Morgunblaðið - 07.08.1938, Page 8

Morgunblaðið - 07.08.1938, Page 8
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 7. águst 193S. í júlímánuði síðastl. var verið að gera við götu í borginni Man- Ensk blöð skýra frá því að í Síberíu sjeu um 20 þus. gleymclir stríðsfangar. Heimild biaðsins er þýskur stríðsfangi, sem nýlega er kominn frá Síberíu. ★ Dvergaþing- verður lialdið í Búdapest síðast í þessum mánuði. Bar hittast- fulltrúar frá dvergum nm allan heim. Tilgangurínn með þingi þessu er að ná betri kjörum fyrir dvergana. ★ Indverskur uppreisnarmaður stra.uk úr fangelsi árið 1922 og hefir síðan lifað .sem sekur skóg’- armaður. I sumar gaf hann sig fram við lögregluna og kvaðst vilja taka út hegningu sína. Hann væri orðinn þreyttur á að þurfa altaf að fara huldu höfði. ★ Pjársjóður mikill hefir fundist í g’ömlu húsi í París. Múrarar, sem voru að gera við liúsið, fundu í vegg óhemju ósköp af gullpen- ingum frá 17. öld. Talið er að fjársjóður þessi nemi 3 miljónum franka. ★ J Englandi er búið að stofna fjelag fyrir piparmeyjar. Meðlim- ir eru 125 og engin gift kona eða sem hefir verið gift fær að ganga í fjelagið. Einnig verða meðUm- irnir að vera minst 55 ára að aidri. ★ Dýrasti hundur, sem til hefir verið í heiminum, er án efa ,,Hea- ther Realisation“, sem drapst á dögunum. Þetta var skoskur terrier og hafði hlotið fyrstu verð- laun á ótal hundasýningum. Hund- urinn var metinn til fjár á 50 þúsund krónur. ★ ' chester og rákust verkamennirnir þá á kolanámu undir götunni. Bæjarstjórnin hefir gert ráðstaf- anir til að eigna borginni þessa nárnu. ★ Nýlega auglýsti lögreglustjórinn í New York eftir 30 kvenlögreglu- þjónum. Ilonum bárust 5000 um- sóknir, og meiri hluti umsækj- endanna voru dansmeyjar, skrif- stofustúlkur og afgreiðslustúlkur. ★ Gamall sjómaður segir frá: Jeg veit hvað óveður er, get jeg sagt vkkur. Einu sinni lentum við í svo miklum stormi í spænska hafinu, að þegar skútan kom upp á öldu- toppana gengu skýin út og inn um kýraugun og þegar við fórum niður í öldudalina fórum við svo djúpt niður að er skipið kom upp aftur hekk saltfiskur, hrogn, rauð spettuflök og reykt síld í tonna- tali í reiðanum og masturstopp unum. Það var nú stormur, sem vert er um að tala. ★ Prestshjón ein á Jótlandi áttu páfagauk, sem þeim þótti afar vænt um og sem var mjög nám- fús. Dag nokkurn slapp páfagauk- uririn úr búri sínu og flaug upp í trje í garðinum. Prestshjónin reyna með öllu hugsanlegu móti að ná í páfa- gaukinn en alt kemur fyrir ekki. Loksins segir prestskonan við mann sinn: — Ilvað eigum við að gera? Áður en prestur er búinn að svara, segir páfagaukurinn og veltír vöngum: — Látum oss öll biðja. Jtaups&afuœ Viðeyjarhey til sölu, þar á meðal háartaða. Pöntunum veitt móttaka í síma 1949, helst eftir kl. 8 síðdegis. Islenskt böglasmjör, sjerlega gott. Þorsteinsbúð, Hringbraut 61, sími 2803, Grundarstíg 12, sími 3247. Nýjar íslenskar kartöflur — Rabarhar — Hvítkál — Blóm- kál — Gulrófur — Tómatar — Sítrónur — Gráfíkjur — Þurk- uð bláber. Ódýrt í Þorsteinsbúð, Hringbraut 61, sími 2803 og Grundarstíg 12. Sími 3247. Niðursuðu- og sultuglös, allar stærðir — Varahringir og klemmur, ódýrt í Þorsteinsbúð, Hringbraut 61, sími 2803 og Grundarstíg 12, sími 3247. Kaupum flöskur, flestar teg- undir, soyuglös, .dropaglös með skrúfuðu loki, whiskypela og bóndósir. Sækjum heim. Versl. Hafnarstræti 