. MORGUNBLAÐIÐ g -- Heyhjavíkurbrjef - -------- 23. April. --- Vertíðin. íðastliðna viku hefir ræst úr aflanum, og hann verið meiri cn nokkra viku á vertíð- inni í fyrra, hæði í Vestmanna- eyjum og eins jafnvel á togarana, sem verið hafa á Selvogsbanka við Hraunið. Þó er aflinn sagður æðimisjafn bæði á togarana og Vestmannaeyjabáta. I fyrri viku voru menn farnir að óttast, að alls engin aflahrota myndi koma á ,,Bankann“ að þessu sinni. En svartsýni manna í þeini efnum muu m. a. hafa stafað af því, að menn töldu orð- ið svo áliðið, að hrygningartími væri að miklu leyti liðinn hjá, en Bankinn hefir verið talinn eitt merkasta hrygningarsvæði þorsks ins. Þórsleiðangur. rni Friðriksson og’ Finnur Guðmundsson fóru i rann- sóknrleiðangur á Þór um fyrri helgi, til að svipast eftir þorsk- miðurn fyrir Vesturlandi, með það fyrir augum, að hin venju- lega Selvogsbanka-ganga hefði truflast, og þorskurinn leitað á óvenjulega staði. Ferð þessi tókst ekki sem skyldi. Þór er of lítið skip í slílt- ar ferðir. Veður var líka óhag- stætt. En eitt fundu þeir fjelag- ar, sem máli skiftir. Sjávarhitinn við botninn var í mesta lagi 6° á Celcius. Hryfíningin. orið 1934 gekkst Árni fyr- ir því, að athugað væri á togurum í aprílmántlði hver sjáv- arhiti væri við botninn, þar sem þorskurinn veiddist. Þá kom í ljós, að því nær allur aflinn fjekkst þar sem botnhitinn var 6y2—7%° Celcius. M. ö. o., þctta er kjörhiti þorsksins til hrygn- ingar. Sje sjórinn kaldari fram á venjulegan hrygningartíma, má búast við að hrygningin dragist. Nú hefir botnhiti verið mældur á Selvogsbanka og reynst að vera 6.8° á Celsius. Að hrygningin hafi dregist að þessu sinni sjest líka á því, að sjómenn urðu þess mjög varir, að mikið meira bar á lirygnum en svilfiskum í aflanum áður en afli fór að glæðast. En þegar hrygning er byrjuð og togaraafli eykst að mun veið- ist jafnan meira af svilfiski en hrygnum, af alveg eðlilegum á- stæðum. Því hrygningin fer fram á þennan hátt: Svilfiskurinn er við botninn en hrygnurnar spöl upp í sjó. Hrognin eru eilítið þyngri en sjórinn, er þau koma úr hrygn unum, og leita til botns. Þannig mætast hrogn og svil. En þau lirogn, sem frjóvgast verða við það ljettari en sjór og fljóta þá upp á yfirborðið. En hin ófrjóvg- uðu falla til botns. Ungi fiskurinn. kki er það rannsakað enn, svo fullyrt verði neitt um það, hve mikla hlutdeild 7—9 ára gamli þorskurinn á í aflanwm síðan hann jókst, á „Bankanum" og við Eyjar. En mælingar t. d. á Hornafjarðarþorski og eins á afla í Keflavík á þessari vertíð, sýna að þessir ungu aldursflokk- ar eru fyrirferðamiklir í aflanum. Framan af vertíð var t. d. afla- laust að kalla á Hornafjarðar- báta. Þ. 21. mars veiddust 20 fiskar á 1000 öngla, að því er skýrslur herma, er Árni hefir feng ið. Þá var sama sem allur aflinn golþorskur. En þ. 8. apríl veiddist 134 fiskar á 1000 öngla. Og þá var stærðin alt önnur en fiskurinn af árgöngunum 1929;—1934. Alveg óvenjulegur afli hefir verið hjer inn í Sundum og á TTvalfirði. Er það aTt saman ung- ur fiskur. Bendir yfirleitt margt til þess að mesta fiskiieysið að þessu sinni, sje nú liðið hjá, þó vertíðin væri lengi vel rýr. Tvær megin orsakir hafa með- al annars getað valdið því, liin mikla Toðnuganga, er gerði það að verkum að þorskurinn var á óvenjulegum, slóðum og upp í sjó fram eftir öllu, og e. t. v. óvenju- Tega lágur botnliiti á lirygning- arsvæðinu. En búast má við, að „banka- fiskiríið“ verði ekki Tangt, því svo er áliðið orðið. Þess vegna væri það ákaflega æskilegt og í raun og veru sjálfsagt, að einn af hinum öflugustu togurum yrði fenginn til þess að hefja fisikleit nú þegar til leiðbeingar fyrir aðra um það hvort afli væri t. d. fyrir Vestfjörðom eða annars staðar þar sem von er á fiski, er kemur fram á vorið. Frá Grænlandi. jer var nýlega á ferð græn- lenskur maður Chr. Lynge að nafni. Hann er ritstjóri að því eina blaði, sem