Morgunblaðið - 19.08.1938, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐI.Ð
Föstudagur 19. ágúst 1938.
2
Andróður gegn Hitlers-
stiórninni í Berlin
Svívirðingar um stjórnina
sendar í pósti um borgina
Ekktrt
samkomulag
með Tjekkum og Sudetum
Frá frjettaritara vorum.
Erfiðleikar iðnaðarins
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Frjettaritari Reuters í Berlín símar, að enn sje andróður gegn
þýsku stjórninni ekki með öllu kveðinn niður, þó undanfarna
mánuði hafi f jöldi manns verið handteknir, grunaðir um andstöðu
gegn stjórn Hitlers.
Bæklingi hefir verið dreift út í Berlín í dag þar sem ráðist
er á stefnu stjómarinnar í utanríkismálum og í hermálum.
Bæklingur þessi var stendur
í pósti og var búið að bera hann
út áður en yfirvöldin komust
að því hvað í honum stóð. Bæk-
lingurinn er undirritaður af
pHermannafjelagi Berlínar-
borgar“.
1 bækling þessum er m. a.
bent á að áður en Hitler komst
til valda hafi friður ríkt milli
Tjekka og Þjóðverja, en nú sje
útlit fyrir að styrjöld brjótist
út vegna framkomu þýsku
stjómarinnar í deilumálum Sú-
deta og Tjekka.
I bæklingnum er sagt, að
þýska þjóðin óttist stríð og hún
vilji ekki ófrið.
Er loks aðvörun til Hitlers um
að leggja ekki út í ófrið, sem
muni leiða til glötunar þýska
ríkisins.
ERFIÐLEIKAR
ÞJÓÐVERJA
f IBNAÐARMÁLUM
Talið er, að Hitler muni sjálf-
ur gera ráðstafanir vegna hins
mikla verðbrjefahmns, sem átt
hefir sjer stað undanfaraa
daga. „Daily Telegraph" skýrir
frá því, að þýsk iðnaðarfyrir-
tæki vanti handbært fje og hafi
þess vegna gripið til þess ráðs
að selja hlutabrjef í stórum
stíl.
Til dæmis um hve hlutabrjef
hafi fallið gífurlega í verði und-
anfarið vofir yfir hlutabrjefa-
verðfall hjá nokkrum þektustu
iðnfyrirtækjum Þýskalands.
Hlutabrjef Farbenindustrie
hafa fallið um 31 stig síðan þau
voru í lægsta verði.
Siemens 52.
Deutsche Wassenfabriken 75.
STÖÐUGRI VIÐ
SKIFTI Á NÝ.
London í gær. FÚ.
Viðskifti voru stöðugri á
kauphöllinni í Berlín í dag en
undanfarna daga. Hlutabrjef
iðnfyrirtækja hækkuðu nokkuð
í verði og viðskifti voru meiri
en undanfarna daga.
Á kauphöllinni í London var
deyfð yfir viðskiftum í dag, en
verðlag litlum breytingum háð.
Skipið Lilly frá Bergen leitaði
hafnar í Húsavík fyrir nokkrum
dögum. Var það nauðulega statt,
liafði stevtt. á skeri við Fœreyjar
og kom að því leki í hafi. Kafari
var fenginn frá Akureyri og var
gert við skipið í Húsavík. (FÚ)
Friðrik krónprins
þakkar móttök-
urnar á íslandi
Friðrik ríkiserfingi hefir ver-
ið útnefndur heiðurs-um-
dæmisstjóri fyrir Rotary-fjelag-
ið Island og Danmörku, en Rot-
aryfjelagar skifta starfssvæðum
sínum í hjeruð sem taka yfir
eitt eða fleiri lönd. Gerðist þetta
á fundi Rotary-klúbbsins í
Kaupmannahöfn.
Ríkiserfinginn þakkaði fyrir
fulltrúa Islands, sem þarna var-
viðstaddur að bera Islendingum
kveðju sína og þakka þeim fyr-
ir þá vinsamlegu og ánægjulegu
daga, sem hann og ríkiserfingja
frúin hefðu átt á íslandi í sum-
ar. —
Japanar og Rússar
ætla að jafna allan
úgreining friðsamlega
London í gær. FÚ.
tjórnir Sovjet-Rússlands og
Japan hafa ákveðið, að ef
þess gerist þörf í framtíðinni að
jafna ágreining milli þessara
ríkja, þá skuli ekki gripið til
vopna, heldur farið venjulega
stjórnmálaleið.