23 (áður B. S. í.) Sími 5333. Kanarifugl óskast til kaups. Tilboð sendist Morgunblaðinu auðkent „Kanrifugl“. Tjöld og tjaldsúlur fyrirliggj- andi, einnig saumuð tjöld eft- ir pöntun. — Ársæll Jónasson — Reiða- og Seglagerðaverk- stæðið. Verbúð nr. 2. — Sími 2731. Povl Ammendrup klæðskeri, Grettisgötu 2 (horninu á Klapp- arstíg) sími 3311, úrval af ís- lensku og erlendu fataefni. — Sauma úr efni, sem komið er með. Viðgerðir og pressingar. Fyrsía flokks vinna og tillegg. Gott snið. Sanngjarnt verð. A- byggileg afgreiðsla. StŒynniníju® Betania. Samkoma í kvöld kl. 8i/2. Ræðumaður Steinn Sigurðs- son. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn. Sunnudag kl. 11 og 8)4 samkomur. Kl. 4 útisamkoma. Adj. Svava Gísladóttir, Major Gregersen o. fl. Velkomin! Slysavarnafjelagið, skrifstofa Hafnarhúsinu við Geirsgötu. Seld minningarkort, tekið móti gjöfum, áheitum, árstillögum. íbúðir stórar og smáar, og her- ’ bergi, Leigjendur einhleypa og heimilisfeður, Stúlkur í vist, Kaupendur að hverju því, sem þjer hafið að selja. Muni sem þjer viljið kaupa. Nemendur í hvaða námsgrein sem er. Smá- auglýsingar Morgunblaðsins eru lesnar í hverju húsi. JWorjgttttMaMö Síðan er fögur sveit —. Fast- ar áætlunarferðir frá Reykja- vík til Kirkjubæjarklausturs alla þriðjudaga. Frá Kirkju- bæjarklaustri til Reykjavíkur alla föstudaga. Vandaðar bif- reiðar. Þaulæfðir bílstjórar. Afgreiðslan Bifreiðastöð Is- lands, sími 1540. Leikfong. + • aCU&nazih' Stýrimaður óskar eftir 3—4 herbergja íbúð, með öllum þæg- indum 1. okt., í vesturbænum. A. v. á. Bílar frá 0.75. Skip frá 0.75- Sparibyssur frá 0.50 Berjafötur frá 0.60 Smíðatól frá 0.50 Dúkkuvagnar frá 2.00 Brjefsefriakassar á 1.00 Lúdó át 2.00 Ferðaspil íslands á 2.75 Golfspilá 2.75 Perlukassar á 0.75 Dátamót frá' 2.25 Hárbönd frá 0.90 Töskur frá 1.00 utto Bí Arnar, löggiltur úf earpsvirki, Hafnarstræti 19. — Sími 2799. Uppsetning og vio gerðir á útvarpstækjum og loft netum. Geri við saumavjelar, skrál og allskonar heimilisvjelar. H Sandholt, Klapparstíg 11. Sínri 2635. Nælur frá 0.30 K. Einarsson íic Björnsson Bankastræti 11. Sokkavíðgerðin, Hafnarstræti 19, gerir við kvensokka, stopp- ar í dúka, rúmföt o. fl. Fljót af- greiðsla. Sími 2799. Sækjum, sendum. fKÖÞMLT MAjRQARET PEDLER: DANSMÆRIN WIELITZSKÁ 15. „Lafði Arabella? Það gleður mig“. ,ySvei!“ Magda skældi sig. „Jæja, þarna kemur teið“, sagði hún, er Melróse, hinu duglegi ráðsmaður hennar, kom með tebakka og fór að útbúa teborðið. „En hvað tafði lafði Arabellu?“ spurði Gillian litlu síðar, er þær sátu við tedrykkjuna. „Kit Raynham", svaraði Magda gröm í bragði. „Það lítur út fyrir, að jeg eyðileggi framtíð hans. En jeg skil ekki, hvað þetta barnalega „skot“ hans viðkemur starfi hans“. „Það skil jeg“, svaraði Gillian. „Ef hann eyðir tím- anuin í að teikna Wielitzsku í ótal stellingum í stað þess að teikna hús!“ Magda brosti. „Eins og hann geri það!“ Gillian einblíndi inn í eldinn. „Magda“, sagði hún hugsandi á svip. „Jeg er viss um að við hættum að vera vinkonur, þegar Glókollur er orðinn stór“. Glókollur var sonur Gillians, sjö ára gamall. Gælu- nafnið hafði hann hlotið vegna hinna glógulu lokka sem krýndu kollinn á honum. Magda hló glaðlega. „Þá verð jeg orðin gömul og áhrifalaus". „Konur eins og þú verða aldrei áhrifalausar“, sagði Gdlian. „Þú verður eins og óunnin náma tU æfiloka, nema þú verðir einhverntíma ástfan<?in“. „Það lá við, að jeg yrði það í dag“, svaraði Magda brosandi. „Þú segir ekki satt?