Morgunblaðið - 01.07.1938, Page 3
Fostudágnr 1. júlí 1938.
MORGUNBLAPIÐ
S
Hvað líður
Hvað líður lántökunum?
Þessi spurninsr ber oft
á góma manna á meðal um
þessar mundir.
Svo sem kunnugt er dvelja
nú sendimenn hjeðan grlendis,
þeirra erinda, að taka þar tvö
gtórlán, ef fáanleg eru með að-
gengilegum kjörum.
Annað lánið á að taka fyr-
ir ríkið, að upphæð alt að 12
milj. kr. Lán þetta á að nota
til þess að greiða vexti og af-
borganir af þeim lánum, sem
fyrir eru, þar ,eð sýnt þótti, að
ríkið hefði ekki nægan gjald-
eyri til þess að standast þær
greiðslur. Magnús Sigurðsson
bankastjóri dvelur nú erlendis
til þess að taka þetta ríkislán,
en engar fregnir hafa frá hon-
um borist ennþá.
Aðalgjalddagar á erlendum
lánum ríkissjóðs eru tveir, 1.
júlí og 1. október. Það er því í
dag, sem ríkið á að greiða all-
etóra fúlgu erlendis, í vexti og
afborgun af erlendum lánum,
og að sjálfsögðu fer sú greiðsla
fram, þótt ekki sje búið að
taka nýja lánið.
Hitt erlenda stórlánið, sem
nú er verið að reyna að fá er-
lendis, er lán Reykjavíkurbæj-
ar til hitaveitunnar. Borgar-
stjórinn dvelur ytra þeirra er-
inda, að fá Ján til hitaveitunn-
ar og er ætlunin að reyna að
fá það í Svíþjóð.
Svo sem kunnugt er kom
hingað í vor sænskur verkfræð-
jngur, til þess að kynna sjer
hitaveituna. Hann átti ávo að
gefa skýrslu um málið, sem
væntanlegir Jánveitendur styðj-
ast við.
Það mun hafa dregist ,eitt-
hvað lengur en ráð var fyrir
gert í upphafi, að skýrsla verk
fræðingsins kæmi. En eftir þeim
fregnum, sem Morgunblaðið
hefir fengið, mun skýrslan
væntanleg nú í byrjun þessa
mánaðar. Ætti því bráðlega að
fást úr því skorið, hvort að-
gengilegt lán fæst til hitaveit-
unnar.
NORRÆNT FIMLEIKA-
MÓT Á ISLANDI?
Sjöunda mót norrænna fim-
leikamanna (Nordisk Gym
nastik Forbund) er haldið í
Helsingfors um þessar mundir.
í mótum þessum taka þátt fim-
leikamenn frá öllum Norður-
löndum (nema Islandi, að þessu
sinni). í. S. % er fjelagi í Nor-
disk Gymnastik Forbund.
Skv. FtJ. fregn í gærkvöldi
hefir verið samþykt á mótinu
í Helsingfors að leita hófanna
um það, að næsta mót fimleika-
manna yrði haldið á Islandi.
Er ráðgert að leigja stórt skip
til fararinnar, ef úr þessu verð-
ur.
Þjóðverjarnir ætla að keppa
við úrval úr K. R. og Fram
Keppa við Víking í kvöld
Fararstjóri þýska knattspyrnuflokksins, dr, Er-
back tilkynnti formanni móttökunefndar,
Gísla Sigurbjömssyni í gærdag, að Þjóðverj-
amir væra fúsir að leika fimta leikinn, en ekki hafði verið
samið nema um fjóra.
Mótttökunefndin tók þessu boði fegins hendi og fer
fimti leikurinn fram kl. 8 n. k. miðvikudagskvöld. Frá
íslendingahálfu leikur þá úrvalslið úr K. R. og Fram.
Þi-iðji leikurinn við Þjóðverjana fer fram í kvöld og keppir
annað besta fjelagið frá íslandsnlótinu, Víkingur, við þá. Mun mörg-
um leika forvitni á að sjá hvernig sá leikur fer.