gefið er út á græn- lensku. Hann kom hingað í kynn- isför, en hafði mjög stutta viðdvöl að þessu sinni. Hann sagði þeim, er þetta ritar margt um hagi Grænlendinga og landshætti. M. a. skýrði hann frá því, að menn, sem ekki væru gagn ltunnugir þar vestra, vildu ekki trúa því, hve mikill munnr væri á þorskgöngum þar. Á fyrstu árun- um eftir aldamótin hefði hann sem unglingur stundað þar sjó. En þá hefði það þótt viðburður ef menn veiddu einn og einn þorsk. En á síðnstu 10—20 árum hefði þorskur veiðst þar í stórum stíl, sem kunnugt er. Hve lialdgóður verður sá afli? Það er annað mál. Þorskurinn fer víða. Það eru menn altaf að sjá betur og betur, og því full þörf á því fyrir þá sem byggja mikið á honum, að fylgjast sem best með göngum hans. Nýlega hefir fundist þorskur austur í Barentshafi, fyrir norðan Rússland, sem merktur var við V estur-Grnuiland. Fyrsta „hersýningin“. málgagni kommúnista var kom- ist svo að orði þ. 14. apríl: „Fyrsta maí verður hersýn- ing samfylktrar alþýðu“. Minna má nú ekki gagn gera hjá þeim Moskvamönnum. Hersýn- ing skal það vera, sú fyrsta, erhjer hefir verið haldin síðan á Sturl- ungaöld, nema ef telja skal með, dátana, sem danski einvaldskon- ungurinn sendi til Kópavogsfund- ar. 1 sömu grein er sagt frá lilút- verki „Moskvahersins". Hann á að berjast „fyrir óskertum samtaka- rjetti alþýðunnar.“ Enn er sagt í sömu grein frá því, hvernig ástandið er nú í „hinum smærri kauptúnum austanlands og vestan* ‘. Þar „ríkir hreint hungurástand" segir blaðið. Það mun þá vera svo, að hung- urástand getur skollið yfir, þó samtakarjetturinn sje alveg ó- skertur. Því bæði í hinum smærri kaupstöðum og kauptúnum, jafnt sem hinum stærri, hafa menn vissulega haft fullan rjett til allra þeirra samtaka er þeir vilja. Og svo á það að vera. Það er skynsemin og frjáls viljí hvers einstaks manns, sem á að ráða því, í hvaða samtökum hann er. Vígbúnaðurinn. igi er blaðinu kunnugt um víg- búnaðaráform þeirra Moskva manna fyrir fyrsta maí. En telja má víst, að fylgismenn Hjeðins Valdimarssonar verði í sömu liðs- sveit. Því það er fullvíst, að starf Hjeðins og styrktarmanna hans er fyrst og fremst það, að leggja sem mest af Alþýðuflokkuum, eða hann allan undir Moskvavaldið. Og þá búast þeir lierrar við því, að þurfa ekki lengur að vera í vopnahraki, því morðtólaframleiðslan er í full- um blóma þar eystra, þó hungur- ástandið sje ekki minna þar, en í hinum íslensku kauptúnum, þar sem rauðliðar hafa ráðið undan- farin ár. En nefndirnar eru orðnar tvær eða þrjár, hjer í bænum, sem eiga að undirbúa „hátíðahöldin“ 1. maí, þ. e. nefnd, sem Haraldardeildin liefir skipað, nefnd, sem Hjeðins- deildin liefir skipað og svo vafa- laust nefnd Moskvamanna. Hvert stefnir? lþýðuflokkurinn er klofinn í tvent. Bæði flokksbrotin þykj- ast hafa unnið að bættum kjörum verkalýðsins. Báðir þessir aðilar eiga sammerkt í því, að þeir hafa stuðlað að því, að kjör verklalýðs- ins hafa versnað. Þetta vilja ekki foringjar flokks brotanna sjá. En það er alveg á- reiðanlegt, að aldrei líður sá dagur að blæjan detti ekki af augum margra fyrverandi liðsmanna só- síalista. Málið er of einfalt til þess að hægt sje að dylja þann sann- leika, að árstekjur manna rýrna við að tímakaup og dagkaup verð- ur hærra en framleiðsla landsins getur risið undir. Sje kaupið skrúf- að upp úr sannvirði vinnunnar minkar atvinnan, atvinnuleysið, vandræði almennings vaxa. Þátttakan í „hersýningunni“ 1. maí á að sýna hve margir það eru, sem enn fylkja sjer undir fána só- síalista og kommúnista, þá fána, sem bornir eru í fararbroddi norður og niðnr. En þeir, sem á annað borð vilja bindast s'amtökum um að vera sjálfs síns böðlar og íslenskra fá- tæklinga, þeir eiga vitaskuld að hafa fult frelsi til þess. Ekkert nema heilbrigð skynsemi getur bjargað þessari þjóð iit úr örðug- leikum hennar. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.