Morgunblaðið - 07.08.1938, Blaðsíða 7
ÞaS tilkynnist vinum og- vandamönnum að okkar hjart-
kæra móðir, tengdamóðir og amma,
ekkjan Sigurjóna Jónsdóttir,
andaðist að heimili sínu, Vesturgötu 30, 5. þ. m.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ingibjörg og Steinar Gíslason.
Það tilkynnist ættingjum. og vinum, að
Þorgerður Símonardóttir
andaðist að heimili sínu, Barónsstíg 14, að morgm þess 6. þ. m.
Sigrún Ólafsdóttir. Guðni Kristinsson.
Maðurinn minn og faðir okkar,
Jón Sturlaugsson,
hafnsögumaður, andaðist á heimili sínu á Stokkseyri 5. þ. mán,
Vilborg Hannesdóttir og börn,
Móðir mín,
Karólína Kristjánsdóttir,
sem andaðist 29. f. mán., verður jarðsungin þriðjudaginn 9
ágúst frá dómkirkjunni kl. iy2 síðd.
Bertha Andersen.
Sunnudagur 7. ágúst 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
Dagbók.
Veðurútlit í Rvík í dag: S-kaldi.
Rigning öðru hvoru.
Veðrið (í gærkv. kl. 5): SV-átt
um ált land. Vestan lands er skýj-
að loft en víðast úrkomulaust.
Norðanlands og austan er bjart-
viðri. Veðurhæð er víðast hvar 3
—4 vindstig. Við Straumnes er
veðurhæð þó talin 7 vindstig og
veiðiveður slæmt, samkv. fregn
frá ísl. togara. Yfir SV-Grænl. er
nýtt lægðarsvæði á hreyfingu NA-
eftir. Lítur því út fyrir suðlæga
átt og- nokki’a rigningu hjer vest-
an lands.
Helgidagslæknir er í dag Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími
2111.
íslenskir fálkar. Bæklingur hef
ir verið gefinn iit með mynduin
af íslenskum fállrum. Myndir þess-
ar hafa verið teknar af enskum
hjónum, sem lijer hafa dvalið, Mr.
Sherlock og konu lians. Gerðu þau
hjónin sjer einskonar hreiður í
sjálfum hömrunum og voru þar um
nokkurt skeið til þess að fylgjast
með lífi og hátterni fuglanna, og
náðu þarna nokkrum myndum, sem
munu vera betri og eðlilegri en áð-
ur hafa náðst af þessum fuglum.
Færeyska skipið Kyrjasteinur
lag'ði á land í Seyðisfirði í gær
1.370 mál síldar. Síidin veiddist í
Þistilfirði. — Eddá lestaði þar
Labradorfisk í fyrradag og fór
síðan áleiðis ti! Húsavíkur. —
Bisp tók stórfisk í Seyðisfirði í
gær og átti að fara þaðan til suð-
urfjarðanna. — í Seyðisfirði eru
nfi fádæma hitar. (FÚ).
Eimskip. Gullfoss var í Stykk-
ishólmi í gær. Goðafoss fór til
Sendl§veinn
óskast. Uppl. á Lindargötu 18,
B, uppi.
Leith og Hamborgar í gærkvöldi
kl. 8. Brúarfoss er í Kaupmanna-
höfn. Dettifoss er á leið til Vest-
mannaeyja frá Hull. Lagarfoss er
í Kaupmannahöfn. Selfoss er á leið
hingað frá Englandi.
Farþegar með Goðafossi til útl.
í gærkvöldi: Nanua Egilsdóttir,
frú Matthíasson, Steingerður Guð
mundsdóttir, Anna Olafs, Sir
Martin Becket, Lord Granby,
Captain A. Wemier, Arni Helga-
son, prófessor Hogben, Sigfús
Blöndahl, Þorkell Steinsson og frú,
Inga Lárusdóttir, Ilulda Ásbjörns-
dóttir, Gunnar Böðvarsson, Herr
Stöcks, Gunnar Kárason, Hans
Jónsson, Magni Guðmundsson og
margir útlendingar.
Til Reykjavíkur komu um kl.
16 í gær vjelbáturinn Freyr með
130 körfur af kola og vjelbáturinn
Óðinn með 204 körfur. (FÚ).
Útvarpið:
Sunnudagur 7. ágúst.
