Morgunblaðið - 28.07.1938, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.07.1938, Blaðsíða 2
2 Fimtudagur 28. júlí 1938, MORG ‘J.NbLAiJin Sjálfsmorðí New York: Þúsundir horfa á, miijónir hlýða á í útvarp Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Púsundir manna voru áhorfendur að því og miljónir manna áheyrendur, er maður að nafni John Ward framdi sjálfsmorð í New York í gær. Hann var tuttugu og sex ára gamall. Honiun hafði orðið sundurorða við fjölskyldu sína og ákvað hann þessvegna að stytta sjer aldur. Með því að fram- kvæma þetta áform sitt, setti hann miljónaborgina á annan endann. Hann fór út um glugga á seytjándu hæð í himinkljúf einum um miðbik borgarinnar. í ell- efu klukkustundir samfleytt stóð hann á múrbrún og hótaði að stökkva fram af um leið og einhver reyndi að nálgast sig. Þúsundir manna söfnuðust saman á götunni fyrir neðan. Um skeið stöðvaðist öll umferð um verslunar- hverfið í Manhattan. Kvikmjmdafjelög leigðu glugga í húsunum andspænis og sendu þangað myndatöku- menn sína. Ekki leið á löngu þar til útvarpið fór að skýra frá því hvað þarna væri að gerast. Miljónir manna sátu við tæki sín og fylgdust fullir eftirvænt- ingar og kvíða með hverri hreyfingu John Wards. Á götunni voru menn famir að veðja um hver yrðu af- drif hans, og voru það miklar fjárhæðir, sem veðjað var. Nú skárust ættingjarnir í leikinn og reyndu með fortölum að fá hann ofan af áformi sínu. En alt kom fyrir ekki. Að lokum var slökkviliðið kvatt á vettvauig og reyndi það að strengja björgunamet frá sextándu hæð. Ward kveykti sjer í vindlingi og reykti hann. Síðan stökk hann. — Hann stökk fram hjá netinu' og marðist til bana á steinlagðri götunni. Ja fskjálftarenn I Grlkklandi. London í gær. FÚ. Landskjálftar ollu miklu tjóni í Grikklandi í dag, einkum í hjeruðunum fyrir norðan Aþenu- borg. Hós hrundu í allmörgum þorpum. Manntjón mun ekki hafa orðið mikið og tjón yfirleitt minna en í landskjálftunum á sömu slóðum fyrir nokkrum dögum. Hermennirnir voru ekki italskir London 27. júlí F.Ú. Ineðri málstofu breska þings- ins var stjórnin spurð að því í dag, hvort hún hefði látið rannsaka, hvað hæft væri í þeim fregnum að 10.000 ítalskir her- menn hefðu verið settir á land á Spáni, þ. 15. júlí. Ef þetta væri rjett, væri um alvarlegt brot að ræða á sam- komulagi Breta og ítala. Spurningunni var svarað á þá leið, að spænskt herlið frá Majorca hefði verið flutt til Spánar þennan dag, en ítalskt herlið ekki, að því er eftirgrensl an stjórnarinnar hefði leitt í Ijós. Enn árás á bresk skip. London 27. júlí F.Ú. oftárás var gerð á breskt skip, „Delphin“, í Gandia, á austurströnd Spánar í dag. Komu fimm sprengikúlur niSur nálægt skipinu. Það er í firnta sinn sem loftárás er gerð á þetta skip. Að þessu sinni var það með kolafarm og var verið að af- ferma hann, er Ioftárásin var gerð. Eigendur skipsins segja, að í öllu hafi verið farið að sett- um hlutleysisreglum, að því er skipið snertir, farm þess og ferðir. Viðskiftafulltrúi Dana (og íslend- inga) hjá Franco r Khöfn í gær F.Ú. T Kaupmannahafnarblaðinu „Börsen“ er skýrt frá því, að það hafi orðið að ráði milli danskra atvinnurekenda og ut- anríkismálaráðuneytisins, að senda viðskiftafulltrúa til þess hluta Spánar, sem Franco ræð- ur yfir. ViðskiftafuIItrúinn á ekki að koma fram sem starfsmaður hins opinbera. Skátamótið. Fjölda mörg bresk blöð geta um för breskra skáta til íslands til þátttöku á skátamót- inu. (FB.). Þýskt blað ræðir um vax- andi áhrif Breta í Mið-Evrópu. Sendiför Runciman lávarðs fagnað. ta^ghukuo * •VLADIVOSTO KJl §3?§ Merkt er með krossi svæðið á landamærum Mansjukuoríkis, Kor- eu og Sovjet-Rússlands (U. S. S. R.), sem deila Japana og Rússa reis út af- Japanar segja að svæðið sje innan landamæra Mansjukuo- ríkis, en Rússar eru að víggirða það. Slær í bar- daga milli Rússa og japana London í gær F.Ú. Fimm stunda bardagi er sagður hafa átt sjer stað milli rússneskra og jap- anskra varðmanna við landa- mæri Sovjetríkjanna og Mand- sjukuo. Hinir tveir japönsku sendi- menn, sem falið var að rann- saka deilumál þetta, komu aft- ur án þess að hafa fengið nokk- urt svar. Sök Rússa? Mansjukuostjórnin lítur svo á, að Rússar hafi átt sök á bar- daga þessum. Hefir hún sent ráðstjórninni mótmæli, en Rúss- ar engu svarað. Málið var rætt á ráðherra- fundi í Tokíó í dag. Seytján menn meiðast alvar- lega í slysi í Kaupm.höfn. Khöfn í gær F.