Hervörður við
uppskeruna
Forspjald Eyjaskiimu.
Byggingarmál
Gagnfræðaskól-
ans I Vest-
mannaeyjum
Asíðastliðnum vetri hóf-
um við kennarar og
íemendur Gagnfræðaskólans
Vestmannaeyjum fjársöfn-
un í byggingarsjóð skólans.
Við viljum með sjóði þeim verða
þess megnug, áður en mörg ár
líða, að geta lagt „hornsteininn“
að gagnfræðaskólabyggingu kaup
staðarins, og ýtt þannig nndir, að
hafist verði handa um það, að
byggja yfir skólann. Jafnframt
viljum við, að væntanlegur hús-
mæðraskóli kaupstaðarins geti
eignast þar samastað og barna-
heimili Eyjabúa að sumrinu.
Þetta fjársöfnunarstarf okkar
mætti þegar í byrjun velvilja og
skilningi Eyjabúa. Það er okltur
hvatning til meira starfs fyrir
þetta velferðar- og menningarmál
æskulýðsins í Eyjum og allra, er
þar búa.
Við höfum í þessn skyni látið
gera prýðilega vel gerða bók. Blöð
hennar eru úr íslensku sauðskinni,
sem er sútað í skinnaverksmiðj-
unni Iðunn á Akureyri. Að öðru
leyti er bókin gerð af fagmönn-
um í Eyjum. Á bókinni eru spjöld
FRAMH. Á SJÖUNHU SÍÐU.
Þjóðverjar vilja augsýnilega
ekki hætta neinu og setja fram
sinn besta mann, Hohmann, þjálf-
ara og styrkja sjerstaklega fram-
línuna og bakverðir og markvörð-
ur verða þeir sömu og á fyrsta
leiknum. Lið Þjóðverjanna verður
þannig skipað:
Þjóðverjar
Jentzsche
Liidecke Bertram
Lurz Althoff Voss
Kraft Peschel
Hohmann Lindemann Linken
★
Þorsteinn Björgvin Bj. Haukur
Ingólfur Magnús Bergst.
Brandur Björgvin Schram Ólafiír
Hjörtur Gunnar
Ewald Berndsen
Víkingur
Eins og sjá má af þessu liði,
fær Víkingur „lánaða“, markvörð
og miðframvörð frá K. R. og hægrí
útframherja frá Val. Víkingur héf
ir því tekið sama ráð og Valur að
styrkja lið sitt.
Dómari verður Guðjón Einars-
son.
Á Þingvöllum.
í gærmorgun skoðuðu þýsku
knattspyrnumennirnir söfnin í
bænum og eftir liádegi fóru þéir
í boði ríkisstjórnarinnar til Þing
valla. Fengu þeir sæmilegt verð-
ur, en nokkuð hvast. Fulltrúi rík-
isstjórnarinnar var Magnús Vigpir
Magnússon, en í förinni voru for-
seti f. S. I., Ben G. Waage, for-
menn knattspyrnufjelaganna og
fulltrúar í K. R. R. Gengið var um
vellina og sögustaðir skoðaðir og
á eftir var miðdegisverður í Val-
höll. Tót
í boði Kveldúlfs.
í fyrradag var knattspyrnumönn
unum boðið að skoða fiskverkun-
arstöðvar Kveldúlfs og hina nýju
niðursuðuverksmiðju S. I. F. For-
stjórar Kveldixlfs, Richard, Haukur
og Thor Thors tóku á móti knatt-
spyrnuniönnunum og buðu þeim td
kaffidrykkju á Hótel Borg. Thor
' Jl )
Tliors ávarpaði þar gestina. D,L
Erback þakkaði með ræðn og þakk
aði góðar viðtökur og mikla gest-
risni. Að lokum gaf Kveldúlfuv
knattspyrnumönnunum Egils sögu
Skallagrímssonar. u?
í dag fara Þjóðverjar í Hafn-
arfjörð og víðar um nágrennið í
boði Morgunhlaðsins.