10.40 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera
Friðrik Iíallgrímsson).
12.15 Hádegisútvarp.
17.40 Útvarp til útlanda (24.52m).
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Smálög fyrir
píanó og fiðlu.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: Á reiðhjóli um Nor-
eg (Geirmundur Árnason, stud.
mag.).
20.40 Hljómplötur:
a) Söngvar úr óperum.
b) Klassískir dansar.
21.30 Danslög.
24.00 Dagskrárlolc.
Mánudagur 8. ágúst.
10.00 Véðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Síldveiðiskýrsla Fiskifje-
lagsins.
Hljómplötur: Göngulög.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Frjettir.
20.15 Sumarþættir (J. Eyþ.).
20.40 Einleikur á píanó (Emil
Thoroddsen).
21.00 Illjómplötur-.
a) Tataralög.
b) (21.30) Kvöldlpg.
Minningarorð um
Halldór Guðmundsson
frá Hellum
f. 14. okt. 1890. d. 11. júlí 1938.
Þú ýttir hvert sinn þegar fræknum
leist fært,
þó freyddi um blávegi Drafnar.
Nú eilífðar bárurnar vagga þjer
vært
um veginn til friðarins hafnar.
I himnesku blíðviðri ber þar að
strönd,
sá bátur af almætti’ er knúinn.
Þá sjest yfir hafflöt hin sólgullna
rönd,
í sortann fer þreytan og lúinn.
Þú áttir svo sjerstaka atorku lund
sem ékki sá tómstundir margar,
því altaf var notuð hver upphugs-
uð stund
til að afla og leita sjer bjargai-.
Þeir reisa ei hallir við ríkmann-
leg kjör
nje ráða’ yfir metorðagjörnum,
sem einir í hríðviðrum hrinda ÚE
vör
og heima’ eiga fult fcús af börnum.
En mannlega lífiS á brothættan
bát,
sem berst milli skina og hríöa.
þá lífið strax verður að lilýða.
mát,
þá lífið strax verður að hlíða.
En fjöldinn sem umgekst þig,
fölan á kinn,
hann finnur, þá nú ertu dáinu,
að það, sem að víðfrægir vegférf
þinn,
var viljinn og sjálfsbjargar þváin
•- TÍ !
Við húsbóndans andlát þá fölnár
það flést,
sem fyr mátti’ í huganum rísa.
Um innbyrgðan harm þeirra’ er
áttu þig mest
jeg á ekki kraft til að lýsa.
Við öndum þjer kveðju um eilífð
ar höf,
sem öldur við ströndina braga.
Með þroskuðum sólblómum þekj
um við gröf,
með þökk fjuir samveru daga.
J. B. P.
en
tur lax;
Af sjerstökum ástæðum verða nokkur stykki af reyktum lax til
sölu með tækifærisverði n. k. mánudag.
Uppl. í síœa 3916.
HAUSTHERÆFINGAR
ÞJOÐVERJA.
London í gær F.Ú.
Tilkynt hefir verið í Þýskalandi
að varaherlið eigi að taka
þátt í hinum árlegu haustæfing-
um hersins, á hausti komanda
Er það í fyrsta skifti, sem vara-
herliðið tekur þátt í þessum æfing-
um, frá því er þýski herinn var
endurskipulagður.
Ilaust heræfingarnar munU að
öðru leyti verða í minni stíl
vanalega.
nunninnniiiminniiiiniiiiiiiiiiiiiitiiiiiimimnitiiiiiiiimHiii
I íbúð. (
= 2—3 herbergi og eldhús með g
1 nútíma þægindum óskast 1. =
1 október n. k. helst 1 austur- 1
1 bænum (Norðurmýri). Tilboð 1
= auðkend „fulltrúi" leggist 1
H inn á afgreiðslu blaðsins fyr- |
1 ir 11. þ. m.
*
íuismiiiimtiiuinmuimiiiiiiiiiiinmiiiiimiiiiiiiisiiiiiimikui
Hárvötn og ilmvotn
frá Afengfsverslun rík.isins eru
mjög hentugar tækifærisgjafir.
Fyrirliggjandi:
Kókósmjöl — Súkkat — Sætar möndlur.
Tómatsósa — Kanell heill og steyttur.
Eggert Krist)ánsson & Co.
Sími 1400.