Ú. T viðtækjaverksmiðjunni Tor- -®- oto í Kaupmannahöfn vildi það slys til í dag, að vjel, marg- ar smálestir að þyngd, hrap- aði niður um gólfið á annari hæð niður á grunnhæð hússins. Seytján verkamenn meiddust, sumir mjög alvarlega, og er óttast um líf sumra þeirra. Tveir verkamenn urðu undir vjelinni og biðu bana sam- stundis. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gmr. Ný viðhorf hafa skapast í Tjekkóslóvakm við það að Runcimann lávarður hefir verið sendur þangað til þess að reyna að miðla málum milli Sudeten-Þjóðverja og stjórnarinnar í Prag. Er álitið að fyrsta affeiðingin verði að frumvarp stjórn- arinnar til minnihlutalöggjafar verði tekið til nýrrar yf- irvegunar. Frumvarp þetta var birt í gær. Fá þjóðabrotin sam- kvæmt því allmikla sjálfstjórn í málum sínum. M. a. er svo ákveðið: 1) að opinber embætti skulu skipuð mönnum af öllum þeim þjóðflokkum, sem í landinu búa, í rjettu hlutfalli við fjölda þeirra. 2) að þjóðarbrotunum skuli veitt enn víðtækari rjettindi en hingað til, um notkun þjóðtungna sinna. 3) að þjóðerni einstaklings skal ákveðast af því, hvaða tungu hann talar. Þó á þetta ekki við um Gyðinga, sem yfir- leitt kunna ekki hebresku. RUNCIMAN FAGNAÐ. Af kveðjum þeim, sem Runcimann lávarður fær í blöð- um Sudeten-Þjóðverja, þykir ljóst, að þeir gera sjer vonir um að hann rjetti hlut þeij*ra, sem þykir rýr í þessum tillögum stjórnarinnar. 1 Þýskalandi er för Runcimans lávarðar fagnað og farið viðurkenningarorðum um framtak Breta í þessu máli. Angriff, (blað dr. Göbbels) segir: Ef til vill tekst Runciman að kippa því í lag sem Lloyd George eyðilagði í Versailles. ÞJÓÐVERJAR LAUSIR YIÐ DRAUMÓRA. Sjerstaka athygli hefir þó vakið forustugrein í „Essener National-Zeitung“, sem sagt er að túlki skoðanir Görings sjer- staklega. í greininni segir, að hernaðarlegir draumórar Þjóð- verja, áður en Hitler komst til valda, hefni sín. Þjóðverjar eru nú lausir við alla draumóra. Þeim er ljóst, að taka verði tillit til hinnar „hjartanlegu samvinnu" (entente Cordiale) Breta og Frakka, tveggja hinna stærstu nýlenduríkja, með samtals 600 miljón íbúum. í greininni er farið hinum lof- Yorkshire Evening Post birtir grein 13. júlí um heimsókn Gísla Ólafssonar læknisfræðinema til Leeds. (FB.). samlegustu orðum um þann á- rangur, sem Mr. Chamberlain hefir náð með samvinnu við Frakka, með stjórnkænsku og með aðstoð bresks fjármagns. Suð-austur-Evrópa og Bretar. Sjerstaklega er vakin at- hygli á því, hve viðskifti Breta við ríkin í Suð-austur-Evrópu hafa aukist, en Þjóðverjum er sárt um þessi viðskifti, þar sem þeir vilja draga þau undir sig. Segir í greininni, að Bretum hafi á skömmum tíma tekist að verða stærstu kaupendur að framleiðsluvörum Júgóslafa og Rúmena. Er búist við, að ekki líði á lön^u þar til Ungverjar fái lán 1 Bretlandi, eins og Tyrkir fyrir skömmu. Bretar og ítalir. London í gær. FÚ. Samkvæmt Reuter-fregnum frá Ítalíu gætir nokkurra vonbrigða í ítölskum blöðum út af þeim (lrætti, sem orðið hefir á því, að bresk-ítalski sáttmálinn kæmi til framkvæmda, en svo virðist sem ítalir hafi sjeð fram á, að eigi þýði annað en sætta sig við að bíða þess a. m. k. þar til í haust, að framkvæmd sáttmálans verði hafin. Mr. Chamberlain sagði í breska þinginu í gær um sáttmálann, að breska stjórnin hefði aldrei litið á hann sem venjulegan tvívelda- samning, heldur aðeins sem eitt skref til tryggingar almennum friði í Evrópu. En þessi samningum, sagði ráð- herrann, mun ekki geta konúð til framkvæmda á meðan ástandið k Spáni er óbreytt frá því sem nú er. Sá árangur hefði þegar orðið af sáttmálanum, að ftalir hefðu flutt nokkuð af her sínum burt frá Spáni, hætt áróðri sínum gegn Bretaveldi og tæki nú þátt í störf- um hlutleysisnefndarinnar. LITMYND AF FRAKK- LANDSFÖR BRESKU KONUN GSH JÓN ANN A. London 27. júlí F.Ú. vikmyndir af komu bresku konungshjónanna til Frakklands er nú verið að sýna víða um álfuna. Sumar mynd- irnar eru með eðlilegum litum. K

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.