Var þetta ákveðið í gærdag
er japanski sendiherrann í
Moskva heimsótti utanríkismála
ráðuneytið rússneska og tjáði
rússnesku stjórninni að Japanir
hefðu nú að öllu leyfi fullnægt
vopnahljesskilnjálunum.
wAmerískt“ rán
í Englandi
London í gær. FÚ.
vanalegt rán var framið
í Englandi í dag. Þrír
grímuklæddir ræningjar stöðv-
uðu flutningabíl og neyddu bíl-
stjórann til þess að láta af
hendi fje sitt. Því næst óku þeir
á brott í hraðskreiðum bíl. Víð-
tækar ráðstafanir hafa verið
gerðar til þess að hafa hendur
í hári ræningjanna.
Enginn árangur hefir orð-
ið af viðræðum þeim, er
fram hafa farið milli Tjekka
og Súdeten-Þjóðverja og virð-
ist bilið milli þeirra vera jafn
mikið og er samningaumleit-
anir hófust.
Fulltrúi Súdeten Þjóðverja,
Kunt, neitaði í gær að ganga
að tillögum Tjekka til mála-
miðlunar og kvað hann tillög-
urnar á engan hátt vera þess
eðlis að Súdettar gætu við
þær unað.
Tillögumar, sagði Kunt,
eru ekkert annað en gömul
ákvæði og ef þær yrðu sam-
þyktar, veita þær Súdettum
ekki þann rjett, sem þeir hafa
fyrst og fremst farið fram
á, en það er jafnrjetti við
aðra borgara í Tjekkóslóvak-
íu.
Ef farið væri eftir tillögum
Tjekka, hefðu þeir eftir sem
áður yfirstjóm allra málefna
Súdeten-Þjóðverja, en það
mun aftur hafa í för með sjer
stríðshættu.
Fulltrúi Súdetta sagði, að
flokksmenn hans væru reiðu-
búnir að halda samningauin-
leitunum áfram. Talið er þó
óiíklegt, að Tjekkar og Sú-
dettar geti komið sjer saman
um lausn deilunnar.
Enska blaðið „Daily Tele
graph“ skýrir frá því, að
Hitler muni kref jast þess, að
atkvæðagreiðsla verði lát.in
fram fara meðal Súdetta um
Khöfn í gær.
hvort þeir vilji sameinast
Þýskalandi, áður en hausther-
æfingum Þjóðverja er lokið.
London í gær. FÚ.
Runciman lávarður fór frá
Prag í dag til fundar við
Henlein, leiðtoga Súdeten
Þjóðverja. Ræddust þeir við
í kastala, sem er miðja vegu
milli Prag og landamæra-
borgar þeirrar sem Henlein
býr í. Tveir aðrir leiðtogar
Sudeten-Þjóðverja voru við-
staddir, Kundy og Franck.
I lok viðræðna þeirra, sem
fram fóru í gær milli full-
trúa Prag-stjómarinnar og
Sudeten-Þjóðverja, varð það
að samkomulagi, að halda
samkomulagsumleitunum á-
fram, en alment er litið svo
á, að enn hafi lítið sem ekki
miðað í áttina til samkomu-
lags.
Þrátt fyrir það er litið svo
á, að tilraunir Runcimans lá-
varðs hafi borið nokkurn ár
angur, hann hafi komið því
til leiðar, að Súdeten-Þjóð-
verjar hafi borið kröfur sín-
ar fram af meiri hógværð, en
þeir myndu hafa gert, ef
hann hefði engin afskifti haft
af málum þeirra, og eins er
litið svo á, að hann hafi
komíð því til leiðar, að
Tjekkar væru fúsari til þess
að íhuga nánara ýmsar kröf-
ur Súdeten-Þjóðverja. Það er
búist við, að Runciman lá-
varður muni koma aftur til
Prag í kvöld.
Veiðiveður
spillist
Alls hafa komið hingað 17
skip síðasta sólarhringinn,
með um 6 þúsund mál, símar
frjettaritari vor á Siglufirði í
gær.