Japanar vrðu þess fljótt varir að Kínverjar reyndu að vinna
gegn þeim með því að eyðileggja uppskeruna á ökrunum. Þeir
settu þess vegna herverði til þess að hafa eftirlit með ökrunum.
Annar dagur hins al-
menna kirkjufundar
Annar dagur hins almenna
kirkjufundar hófst í gær
kl. 9 Vfc með sálmasöng og
morgunbænum, er Steingrímur
Benediktsson stjórnaði. Flutti
hann stutta hugleiðing út frá
Sálm. 103, 8.
Fundarstjórar dagsins voru
kosnir Sigurbjörn Á. Gíslason
cand. theol. og sjera Árni Sig-
urðsson fríkirkjuprestur.
Síðan hófust umræður um
hin ágætu framsöguerindi sjera
Þorsteins Briem og Ingimars
Jóhannessonar kennara frá deg
inum áður:
Kristindómurinn og æskan.
Nefnd sú, er kosin var til að
skila tillögum, hafði lokið störf
um og voru tillögur hennar
lagðar fram fyr.ir fundarmenn
á fjölrituðum blöðum.
Sjera Þorsteinn Briem hafði
framsögu fyrir nefndina og
fylgdi hann hverjum lið tillög-
unnar fram með ýtarlegri grein
argerð.
Að því loknu hófust umræð-
úr og tóku þessir til máls:
Jórunn Guðmundsdóttir,
Jóhann B. Guðnason,
‘'sjéra Guðbrandur Björnsson,
Stefán Hannesson kennari,
Knud Zimsen,
Sigurbjörn Einarsson,
sjera Árni Þorsteinsson,
Steingrímur Benediktsson,
Guðrún Lárusdóttir,
Guðmundur Magnússon og
Sigurður Þorsteinsson.
Að loknum sálmasöng hófst
matarhlje.
Málefnanefnd var kosin á
fundinum og hlutu þessir kosn-
ingu:
Sjera Friðrik Rafnar,
Sigurbjörn Á. Gíslason,
sjera Þorgrímur Sigurðsson,
sjera Gíslí Brynjólfsson,
Jórunn Guðmundsdótt.ir, Arn
þórshvo.li,
Árni Gíslason, Isafirði,
sj.era Sigurður Z. Gíslason,
Ásmundur Gestsson,
sjera Árni Sigurðsson, frí-
kirkjuprestur,
Jónas Tómasson,
sjera Erlendur ÞórðarsoA óg
Guðbrandur Jónsson, Spá-Í
kellsstöðum.
Kl. 1^2 e. h. hófst fundur aftur
með framsöguerindi sjera Friðriks
Ragns, vígslubiskups. Reifaði hann
annað dagskrármál fundarins:
Kirkjan og docentsmálið. Rakti
hanú í stuttu máli sögu þessa máls,
með það fyrir augum einkum, að
sýna fram á, hve rjettaráfstaða
þjóðkirkjunnar gagiivart ríkisvald
inu væri hættulega ábótavant, þar
sem í hlutaðeigandi ráðherraem-
hætti og í kennaraembætti guð-
fræðideildar Háskólans, megi skipa
menn, án nokkurs tillits til vilja
kirkjunnar, og jafnvel án tillits
til þess, hvort heiðnir væru eða
kristnir.
Urðu allmargvíslegar umræður
um þetta dagskrármál og töluðu
þar: Sjera Björn 0. Bjprnsson,
sjera Eiríkur Albertsson, Gísli
Sveinsson, sýslumaður, Knud Zim-
sen, sjera Sigurður Pálsson, sjera
Sigurður Z. Gíslason, sjera Páll
Sigurðsson, frú Þórunn Guðmunds
dóttir, Valdemar Snævarr, skóla-
stjóri.
Nokkrar tillögur bárust, var
þeim og afgreiðslu málsins vísað
til nefndar.
Þessir hlutu sæti í nefndinni:
Friðrik Rafnar, vígsluhisknp,
Knud Zimsen, fyrv. borgarstjóri,
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.