Morgunblaðið - 07.08.1938, Blaðsíða 3
Sunnudagur 7. ágúst 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Þýskt
hersikp
I heimsókn
íldaraflinn meir en helm-
ingur á móts við í fyrra
Þýska herskipið „Emden“ er væntanlegt hingað í opinbera heim
sókn á morgun. „Emden“ er 13 ára gamalt skip, hljóp af stokkunum
7. janúar 1927.
,,Emden“ er skólaskip, sem farið hefir um allan heim. Það er nú
á rúmra fjögra mánaða ferð og kemur frá Noregi. Frá Islandi fer skip-
ið til Azoreyja og Miðjarðarhafslandanna, en kemur til Þýskalands í
desember n. k.
Tilgangurinn með ferðinni er að kenna hinum nýju sjóliðum, sém
taka eiga próf í mars n. k.
Skipið er 6000 smál. og 150,5 m. langt. Áhöfnin er skipuð 30 liðs-
foringjum, einum sjóliðsprest, 38 yfirmönnum, 105 undirforingjuni og
455 öðrum, þ. á m. 155 sjóliðum. — Á skipinu eru átta 15 m. fallbyss-
ur, þrjár 8,8 m. fallbyssur, og tvær tundurskeytapípur.
r—
Heimskunnur prófessor
r
á ferðalagi á Islandi
Undanfarna viku hefir dvalið hjer í bænum
nafnfrægur maður, Lancelot Hogben, pró-
fessor, sem getið hefir sjer frægð fyrir bæk-
ur sínar, „Matematics for the Million“ og „Science for the
Citizen“.
Hann kom hingað með „Gullfossi" síðast, og fór utan með
„Goðafossi“ í gærkvöldi. Erindi hans hingað var að fá nokkur
kynni af íslandi og íslendingum.
„Mig langar til þess að kynnast öllum skandinavisku þjóðun-
um“, sagði hann, er jeg átti tal við hann í gær. „Jeg var á ferð
í Svíþjóð nýlega og hefi gert mjer far um að læra sænsku“.
„íslensku ætla jeg að byrja
að læra, strax á morgun um
borð í „Goðafossi,*. Jeg voná,
hjelt hann áfram, að ef þjer
verðið á ferð í Skotlandi síðar
og komið til Aberdeen, að við
getum talað saman á íslensku.
Lancelot Hogben, prófessor
er 43 ára gamall. Hann er „re-
gius“ (konunglega skipaður)
prófessor í dýrafræði við há-
skólann í Aberdeen. Áður hefir
hann verið dósent og prófessor
í ,,social“-líffræði við há-
skólann í London, Edinborg og
víðar. Nafntogaður varð hann
um hinn mentaða heim, er bók
hans „Matematics for the Mill-
ion“ kom út árið 1936. Þessi
bók hefir verið gefin út í níu
útgáfum í Englandi og
hundrað þúsund eintök hafa
selst. Hún hefir verið þýdd á
Norðurlandamálin fjögur,
frönsku, ítölsku, spönsku, ung-
versku og pólsku. H. G. Wells
segir um bókina: „Það er ótví-
ræð skoðun mín, að þetta sje
mikilsverð bók, bók sem hefir
geysimikla þýðingu og að allir
greindir æskumenn á aldrinum
frá 15 til 90 ára, sem langar
til þess að skynja tilveru þessa
heims, ættu að lesa hana“.
Fyrir tveimur mánuðum kom
út önnur bók eftir Hogben pró-
íessor, sem bætt hefir góðri
alin við frægð hans. Þessi bók
heitir „Science for the citizen“
og er þegar búið að selja í
Englandi 30 þúsund eintök af
henni. I Ameríku kemur hún
út í þessum mánuði og síðar á
öðrum tungumálurn.
HfaHeyri búin að fá
8 þús. mál meir
en í fyrra
S
íldarverksmiðjur ríkisins höfðu í gærkvöldi tek-
ið á móti samtals 190.974.23 málum síldar
móti 374.237.04 á sama tíma í fyrra.
X. R. vann
Drengiamótið
—
Drengjamótinu lauk í gær.
K. R. vann mótið, fjekk
47 stig. Ármann fjekk 17 stig og
F. H. 7 stig.
Síðasti dagur drengjamóts-
ins var í gær og setti Sigurður
Finnsson enn eitt drengjamet,
það fjórða á mótinu.Stökk hann
12.87 metra í þrístökki, gamla
metið var 12.50 sett af Magn-
úsi Guðmundssyni í Vestmanna-
eyjum.
Næstur í þrístökkinu var
Anton B. Björnsson, 11,94 m.
og þriðji Konráð Kristinsson
11.63 m.
Spótkastið vann Anton
Björnsson, kastaði 42.68, Sig-
urður Finnsson kastaði 38,38
lm. óg Gunnar Magnússon (F.
H.) 35.89 m.
Stangarstökk. Fyrstur varð
Ingim. Sigurjónsson (F. H.),
2,75 m. Anton B. Björnsson
2,70. Haraldur Sigurjónsson
26.6 m.
1000 metra boðhlaup vann
sveit K. R. á 2 mín. 19.7 sek.
og Ármánns sveitin, 2 mínútur
21.8'seÍ’: ' h-"**-*
- v , , ,
lón Sturlaugsson
hafnsögum., látinn
| fyrradag- andaðist á Stokkseyri
* Jón Sturlaugsson, liafnsögu-
maður þar, tæpra 70 ára, fæddur
13. nóv. 1868 í Starkarhúsum við
Stokkséyri. Foreldrar Jóns voru
Sturlaugur Jónsson óg kona hans,
Anna Glísladóttir. Hann var kvænt-
ur Vilborgu Jóhannsdóttur frá
Skipum, sem lifir mann sinn, og
eignuðust þau 10 börn. Eru 7
þeirra á lífi, flest búsett í Reykja
vík.