Bíða öll þessi skip eftir lönd-
un. Mestan afla hafði Eld^org-
in, 2200 mál.
Alls voru saltaðar 3329 tunn-
ur; í reknet veiddust 1091 tn.
I gærkvöldi var kominn NA-
stormur á miðunum og ekkert
veiðiveður. Fjöldi skipa leitaði
hafna vegna veðurs.
Sallfisksala Norð-
manna til Poriugal
Khöfn í gær. FÚ.
orðmenn hafa nýlega selt
sex miljón kg. af saltfiski
til Portúgal, og á afhending
fiskjarins að fara fram, þegar
'nokkuð kemur fram á haustið.
Italir ætla sjálfir
að veiða allan
sinn fisk
Khöfn í gær. FÚ.
orseti iðnaðarsambands fas-
cista á Ítalíu tilkynnir op-
inberlega í boðskap til þjóðar-
innar nú fyrir nokkru, að áætl-
anirnar um það, að Ítalía geti
bráðlega fullnægt fiskiþörf
sinni, og muni geta komið til
framkvæmda áður en langt um
líður.
í tilkynningunni segir meðal
annars frá því að innan skams
muni 1500 nýir mótorbátar bæt-
ast við fiskiflota ítala.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband í Kaupmanna-
höfn af síra Ilauk Gíslasyni, ung-
frú Sigríður Einarsdóttir frá Mið-
dal og Guðni Jónsson mágister.
Frú Jósefína Johanson frá
Winnipeg var meðal farþega á
Brúarfossi síðasl. Hún dvelur hjá
dóttur sinni á Seljalandsveg T3,
Kringlumýri.
Ólafur Gíslason
stórkaupmaður
fimtugur
Olafur Gíslason stórkaupmað-
ur á fimtugsafmæli í dag.
j 15 ár hefir hann rekið heild-
verslun í fjelagi við Einar Pjet-
ursson. Fluttist hann ungur liing-
að til bæjarins austan frá Eyr-
arbakka, og vann um skpið við
verslun Th. Thorsteinsson, en síð-
an hjá Sigurjóni Pjeturssyni &
Co,, uns hanu stofnaði eigin firma.
Heildverslun Olafs Gíslasongr
& Go. hefir haft á hendi bæði xit-
flutning og sölu á íslenskum af-
urðum og innflutning á ýmsum
nauðsynjavörum, kolum, salti og
öðru, sem keypt er í stórkaupum.
Hefir versluninni farnast vel, enda
Iiefir hún notið lipnrðar og dugu-
aðar Oiafs. Er hann að allra dómi
ágætur kaupmaður og drengur
hinn besti, enda finna menn það
strax við fyrstu kynni, að Ólaf-
ur er maður staðfastur og áreið-
anlegur, maður, sem hægt er að
treysta. Hann hefir það viðmót,
sem öllum, er viðskifti reka, er
hinn rnesti styrkur, er sýnir, að
honum er ánægja að því að geta
greitt götu hvers manns, er til
hans leitar.
Slíkum mönnum farnast vel.
Og þeir eiga það skilið.
Þýskir flugmenn
heiðraðir af
Frökkum
London í gær. FÚ.
itler og yfirmaður frakk-
neska flughersins, sem nú
er í heimsókn 1 Þýskalandi,
ræddust við í dag.
Þýsku blöðin ræða mjög mik-
ið í dag um þennan franska her
foringja og fara um hann miklu
’lofsorði.
Tilefni þess virðist einkum
vera það, að er honum var kunn
ugt um að flugmenn þeir, sem
stjórnuðu flugvjelinni, sem
hann flaug í til Leipzig voru
hinir sömu, sem nýlega settu
hið glæsilega met í flugi milli
New York og Berlín, heiðraði
hann þá, með því að sæma þá
frönskum heiðursmerkjum. —
Með herforingjanum voru tveir
franskir yfirforingjar, sem báru
einkennismerki sín og tók hers-
höfðinginn þau og nældi á
jakka hinna þýsku flugmanna.
Þykir þýskum blöðum fram-
koma hins franska herforingja
bera vott um mikinn riddara-
skap og velvild.