“ sagði Gilhan hissa. „Jú. Jeg lenti í æfintýri“. „Hvernig þáf“ „Varð fyrir árekstri í þokunni“. „Hamingjan góða! Hvernig vildi það til?“ „Bíllinn rakst á eitthvað, sem sendi hann þeint á strætisvagn og á sama augabragði ók annar bíll á hann. Það var meiri áreksturinn!“ „Þetta segir þú mjer núna fyrst! Meiddist nokkur? Og hvernig komstu heim?“, spurði Gillian með öndina í hálsinum. „Nei, það meiddist enginn. Jeg fjekk bara högg á höfuðið og fjell í yfirlið. En miskunnsamur maður, sem var í strætisvaguinum, bar mig heim til sín, þar sem hann átti heima rjett hjá. Síðan gæddi hann mjer á. ammoniaksalti og tei og fór ekkert í launkofa með, hvernig álit hann hefði á mjer og mínum líkum“. „Jeg skil þig ekki? Var þetta einhver hengilmæna, sem fyrirlítur dans?“ „Þvert á móti. Hann hafði djúpan skilning á dans- listinni. Hann hafði eingöngu skömm á mjer persónu- lega“. „En hann þekti þig ekki?“ Magda brosti. „Þú átt við, að það hefði verið skiljanlegt, ef hann hefði þekt mig?“ „Æ, vertu nú ekki svona stríðin. Þú veist vel, við livað jeg átti. En þú ættir skilið, að jeg hefði sagt: „Já“.“ „Þú skalt segja það, ef þú vilt“. „Jeg myndi gera það, ef það vildi ekki svo til, að jeg þekti þig betur en þú sjálf“. „Hvað veist þú um mig, sem jeg veit ekki sjálf?“ „Jeg veit til dæmis, að þú inst inni býrð yfir þeim liæfileika, að vera eins góð og blíð og fórnfús og nokkur lifandi manneskja getur verið, en það á eftir að vekja þann hæfileika hjá þjer. Jeg vildi óska þess, að þú gætir orðið ástfangin, Magda!“ „Það er ólíklegt, að sú ósk rætist", svaraði Magda þurrlega. „Jeg elska list mína. Hún veitir mjer meiri ánægju en nokkur karlmaður gæti. gert“. „Nei“, svaraði Gillian hæglátlega. „Það er rangt lijá þjer. Tony, maðurinn minn, dó, eftir aðeins eins árs ■ hjónaband. En það ár bætir upp öll liin. Og svo á, jeg líka Glókoll“, bætti hún við blíðlega. „Það er blessunarlegt að þú getur hugsað svona,. Gillian. Bara, að jeg gæti það líka. En það er útilok- að. Jeg- held, að jeg hafi fylst beiskju þegar frá fæð- ingu“. Hún brosti raunalega. „Jeg hefi enga trú á. ástinni. í mínum augum er hún aðeins til sársauka og kvalar, eins og hún særði móður mína og kvaldi“. Hún þagnaði skyndilega, en hjelt svo áfram glaðlega. „Nei, Gillian, leiddu mig ekki út í það að verða ástfangin. Það er hlutur, sem á ekki við mig„ og freistar mín ekki“. „Jú, einhverntíma kemur að því“, spáði Gillian. „En nú verður þú að segja mjer eitthvað um manninn, sem hjálpaði þjer í dag. Var hann ungur ? Var hann lag- legur. Kannske hann sje til þín sendur af örlögum?“, bætti hún við hlæjandi. „Jeg hugsa, að hann sje eitthvað yfir þrítugt. Og hann er ljómandi laglegur. En honum er illa við kven- fólk, eins og mig, svo að þú verður að hætta að gera þjer nokkrar vonir í þá átt“. „Jeg gefst ekki upp strax“, svaraði Gillian. „Ofur- lítil andúð fyrst í stað, spáir góðu einu“. „Ef þú hefðir heyrt, hvernig hann var, myndir þú ekki tala um „ofurlitla andúð“.“ „Hvernig var hann?“ „Fyrst og fremst fór hann með mig eins og jeg væri smástelpa og neyddi mig til þess að taka inn þetta viðbjóðslega ammoniaksalt! Síðan datt honum í hug að taka siðferði niitt til meðferðar. Jeg segi það satt,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.