Jón var þjóðkunnur maður fyr-
ir það, hve mörgum hann hafði
bjargað úr sjávarháska — en það
voru alls 73 menn — bjargað
ýmist frá yfirvofandi hættu eða
bráðum bana. — Breska stjórnin
sæmdi hann vönduðum sjónauká
að heiðursgjöf, er hann, þann 14.
mars 1906, bjargaði 12 manna á-
höfn af togaranum Destimona, sem
var strandaður á brimgarðinum
fyrir austan Stokkseyri. Skipið
sökk nokkrum mínútum síðar og
sjór var að verða ófær vegna
brims.
Fyrsta skipið, sem Jón vísaði
til hafnar á Stokkseyri, var skonn-
ortan Orlando frá Mandal, þ. 1.
júní 1898, og hefir hann því gegnt
hafnsögumannsstörfum í 40 ár. —
Jón var forgöngumaður að
bryggjugerð og lendingarbótum
! á Stokkseyri, sem mikið hefir bætt
lendingu í brimi þar.
SiS^Iri ■ •
Frjettaritari vor á Siglufirði
símar í gærkvöldi að þangað hafi
ltomið 20 skip s. 1 sólarhring með
samtals um 10 þús. mál síldar.
Veiðiveður var gott fram eftir
nóttu í fyrrinótt en síðan brældi
á suðvestan og helst brælan allan
daginn í gær.
Á Siglufirði biðu í gærkvöldi 25
skip eftir löndun.
S.R.P. verksmiðjan fylti allar
þrær sínar í gærkvöldi og getur
ekld tekið við meiri síld í bili.
Vegna þess hve mikið hefir bor-
ist af síld undaufarið verður unn-
ið í öllum verksmiðjunum vfir
helgina. Söltun á Siglufirði nam
í gær og fyrrinótt 3945% tn., þar
af rekíietasíld 563 tunnur.
Djúpavík.
Til Djúpavíkur hafa nú borist
um 45 þúsund mál síldar eða um
helmingur þess síldarmagns, sem
þar var búið að leggja á land á
sam<a tíma í fyrra. Rúmlega 5000
tunnur var búið að salta þar í
gæy. Eftirtöld skip voru á Djúpa-
vik í gæx með síld: ,
Syrprise 1535 mál, Tryggvi
gamli 1514, Hannes ráðherra ca.
1400, Bragi 1500, Málmey 700,
Baldur 1488, Garðar 2401, Kári
1437 og Huginn I. 724 mál. —
Öll þessi. skip höfðu veitt síldina
við Vatnsnes og Skaga.
Hjalteyri.
Þángað höfðu borist alls í gær-
kvöldi frá því síldveiðin hófst um
115 þús. mál síldar, en á sama
tíma í fvrra 107 þúsund mál. í
fyrrinótt og í gær bárust um 9 þús.
mál ’síldár til Hjalteyrar.
Komin heim
Kalundborg í gær. FÚ.
riðrik ríkiserfingi og Ing-
rid krónprinsessa komu til
'Kaupmannahafnar í dag úr Is-
landsför sinni.
Knútur piins og Caroline
Matthildur prinsessa voru
stödd á brygjunni, er „Dronn-
ing Alexandrine ‘ lagðist að og
tóku á móti þeim.
BLÓÐBAÐIÐ í
PALESTÍNU.
London í gær F.Ú.
reskur lögregluþjónn var
myrtur í Palestínu í dag.
Morðinginn slapp. Yms ódæðis-
verk önnur hafa verið framin
víða um landið. v
Mðlaferli
útvarpsstjóra
Jónas Þorbergsson útvarpsstjöri
■ hefir. tilkynt að hann muni
kæra ung-a stúlku, Jórunni Jóns-
dóttur, sem starfað hefir hjá út-
varpinu, fyrir það sem hann nefn-
ir rógburð um sig.
Einnig hefir útvarpsstjóri kært
ritstjóra dagblaðsins Vísir fyrir
að liafa flutt „rógburð undir rójs“
í sambandi við skýrslu, sem Jing-
frú Jórunn sendi stjórnarráðinu
og þar sem hún kærði útvarps-
stjóra fyrir að hafa brugðið loforði
um stöðu við útvarpið og fyrir
ósæmilega framkomu gagnvárt
sjer. _
Faxasíld
Tveir bátar komu til Keflavík-
ur í gær.með síld, sem -þeir
öfluðu við Eldeyjarbanka. Freyja
frá Njarðvík kom .með 140 tunn-
ur og Svanur frá Keflavík með
66. Síldin er sögð feit og stór. —
Síldin var fryst td beitu.
„Litli heimur"
Tryggva Sveinbjðrns-
sonar
Khöfn í gær. FÚ.
dag fór fram í Konunglega
leikhúsinu í Kaupmanna-
höfn frumæfing á leikriti
Tryggva Sveinbjörnssonar,
sendisveitarritara, er hann
nefnir „Den lille Verden“.
Ýmsir af þektustu leikurum
Dana, t. d. Poul Reumert og
Bodil Ibsen, leika í þessu leik-
riti.
LANDAFRÆÐI NORÐ-
URLANDA.
Khöfn í gær. FÚ.
ulltrúar frá stjórnum nor-
rænu fjelaganna koma sam-
an á mánudag í Borgaa í Sví-
þjóð, til þess að ræða um hvort
ekki muni tiltækilegt að gera
samskonar endurbætur á kenslu
bókum í landafræði á Norður-
löndum, eins og þegar hefir ver-
ig lagt til að gert yrði um
kenslubækur í sögu.